Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 64

Morgunblaðið - 16.06.2002, Page 64
JIANG Zemin Kínaforseti og fylgd- arlið hans ferðuðust um Suðurland í gær, en forsetinn heldur af landi brott í dag. Ferðin í gær hófst um klukkan hálf tíu við Hótel Loftleið- ir, en þar hitti Jiang Zemin starfs- menn kínverska sendiráðsins og aðra Kínverja búsetta á Íslandi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, var með í ferðinni, en henni var fyrst heitið á Nesjavelli í hús- næði Orkuveitunnar og þar tók Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráherra á móti Jiang Zemin, ásamt þeim Alfreð Þorsteinssyni stjórnar- formanni og Guðmundi Þórodds- syni forstjóra Orkuveitunnar. Val- gerður hélt ávarp þar sem hún sagði meðal annars að margar ástæður væru fyrir kínverska for- setann að heimsækja Orkuveituna. Hún nefndi að Ísland væri í forystu á sviði jarðhitavirkjana og Nesja- vallavirkjun sé ein fremsta jarð- hitavirkjun í heiminum. Kínverjar eigi mikinn jarðhita og hafi áhuga á að nýta hann og síðast en ekki síst sé Kínaforseti sjálfur verkfræð- ingur og hafi þess vegna sérstakan áhuga á þessum málum. Valgerður sagði að þrátt fyrir að það sé kostur að temja sér hógværð teldi hún að Kínverjar gætu nýtt sér þekkingu og reynslu Íslendinga af jarð- hitavirkjunum. Valgerður minntist á jarðhitasamningana sem Jiang Zemin ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson og sagðist vera ánægð með hversu vel Kínaforseti hefði tekið í samvinnu milli landanna á sviði jarðhita. Kínversku blaðamennirnir voru mjög áhugasamir um starfsemi Orkuveitunnar og forsetinn sjálfur spurði ýmissa spurninga um hana, þegar gengið var um húsið í leið- sögn Guðmundar Þóroddssonar. Eftir skoðunarferðina um virkjun- ina var farið upp að borholu 18 við Nesjavelli og hún skoðuð. Hádegisverður á Þingvöllum Þá var ferðinni heitið til Þing- valla þar sem Ólafur Ragnar Grímsson greindi frá sögu stað- arins. Eftir það var haldið í Ráð- herrabústaðinn þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra tók á móti Jiang Zemin. Að því loknu var gengið til hádegisverðar. Eftir há- degisverðinn var hvíldartími en síð- an var haldið áleiðis að Geysi og snaðnæmst þar, þá var ferðinni heitið að Gullfossi og þaðan til Reykjavíkur síðdegis í gær. Öll þau svæði sem forsetinn og fylgdarlið hans fóru um í gær voru lokuð meðan á ferð hans stóð og gífurleg öryggisgæsla var í tengslum við ferðina. Lítið bar á mótmælendum þegar Kínaforseti heimsótti Þingvelli. Sýndu orkuverinu mikinn áhuga Jiang Zemin og fylgdarlið hans ferðuðust um Suðurland í gær Morgunblaðið/Jim Smart Jiang Zemin og Ólafur Ragnar Grímsson virtu fyrir sér Þingvelli, sem skörtuðu sínu fegursta. Morgunblaðið/Þorkell Davíð Oddsson forsætisráðherra tók á móti Jiang Zemin, forseta Kína, í blíðskaparveðri. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. hér sérðu debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort og alþjóðlegt stúdentaskírteini. 