Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 10
10 C SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Heilsugæsla Rangárþings auglýsir Heilsugælsulæknir Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslu Rangáþings er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi viðurkenningu sem sér- fræðingur í heimilislækningum. Um er að ræða stöðu, sem unnin er bæði á Hellu og Hvolsvelli. Staðan er laus frá septemberbyrjun eða sam- kvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar veita Þórir B. Kolbeinsson, lækningaforstjóri, í síma 487 5123, Guðmundur Benediktsson, yfirlæknir, í síma 487 8126 eða Agnes Antonsdóttir, framkvæmdastjóri, í síma 487 8126. Umsóknum skal skilað á viðeigandi eyðublöðum, sem fást á skrifstofu landlæknis, til stjórnar Heilsugæslu Rangárþings, Öldu- bakka 4, 860 Hvolsvelli. Heilsugæsla Rangárþings starfrækir heilsugæslustöðvar á Hellu og Hvolsvelli. Þar starfa 3 læknar. Stöðvarnar eru vel búnar með góðri vinnuaðstöðu. Í sveitarfélögunum eru ný íþróttahús og sund- laugar. Þar er mjög barnvænt umhverfi með einsetnum skólum og leikskólapláss eru næg. Miklir útivistar- og tómstundamöguleikar, 18 holu golfvöllur, hestamennska, veiðar o.fl. Tónlistarskóli og öflugt kórastarf. Klukkustundarakstur er til Reykjavíkur. Vélavörður! Vélavörður óskast á Núp Ba 69 sem gerður er út á línuveiðar frá Patreksfirði. Þarf að geta leyst yfirvélstjóra af (1000 hö). Upplýsingar í símum 862 5767 og 862 5770. Rømø, Danmörku Matreiðslumaður Aðstoðarfólk á hótel og tjaldsvæði Hestaþjálfari-/leiðbeinandi Lausar eru stöður á Rømø í Vesterhavet, Dan- mörku. Þar er meðalstórt einkahótel með hest- amiðstöð með íslenskum hestum (60), hóteli, tjaldsvæði og sumarlandi. Möguleiki á hús- næði. Hafið samband við Therese Thøgersen, Kommandørgården, sími 0045 7475 5122. tt@kommandoergaarden.dk www.kommandoergaarden.dk Grunnskóli Vesturbyggðar Vegna forfalla vantar kennara við Patreksskóla. Um er að ræða al- menna kennslu, handmennt og heimilisfræði. Einnig vantar stuðningsfulltrúa í Birkimelsskóla og Patreksskóla. Upplýsingar veita Ragnhildur Einarsdóttir, skólastjóri, í s. 691 5041 og Nanna Sjöfn Pét- ursdóttir, aðstoðarskólastjóri, í s. 864 1424. Afgreiðslustarf Ertu jákvæð og snyrtileg, með góða þjónustu- lund og hefur áhuga á að vinna með fólki? Ef svo er, höfum við eitthvað fyrir þig. Óskum eftir að ráða starfskraft til almennrar þjónustu í líflegu umhverfi hársnyrtistofunnar Primadonnu. Allar nánari upplýsingar veitir Erla í s. 863 7794. Flugvirki Óskum eftir flugvirkja til starfa í viðhaldsstöð Íslandsflugs á Keflavíkurflugvelli frá 1. septem- ber. Réttindi á Boing 737-300 áskilin. Viðkom- andi þarf að hafa nokkurra ára reynslu af þess- ari flugvélartegund og geta starfað sjálfstætt. Umsóknir sendist til viðhaldsdeildar Íslands- flugs, Reykjavíkurflugvelli. Upplýsingar í síma 570 8021. Starf með unglingum Unglingaathvarf á Amtmannsstíg 5a óskar eftir starfsmanni í 46% kvöldstarf. Mikilvægt er að umsækjendur hafi menntun og/eða reynslu sem nýtist í skapandi meðferðarstarfi með ung- lingum. