Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 4
4 C SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nokkrar stöður eru lausar við leikskólann.
Óskað er eftir:
Aðstoðarleikskólastjóra
Deildarstjórum
Leikskólakennurum eða starfsmönnum með aðra menntun
og/eða reynslu
Yfirmanni í eldhús
Störfin henta körlum ekki síður en konum.
Leitað er að starfsfólki sem er tilbúið til að taka þátt í
uppbyggingu nýs leikskóla þar sem frumkvæði og
sköpunargleði fá að njóta sín. Lögð er áhersla á færni í
samskiptum og jákvæðni.
Nánari upplýsingar veita Guðný Hjálmarsdóttir
leikskólastjóri í síma 849 6737, ellerti@isl.is og
Auður Jónsdóttir starfsmannafulltrúi í síma 563 5800.
Nýr leikskóli við Maríubaug
í Grafarholti
Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur,
Tryggvagötu 17, og á vefsvæði www.leikskolar.is
Háskóli Íslands
Læknadeild
Starf þjónustusérfræðings innan Lækna-
deildar Háskóla Íslands (læknisfræðiskor) er
laust til umsóknar. Um er að ræða starf sem
beinist að rannsóknum og sérfræðistörfum
eftir háskólapróf (postgraduate research fell-
ow). Umsækjendur skulu því hafa lokið háskól-
aprófi, en læknismenntun er ekki skilyrði. Gert
er ráð fyrir að starfinu verði ráðstafað til
tveggja ára, frá 1. desember 2002.
Umsókn fylgi rannsóknaáætlun á sviði rann-
sókna í læknisfræði eða á skyldu fræðasviði
með mikil tengsl við læknisfræði, ásamt um-
sögn þess kennara innan læknisfræðiskorar
sem umsækjandi hyggst starfa með. Þar þarf
að koma fram staðfesting á að starfsaðstaða
sé fyrir hendi og að annar kostnaður en laun
sérfræðings verði greiddur af viðkomandi
stofnun eða deild. Laun eru skv. samningi fjár-
málaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókninni
greinargóða skýrslu um námsferil og störf, vís-
indastörf sín, ritsmíðar og rannsóknir.
Umsóknir skulu hafa borist starfsmannasviði
Háskóla Íslands fyrir 15. október 2002.
Vísindanefnd læknadeildar veitir umsögn um
umsóknir, en deildarráð veitir starfið. Öllum
umsóknum verður svarað og umsækjendum
greint frá því hvernig starfinu hafi verið ráð-
stafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Reynir Tómas Geirs-
son, forseti læknadeildar, í síma 525 4880.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
Hafrannsóknastofnunin
Sérfræðingur
Hafrannsóknastofnunin auglýsir eftir sérfræð-
ingi í eldi sjávardýra við Tilraunaeldisstöð
stofnunarinnar á Stað við Grindavík. Megin-
starfssvið verður þorskeldi. Í starfinu felst m.a.
skipulagning og framkvæmd eldisrannsókna,
úrvinnsla gagna og birting á niðurstöðum.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistara-,
doktors- eða sambærilegu prófi í sjávarlíffræði
eða skyldum greinum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum ríkisins
og Félags íslenskra náttúrufræðinga.
Nánari upplýsingar um starfið veita Björn
Björnsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofn-
uninni (s. 552 0240, tölvunetfang:
bjornb@hafro.is) og Matthías Oddgeirsson,
stöðvarstjóri Tilraunaeldisstöðvarinnar á Stað
(s. 426 8232, tölvunetf-
ang: matthias@hafro.is).
Umsóknum, merktum: „Eldi sjávardýra" skal
skilað á skrifstofu Hafrannsóknastofnunarinnar,
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, fyrir 27. september
nk. Í umsókn skulu vera upplýsingar um
menntun og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja
meðmælenda sem leita má til varðandi frekari
upplýsingar.
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á
sviði haf- og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill
hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrann-
sóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð
í eldi sjávarlífvera, þrjú rannsóknaskip og hefur að jafnaði 170 starfs-
menn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík,
s. 552 0240.
Háskóli Íslands
Læknadeild
Prófessor í bæklunar-
læknisfræði
Laust er til umsóknar starf prófessors í
bæklunarlæknisfræði við Læknadeild
Háskóla Íslands (H.Í.). Starfinu tengist yfirlækn-
isstaða við bæklunarskurðdeild Landspítala
- háskólasjúkrahúss (LSH) í samræmi við
ákvæði samstarfssamnings H.Í. og LSH frá
10.05.2001 og 28.06.2002 (samningarnir eru
aðgengilegir á háskólavefnum, sjá: http://
www.hi.is/stjorn/ rektor/ - samningar).
