Morgunblaðið - 25.08.2002, Síða 8
8 C SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vantar í eftirfarandi stöður á
veitingastaðnum
„Á Borginni“
* Uppvask
* Morgunverður í sal
* Aukafólk í sal
* Barþjónar
* Fastar vaktir í sal
Upplýsingar veitir Magnús Rafnsson á staðn-
um þriðjudaginn 27-8-02 milli 18.00 til 20.00.
Sláturtíð
Sláturhús — Selfossi
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða
fólk til starfa í sauðfjársláturtíð, sem hefst
um miðjan september, í sláturhúsi félags-
ins á Selfossi í haust.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu félagsins á Fosshálsi 1, Reykjavík,
og í starfsstöðvum félagsins á Hvolsvelli
og Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri á
Selfossi í síma 480 4100.
FRÁ KÁRSNESSKÓLA
Okkur vantar starfsfólk í eftirtalin störf nú
þegar:
• Ræstingar.
Launakjör skv. kjarasamningum Eflingar og
Kópavogsbæjar.
• Hálft starf í dægradvöl.
Launakjör skv. kjarasamningum Starfsm.fél.
Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
störfin.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu skólans í síma
570 4300.
Starfsmannstjóri
KÓPAVOGSBÆR
Fjármálastjóri
Fimleikafélag Hafnarfjarðar, Kaplakrika, óskar
eftir að ráða fjármálastjóra í fullt starf. Verksvið
fjármálastjóra er að sjá um og bera ábyrgð á
fjárreiðum félagsins, bókhaldi, launaútreikning-
um og uppgjörum fyrir allar deildir. Auk þess
kemur fjármálastjórinn að ýmsum tilfallandi
verkefnum, svo sem stefnumótun, skýrslugerð-
um og ýmiskonar sérverkefnum fyrir deildir
og aðalstjórn félagsins.
Óskað er eftir að viðkomandi hafi viðskipta-
fræðimenntun og/eða víðtæka reynslu á sviði
fjármálabókhalds.
Eiginleikar sem leitað er að eru a.m.k. frum-
kvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjan-
leiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf í septem-
ber nk. Umsóknir skulu sendar fyrir 7. septem-
ber til Fimleikafélags Hafnarfjarðar, Kaplakrika,
220 Hafnarfirði, bt. Aðalstjórn FH.
Fasteignasala
Traust fasteignasala í Reykjavík óskar eftir að
ráða í eftirfatandi störf:
(1) Sölumaður fasteigna. Viðkomandi þarf
að hafa einhverja reynslu í sölustörfum,
góða þjónustulund, geta unnið sjálfstætt
og hafa bíl til umráða. Fyrsta flokks starfsað-
staða. Góðir tekjumöguleikar fyrir réttan
aðila.
(2) Lögfræðingur/lögg. fasteigasali. Starfið
felst m.a. í skjalagerð, kostnaðaruppgjörum
o.fl. því tengdu. Viðkomandi þarf að vera
nákvæmur og samviskusamur. Til greina
kemur að ráða lögfræðinema eða aðila sem
nú er í löggildingu sem fasteignasali.
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnað-
armál.
Umsækjendur sendi umsóknir sínar með nán-
ari upplýsingum um menntun og fyrri störf
á auglýsingadeild Mbl. eða í box@ mbl.is
merktar: „Fasteignasala — 12650“, fyrir 31.
ágúst.
Margmiðlun/
nýmiðlun
Stöndugt fyrirtæki óskar eftir að ráða forrit-
ara og margmiðlunarfræðing.
Ráðið verður í bæði fullt starf og hlutastarf.
Starfsvið:
● Forritun og samsetning margmiðlunar-
efnis í Director.
● Frágangur hljóð- og myndefnis.
● Þróunarvinna á nýjum lausnum tengdum
margmiðlun.
Hæfniskröfur:
● Góð forritunarkunnátta.
● Þekking á Director, Flash og Lingo.
● Góð þekking á helstu myndvinnsluforrit-
um og hljóðforritum.
Fyrirtækið hefur margra ára reynslu í gerð
margmiðlunarefnis, bæði fyrir innlendan
og erlendan markað.
