Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                     Sixties í kvöld                                             !"#$%&'(')   COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart Óperustúdíó Austurlands Stjórnandi Keith Reed Í dag kl 17 - Síðasta sýning Stóra svið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is KÆRU LEIKHÚSGESTIR Við í Borgarleikhúsinu viljum þakka ykkur öllum fyrir komuna í vetur. Þetta voru ánægjulegar samverustundir. Nú förum við í smá sumarfrí og hlöðum batteríin. Nýtt leikár hefst 1. september. Það verður fjölbreytt, frumlegt, fyndið og fullt af freistingum! Við hlökkum til endurfundanna. Guðjón Pedersen, leikhússtjóri ÞEIR Gallagher-bræður, Noel og Liam, hlutu í vöggugjöf þann miður skemmtilega ávana að vera ætíð mjög uppsigað við kollega sína í tón- listargeiranum. Hvorugur þeirra hefur vílað fyrir sér að láta í ljós andúð sína á hin- um og þessum, sem jafnan eru skreytt nokkrum vel völdum blóts- yrðum. Nú er það rapparinn Em- inem sem reynir eitthvað á taugar Noels. Og ástæðan, jú hann er of upptekinn af sjálfum sér. „Ég meina, hann syngur ekki um neitt annað en sitt eigið líf, kon- una sína og mömmu sína. Hverjum er ekki skítsama? Reyndu að komast yfir þetta, maður!“ sagði hinn hressi- legi Noel í viðtali á dögunum. Þar með var hann þó ekki alveg búinn að tæma úr reiðiskálum sínum því í kjölfarið fylgdu með skilaboð til forsprakka Radiohead, Thom Yorke: „Hei, Thom Yorke, ísöldin er ekki á leiðinni. Þú ert ömurlegur!“ Meiningin á bak við þessi skilaboð verður seint skýrð almennilega en án efa liggur djúp hugsun á bak við þau! Noel Gallagher tjáir Noel Gallagher sparar ekki stóru orðin. „Thom Yorke er ömurlegur“ sig um kollega sína BRANDUR Enni er 13 ára dreng- ur frá Færeyjum. Nafn hans þýðir eldur og eru miklar vonir bundnar við hann en hann þykir hafa alla eiginleika sem stórstjarna þarf að hafa, þrátt fyrir ungan aldur. Ný- verið gaf hann út fyrstu breiðskífu sína, Waiting in the Moonlight, þar sem margir af þekktustu laga- og textahöfundum Færeyinga leggja honum lið. Platan hefur hlotið mjög góðar viðtökur ná- granna okkar og er ráðgert að setja hana á markað á hinum Norðurlöndunum í kjölfarið. Í skóla í Hafnarfirði Á þjóðhátíðardegi okkar Íslend- inga ætlar Brandur að sækja land- ið heim og halda hér tvenna tón- leika. „Ég hef komið nokkrum sinnum til Íslands áður,“ sagði Brandur í samtali við Morgunblaðið. „Ég var meira að segja í skóla í Hafnarfirði í þrjár vikur einu sinni þegar ég kom þangað að spila.“ Brandur segist sjálfur hlusta mest á rokk- og popptónlist og meðal eftirlætistónlistarmanna hans eru Alicia Keys, Chicago, Michael Jackson og Tom Jones. Aðspurður segist Brandur hafa framtíðarplönin á hreinu: „Ég ætla að halda áfram að syngja um ókomna framtíð og ætla að reyna að koma mér á framfæri um heim allan,“ sagði hinn ungi Brandur rétt áður en hann lagði upp í Íslandsför sína. Skemmtir 17. júní Gunnar Christiansen er sér- legur aðstoðamaður Brands hér á landi og þekkir söguna af sam- starfi Brands og Íslendinga: „Samstarfið hófst á Færeyskum dögum sem haldnir voru fyrst hér á Fjörukránni árið 1999. Brandur hefur nú sungið tvisvar á Fær- eyskum dögum og hefur náð að tengjast Hafnfirðingum vel. Sér- staklega eftir að hann settist hér á skólabekk í nokkrar vikur,“ sagði Gunnar. Tónleikar Brands Enni fara fram 17. júní, eins og áður sagði, annars vegar á Arnarhóli klukkan 15.30 og hinsvegar á hátíðarsvæð- inu í Hafnarfirði klukkan 20.30. Eldur frá Færeyjum Eldur og ís; Brandur Enni. Færeysk poppstjarna heldur hér tónleika 17. júní Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is AÐDÁENDUR trans- hústónlistar hafa fengið mikinn hvalreka á sínar fjörur því krónprins dans- gólfa Evrópu, Sander Kleinenberg, er staddur hér á landi og mun spila á Gauki á Stöng í kvöld á einum af hinum svoköll- uðu Electrolux- viðburðum. Kleinenberg kemur frá Haag í Hollandi, sem oft hefur verið nefnd óformlegar höfuðstöðvar dans- tónlistar. Hann var aðeins 15 ára þegar hann hóf að þeyta skífur af miklum móð og var fyrr en varði orðinn einn vinsælasti plötusnúður í heimalandi sínu. Kleinenberg hefur þó ekki aðeins getið sér gott orð sem skífuþeytir held- ur einnig sem upp- tökustjóri. Hann hefur gefið út tónlist hjá nokkrum hljómplötufyrirtækjum beggja vegna Atlantshafs og telja sérfróðir að lag hans „My Lexicon“ sé eitt mest selda og langlífasta klúbbalag seinni ára. Það er kollegi Kleinenberg, Grét- ar G., sem sér um upphitun á Electrolux og mun stíga inn í búrið eftir kl. 23. Miðaverð er 1.500 krón- ur. Plötusnúðurinn Klein- enberg snýr skífum á Gauki á Stöng í kvöld. Hristir upp í Íslendingum Sander Kleinenberg á Electrolux-kvöldi LIÐSMENN strákasveitarinnar A1 segj- ast vera orðnir langþreyttir á að vera rugl- að saman við steikarsósu! Já, drengirnir lögðu upp í fyrirhugaða frægðarför til Bandaríkjanna á dögunum og var boðið hlutverk í þáttaröðinni The Young and the Restless. Frami í fyrirheitna landinu virðist þó eitthvað standa á sér því fjölmiðlamenn þar ytra virðast einungis spenntir að vita hvers vegna þeir heiti í höfuðið á steik- arsósu. A1 er nefnilega einnig nafn á einni mest notuðu steikarsósu í Bandaríkjunum og er eins og svo margt annað „til á hverju heimili“. Það eru því ekki tónlistarhæfileikar strákana sem fólk hefur áhuga á heldur tenging þeirra við sósuna góðu. Einn fjórmenninganna í A1-sveitinni, það er að segja Mark, sagði um málið: „Það halda allir að við heitum eftir þessarri sósu. Fólk er alltaf að koma upp að okkur og spyrja hvort við séum ekki þessir sósu- gaurar!“ Strákasveitin A1 Ruglað saman við steikarsósu Sósustrákarnir í A1.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.