Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 C 7
Utanríkisráðuneytið
Flutningsskyldur ritari
Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir flutnings-
skyldum ritara til starfa í utanríkisþjónustunni.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi a.m.k.
stúdentspróf eða sambærilega menntun og
mjög góða tungumálakunnáttu. Viðkomandi
þarf að hafa góða aðlögunarhæfni og eiga gott
með mannleg samskipti. Gert er ráð fyrir að
viðkomandi starfsmaður starfi fyrst um sinn
við almenn skrifstofustörf í ráðuneytinu, en
fari til starfa erlendis að nokkrum tíma liðnum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjár-
málaráðherra og Félags starfsmanna stjórnar-
ráðsins og ákvæðum laga um utanríkisþjón-
ustu Íslands.
Litið verður svo á, að starfsumsóknir sem ber-
ast gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti
lýkur.
Umsóknir berist fyrir 16. september 2002 til
utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25,
150 Reykjavík.
Windows forritarar:
Fyrirtækið óskar eftir forriturum með þekkingu á
C/C++ og Microsoft SDK/MFC.
Viðkomandi munu m.a. taka þátt í hópvinnu við
hönnun og forritun nýrrar útgáfu Lykla-Péturs.
Linux forritarar:
Einnig leitar fyrirtækið að forriturum með þekkingu
og reynslu af forritun fyrir Unix stýrikerfi.
Reynsla af Perl, C, skeljaforritun, einfaldri
vefforritun (CGI), Linux og BSD er æskileg.
Æskilegt er að umsækjendur hafi a.m.k. 1-2 ára
starfsreynslu í hugbúnaðargerð og séu útskrifaðir
með tölvunarfræðimenntun á háskólastigi.
Ef nánari upplýsinga er óskað vinsamlegast hafið
samband með tölvupósti: jobs@frisk.is.
Umsóknum má skila í tölvupósti til jobs@frisk.is
eða í pósti á póstfangið:
Friðrik Skúlason ehf.
-umsókn
Þverholt 18
105 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til og með 2. september
Hjúkrunarfræðing vantar til starfa á
Heilsugæsluna Seltjarnarnesi frá 1. okt.
n.k í 80% starf. Starfið er sjálfstætt og felst
í ung- og smábarnavernd, mæðravernd og
almennri móttöku.
Leitað er eftir hjúkrunarfræðingi sem býr yfir
reynslu af störfum í heilsugæslu.
Nánari upplýsingar veitir Ágústa Dúa
Jónsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar
Seltjarnarnesi í s: 561 2070 eða á netfangi:
Dua.Jonsdottir@hgsel.is
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist til:
Starfsmannasviðs Heilsugæslunnar,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
fyrir 9. september n.k.
Reykjavík, 25. ágúst 2002.
Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæslan Seltjarnarnesi
Heilsugæslan, Starfsmannasvið
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
www.hr.is
Seltjarnarnesbær
Bókband
Kennari eða leiðbeinandi óskast til að
kenna bókband einu sinni í viku, næstkomandi
vetur, í húsi aldraðra á Skólabraut 3—5,
Seltjarnarnesi.
Öll tæki á staðnum og allur aðbúnaður góður.
Nánari upplýsingar gefur Þóra Einarsdóttir eða
Snorri Aðalsteinsson á Bæjarskrifstofum
Seltjarnarness, Austurströnd 2, sími 595 9100.
Seltjarnarnesbær — félagsþjónusta.
Kennsla — snyrtivörur
Starfskraftur óskast í hlutastarf. Sveigjanleg-
ur vinnutími. Þarf að hafa góða förðunar-
kunnáttu.
Upplýsingar um menntun, fyrri störf, með-
mæli, aldur og heimilishagi sendist á auglýs-
ingadeild Mbl. eða tölvupósti box@mbl.is
fyrir 31. ágúst, merktar: „Förðun — 12648."
Droplaugarstaðir
Hjúkrunarheimili
Snorrabraut 58
Hjúkrunarfræðingar
- Sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til
starfa sem fyrst. Vinnufyrirkomulag og starfs-
hlutfall samkomulagsatriði.
Droplaugarstaðir er heimilislegt hjúkrunar-
heimili í miðborg Reykjavíkur.
Á heimilinu eru tvær hjúkrunardeildir, þar búa
68 heimilismenn.
Hvernig væri nú að koma við og kynna sér að-
stæður. Við munum taka vel á móti ykkur.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og viðkomandi stéttarfélags.
Allar nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Þóris-
dóttir, hjúkrunarfræðingur í síma 552 5811.
Netfang: ingibjorgth@fel.rvk.is .
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is .
Snyrtistofan
Helena fagra
Snyrtifræðingur
Viltu vinna sjálfstætt á þægilegum vinnustað?
Get boðið þér stól til leigu, allt innifalið.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „HF — 12639". Trúnaði heitið.
Stuðningur við
fólk með fötlun -
Hlutastarf
Óskum eftir að ráða starfsfólk við íbúðarkjarn-
ann í Einarsnesi til aðstoðar og stuðnings ungu
fólki með fötlun, í sjálfstæðri búsetu. Um er
að ræða 50%-80% hlutastarf, í kvöld- og helgar-
vinnu, frá 1. september nk.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborg-
ar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar um starfið veita
Rannveig Þorvaldsdóttir frá kl. 8-12, í síma
561 3041 og Katrín Jacobsen, yfirþroskaþjálfi
frá kl. 9-12, í síma 561 3141, alla virka daga.
Umsóknum má skila á netfang:
katrinj@fel.rvk.is .
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is .
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Mötuneyti
nemenda
Óskað er eftir faglærðu starfsfólki til að
annast matreiðslu, innkaup og annan
rekstur í nýjum mötuneytum nemenda
í Engidalsskóla (s. 555 4433) og í Öldu-
túnsskóla (s. 555 1546). Um er að ræða
nýja og spennandi þjónustu sem við-
komandi starfsfólk tekur þátt í að móta.
Ráðið verður í stöðurnar sem fyrst en
allar upplýsingar gefa skólastjórar við-
komandi skóla. Launakjör eru sam-
kvæmt samningum viðkomandi stéttar-
félags við launanefnd sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 1. september og
er umsækjendum bent á að hægt er að
sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.