Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Kristjánsson, heilbrigðisráð- herra, sagði á Alþingi í gær að heil- brigðisráðuneytið hefði verið „eins og skúta sem lent hefði í hafvillum“ þegar ráðherrar Framsóknarflokks- ins tóku við ráðuneytinu af ráðherr- um Alþýðuflokksins árið 1995. Það hefði komið í hlut Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigð- isráðherra, að endurskipuleggja hið innra starf ráðuneytisins. Þessi umæli ráðherra féllu í utan- dagskrárumræðu um stöðu heil- brigðismála á Alþingi í gær. Umræð- an var í lengra lagi og tók tvo tíma. Um þriðjungur þingmanna tók þátt í umræðunni. Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, var máls- hefjandi. Hún kallaði eftir skýrri stefnu stjórnvalda í heilbrigðismál- um og dró upp dökka mynd af ástandinu. Hún sagði að áætlaður uppsafnaður halli sjúkrastofnana í lok þessa árs næmi rúmlega 2,8 milljörðum. „Landspítalinn - há- skólasjúkrahús sem í árslok 2001 var með milljarð í uppsafnaðan vanda fékk 800 millj. kr. minni fjárveitingu á þessu ári en því síðasta, auk þess sem ekki komu að fullu til greiðslur vegna gerðra kjarasamninga.“ Hún sagði að vandinn væri þó víðar. T.d. vantaði líklega um milljarð í dag- gjaldastofnanir og um milljarð í öldrunarþjónustuna. Það sama gilti um geðheilbrigðisþjónustuna og aðra sérhæfða læknisþjónustu. Í lok ræðu sinnar lagði Margrét til að skipaður yrði þverpólitískur starfshópur sem ynni úr þeim gögn- um sem þegar lægju fyrir í heil- brigðismálum, m.a. úr skýrslum Rík- isendurskoðunar. Lagði Margrét til að hópurinn skilaði „frumtillögum“ um skipulag heilbrigðisþjónustunn- ar innan tveggja mánaða þannig að hægt yrði að taka þær til umræðu fyrir lokaafgreiðslu frumvarp til fjárlaga næsta árs. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráð- herra, lagði m.a. áherslu á að ís- lenska heilbrigðisþjónustan væri góð í alþjóðlegum samanburði. Hér væri hæft heilbrigðisstarfsfólk og aðgengi og réttur sjúklinga til þjón- ustunnar væri með því besta sem gerðist í heiminum. „Þetta eru afar einföld grundvallaratriði. En þau eru ekki mjög spennandi í fréttum eða flokkssamþykktum Samfylking- arinnar.“ Ráðherra sagði að stjórnarand- stæðingar hefðu að undanförnu gert harða hríð að að sér sem heilbrigð- isráðherra; þar á meðal Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, sem og nú Margrét Frí- mannsdóttir, varaformaður Sam- fylkingarinnar. Af því tilefni taldi ráðherra rétt að rifja upp ástandið í heilbrigðismálum þegar ráðherrar Framsóknarflokksins hefðu komið að þeim málum fyrir nokkrum árum. „Aðkoman í heilbrigðisþjónustunni var í meira lagi sérstök. Ráðuneytið var eins og skúta sem lent hafði í haf- villum,“ sagði hann m.a. og hélt áfram: „Það er þó fjarri þeim sem hér stendur að skilgreina stöðuna sem uppi var 1995 sem algjört upp- nám í heilbrigðisþjónustunni. Fólk fékk sína þjónustu og fagfólkið sinnti sjúkum. En það var vissulega alvar- legur vandi sem við blasti.