Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MJÖG góður trjávöxtur hefur ver-
ið sunnanlands í sumar eins og í
fyrra, en þar sem frekar kalt var
framan af sumri fyrir norðan og
austan hefur vöxturinn þar verið í
meðallagi.
Vöxtur barrtrjáa fer mikið eftir
hitastigi sumarsins á undan, en
þroski endabruma ræður miklu um
vöxtinn árið eftir. Einar Gunn-
arsson, skógfræðingur hjá Skóg-
ræktarfélagi Íslands, segir að þeg-
ar komi tvö góð sumur í röð eins
og tilfellið hafi nú verið á sunn-
anverðu landinu sé trjávöxturinn
mjög góður.
Vöxtur mismunandi
eftir tegundum og aldri
Einar segir að vöxturinn sé mis-
munandi eftir tegundum og aldri
þeirra. Barrtré fari til dæmis oft
hægt af stað og þá geti 10 cm
stækkun á ári verið mikill vöxtur.
Þegar þau séu orðin eldri og nokk-
urra metra há geti vöxturinn verið
80 til 90 cm ári. Sum tré séu það
sem skógfræðingar kalli lang-
hlauparar, þ.e. vaxi frekar hægt á
yngri árum, en bæti svo við sig
þegar þau séu komin á miðjan ald-
ur. Aðrar tegundir eins og t.d. ösp
og víðir séu fljótari til og stafafura,
sem sé reyndar barrtré, sé líka
dæmi um spretthlaupara. Hann
bætir við að framboð af næring-
arefnum eins og köfnunarefni og
fosfór hafi einnig mjög mikið að
segja varðandi trjávöxtinn á norð-
lægum slóðum.
Mikil litadýrð einkennir
gróðurinn á haustin
Mikil litadýrð einkennir gjarnan
trjágróðurinn eftir fyrstu frostnótt
á haustin. Einar segir að tré af
norðlægum uppruna ljúki vexti
snemma á sumrin og séu fljót til að
fá haustliti. Blöð þeirra sölni fljótt
og þessi tré þurfi lítið til að fella
laufin.
Tré af suðrænum uppruna frjósi
hins vegar iðjagræn. Litbrigði eftir
tegundum séu líka misjöfn og einn-
ig innan tegunda. Birki verði
gjarnan gult eða appelsínugult,
reyniviður verði oft fallega rauður
á haustin og öspin fái fínan gulan
lit.
Mikil litadýrð einkennir trjá-
gróðurinn í Heiðmörk eins og
myndin sýndir, sem tekin var þar í
gær.
Góður
trjávöxt-
ur og
mikil
litadýrð
Morgunblaðið/ Aldís Geirdal
TÖLUVERÐ skjálftavirkni var sunn-
arlega á Reykjaneshrygg, um 780
kílómetra suðvestur af Íslandi, að-
faranótt síðastliðins sunnudags og
síðdegis á mánudag. Mældust sex
skjálftar á bilinu 4,6 til 5,5 stig á
Richter og að sögn Ragnars Stefáns-
sonar, jarðskjálftafræðings á Veður-
stofu Íslands, er þetta mesta skjálfta-
virkni á þessum slóðum í 30 til 40 ár.
Ragnar telur fulla ástæðu til að
fylgjast vel með gangi mála þar sem
líkur séu á að virknin geti færst norð-
ar og nær Íslandi. Þá telur Ragnar að
tenging sé hugsanleg milli þessarar
virkni og skjálfta upp á 3,2 stig á
Richter sem mældist við Kleifarvatn
síðdegis á mánudag.
Skjálftarnir hafa víða komið fram á
mælum, m.a. á langbylgjumælum
Veðurstofunnar í Reykjavík, og einn-
ig á vefsvæði Bandarísku jarðvísinda-
stofnunarinnar, USGS.
Virknin hófst aðfaranótt sunnu-
dagsins er tveir kippir upp á 5 og 5,5
stig á Richter mældust. Um hálf-
fimmleytið á mánudag kom næsti
kippur fram, sem var 5 stig á Richter-
kvarða, en um svipað leyti mældist
kippur upp á 3,2 stig norðarlega á
Reykjaneshryggnum, eða við Kleifar-
vatn á Reykjanesskaga. Í kjölfarið
komu nokkrir skjálftar suður af land-
inu, sá stærsti 5,5 stig á Richter um
áttaleytið á mánudagskvöld.
