Morgunblaðið - 09.10.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR létu dæluna ganga er nafn á
væntanlegri bók sem í máli og
myndum segir 75 ára sögu Olíu-
verslunar Íslands. Hallur Hallsson
er höfundur bókarinnar. Hann
segir sögu félagsins mjög merka
og þær 1.500 myndir sem bókina
prýða góðan aldarspegil.
Mynda í bókina var aflað víða,
m.a. úr safni Olís, frá ein-
staklingum víða um land, úr Þjóð-
minjasafni, héraðsskjalasöfnum og
frá Morgunblaðinu og Dagblaðinu.
Hallur segir margar myndanna
einstakar og segja sögu íslensks
samfélags á síðustu öld. „Við feng-
um mikla aðstoð frá almenningi,
fólki vítt og breitt um landið við
öflun efnis og mynda,“ sagði Hall-
ur.
Hallur lagði fyrstu drög að bók-
inni árið 1997, en skriftir hófust
árið 1999. Hann segir mikla rann-
sóknarvinnu hafa legið bókinni til
grundvallar og fanga hafi verið
leitað víða, bæði í skrifuðum heim-
ildum sem og í viðtölum við fólk.
„Mikið efni hefur glatast í gegnum
árin, því miður. Ég þurfti því að
hafa aðra nálgun og afla fanga
annars staðar, m.a. með við-
tölum,“ segir Hallur.
Hann segir að margar mynd-
anna í bókinni séu einstakar.
Hann nefnir sem dæmi mynd af
bensínstöð BP á Hlemmi frá árinu
1951. Héðinn Valdimarsson, fyrsti
forstjóri Olís, fékk sekt fyrir að
steypa þar fyrir bensínstöð. „Í
myndinni er mikill tíðarandi, þó
að óhætt sé að segja að allar
myndirnar séu aldarspegill.“
Margar myndir komu í leitirnar
við gerð bókarinnar af atburðum
sem jafnvel var talið að engar
heimildir væru til um. Sem dæmi
má nefna myndir sem teknar voru
af tveimur Þjóðverjum á Blöndu-
ósi sumarið 1937. Þar voru þeir
með þýskan foringjabíl og voru á
Blönduósi kallaðir þýsku njósn-
ararnir, að sögn Halls. Lítið er vit-
að um tilgang ferðar þeirra til Ís-
lands en þarna voru á ferðinni
leikarinn Herbert Böhme ásamt
Helmut Verleger náttúrufræðingi.
Zophonías Zophoníasson, umboðs-
maður BP á Blönduósi, tók mynd-
irnar og eru þær einu myndirnar
sem til eru af dvöl þeirra hér á
landi.
Bókin Þeir létu dæluna ganga,
saga Olís í 75 ár, er væntanleg í
verslanir eftir um tvær vikur.
Bók um sögu Olís væntanleg
1.500 myndir
prýða bókina
Bensínstöðin á Hlemmi 1951. Hallur segir mikinn tíðaranda í myndinni.
Þjóðverjarnir á Blönduósi að taka bensín sumarið 1937.
Hann segir eitt helsta grundvall-
aratriðið í starfsemi rótarý felast í
að standa við gefin loforð og ná sett-
um markmiðum. Hann leggur
áherslu á þetta með því að nefna
dæmi frá fundi sem hann átti með
íslenskum rótarýfélögum þar sem
spurt var hvað hreyfingin ætti að
taka sér fyrir hendur þegar yfir-
standandi verkefni væri lokið. Segir
hann að það verði tekið á dagskrá
þegar umræddu verkefni verði lokið
að fullu. „Ég sagði þeim að hafa
ekki áhyggjur af því. Fyrst einbeit-
um við okkur að þessu verkefni og
efnum gefin loforð.“
FORSETI Alþjóða
Rótarýhreyfingarinn-
ar, Bhichai Rattakul
frá Taílandi, heimsótti í
vikunni íslenska rót-
arýfélaga í þriggja
daga heimsókn sinni til
landsins, en hér á landi
eru tæplega 1.100 rót-
arýfélagar í 28 klúbb-
um. Rattakul var kjör-
inn forseti Alþjóða
Rótarýhreyfingarinnar
á síðasta ári en hann á
að baki áratugalangan
feril sem þingmaður og
gegndi m.a. embætti
utanríkisráðherra og
aðstoðarforsætisráð-
herra Taílands.
