Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 C 5 Laus er til umsóknar staða sérfræðings í fæðingarfræði og kvensjúkdómum við Miðstöð mæðraverndar. Miðstöð mæðraverndar er miðstöð fyrir áhættu- meðgöngur sem og ráðgjafamiðstöð fyrir Heilsugæsluna um málefni er varða mæðra- vernd. Þar á að fara fram kennsla fagstétta í mæðravernd, bæði lækna- og ljósmæðranema, auk rannsóknar- og þróunarvinnu um málefni mæðraverndar. Upplýsingar veitir Arnar Hauksson, yfirlæknir Miðstöðvar Mæðraverndar, í síma 585-1400, tölvupóstfang Arnar.Hauksson@hr.is Umsóknaeyðublöð fást hjá starfsmannasviði. Með auglýsingu þessari er framlengdur áður auglýstur umsóknarfrestur um stöðu sérfræðings í fæðingarfræði og kvensjúkdómum við Miðstöð mæðraverndar sem birtist í Morgunblaðinu þann 3. ágúst 2002. Umsóknir um stöðuna sendist ásamt náms- og starfsferilsskrá (curriculum vitae) og ritskrá umsækjanda til Starfsmannasviðs Heilsugæslunnar, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík fyrir 30. september n.k. Reykjavík, 25. ágúst 2002. Staða sérfræðings í fæðingarfræði og kvensjúkdómum viðMiðstöð mæðraverndar Heilsugæslan, Starfsmannasvið Barónsstíg 47, 101 Reykjavík www.hr.is Bókasafnsfræðingur Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum, Ölfusi, aug- lýsir stöðu bókavarðar við bókasafn skólans lausa til umsóknar. Krafist er bókasafnsfræði- menntunar á háskólastigi. Starfsreynsla við skólabókasöfn og/eða rannsóknabókasöfn áskilin. Reynsla af tölvuskráningu bókasafna æskileg. Í starfinu felst m.a. flokkun og umsjón með bóka- og tímaritakosti skólans og aðstoð við nemendur og starfsmenn við útvegun gagna. Starfið krefst góðrar færni í íslensku og ensku, samskiptahæfileika, skipulagshæfni, frum- kvæðis, góðra hugmynda og úrlausna sem fylgt er eftir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um hlutastarf (60%) er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir, með ítarlegum upplýsingum um nám og fyrri störf og öðrum upplýsingum, sem umsækjandi vill koma á framfæri, sendist til skólameistara Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykj- um, Ölfusi, 810 Hveragerði, fyrir 9. sept. nk. sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir, þar sem umsækjandi óskar nafn- leyndar, verða ekki teknar gildar. Garðyrkjuskólinn er framsækin rannsókna- og fræðslustofnun skipuð öflugu starfsfólki. Starfsmannastefna skólans miðar að jafnri stöðu kynjanna og að efla möguleika starfsmanna til endurmenntunar og þróunar í starfi. GULLSMÁRI - ÞJÁLFARI Laust er til umsóknar starf við líkams- þjálfun á vegum Félagsstarfs aldraðra í Kópavogi. Hæfniskröfur: • Sjúkraþjálfara- og/eða íþróttakennara- menntun • Færni í mannlegum samskiptum • Skipulagshæfileikar Starfssvið: • að hafa umsjón með almennri líkams- þjálfun og sjúkraleikfimi í Félagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára 13 og sjúkra- leikfimi í Félagsheimilinu Gjábakka, Fannborg 8 Á síðasta ári voru þrír hópar sem nutu þjálfunar á mánudögum og miðvikudögum fyrir hádegi. Greitt hefur verið fyrir þetta starf skv. verktaka- samningi. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf svo og launakröfum ber að skila merktar Forstöðumanni félagsstarfs aldraðra í Gjábakka, Fannborg 8, eða Gullsmára, Gullsmára 13, fyrir kl. 17.00 föstudaginn 30. ágúst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 554 3400 milli kl. 10.30-11.00 virka daga. KÓPAVOGSBÆR OD DI HF I7 13 8 Sími: 430 9000 • Fax 430 9090 • Netfang: lmi@lmi.is • Veffang: www.lmi.is Stillholti 16-18 • 300 Akranes KORTASALA SÖLUSTÖRF Laust er til umsóknar hjá Landmælingum Íslands á Akranesi starf við sölu og dreifingu korta. Leitað er eftir duglegum og samviskusömum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni. Æskilegt er að umsækjendur séu búsettir á Akranesi eða nágrenni. Ábyrgðar- og starfssvið: - Almenn sölustörf tengd vörum LMÍ - Móttaka pantana, þ.m.t. vefpantana og gerð reikninga - Samskipti við innlenda og erlenda viðskiptamenn - Vinna við kortalager og umsjón með innsetningu korta í kápur - Pökkun og dreifing á vörum LMÍ Menntunar- og hæfniskröfur: - Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg - Reynsla af sölu- og markaðsstörfum - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - Góð tölvuþekking - Góð enskukunnátta Umsóknir merktar starfi er greini frá menntun og reynslu skulu berast til Landmælinga Íslands fyrir 6. september 2002. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar gefur Jensína Valdimarsdóttir í síma 430 9000 (jensina@lmi.is). Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík Gylfaflöt — dagþjónusta Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík er með glæsilega dagþjónustu í Grafarvogin- um, fyrir ungt fatlað fólk. Í haust verður tekinn í notkun nýr hluti þar sem áhersla verður lögð á dagþjónustu fyrir einhverfa. Markmið starfsins er að efla lífsleikni ung- mennanna. Í því sambandi er lögð áhersla á mikilvægi virðingar, samvinnu, hvatningar, getu sjálfstyrkingar og frumkvæðis. Við leitum að áhugasömum einstaklingum sem óska eftir að vinna á fjölbreyttum vinnustað. Við leggjum áherslu á hæfni í mannlegum samskiptum og þekkingu á málefnum fatlaðra. Um er að ræða heilar stöður, en þó er mögu- leiki á hlutastarfi eftir hádegi. Ráðning verður sem fyrst. Óskað er eftir: Þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Dag- björg Baldursdóttir, forstöðumaður í síma 567 3155. Umsóknir skulu berast Svæðisskrifstofu Reykjavíkur, Síðumúla 39, 108 Reykjavík. Um- sóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Þ.Í. eða SFR og fjármálaráðuneytistins. Umsóknarfrestur er til og með 6. sept. 2002.  Óskum eftir að komast í samband við fasteignasala með löggildingu, sem hefði áhuga á stofnun fasteignasölu. Aðstaða og tækjabúnaður fyrir hendi. Fjallað verður um umsóknir sem trúnað- armál. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist augldeild Morgunblaðsins fyrir föstudaginn 30. ágúst merktar: „Fasteignasala — 12652“. Bifreiðasmiður Réttingaverkstæði Þórarins óskar eftir bifreiðasmið eða manni vönum bifreiða- réttingum til starfa. Upplýsingar í símum 552 5780 og 893 7277. Afgreiðslufólk Leitum að ábyrgum og hressum einstaklingum til starfa í Bianco-verslunum okkar í Smáralind og Kringlunni. Vinnutíminn er frá kl. 12.00— 19.00 virka daga. Umsóknum skal skila fyrir 3. september í aðra hvora búðina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.