Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 20

Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ KONUR, sem starfa hjá einka- fyrirtækjum í ríkjum Evrópu- sambandsins, hafa til jafnaðar 20% lægri laun en karlmenn. Kemur það fram í könnun, sem birt var í gær. Í þremur ríkjum, Belgíu, Danmörku og Portúgal, er launamunurinn minnstur, innan við 10%, en í Þýskalandi er hann mestur eða 24%. Fram kemur, að konur í fullu starfi eru yfirleitt yngri en karlarnir og skýrist það af því, að margar konur hverfa um hríð af vinnumarkaði vegna barneigna. Hjá hinu opinbera er launamunurinn verulega minni en hjá einkafyrirtækjum. Árás í Kúveit BANDARÍSKIR hermenn í Kúveit skutu í gær tvo menn, sem höfðu áður drepið einn bandarískan hermann og sært annan. Átti atburðurinn sér stað er bandarísku hermenn- irnir voru við æfingar á eynni Failaka undan strönd landsins. Talsmenn hersins sögðu, að mennirnir hefðu komið að á bíl og hafið skothríð á hermennina. Hefði henni þá verið svarað. Sögðu þeir ekkert um þjóðerni mannanna en 26 manns, sem ekkert höfðu að gera með her- æfingarnar á eynni, voru teknir til yfirheyrslu. Deila enn um Gíbraltar ANA Palacio, utanríkisráð- herra Spánar, sagði í gær, að fyrirhuguð þjóðaratkvæða- greiðsla á Gíbraltar um sameiginlegt forræði Breta og Spánverja væri „laga- lega mark- laus“ og ekki „viðeigandi“. Íbúarnir eru mjög á móti sameiginlegu for- ræði og vilja fá að hafna því með atkvæðagreiðslu. Fjárlaga- afgangurinn minnkar SÆNSKA stjórnin spáir því, að hagvöxtur í Svíþjóð á þessu ári verði 2,1% og fjárlagaafgang- urinn verði 1,7% af vergri þjóð- arframleiðslu, allmiklu minni en á síðasta ári. Gert er hins vegar ráð fyrir 2,5% hagvexti á næsta ári og 2004. Aðalástæðan fyrir minni fjárlagaafgangi á þessu ári er skattalækkanir. Hraðaaukn- ing gagnrýnd TILLAGA danskra stjórnvalda um að auka leyfilegan há- markshraða á helstu þjóðveg- um hefur verið harðlega gagn- rýnd á þingi. Segja talsmenn stjórnarandstöðunnar, að verði hraðinn færður upp í 130 km muni það valda enn fleiri dauðaslysum en nú eru. Tillag- an gerir ráð fyrir, að hraðinn megi vera 130 km á klst. á 15% veganna, 120 á 50% og áfram 110 km á 35%. STUTT Hallar á konur í laununum Ana Palacio GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti krafðist þess í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld að stjórnvöld í Írak förg- uðu gereyðingarvopnum sínum eða tækju afleiðingunum ella. Bush kall- aði Saddam Hussein, forseta Íraks, „morðóðan einræðisherra“ sem ógn- aði Bandaríkjunum og bandamönn- um þeirra en Bush tók hins vegar fram að stríð væri ekki óhjákvæmi- legt né um það bil að skella á. Þá virtist forsetinn draga nokkuð úr áherslu sinni á að Bandaríkja- menn myndu fara einir gegn Írak ef með þyrfti; í staðinn sagði Bush að Írakar myndu mæta sameinaðri sveit bandalagsþjóða ef þeir ekki hlýttu tilmælum um afvopnun. „Tími afneitunar, blekkinga og tafa er liðinn. Saddam Hussein verð- ur að afvopnast – geri hann það ekki munum við í nafni friðar vera í far- arbroddi þjóða sem vilja afvopna hann,“ sagði Bush í ávarpi sínu, sem ætlað var efasemdarmönnum í Bandaríkjunum. Fréttaskýrendur segja marga Bandaríkjamenn enn ekki sann- færða um réttmæti þess að efna til hernaðar gegn Írak en ræðan á föstudag er þó fyrst og fremst sögð hafa verið beint gegn fulltrúum á Bandaríkjaþingi sem í þessari viku munu greiða atkvæði um tillögu þess efnis, að forsetanum verði veitt heimild til að hefja stríð. Sagði Bush að þó að menn sam- þykktu tillöguna þá væri „ekki þar með sagt að hernaðarárás sé yfirvof- andi eða óhjákvæmileg“. „Samþykkt tillögunnar mun hins vegar senda Sameinuðu þjóðunum, öllum þjóðum heims, þau skilaboð að Bandaríkin tali einni röddu í þessu máli og að þau séu staðráðin í að tryggja að kröfur hins siðmenntaða heims séu einhvers virði,“ sagði bandaríski for- setinn. Segir hugsanlegt að Írak sé að undirbúa árás Bush sagði þá ógn sem af Írak stafaði einstæða þar sem Írakar hefðu ekki aðeins lengi viljað þróa kjarnorku-, eiturefna- og sýklavopn, heldur hefðu þeir einnig lengi verið í miklum tengslum við alþjóðlega