Morgunblaðið - 09.10.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 9
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema
AFKOMA sauðfjárbúa versnaði á
síðasta ári frá árinu 2000. Afkoma
kúabúa batnaði hins vegar á síðasta
ári. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Hagþjónustu landbúnaðar-
ins um afkomu í hefðbundnum
greinum landbúnaðar árið 2001.
Í skýrslunni kemur fram að sér-
hæfð kúabú skiluðu um 3% betri af-
komu á árinu 2001 en árið 2000 eða
að meðaltali um tveimur milljónum
króna í hagnað fyrir laun eiganda.
Meðalbúið í búreikningum var með
um 123 þúsund lítra framleiðslurétt
í mjólk en hafði verið með um 113
þúsund lítra framleiðslurétt á árið á
undan. Búin eru mjög sérhæfð og
reyndust búgreinatekjur af naut-
gripum nema um 94,1% af 10,6
milljóna króna heildarbúgreina-
tekjum.
Nokkur samdráttur varð í af-
komu á sérhæfðum sauðfjárbúum
samanborið við rekstrarbata fyrra
árs og féll hagnaður fyrir laun eig-
anda að meðaltali um 13,7% eða í
825 þúsund krónur á árinu 2001 en
var 956 þúsund krónur á árinu á
undan. Meðalbúið í búreikningum
var með um 317 vetrarfóðraðar
kindur 2001, sem er nánast óbreytt
bústærð frá fyrra ári. Búin eru
mjög sérhæfð og reyndust bú-
greinatekjur af sauðfé nema um
93,5% af 3,6 milljóna króna heild-
arbúgreinatekjum.
Niðurstöður búreikninga 2001
byggjast á uppgjöri frá alls 320 bú-
um víðsvegar á landinu. Þar af
flokkast 168 bú sem sérhæfð kúabú
og 103 bú sem sérhæfð sauðfjárbú.
Tekjur
sauðfjár-
búa lækk-
uðu í fyrra
SKIPULAGSSTOFNUN hef-
ur fallist á fyrirhugaða bygg-
ingu snjóflóðavarna á Siglu-
firði, eins og þeirri framkvæmd
hefur verið lýst af fram-
kvæmdaraðila.
Í úrskurði Skipulagsstofnun-
ar um mat á umhverfisáhrifum
af byggingu fimm þvergarða og
eins leiðigarðs sem verði allt að
15 metrar að hæð segir að
áhrifin verði sjónræns eðlis og
að fyrirhugaðir varnargarðar
muni hafa veruleg og óaftur-
kræf áhrif á landslag, bæði úr
fjarlæg og innan þéttbýlisins.
,,Hins vegar telur stofnunin
að bygging þeirra sé ásættan-
leg að teknu tilliti til niðurstöðu
nýlega staðfests hættumats þar
sem fram kemur að stór hluti
þéttbýlisins er innan skil-
greindra snjóflóðahættusvæða.
Skipulagsstofnun telur að með
fyrirhuguðum snjóflóðavörnum
séu góðar líkur á því að tryggð
verði ásættanleg staðaráhætta
innan byggðarinnar á Siglu-
firði,“ segir í úrskurðinum.
Skipulagsstofnun
Fallist á
byggingu
snjóflóða-
varna á
Siglufirði
...framundan
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
...í samvinnu við
Glæsilegt hausttilboð
á úlpum og kápum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
MEISTARINN.IS
Listgler
í glugga og hurðir
Kársnesbraut 93 · 200 Kópavogur · Sími 554 5133
• Er prýði á sérhverju fallegu húsi
• Hindrar að horft sé inn á þig
• Hleypir birtunni óhindrað í gegn
• Er sérsmíðað eftir þínum óskum
LISTGLER
Námskeið í glerskurði hefst 21. október