Áhugasamir sendi skriflegar umsóknir með
mynd til gottstarf@hotmail.com fyrir
5. september.
Öllum umsóknum verður svarað strax.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, óskar eftir
að ráða starfskraft til að sjá um
kaffiveitingar
þrjú kvöld í viku og einnig til að sjá
um þrif á sal félagsins
Umsókn um starfið sendist fyrir 31. ágúst nk.
til Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu, Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Sölustarf!
(30% starf)
Lítið fyrirtæki í Reykjavík, sem framleiðir
vandaðar vörur, óskar eftir einstaklingum í
sölustörf. Um er að ræða hlutastarf þar sem
sölumenn eru úti á örkinni í fyrirtækjum 3
morgna í viku, þriðjudaga-fimmtudaga. Laun
eru sölutengd og geta því verið mjög góð.
Ánægja af samskiptum, metnaður í starfi og
yfirráð yfir bíl áskilin. Umsækjendur þurfa helst
að geta hafið störf strax!
Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 29. ágúst nk., merktar:
„Sölustarf — 12646“, eða í box@mbl.is .
Garðheimar í Mjódd er græn verslunarmiðstöð sem býður
upp á allt sem tengist garðinum, ræktun og lífsstíl þeirra
sem una sér vel í gróðurvænu umhverfi.
Óskum
eftir kraftmiklu
og samviskusömu
starfsfólki til starfa
● Starfsmaður á kassa. Vinnutími frá
kl. 2.00—18.30.
● Símsvörun ásamt léttum skrifstofustörf-
um. Vinnutími frá kl. 9.00—17.00.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helga
Gísladóttir, starfsmannastjóri, virka daga
milli kl. 9 og 14. Umsóknum skal skilað í
upplýsingaborð Garðheima eða í tölvu-
pósti kristinhg@grodur.is fyrir 30. ágúst.
Ferðaskrifstofa
ARCTIC EXPERIENCE LTD er ferða-
skrifstofa í Bretlandi, sem sérhæfir sig
í Íslandsferðum.
Vegna aukinna umsvifa viljum við bæta við
okkur starfsmanni í fullt starf í bókunardeild.
Góð þekking á sviði ferðamála, nákvæmni í
starfi og góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsækjandi þarf að þekkja Ísland mjög vel,
geta unnið sjálfstætt og getað hafið störf sem
fyrst í Bretlandi.
Umsóknir, með persónuupplýsingum, skulu
berast eigi síðar en 5. sept. til augldeildar Mbl.,
merktar: „Bretland — 12645.“
Umsóknir skulu vera á ensku.
Nánari upplýsingar veitir Bára Jóhannsdóttir,
starfsmaður ARCTIC EXPERIENCE Ltd á Íslandi,
í síma 561 7824 milli kl. 9.30 og 11.45, eða á
netfangi: arcticexperience@islandia.is .
Fjölskylduheimili
Óskum eftir að ráða starfsmann til að vinna
á fjölskylduheimili í Reykjavík. Á heimilinu
dvelja að jafnaði 4 unglingar á aldrinum 13—18
ára. Viðkomandi vinnur í 4—8 sólarhringa alls
í mánuði. Gæti hentað fólki, sem er í háskóla-
námi eða sem hlutastarf með öðru. Hægt er
að senda fyrirspurnir um starfið á netfangið
budargerdi@fel.rvk.is.
Áhugasamir vinsamlegast leggi inn upplýsing-
ar um aldur og fyrri störf á auglýsingadeild
Mbl., merktar: „Fjölskylduheimli“, ellegar
á ofangreint netfang.
SÁÁ auglýsir lausar
stöður lækna
Staða sérfræðings er laus til umsóknar við
Sjúkrahúsið Vog.
Æskileg menntun sérfræðings er heimilislækn-
ingar, lyflækningar eða geðlækningar.
Ennfremur er laus staða deildarlæknis við
Sjúkrahúsið Vog.
Nánari upplýsingar gefur Þórarinn Tyrfingsson
í síma 896 2808, netfang thorarinn@saa.is .