Morgunblaðið - 25.08.2002, Page 2

Morgunblaðið - 25.08.2002, Page 2
2 C SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær Búsetu- og öldrunardeildir Iðjuþjálfar Lausar eru til umsóknar þrjár 50 % stöður iðjuþjálfa hjá Búsetu- og öldrunardeildum Akureyrarbæjar: Við öldrunarstofnanir Akureyrarbæjar eru lausar til umsóknar tvær 50% stöður iðjuþjálfa. Störf þessi eru ný og verða hlutverk iðjuþjálf- anna m.a. eftirfarandi: ● mat og þjálfun íbúa í daglegum athöfnum, ● stuðla að fjölbreyttri iðju sem hæfir áhuga og færni íbúa, ● sjá um að útvega hentug hjálpartæki, ● miðla fræðslu og ráðgjöf til annarra starfs- manna. Akureyrarbær rekur umfangsmikla öldrunarþjónustu bæði innan og utan stofnanna. Stofnanirnar eru Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð þar sem eru 82 hjúkrunarrými og 42 dvalarrými, Heimili aldraðra í Kjarnalundi þar sem eru 48 dvalarrými og sambýli aldraðra við Bakkahlíð en þar eru 8 hjúkrunarrými. Að auki er starfrækt dagvist í tengslum við dvalarheimilið Hlíð og rými þar eru 8. Fjöldi starfsmanna stofnananna er um 200. Við heimaþjónustu Akureyrarbæjar er laus til umsóknar ein 50% staða iðjuþjálfa. Þjónusta iðjuþjálfa hefur verið hluti af heimaþjónustu bæjarins undanfarin ár og eru þessi verkefni helst: ● taka á móti tilvísunum og aðstoða við þjón- ustumat í heimahúsum ● sjá um að útvega hentug hjálpartæki ● stuðla að þróun þjónustunnar ● miðla fræðslu og ráðgjöf til annarra starfs- manna o.fl. Æskilegt er að starfsmenn geti hafið störf sem fyrst, annars eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar um störfin veitir Brit J. Bieltvedt, deildarstjóri Búsetu- og öldrunardeilda í síma 462 7930 f. h. og síma 460 1410 e. h. Laun eru skv. gildandi kjarasamningum við- komandi stéttarfélags, frekari upplýsingar um launakjör fást á starfsmannadeild Akureyrar- bæjar í síma 460 1060. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingaanddyrir Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 og á heimasíðu bæjarins: www.akureyri.is . Umsóknir skulu berast á Búsetudeild, Glerár- götu 26 eða á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð, Austurbyggð 17, 600 Akureyri, fyrir 4. september 2002. Iðjuþjálfar óskast á geðdeildir. Um er að ræða störf á móttökudeildum v. Hringbraut og á nýuppgerðri endurhæfingardeild, Arnarholti. Á móttökudeildunum meta iðjuþjálfar m.a. færni einstaklinga, undirbúa þá fyrir útskrift eða tengja öðrum úrræðum. Starf iðjuþjálfa á Arnarholti felst í því að meta færni/ þjónustuþörf og auka sjálfstæði og lífsgæði þeirra sem eiga við króníska geðsjúkdóma að stríða. Óskum eftir sjálfstæðum, hugmyndaríkum og áræðnum einstaklingum með góða samskiptahæfileika. Faghandleiðsla fyrir þá sem þess óska. Iðjuþjálfar með réttindi til að nota matsaðferðir AMPS eða A-ONE ganga fyrir. Upplýsingar veitir Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi, í síma 543 4004, netfang ebba@landspitali.is Aðstoðarmenn iðjuþjálfa óskast á geðdeildir. Vinna í iðjuþjálfun gefur dýrmæta undirstöðu fyrir framtíðarmenntun og störf. Leitum eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að afla sér reynslu í mannlegum samskiptum og efla eigin þroska. Upplýsingar veita yfiriðjuþjálfarnir Sylviane Pétursson í síma 543 4420/2143, netfang sylviane@landspitali.is og Fanney Karlsdóttir í síma 543 4251/52, netfang fanneybk@landspitali.is Félagsráðgjafi óskast til starfa í 6 mánuði á Barna- og unglingageðdeild frá og með 15. sept. n.k. eða samkvæmt samkomulagi. Félagsráðgjafarmenntun áskilin, reynsla í starfi og þekking á fjölskylduvinnu æskileg. Starfið felst m.a. í að skipuleggja samvinnu við fjölskyldur unglinga og veita ráðgjöf og meðferð þegar við á. Upplýsingar veita Sveinbjörg J. Svavarsdóttir, forstöðufélagsráðgjafi, í síma 543 4200, netfang sveinbsv@landspitali.is og Hrefna Ólafsdóttir, yfirfélagsráðgjafi, í síma 543 4300, netfang hrefnaol@landspitali.is Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er til 9. september n.k. nema annað sé tilgreint. Stál-orka ehf., Hafnarfirði Atvinna í boði. Óskum eftir að ráða járnsmiði til starfa strax. Þurfa að vera vanir skipavið- gerðum og helst með sveinspróf. Upplýsingar gefur Benedikt í síma 565 0399 á mánudag milli kl. 16.00 til 18.00. Til sölu í Mývatnssveit Fasteign að Reykjahlíð 2, 56 m2, við Hótel Reykjahlíð. Fasteignamatsnúmer 2116-3142. Byggingin er seld í því ástandi sem hún er í og skal kaupandi fjarlægja hana af svæðinu fyrir 1. október 2002. Eignin er til sýnis á staðnum. Upplýsingar fást hjá Guðmundi Tryggva Sigurðssyni, Olíufélaginu ehf., í síma 560 3300. WWW.SELSTAD.NO SELSTAD er leiðandi veiðarfæraframleiðandi fyrir heims- markað. Fyrirtækið rekur starfsstöðvar á helstu útgerðar- stöðum á vestuströnd Noregs auk þess sem ein starfsstöð er rekin í Danmörku. Selstad er einnig stærsti hluthafi í ICEDAN ehf, sem rekur fjórar starfsstöðvar á Íslandi og eina í Kanada. Selstad AS í Måløy, Noregi óskar eftir að ráða        Óskum eftir að ráða til okkar netagerðar- meistara eða starfskraft vanan netagerð í framtíðarstarf í Noregi sem fyrst. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu í nýju 3.200 m² framleiðsluhúsnæði í næst stærstu fiskihöfn Noregs, Måløy. Fyrir- tækið mun aðstoða eftir fremsta megni með að finna hentugt leiguhúsnæði. Måløy er stærsti bærinn innan Vågsøy sýslunnar á vesturströnd Noreges. Þar búa alls 6.500 manns og þar eru góðir leik- og menntaskólar, mikil menning og tómstundarmöguleikar í fallegu um- hverfi. Hafir þú spurningar um starfið er hægt að hafa samband við Håkon Vederhus í síma 0047 90 99 95 35 eða Ólaf Steinars- son í síma 550 8400. Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendar til: Selstad AS, PO Box 163, N-6701 Måløy, Norge. Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2002.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.