4kort F í t o n / S Í A MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 19. júní. Fréttaþjónusta verður á mbl.is í dag og á morgun milli kl. 9 og 18. Þá er hægt að koma ábend- ingum á framfæri í síma 861 7970 alla helgina. DEILD innan norska orkufyrirtæk- isins Norsk Hydro, Norsk Hydro Electrolysers AS, mun framleiða og afhenda vetnisstöð fyrir Íslenska ný- orku vegna vetnisverkefnsisins hér á landi. Einnig framleiðir fyrirtækið vetnisstöðvar sem settar verða upp í Þýskalandi. Afhending á íslensku vetnisstöðinni verður á næsta ári og þá er ráðgert að þrír vetnis- strætisvagnar verði teknir í notkun í leiðakerfi Strætó bs. Jón Björn Skúlason, framkvæmda- stjóri Íslenskrar nýorku, segir ekki ljóst ennþá hvenær á næsta ári stöðin verði reist, en hún sé ólík þeim sem framleiddar verða fyrir Þýskaland að því leyti að hún verður sett upp á einni af bensínstöðvum Skeljungs. Í Þýskalandi verða stöðvarnar hins vegar á athafnasvæðum strætis- vagnafyrirtækja og ekki aðgengileg- ar almenningi. Jón Björn er nýkominn frá ráð- stefnu á vegum Ballard í Kanada. Ballard er fyrirtæki sem hefur sér- hæft sig í þróun efnarafala, vetnisvélanna sem notaðar eru í vetn- isbílum. Fyrirtækið er að fjórðungi í eigu DaimlerChrysler og annar fjórð- ungur er í eigu Ford. „Ég sá frum- gerðina að strætisvögnunum sem hingað koma. Þar er verið að tilrauna- keyra vagn og miklar prófanir þurfa að fara fram áður en vagnar eru af- hentir til viðskiptavina,“ segir Jón Björn. Vetnið framleitt á staðnum Í stöðinni, sem verður sett upp hér- lendis, verður vetnið framleitt á staðnum. Jón Björn vill ekki gefa upp kaupverðið á stöðinni, sem keypt er til landsins í samstarfi við Skeljung. Hins vegar sé ljóst að þetta sé flókinn búnaður og ennþá mjög dýr meðan hann er ekki á fjöldaframleiðslustigi. Hægt verður að framleiða allt að 150 kg af vetni á dag . Vetnisstöð reist hér- lendis á næsta ári Tekinn á 195 km hraða ÁTJÁN ára ökumaður fólksbíls var tekinn á 195 km hraða í Öxnadal í fyrrinótt. Er það einn mesti hraði sem mælst hefur, að sögn lögregl- unnar á Akureyri, en alls voru 13 ökumenn stöðvaðir fyrir hraðakstur um miðjan Öxnadalinn. Pilturinn ók Volkswagen Golf á þessum hraða og var hann sviptur ökuleyfi til bráðabirgða á staðnum. Verður mál hans fært fyrir dómara en bráðabirgðasvipting gildir þar til dæmt hefur verið í málinu. Ökumað- urinn getur átt von á margra mánaða ökuleyfissviptingu og tugþúsunda króna sekt. Erilsamt var hjá lögreglunni á Ak- ureyri í fyrrinótt og gærmorgun og sagði lögreglan mikla umferð í og við bæinn. Þrír voru handteknir vegna gruns um að þeir hefðu fíkniefni í fórum sínum. Tvö umferðarslys urðu í fyrra- kvöld. Sjö ára stúlka á reiðhjóli meiddist á fæti er hún rakst utan í rútubíl og maður var fluttur á slysa- deild eftir að ekið var aftan á bíl sem hann var farþegi í. ÖLLUM iðkendum Falun Gong, sem hófu hungurverkfall á Charles de Gaulle-flugvellinum í París síðast- liðið fimmtudagskvöld eftir að þeim hafði verið meinað að fara um borð í flugvél Flugleiða til Íslands, var boð- ið að fara með síðdegisvélinni í gær, laugardag. Magnús Ásgeirsson, stöðvarstjóri Flugleiða í París, segist hafa fengið grænt ljós um að hleypa þessum ferðalöngum til Íslands eftir viðræð- ur forsvarsmanna Flugleiða á Ís- landi og íslenskra ráðamanna og hann vissi ekki betur en allir, sem hefði náðst í, hefðu tekið tilboðinu. Flugleiðir eru ekki með fastan af- greiðslustað á flugvellinum heldur færist afgreiðslan á milli borða eftir því sem aðstæður leyfa. Því hafi þessir iðkendur Falun-Gong í raun ekki verið í mótmælasvelti á yfir- ráðasvæði Flugleiða heldur á flug- vellinum sem slíkum. Um 30 manns var að ræða og hófst för þeirra í Bandaríkjunum. Fleiri iðkendur Falun Gong til Íslands Grænt ljós í París

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.