Morgunblaðið - 16.06.2002, Side 60

Morgunblaðið - 16.06.2002, Side 60
60 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Sun & þri. kl. 4, 6 og 8. Vit 379 17 júní kl. 6 og 8. Þri kl. 4, 6 og 8. Hann ætlar að reyna hið óhugsandi. Alls ekkert kynlíf í 40 daga og 40 nætur. Drepfyndin grínmynd með hinum ómótstæðilega Josh Hartnett. STUART TOWNSEND AALIYAH Sýnd kl. 10.10. B. i. 16. Vit 377. ALI G INDAHOUSE Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 385. Sýnd Kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 387. 17. júní kl. 6, 8 og 10.10. Þri kl. 4, 6, 8 og 10.10. Frumsýning Sunnudag kl. 2. Ísl tal. Vit 358.Sunnudag kl. 2. Ísl tal. Vit 370.  DV Sunnudag kl. 2. Ísl tal. Vit 338 Þær eru fjarska fallegar En ekki koma of nálægt Sun & þri. kl. 4, 6, 8 og 10.10. 17. júní 6, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 382. Sýnd kl. 2, 4 og 6. 17. júní kl. 6. Þri. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 389. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Vit 393. 17. júní kl. 6, 8 og 10.10. Þri 4, 6, 8 og 10.10. Einnig sýnd í lúxussal VIP Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit nr. 393. Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein” af stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell! Sun. 8. Mán 5.45. Þri. 5.45 og 8. ÓHT Rás 2 1/2HK DV HL Mbl Kvikmyndir.com Óskarsverðlaunahafarnir Kevin Costner og Kathy Bates fara á kostum í dularfullum og yfirnáttúruleg- um trylli í anda THE SIXTH SENSE. ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR... ER HANN ÞÁ HORFINN AÐ EILÍFU? Sun. og þri. kl. 10.15. Mán 8. Bi 16. HK DV HJ Mbl MULLHOLLAND DRIVE Nýjasta snilldarverkið frá meistaranum drepfyndna... hinum eina sanna Woody Allen. Ný ímynd, nýr Allen. Ath!Áhorfendur verða dáleiddir af hlátri.  kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2  Strik.is Sunnudagur kl. 4, 6, 8 og 10.15. Mánud. & þriðjud. kl. 6, 8 og 10.15. Sunnudagur kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16. Mánud. & þriðjud. kl. 6, 8 og 10. Ástin stingur. Frábær teiknimynd fyrir alla fjölskyduna. Með íslensku tali. Þau drukku safa sem neyddi þau til að kafa. f i til f . Frumsýning Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sunnudagur kl. 4 og 6. Mánudagur & þriðjudagur kl. 6. Íslenskt tal. Loksins er Sly Stallone kominn í góða gamla Rambó gírinn aftur. Rafmagnaður spennuhasar frá upphafi til enda. Að lifa af getur reynst dýrkeypt. Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12. Sun kl. 6. Mán kl. 10.30. ÞESSA dagana standa yfir breyt- ingar á högum Ungfrú Ísland.is keppninnar sem haldin hefur verið þrisvar hér á landi. Eigendur keppninnar gerðu fyr- ir skömmu samning við William Morris Agency, bandaríska um- boðsskifstofu sem er umboðsaðili fyrir fjölda kunnra leikara og tón- listarmanna, Survivor- og banda- rísku Viltu vinna milljón-þættina og hefur staðið fyrir og skipulagt stóra viðburði og verðlaunaathafn- ir á borði við MTV-verðlaunin. Í kjölfar þess var ákveðið að búa til nýja alþjóðlega keppni byggða á hugmyndinni í kringum íslensku Ungfrú Ísland.is og segir Ásta Kristjánsdóttir, einn af stofn- endum keppninnar, að vonir