„Þetta eru nokkuð stórir skjálftar
miðað við það sem við þekkjum á
þessum slóðum undanfarna áratugi. Í
kringum 1990 voru þarna skjálftar á
bilinu 4 til 5 stig á Richter. Við lítum á
þetta nú sem tiltölulega mikinn at-
burð á Reykjaneshryggnum,“ segir
Ragnar.
Ástæða til að fylgjast vel með
Hann segir tilgátur hafa verið uppi
um að virkni á Reykjaneshryggnum á
hafi úti geti borist til landsins. Því sé
tenging möguleg við skjálftann við
Kleifarvatn á mánudag.
„Svona sterkar skjálftahrinur geta
ýtt undir skjálfta hér, þar sem þeir
eru hvort sem er að leysast úr læð-
ingi. Þarna virðast vera miklar brota-
hreyfingar í gangi og væntanlega ein-
hver kvika sem er að þrýsta sér inn í
jarðskorpuna neðan frá. Slíkt getur
breytt spennuástandinu á nokkuð
stóru svæði. Ólíklegt er að bein áhrif
geti orðið hér á landi en mögulegt að
virknin færist norður eftir hryggnum.
Brotahreyfingarnar gætu því nálgast
Ísland að einhverju leyti en ennþá eru
ekki bein merki um það. Þetta er hins
vegar það óvanalegt að full ástæða er
til að fylgjast með því hvort brota-
hreyfingin breiðist út,“ segir Ragnar.
Mesta virkni í 30–40 ár og
gæti færst nær Íslandi
Skjálftahrina á Reykjaneshrygg um 780 km suðvestur af Íslandi
! "
#
$%
% &! "'"& "&
REYNT verður að ná eikarbátnum
Ólafi GK, sem sökk í Fossvogi um
hádegisbilið í fyrradag, úr kafi
eins fljótt og auðið er. Báturinn er
tryggður hjá vátryggingafélaginu
Verði á Akureyri og munu hafn-
armálayfirvöld í Kópavogi í sam-
vinnu við tryggingafélag bátsins
skoða með hvaða hætti unnt verði
að ná honum af hafsbotni.
Að sögn Jóhannesar Guðmunds-
sonar, hafnarvarðar í Kópavogs-
höfn, hefur báturinn legið við
stjóra á voginum í meira eða
minna tvö ár. Þaðan kom hann úr
Njarðvík. Báturinn fór niður á
mjög skömmum tíma og marar nú
í hálfu kafi í voginum. Hann er 36
tonn, smíðaður í Danmörku árið
1945 en kom hingað til lands 1955
og hét þá Friðrik Sigurðsson ÁR
og var skráður í Þorlákshöfn.
Samkvæmt upplýsingum frá Sigl-
ingastofnun er báturinn ekki á
skipaskrá.
Í bátnum munu vera um 200
lítrar af díselolíu en enginn mótor.
Í gær lá olíutaumur frá honum en
Jóhannes segir að einungis sé um
smit að ræða og að engin meng-
unarhætta sé á ferðum.
Hugmyndir uppi um að
breyta bátnum í lystisnekkju
Að sögn Úlfars Eysteinssonar
matreiðslumeistara sem átti bát-
inn í rúmt ár eða þar til í vor, voru
uppi hugmyndir um að breyta hon-
um í lystisnekkju og nýta hann
m.a. til sjóstangaveiði. Sjálfvirk
dæla var um borð í bátnum, knúin
af rafgeymi sem hleður inn á sig
sólarorku. Tækin keypti Úlfar í
fyrravetur og kom fyrir í bátnum.
Hann segir ekki loku fyrir það
skotið að einhver hafi átt við þau.
Að sögn Jóhannesar Guðmunds-
sonar hjá Kópavogshöfn voru tæk-
in fjarlægð úr bátnum og þau
skoðuð og eru þau í góðu lagi, að
hans sögn.
Núverandi eigandi bátsins er
búsettur á Akureyri en hann
keypti hann í maí á þessu ári og
hugðist fara með hann norður, að
sögn Jóhannesar. Ekki náðist í
eiganda bátsins í gær.
Reynt að ná Ólafi GK úr Fossvogi eins fljótt og auðið er
Dæla bátsins var í lagi