Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 1.190 kr./m2 Lamella parket Eik Country Verð 2.890 kr./m2 Beyki Standard Verð 2.990 kr./m2 Merbau Classic Verð 3.995 kr./m2 Heimilisdúkar Verð frá 1.150 kr./m2 Vegg og gólfflísar á eldhús og bað. Dublin 1.690 kr./m2 Verð áður: 1.990 kr. Verð áður: 1.690 kr. 1.290 kr./m2 Verð áður: 1.695 kr. Mikið úrval af filtteppum. Ný sending af gegnheilum gólfflísum. Tilvalið fyrir þvottahús, bílskúra og svalir. Verð 299 kr./m2 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 18 79 0 0 9/ 20 02 Gólfefnadagar 25-40% afsláttur NorFA, Norræni rannsóknarháskólinn Vilji til að starfa saman NÝLEGA hélt HansKr. Guðmundsson,rektor NorFA, er- indi á kynningarfundi í Tæknigarði um starfsemi NorFA, norrænnar stofn- unar sem er ætlað að efla samstarf fræði- og vísinda- manna með áherslu á rann- sóknarmenntun. „NorFa var stofnað 1991 með það markmið að gera Norðurlöndin að einu sam- eiginlegu svæði á sviði rannsóknanáms,“ segir Hans. „NorFA er starf- rækt innan vébanda Nor- rænu ráðherranefndarinn- ar og heyrir undir mennta- mála- og rannsóknamála- ráðherra. Ráðherranefndin er með fjárlög sem svara til 700 millj. d. kr. á ári í heild. Af þessu fara rúmlega 200 millj. d. kr. í rannsóknir og menntasam- starf. NorFa fær af þessum pen- ingum um 400 til 500 milljónir ísl. kr. NorFa er í Noregi og hefur það hlutverk að örva samstarf og sér- staklega rannsóknanámssamstarf. NorFa stundar ekki sjálfstæðar rannsóknir heldur hvetur til sam- starfs á því sviði. Norfa er sjálfstæð stofnun en hefur yfir sér stjórn sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju Norður- landanna. Menntamálaráðherrarn- ir skipa þessa fulltrúa, þeirra á meðal eru fulltrúar frá Færeyjum og Grænlandi.“ – Hvernig starfar NorFa? „Við höfum lagt upp starfsemina þannig að við snúum ef svo má segja öðrum vanganum að vísinda- og rannsóknamönnum, háskóla- kennurum og nemendum, hinum vanganum snúum við að þeim sem eru að skipuleggja og þróa rann- sóknanám og -starfsemi í löndun- um. Við erum með styrktarsjóð og köllum eftir hugmyndum frá há- skólasamfélaginu. NorFa býður háskólakennurum, vísindamönnum og doktorsefnum tækifæri til samstarfs til þess að styrkja norræna rannsóknamennt- un og rannsóknasamstarf og er einnig vettvangur fyrir þróun rannsóknamenntunar í samstarfi við háskóla, stofnanir og yfirvöld á Norðurlöndum. Við leggjum áherslu á að Norðurlöndin séu sameiginlegt svæði til rannsókna- samstarfs og rannsóknamenntun- ar og vinnum kerfisbundið að því að bæta og styrkja samkeppnis- hæfni Norðurlandanna í hinu al- þjóðlega þekkingarumhverfi. Sem og hvetjum til annars alþjóðlegs samstarfs.“ – Er þak á því hve mikið hver og einn aðili getur fengið í styrk? „Já, við erum með fjögur mis- munandi samstarfsform. Það sem okkur finnst mikilvægast og við leggjum meiri og meiri áherslu á er netverk. Þar erum við að styðja fimmtíu og sex net. Sjá má á heimasíðu okkar www.norfa.no hvaða verkefni það eru. Þau eru á öllum sviðum vísindanna. Okkar peningar fara ekki í rannsóknirnar sjálfar, þeir fara í það að gera samstarfið kleift. Lág- markskrafa til að fá styrk til netsamstarfs er að um sé að ræða háskóla- eða vísindahópa frá að minnsta kosti þremur Norðurlandanna. Við vilj- um gjarnan hafa öll Norðurlöndin með í öllu en það er auðvitað ekki raunhæft alltaf. Lágmark er að þau séu þrjú. Að auki erum við „galopin“ gagnvart grannsvæðun- um, Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Norðvestur-Rússlandi. Þau eiga aðgang að okkar netsamstarfi. Okkar markmið er að geta styrkt sextíu mismunandi netsamstarfs- verkefni. Við reiknum með að þau verkefni sem fái á annað borð styrk haldi honum í fimm ár. Auk þess styrkjum við um 40 sérhæfð rannsóknarnámskeið á ári og í þeim taka þátt yfir 1.000 dokt- orsnemar.“ – Hvaða verkefni ber hæst í nor- rænu samstarfi um þessar mundir? „Það er fullt af skemmtilegum verkefnum, t.d. á sviði náttúruvís- inda. Mörg verkefnanna eru í fremstu víglínu vísindanna. Okkar markmið er að gera Norðurlöndin sterkari og fá þau til að vinna sam- an. Norðurlöndin eru sterkt rann- sóknarsvæði. Við veitum styrki til að kosta samstarf, halda fundi, heimsækja grannstofnanir og einnig erum við með ferða- og uppihaldsstyrki fyrir nemendur svo þeir geti t.d. sótt námskeið í sínu fagi sem haldin eru í háskólum í öðrum löndum. Mjög mikið af okkar peningum fer í ferðakostnað. Það er ljóst að nauðsynlegt er fyrir þá sem stunda rannsóknir að eiga kost á að koma sínum niðurstöðum á framfæri og að fá niðurstöður annarra bornar á borð. Næsta skref í samstarfi er svo að finna að- ila sem henta til samstarfs. Þetta má gera með tölvusambandi en oft þarf fólk að fara á staðinn. Slíkt samstarf kostar pen- inga. Á bak við hug- myndina að NorFa er vilji til að starfa saman á norrænum vettvangi og sú hugsun að við náum þannig virðisauka. Norðurlönd hafa betri forsendur til að vinna saman en ýmis önnur lönd. Nýj- ungar í norrænu rannsóknarsam- starfi eru svokölluð öndvegissetur og rannsóknarskólar. NorFA hef- ur auglýst eftir hugmyndum um rannsóknarskóla á sviði hug- og fé- lagsvísinda og bíðum við spennt eftir að umsóknfresti ljúki 1. nóv. nk.“ Hans Kr. Guðmundsson  Hans Kr. Guðmundsson fædd- ist í Reykjavík 1946, varð stúdent frá MR 1966, stundaði verk- fræðinám í HÍ og nám í eðlis- verkfræði í Svíþjóð, þar sem hann bjó í 12 ár og varði dokt- orsritgerð í eðlisfræði þéttefnis. Starfaði sem sérfræðingur við Raunvísindastofnun HÍ í 5 ár og 6 ár við Iðntæknistofnun og skipulagði þar m.a. Evrópusam- bandsverkefni. Var í Genf og Brussel í 7 ár, sinnti rannsókn- armálum og þróunarstarfi hjá EFTA í tengslum við EES- samninginn. Var vísindafulltrúi í sendiráði Íslands í Brussel en er nú rektor NorFA. Hann er kvæntur Sólveigu Georgsdóttur þjóðfræðingi og eiga þau einn son og eina sonardóttur. Norðurlönd sterkt rann- sóknarsvæði Það er naumast að það er bjart framundan, elskan. Foringinn bara kominn með þrefalt í framrúðurnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.