standi til að fyrsta alþjóðlega keppnin geti farið fram á næsta ári. Ekki bara fegurðarsamkeppni „Hugmyndin er að sendir verði keppendur frá 30 löndum til keppninnar og þar af ein íslensk stelpa, sigurvegari Ungfrú Ís- land.is frá því árið á undan,“ sagði Ásta í samtali við Morgunblaðið. Þannig að ef af verður, að fyrsta alþjóðlega keppnin fari fram á komandi ári, mun Sólveig Zophoní- asdóttir keppa þar fyrir hönd Ís- lands. „Þeir hjá William Morris Agency keyptu hugmyndina að þessari alþjóðlegu keppni um leið enda eru þeir mjög hrifnir af fyr- irkomulagi hennar, og telja að hér sé á ferðinni bæði fersk og nýtísku- leg keppni. Enda er þetta ekki bara keppni heldur um leið alhliða tískuviðburður, þar sem margt annað verður í boði en keppnin sjálf, eins og tónlist, tískusýningar og annars konar hönnun.“ Ásta og Hendrikka Waage, sem var meðeigandi hennar að íslensku Ungfrú Ísland.is, hafa ákveðið að snúa sér alfarið að undirbúningi og framkvæmd hinnar nýju al- þjóðlegu keppni og hafa þar af leiðandi selt íslensku keppnina þeim Kristrúnu Sæbjörnsdóttur og Kristínu Hafdísi Jónsdóttur, sem báðar hafa komið nokkuð við sögu í íslenskum tískuheimi. Tískusýning 17. júní Segja þær Kristrún og Kristín enga breytingu í vændum á fram- kvæmd og útfærslu íslensku keppninnar. „Nýju fólki fylgja ávallt einhverjar breytingar en þau þrjú skipti sem keppnin hefur verið haldin hefur hún heppnast vel og vakið mikla athygli þannig að við sjáum litla ástæðu til að hrófla mikið við fyrirkomulaginu,“ segir Kristrún. „Við munum áfram leggja áherlsu á að keppnin sé ný- tískuleg, að tekið sé mið af innri fegurð ekki síður en ytri, stúlkur- nar mega vera giftar, mæður og að hér sé ekki á ferð nein kroppasýn- ing en keppendur hafa og munu ekki koma fram á sundfötum eins og tíðkast í annarri fegurðar- samkeppni.“ Þær Kristín segjast ennfremur hafa fullan hug á að haldið verði áfram að styðja við bakið á góðum málefnum og að farsælu samstarfi við Rauða krossinn muni t.d. verða framhaldið. Fyrsta verkefni þeirra með Rauða krossinum er tískusýning sem verður efnt til á morgun, 17. júní kl. 14 og 15, á Laugavegi 12, þar sem Týndi hlekkurinn var áð- ur til húsa. Þar hefur Rauði kross- inn opnað nýja verslun með not- aðan fatnað og munu fyrrverandi keppendur í Ungfrú Ísland.is að sjálfsögðu koma fram í notuðum en engu að síður glæsilegum fötum. Eigendaskipti á Ungfrú Ísland.is keppninni Nýir eigendir og framkvæmdaaðilar íslensku Ungfrú Ísland.is keppn- innar: Kristrún Sæbjörnsdóttir og Kristín Hafdís Jónsdóttir. Ný al- þjóðleg keppni á næsta ári skarpi@mbl.is MATARÆÐI leikarans Tobey Ma- guire hefur vakið nokkra athygli fjöl- miðla. Hann er nefnilega grænmet- isæta, sem ekki væri frásögum færandi nema fyrir þær sakir að honum finnst flest allt grænmeti vont. Maguire, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Köngulóarmaður- inn, segist ekki geta komið niður brokkolíi, svepp- um, kúrbít og spí- nati svo fátt eitt sé nefnt en segist þó vera mikið fyrir lauk. Maguire er þó hreint ekki að barma sér því hann segir sérviskuna gera lífið að meiri áskorun. Matvandi Maguire

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.