“ Ráðherra lagði áherslu á að vandamál hefðu ávallt verið til stað- ar í heilbrigðisþjónustunni og að það hefði ávallt verið hlutverk heilbrigð- isráðherra að leysa þann vanda. Vandamál í heilbrigðisþjónustunni jafngiltu hins vegar ekki upplausn og óáran eins og ætla mætti að ríkti miðað við orð Margrétar Frímanns- dóttur. Þingmenn fjalli um skýrslur Ráðherra sagði ennfremur að Margrét hefði í ræðu sinni ekki nefnt frumvarp til fjáraukalaga. Það frum- varp segði sína sögu. „Þar eru hvorki meira né minna lagðar til 1.200 millj. til að leiðrétta uppsafnaðan halla á Landspítalanum - háskólasjúkra- húsi.“ Að síðustu sagði ráðherra að hann teldi rétt að þingmenn í heil- brigðis- og trygginganefnd þingsins færu yfir nýlegar skýrslur Ríkisend- urskoðunar um málefni heilbrigðis- kerfisins. Sú nefnd væri rétti vett- vangurinn til að fara yfir þessi mál. Ráðherra um stöðu heilbrigðismála þegar Framsókn tók við árið 1995 Ráðuneytið var eins og skúta í hafvillum Morgunblaðið/Þorkell Alþingismenn fylgjast áhugasamir með umræðum í þingsal. Heilbrigðismál voru m.a. á dagskránni í gær. ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, mælti í gær fyrir þings- ályktunartillögu um að einkavæðing- arnefnd verði leyst frá störfum og að frekari einkavæðing verði stöðvuð. Að tillögunni standa allir þingmenn þingflokks VG. Meginefni tillögunnar er eftirfar- andi: „Alþingi ályktar að fela for- sætisráðherra að leysa einkavæðing- arnefnd frá störfum og stöðva frekari einkavæðingu opinberra fyrirtækja og stofnana.“ Í greinargerð tillög- unnar segir m.a. að enginn sem fylgst hafi með einkavæðingarferlinu og störfum einkavæðingarnefndar geti velkst í vafa um að þar sé margt sem þurfi athugunar við. „Í nefndinni hafa átt sæti einstaklingar sem eru nátengdir atvinnulífinu og þá einnig þeim fyrirtækjum sem hafa hagnast á einkavæðingunni. Hörð gagnrýni, m.a. á Alþingi, hefur komið fram vegna mjög hárra greiðslna til nefnd- armanna en einkum hafa vinnubrögð nefndarinnar verið gagnrýnd, m.a. af Ríkisendurskoðun, og nú síðast af einum nefndarmanna sem segist aldrei hafa kynnst eins slæmum og ámælisverðum vinnubrögðum og tíðkist í nefndinni,“ segir m.a. í grein- argerðinni. Farið illa með almannafé Ögmundur sagði í ræðu sinni í gær að VG liti svo á að ekki hefði verið far- ið vel með almannafé í einkavæðing- arferlinu. Sagðist hann geta nefnt mýmörg dæmi því til staðfestingar. T.d. söluna á Síldarverksmiðju rík- isins. Söluverð verksmiðjunnar hefði verið brotabrot af raunverulegu verðmæti hennar „enda greiddu nýir eigendur sér tugi milljóna í arð að- eins fáeinum mánuðum eftir söluna“, sagði Ögmundur. Hann nefndi Áburðarverksmiðjuna sem annað dæmi. Hún hefði sömuleiðis verið seld fyrir minna fé en raunverulegt virði hennar hefði verið. Ögmundur fjallaði einnig um ein- staka nefndarmenn sem setið hefðu í einkavæðingarnefnd, þá Hrein Loftsson og Jón Sveinsson. Hreinn Loftsson hefði um árabil verið stjórn- arformaður Baugs og Jón Sveinsson stjórnarformaður Íslenskra aðal- verktaka. „Með…virðingu fyrir þess- um einstaklingum þykir mér það bera vott um furðulegt dómgreind- arleysi að skipa menn í einkavæðing- arnefnd sem eru eins nátengdir þeim hagsmunum sem um er vélað.