Alls eru rúmlega
1.200 þúsund rótarý-
félagar í 163 löndum og
leggur Rattakul
áherslu á grasrótina og
lýðræðislegt form
starfseminnar.
Rattakul er fjörlegur
og hlýlegur maður, 76
ára gamall, og hrósar
íslensku rótarýhreyf-
ingunni fyrir starfsemi
sína. „Mörgum rótarý-
klúbbum erlendis
hættir til að taka inn nýja félaga án
þess að taka tillit til þeirra grund-
vallareglna sem starfið byggist á,“
segir hann. „En hér á landi er því
ekki þannig farið,“ bætir hann við
og segist afar stoltur af íslensku rót-
arýklúbbunum. Tilgangur heim-
sóknar hans var að hitta íslenska
rótarýfélaga og hvetja þá til dáða í
starfi sínu á sviði mannúðarmála en
hann ferðast víða um heim í þessum
sama tilgangi. „Ég hvet Íslend-
ingana aðeins til dáða án þess að
skipta mér af vinnu þeirra því þeir
þekkja sína heimahaga miklu betur
en ég,“ segir hann.
En að hvaða verk-
efni vinnur Rótarý-
hreyfingin nú? Hreyf-
ingin hefur einsett sér
að útrýma lömunar-
veiki í heiminum á
árinu 2005. Verkefnið
hófst árið 1987 og segir
Rattakul að 99% ár-
angur hafi náðst á þeim
tíma sem liðinn er.
„Þetta hefur verið
mjög erfitt því það
voru 400 þúsund tilfelli
þegar við byrjuðum,“
segir hann. „Nú eru
300 tilfelli eftir. Í byrj-
un voru tilfellin í 121
landi en nú eru þau
einungis í sex löndum.
Við erum því nálægt
markmiði okkar.“
Gríðarlega fjármuni
þarf í baráttunni gegn
lömunarveiki og í loka-
átakinu þarf 240 millj-
ónir dollara til kaupa á
bóluefni og meðferð
sjúklinga. Þess má
geta að íslensku rót-
arýklúbbarnir settu sér
það markmið í upphafi
verkefnisins að safna
100 dollurum á hvern
félaga og náðu því markmiði sínu.
Rótarýklúbbar víðs vegar í heim-
inum leggja fram 80 milljónir doll-
ara og þá hefur styrktarsjóður Bills
Gates sett 40 milljónir dollara í
verkefnið, sem unnið er í samstarfi
við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina
(WHO). Mun stofnunin tryggja mót-
framlag ríkisstjórna víða um heim
til að ná megi 240 milljóna dollara
markinu.
Erfitt er að eiga við síðustu til-
fellin af lömunarveikinni þar sem
lítill fjöldi þeirra sem smitast veik-
ist. Geta því smitaðir gengið um ein-
kennalausir og borið smit.
Forseti Alþjóða Rótarýhreyfingarinnar í heimsókn
Bhichai Rattakul segir að lömunarveikitilfellum hafi verið
fækkað úr 400.000 í 300 í heiminum á 17 árum og nú sé
stefnt að útrýmingu sjúkdómsins árið 2005.
Hreyfingin stefnir að út-
rýmingu lömunarveiki
Morgunblaðið/Þorkell
Starfs-
manna-
stefna Þjóð-
kirkjunnar
meðal mála
KIRKJUÞING verður sett
sunnudaginn 13. október með
messu í Dómkirkjunni klukk-
an 11. Kirkjuþing stendur til
20. október og er 31 mál á
dagskrá. Meðal þeirra
stærstu er tillaga til þings-
ályktunar um stefnumótun
fyrir Þjóðkirkjuna og tillaga
til þingsályktunar um starfs-
mannastefnu Þjóðkirkjunnar.
Flutningsmaður fyrrnefndu
tillögunnar er Guðmundur K.
Magnússon. Segir m.a. í
greinargerð með tillögunni,
að við stefnumótun Þjóðkirkj-
unnar megi nota hefðbundnar
aðferðir stjórnunarfræðinnar
til að skilgreina hlutverk sitt
á eigin forsendum, skerpa
ímynd, endurmeta starfsem-
ina, gefa ákveðna framtíðar-
sýn, gera forgangsröðun og
framkvæmdaáætlun og
styrkja samstöðu í málefnum
kirkjunnar.
Kirkjan hafi möguleika
á að vaxa og dafna
Flutningsmaður tillögu til
þingsályktunar um starfs-
mannastefnu Þjóðkirkjunnar
er Jóhann E. Björnsson.