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 552 6945/822 3070 frá og með 19. ágúst. Hrafnista í Reykjavík Læknar Óskum eftir að ráða lækni í 50% starfs- hlutfall frá 1. september eða samkvæmt samkomulagi. Á hjúkrunar- og dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík búa 309 aldraðir. Á Hrafnistu er vel búin endurhæfingardeild. Bakvakt lækna er sameiginleg með heimilum Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Æskilegt er að viðkomandi læknir hafi sérfræðiviðurkenningu í öldrunar-, lyf- eða heimilislækningum. Nánari upplýsingar veitir lækningafor- stjóri, Aðalsteinn Guðmundsson, í síma 585 9368 eða 585 9521. Félagsstofnun stúdenta á og rekur leikskólana Sólgarð og Efrihlíð en rekur Mánagarð samkvæmt samningi við Reykjavíkurborg. FS er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. Að henni standa stúdentar innan Háskóla Íslands, HÍ og menntamálaráðuneytið. Auk leikskólanna rekur FS Bóksölu stúdenta, Stúdentagarða, Kaffistofur stúdenta og Atvinnumiðstöð stúdenta. Sólgarður er þriggja deilda leikskóli fyrir sex mánaða til tveggja ára börn. Upplýsingar veitir Sólveig Gunnarsdóttir leikskólastjóri í síma 590 4900. Á leikskólann vantar: Deildarstjóra og leikskólakennara eða annað starfsfólk sem áhuga hefur á starfi með börnum. Starfsfólk á leikskóla Menntamálaráðuneytið Íþróttafulltrúi menntamálaráðuneytis Starf íþróttafulltrúa menntamálaráðuneytis er laust til umsóknar. Íþróttafulltrúi skal einkum vinna að íþróttamál- um sem eru á verksviði ráðuneytisins. Háskóla- menntun á sviði íþrótta er nauðsynleg. Þekking og reynsla af stjórnunarstörfum æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Laun greiðast skv. launakerfi starfsmanna ríkis- ins. Upplýsingar veitir Karitas H. Gunnarsdóttir skrifstofu menningarmála. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 6. september 2002. Menntamálaráðuneytið, 16. ágúst 2002 menntamalaraduneyti.is . Styrktarfélag vangefinna Lyngás vantar þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa til starfa Lyngás, Safamýri 5, er dagvist fyrir börn og unglinga með fötlun og veitir sér- hæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu. Í boði eru heilar stöður og 50—60% stöð- ur eftir hádegi. Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi Þroskaþjálfafélags Íslands og Starfs- mannafélags ríkisstofnana. Upplýsingar gefa Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri, s. 551 5987 og Þórunn Böðvarsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á Lyngási, s. 553 8228. Heiðarskóli Borgarfirði Auglýst er eftir kennara í almenna kennslu. Einnig smíðakennara í hlutastarf. Leiguhúsnæði á staðnum. Uppl. veita Haraldur í s. 433 8920/893 9920 og Helga í s. 433 8921/695 2262. Í Heiðarskóla eru 115 nem. Skólinn er í um 20 km fjarlægð frá Akra- nesi og Borgarnesi og 45 km fjarl. frá miðbæ Reykjavíkur. Kvenfataverslun Vegna aukinna umsvifa leitar verslunin Stasia í Kringlunni eftir starfsmönnum. Við leitum að einum starfsmanni hálfan daginn eftir hádegi og auk þess leitum við að helgar- starfsfólki. Starfsmenn okkar þurfa að vera eldri en 25 ára, geta hafið störf strax/fljótlega og vera hressir og kátir í framkomu. Áhugasamir hafi samband við Rósu í síma 568 1626 í síðasta lagi 21. ágúst.                        Hársnyrtar — tækifæri Rótgróin hársnyrtistofa við Laugaveg óskar eftir meðeiganda eða aðila til að leigja stól. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður, ábyrgur og áhugasamur. Upplýsingar í símum 8617816 og 694 2304. „Au pair“ — Holland Hollensk/íslensk fjölskylda með tvo drengi óskar eftir barngóðri „au pair“ til að gæta yngri drengsins og sinna léttum heimilisstörfum. Þarf að geta byrjað sem fyrst og hafa bílpróf. Upplýsingar í síma 553 3221.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.