“ Ög- mundur nefndi einnig að Hreinn Loftsson hefði á árunum 1996 til 2001 leitað ráðgjafar hjá sjálfum sér og þegið fyrir þá ráðgjöf tæpar ellefu milljónir kr. Á sama tíma hefði hann tekið um 5,7 millj. kr. í nefndarlaun. Jón Sveinsson hefði sömuleiðis leitað ráðgjafar hjá sjálfum sér og þegið fyrir hana um 3,5 millj. kr. Á sama tímabili hefði hann þegið um 3,5 millj. kr. í nefndarlaun. Þá minntist Ög- mundur á Friðrik Pálsson, fyrrver- andi stjórnarformann Símans, sem hefði þegið laun fyrir ráðgjöf hjá sjálfum sér en á sama tíma þegið laun fyrir stjórnarformennskuna. Síðar í umræðunni sagði Ögmund- ur: „Jafnharðan og forsætisráðherra hæstvirtur kastar syndum sínum og reyndar einnig meintum syndurum á bak við sig koma upp ný hneykslis- mál.“ Eitt nýjasta dæmið um það væri úrsögn Steingríms Ara Arason- ar úr einkavæðingarnefndinni. Í lok greinargerðar þingsályktun- artillögu þingmanna VG segir að þingflokkur VG þyki ekki annað for- svaranlegt en að einkavæðingar- nefnd verði leyst frá störfum þegar í stað og að einkavæðingarferlið verði stöðvað þar til úttekt Ríkisendur- skoðunar á störfum nefndarinnar liggi fyrir. Sú úttekt fer nú fram að beiðni forsætisráðuneytisins. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, mælti fyrir þingsályktunartillögu í gær Einkavæðingarnefnd verði leyst frá störfum RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að leggja frumvarp Sól- veigar Pétursdóttur, dóms- málaráðherra, um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborg- ararétt, fram sem stjórnar- frumvarp. Megintilgangur þess er að heimila íslenskum ríkisborgurum að halda ís- lensku ríkisfangi þótt þeir öðl- ist ríkisborgararétt í öðru ríki. Sólveig Pétursdóttir segir að verði frumvarpið að lögum, muni það hafa í för með sér mikla réttarbót fyrir þá Ís- lendinga sem fá erlendan rík- isborgararétt. Sólveig tekur dæmi af íslenskri konu með börn yngri en 18 ára, en hljóti hún erlendan ríkisborgararétt missir hún íslenskan ríkisborg- ararétt sinn, svo og börn henn- ar, ef hitt foreldrið er erlendur ríkisborgari. „Ef frumvarpið verður að lögum fær konan að halda íslenskum ríkisborgara- rétti og börn hennar sömuleið- is,“ segir Sólveig. „Nefna má annað dæmi af ungum Íslend- ingum búsettum í Svíþjóð, sem hafa flust þangað með foreldr- um sínum. Þeir þurfa að vera sænskir ríkisborgarar til að fá námslán og njóta ýmissa ann- arra réttinda. Frumvarpið hef- ur í för með sér að þessir Ís- lendingar verða ekki lengur tilneyddir til að afsala sér hinu íslenska ríkisfangi þegar svo háttar. Norðurlöndin eru almennt að skoða þessi mál og Svíar hafa þegar breytt sínum lög- um. Í Noregi og Finnlandi er hafin endurskoðun á ríkisborg- araréttarlögunum.“ Í minnisblaði með frumvarp- inu segir að stjórnvöld, og þá sérstaklega sendiráð, hafi orð- ið vör við verulega óánægju ís- lenskra borgara með þá reglu að þeir missi íslenskan ríkis- borgararétt við að öðlast er- lendan. Auk þess segir í minn- isblaðinu að ekki hafi verið gerð sú krafa hér á landi að þeir, sem veittur er íslenskur borgararéttur samkvæmt um- sókn, fái lausn frá fyrri rík- isborgararétti. Helgist það að miklu leyti af því að hér er ekki herskylda, en eitt meg- insjónarmiðið við að heimila ekki tvöfaldan ríkisborgararétt sé að koma í veg fyrir að mað- ur geti gegnt herskyldu í tveimur ríkjum. Tvöfald- ur ríkis- borgara- réttur heimill

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.