hryðjuverkamenn. „Írak gæti hvenær sem er ákveðið að afhenda hryðjuverkasamtökum eða einförum á því sviði sýkla- eða eiturefnavopn,“ sagði forsetinn. Og hann bætti því við að hugsanlegt væri að Írakar væru nú þegar með áform um að ráðast á Bandaríkin með þess háttar vopnum. Bush sagði að Írak yrði að veita upplýsingar um öll gereyðingarvopn sín og eyða þeim. Þá yrðu Írakar að hætta stuðningi við hryðjuverka- samtök, binda enda á ofsóknir gegn óbreyttum borgurum í Írak og hætta tilraunum til að svindla á viðskipta- banni Sameinuðu þjóðanna. „Með því að gera allt þetta, án allra refja, getur Íraksstjórn komist hjá átökum,“ sagði bandaríski for- setinn. Bush segir tíma blekk- inga og tafa liðinn Sagði Bandaríkjamönnum þó að stríð gegn Írak væri hvorki yfirvofandi né óhjákvæmilegt Cincinnati. AFP. Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti er hann flutti ræðu sína í fyrrakvöld. HEIMSMEISTARINN í skák, Rússinn Vladimír Kramnik, sigraði á sunnudaginn skák- tölvuna Deep Fritz, sem sögð er vera öflugasta tölva sinnar tegundar, í annarri skák þeirra á móti er fram fer í Bahrain, en fyrstu skákinni lauk með jafn- tefli á föstudaginn. Hægt er að fylgjast með framgangi mótsins á vefsetrinu www.brainsinbahrain.com, en þar kemur fram, að tölvan hafi leikið af sér á sunnudag og eftir það hafi hún aldrei náð sér á strik. Kramnik hafði hvítt. Tefldar verða átta skákir og fær Kramnik um 87 milljónir íslenskra króna beri hann sig- urorð af hinum djúpúðga Fritz en rúmar 60 millj. kr. geri hann jafntefli. Kramnik vann Deep Fritz MIKLIR kjarreldar loga í nágrenni borgarinnar Sydney í Ástralíu og höfðu þeir í gær eytt 10 húsum og skemmt önnur 11. Höfðu um 200 manns neyðst til að flýja að heiman vegna eldanna. Hér að ofan má sjá slökkviliðsmenn reyna að bjarga húsum, sem eldarnir höfðu læst sig í en mestir voru þeir við úthverfið Engadine og hjálpaðist allt að við að gera þá erfiða viðureignar, strekkingsvindur, mikill hiti og óvenjulítill loftraki. Ógnuðu eld- arnir einnig 30 húsum vestur af Sydney og höfðu allir íbúar þeirra forðað sér. Þessi árstími er mikil kjarrelda- tíð í Ástralíu og yfirleitt eru það eldingar, sem koma eldunum af stað. Yfirvöld telja hins vegar, að sumir eldanna hafi verið kveiktir af ásettu ráði. Loga um 50 eldar við Sydney og um 70 í Nýju Suður- Wales. Reuters Kjarreldar í Ástralíu NÝ ríkisstjórn Gerhards Schröders, kanzlara Þýzkalands, fór í gær að taka á sig mynd. Beinist áherzlan í uppstokkuninni eftir þingkosn- ingarnar, sem fram fóru hinn 22. september síðast- liðinn, að því að taka atvinnuleys- isvandann og samdráttinn í efnahagsmálun- um föstum tök- um. Einnig ber nokkuð á því að nokkrum af eftirlæt- isbaráttumálum þýzkra græningja, sem standa að ríkisstjórninni ásamt Jafnaðarmannaflokki kanzlarans, sé gert hærra undir höfði. Þykir Schröder kanzlari hafa landað góð- um feng með því að hafa tekizt að telja flokksbróður sinn Wolfgang Clement, sem um árabil hefur gegnt forsætisráðherraembætti í Nord- rhein-Westfalen, fjölmennasta og iðnvæddasta sambandslandi Þýzka- lands, á að taka að sér að fara fyrir sameinuðu atvinnu- og efnahags- málaráðuneyti Þýzkalands. „Harður athafnamaður“ í mik- ilvægasta ráðherrastólnum „Snilldarbragð“ sagði æsifrétta- blaðið Bild Zeitung í fyrirsögn um ráðherradóm Clements, en blaðið hefur að jafnaði verið meðal hörð- ustu gagnrýnenda Schröders kanzl- ara og hinnar „rauð-grænu“ ríkis- stjórnar hans. „Harður athafnamaður situr nú í mikilvægasta stólnum í ríkisstjórn- inni,“ segir í frétt Bild. Clement er 62 ára og hefur getið sér orð fyrir að vera maður sem hef- ur sitt fram og skirrist ekki við að eiga rimmur hvort sem er við verka- lýðsfélög eða samtök vinnuveitenda. Hann segist sjálfur líta á verkefnin sem fyrir honum liggja í sam- bandsstjórninni sem „mikla áskor- un“. „Þýzkaland verður að brjótast út úr vítahring vanagangsins í barátt- unni við atvinnuleysisvandann,“ var haft eftir Clement í þýzkum fjölmiðl- um í gær. Ný ríkisstjórn í Þýzkalandi tekur á sig mynd Áherzla á atvinnumál Berlín. AFP. Wolfgang Clement

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.