Umsækjandi skal hafa sérfræðiviðurkenningu
í bæklunarskurðlæknisfræði. Gert er ráð fyrir
að starfið verði veitt eigi síðar en 1. apríl 2003,
að lokinni umfjöllun dómnefndar og valnefnd-
ar, sbr. reglur Læknadeildar Háskóla Íslands
um valnefndir nr. 830/2001.
Viðkomandi gegnir jafnframt starfi á LSH þann-
ig að um fullt starf verður að ræða. Prófessor-
inn hefur full réttindi og starfsskyldur innan
H.Í. Um störf og starfsvettvang á LSH verður
fjallað í viðtölum við umsækjendur.
Í H.Í. heyrir fræðigreinin bæklunarlæknisfræði
(bæklunarskurðlækningar) undir fræðasviðið
skurðlæknisfræði í læknadeild, en stefnt er að
þróun greinarinnar sem sérstaks fræðasviðs.
Á LSH eru bæklunarskurðlækningar hluti skurð-
lækningasviðs.
Prófessorinn hefur umsjón með kennslu lækna-
nema í bæklunarlæknisfræði í samvinnu við
aðra kennara deildarinnar og kennsluráð, og
með rannsóknum og rannsóknatengdu námi
í bæklunarlæknisfræði við læknadeild H.Í.
Efling rannsóknatengds náms og framhalds-
náms í bæklunarlæknisfræði á Íslandi skal vera
meðal forgangsverkefna prófessorsins.
Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna
fer eftir ákvæðum laga um Háskóla Íslands nr.
41/1999 og reglum Háskóla Íslands nr. 458/
2000. Um lágmarkshæfniskröfur til umsækj-
enda um starfið er vísað til 12. gr. laganna um
dómnefndir og til reglna læknadeildar um ráð-
ningu og framgang starfsmanna með hæfnis-
dóm nr. 498/2002. Þegar dómnefnd hefur lokið
störfum fjallar sérstök valnefnd um umsækj-
endur, sbr. reglur læknadeildar um valnefndir
nr. 830/2001.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla á íslensku og ensku um
vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá), svo
og yfirlit um námsferil og störf (curriculum vitae), samtals 10 eintök,
og eftir atvikum vottorð og önnur áþekk gögn. með umsókn skulu
send fjögur eintök af vísindalegum ritum, skýrslum og ritgerðum,
sem umsækjandi óskar eftir að teknar verði til mats. þegar höfundar
eru fleiri en einn skal umsækjandi gera grein fyrir hlutdeild sinni
í rannsóknum sem lýst er í ritverkunum. ef um er að ræða mikinn
fjölda ritverka er æskilegt að ritverk sem fylgja umsókn takmarkist
við 20 helstu fræðileg ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið.
æskilegt er að umsækjendur geri grein fyrir því hverjar rannsókn-
arniðurstöður sínar þeir telja markverðastar. ennfremur er óskað
eftir greinargerð um hugmyndir umsækjanda varðandi uppbyggingu
greinarinnar í H.Í. og á LSH og um þær rannsóknir sem umsækjandi
vinnur að og hyggst vinna að verði honum/henni veitt starfið
(rannsóknaáætlun) og þá aðstöðu sem til þarf. umsækjandi geti
um og láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf
sín eftir því sem við á, en getur einnig bent á umsagnaraðila.
Laun fyrir prófessorsstarfið eru samkvæmt
ákvörðun kjaranefndar. Laun fyrir störf lækna
á LSH eru í samræmi við kjarasamning fjármál-
aráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Læknafélags
Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október
2002 og skal skriflegum umsóknum skilað til
rannsóknasviðs Háskóla Íslands, Aðalbygg-
ingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Móttaka
allra umsókna verður staðfest bréflega. Um-
sækjendum verður greint frá niðurstöðu dóm-
nefndar og um ráðstöfun starfsins þegar sú
ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um prófessorsstarfið gefur
Reynir Tómas Geirsson, forseti læknadeildar,
í síma 525 4880.
Upplýsingar um starfsvettvang og væntanleg
störf á háskólasjúkrahúsinu gefur Jóhannes
M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga
á LSH, í síma 543 1160.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
Stöður deildarstjóra eru lausar í eftirtöldum leikskólum:
Blásalir, Brekknaási 4
Upplýsingar veitir Margrét Elíasdóttir leikskólastjóri
í síma 557 9720.
Furuborg v/Áland
Upplýsingar veitir Sigþrúður Sigurþórsdóttir leikskólastjóri
í síma 553 1835.
Hulduheimar, Vættarborgum 11
Upplýsingar veitir Bryndís Markúsdóttir leikskólastjóri
í síma 586 1870.
Brekkuborg, Hlíðarhúsum 1
Upplýsingar veitir Guðrún Samúelsdóttir leikskólastjóri
í síma 567 9380.
Deildarstjórar óskast ti l starfa
hjá Leikskólum Reykjavíkur
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskólum, á skrifstofu
Leikskóla Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, sími 563 5800 og á vefsíðu www.leikskolar.is