Meginmarkmið starfsmanna-
stefnunnar er að Þjóðkirkjan,
sóknir, embætti og stofnanir
hennar, hafi á að skipa hæfu,
áhugasömu og ábyrgu starfs-
fólki, að Þjóðkirkjan veiti
starfsfólki sínu sem best skil-
yrði til að helga sig hinum
fjölþættu verkefnum á vett-
vangi kirkjunnar og mögu-
leika til að vaxa og dafna í
starfi.
Kirkjuþing verður
sett á sunnudaginn
Málið
dómtekið í
Hæstarétti
BEÐIÐ er niðurstöðu Hæstaréttar í
máli Kolbrúnar Sævarsdóttur lög-
fræðings gegn íslenska ríkinu. Ríkið
var í Héraðsdómi Reykjavíkur 25.
janúar sl. dæmt til að greiða henni 2,9
milljónir króna í bætur og málskostn-
að fyrir að utanríkisráðherra skyldi
ekki ráða hana í stöðu sýslumanns á
Keflavíkurflugvelli, þótt hún hefði
verið talin hæfari en sá sem ráðinn
var. Ríkið áfrýjaði dómnum og var
málið flutt í Hæstarétti á miðvikudag.
Jóhann R. Benediktsson var skip-
aður í embætti sýslumanns 1. apríl
1999 og vísaði Kolbrún málinu þá til
kærunefndar jafnréttismála sem taldi
hana a.m.k. jafnhæfa Jóhanni. Kol-
brún höfðaði síðan mál gegn ríkinu.
Hún var eina konan í hópi sex um-
sækjenda og var þá fulltrúi lögreglu-
stjórans í Reykjavík og hafði umsjón
með rannsókn fíkniefnamála. Utan-
ríkisráðuneytið hélt því fram að Jó-
hann hefði yfirburðaþekkingu á
Schengen-samstarfinu og hefði það
ráðið úrslitum um að hann var ráðinn.
Ríkið áfrýjar vegna
sýslumannsráðningar
Mælt með
Sigfúsi
Kristjánssyni
VALNEFND Hjallaprestakalls í
Kópavogi hefur lagt til að Sigfús
Kristjánsson guðfræðingur verði
skipaður prestur frá 1. nóvember nk.
Sigfús var valinn úr hópi sex um-
sækjenda. Biskup Íslands skipar í
embættið til fimm ára en um hálft
starf er að ræða.
Þá hafa sjö umsækjendur sótt um
embætti sóknarprests Fellapresta-
kall í Reykjavík. Umsóknarfrestur
rann út 5. október. Umsækjendur
eru: Ástríður Helga Sigurðardóttir,
guðfræðingur, séra Bjarni Þór
Bjarnason, Bryndís Valbjarnardótt-
ir guðfræðingur, séra Gunnar Eirík-
ur Hauksson, Ragnheiður Karítas
Pétursdóttir guðfræðingur, séra
Sigurður Jónsson og séra Svavar
Stefánsson.
Hjallaprestakall
10 mánaða
fangelsi fyrir
fjárdrátt
FYRRVERANDI hafnarvörður hjá
Búðahreppi hefur verið dæmdur í 10
mánaða fangelsi í Héraðsdómi Aust-
urlands fyrir fjárdrátt með því að
hafa dregið sér tæpar 4,7 milljónir
króna af fé hafnarsjóðs á fimm ára
tímabili á árunum 1995 til 2000. Sjö
mánuðir af fangelsisrefsingunni eru
skilorðsbundnir.
Ákærði, sem sætti ákæru ríkis-
saksóknara, var ennfremur dæmdur
til að greiða Búðahreppi 4,1 milljón
króna og allan sakarkostnað. Ákærði
játaði sakargiftir og mun hafa end-
urgreitt 717 þúsund krónur. Logi
Guðbrandsson dómstjóri kvað upp
dóminn. Verjandi ákærða var Othar
Örn Pedersen hrl.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Brunaboði
fór í gang
BRUNABOÐI fór í gang í hjúkrun-
ar- og elliheimilinu Hrafnistu í Hafn-
arfirði skömmu upp úr hádegi í gær.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað á staðinn en síðar kom í ljós að
um bilun var að ræða. Að sögn
slökkviliðs er ekki vitað af hverju
kerfið fór í gang. Á Hrafnistu eru
tæplega 230 vistmenn.
♦ ♦ ♦