Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 31

Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 31 Í VIÐTALI um vanda heilbrigðis- þjónustunnar á Rás 2, hinn 29. ágúst síðastliðinn sagði Ásta Möller, alþing- ismaður og nefndarmaður í heilbrigð- isnefnd Alþingis, orðrétt: „Það er ákveðin summa sem fer í heilbrigðisþjónustuna og við þurfum alltaf að skoða, er verið að nota það fé alveg rétt. Ef ég má taka eitt dæmi sem ég hef verið að skoða aðeins upp á síðkastið og það er, að það fara 350 milljónir á ári í flúortannpenslun hjá börnum, 350 milljónir, og það eru komnar greinar núna sem að draga í efa áhrif þessarar flúorpenslunar og það sé eingöngu nauðsynlegt að gera það hjá ákveðnum áhættuhópum. Er- um við þá að nota þessar 350 milljónir rétt? Mætti þá ekki færa þær á þá staði sem meiri er þörf á því og í að forgangsraða ofar.“ Það er mikilvægt að almenningur, og ekki síst þeir sem sitja í fjárlaga- nefnd Alþingis, átti sig á að þessar upplýsingar eru fjarri öllu lagi. Í kjöl- far viðtalsins á Rás 2 aflaði Tann- læknafélags Íslands (TFÍ) sér réttra upplýsinga hjá Tryggingastofnun rík- isins (TR), sem brást skjótt við og sendi tölur um hæl. Í kjölfarið birti heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið pistil á heimasíðu sinni um framlög vegna forvarnartannlækn- inga barna. Í pistlinum kemur fram að framlög TR vegna forvarnaþáttar tannlækn- inga barna hafi á liðnu ári numið sam- tals um 287 milljónum króna. Fram- lög vegna flúorlökkunar tanna hjá börnum námu um 74 milljónum króna, framlög vegna skoðunar um 83 milljónum, vegna skorufyllna um 26 milljónum króna, vegna röntgen- mynda um 61 milljón króna, vegna tannhreinsunar og pússunar rúmlega 40 milljónum króna og vegna flúor- penslunar rúmlega 3 milljónum króna. Þetta gera um 287 milljónir króna á árinu 2001, eins og áður sagði. Framlög vegna flúorlökkunar á tönnum barna Eftir Bolla Valgarðsson „Mikilvægt er að al- menningur, og ekki síst þeir sem sitja í fjárlaganefnd Al- þingis átti sig á að þessar upplýsingar eru fjarri öllu lagi.“ Höfundur er framkvæmdastjóri TFÍ. GÓÐUR árangur náðist í tann- heilsumálum okkar á 15 ára tímabili eftir 1986, þegar tannskemmdum hjá 12 ára börnum fækkaði um ca. 70%, sem án efa mátti aðallega þakka auk- inni fræðslu og einföldum fyrirbyggj- andi aðgerðum. Hætt er við að sá bati verði hægari nú eftir að greiðslur hins opinbera hafa lækkað úr 75% kostnaðarins í um 50% m.a. hjá börnum og ungling- um, sé miðað við verðlagsbreytingar sem hafa orðið. Á sl. 12 árum hafa greiðslur hins opinbera fyrir tannlækningaþjónustu verið nánast óbreyttar í krónutölum og lækkuðu á árinu 1993–1998, þrátt fyrir að á undanförnum árum hafi út- gjöld hins opinbera til heilbrigðismála hækkað um ca. 11% á ári. Nú er talið að um 20% barna og unglinga komi ekki reglulega til eft- irlits með tennur sínar hér á landi, en hinar Norðurlandaþjóðirnar leggja aftur á móti mesta áherslu á þessa aldurshópa og greiða t.d. Danir 100% kostnaðarins vegna tannlækninga- þjónustu til 18 ára aldurs, Norðmenn og Finnar til 19 ára aldurs og Svíar til 20 ára aldurs. Fylgjast þessar þjóðir grannt með því að allir skili sér til eft- irlits. Nú er það skoðun margra tann- lækna, m.a. Sigfúsar Þórs Elíassonar prófessors, sem framkvæmt hefur flestar kannanir á tannheilsu Íslend- inga, að eftir að endurgreiðslum lýkur hjá börnum og unglingum við 18 ára aldurinn, komi tímabil, þegar eftirlit og umönnun tanna dettur niður. Svíar greiða stóran hluta alls kostnaðar hjá fullorðnum en Danir takmarka greiðslurnar við einfaldar aðgerðir. Finnar greiða fyrir vissa aldurshópa fullorðinna en Norðmenn miða við 21 árs aldurinn. Við greiðum aftur á móti hluta kostnaðarins hjá öryrkjum og ellilíf- eyrisþegum. Hinar Norðurlandaþjóðirnar ann- ast þar að auki reglubundna þjónustu fyrir þá sem minna mega sín, eins og t.d. þroskahefta, hreyfihamlaða og langsjúka og greiða 100% kostnaðar- ins, en við aftur á móti greiðum hluta kostnaðarins hjá sambærilegum hóp- um. Mikilvægt er að við höldum áfram þeim bata sem byrjaði uppúr 1986 svo að við glötum ekki niður þeim árangri sem þá náðist. Við þurfum að stefna að því að ná jafngóðum árangri og hinar Norðurlandaþjóðirnar, en til þess þurfum við að efla forvarnir og auka framlög hins opinbera til tann- lækningaþjónustu hérlendis. Tannheilsa Íslendinga Eftir Magnús R. Gíslason Höfundur er fyrrverandi yfirtannlæknir. „Nú er talið að um 20% barna og unglinga komi ekki reglulega til eftirlits með tennur sínar hér á landi ...“. HEILKENNI Sjögrens er lang- vinnur bandvefssjúkdómur af ónæmisfræðilegum toga. Helstu einkenni eru þurr slímhúð í aug- um, munni og loftvegum. Sjúk- dómurinn flokkast sem fjölkerf- asjúkdómur og honum geta fylgt liðverkir og vöðvaverkir og af og til einnig bólgur í liðum. Einnig fylgir honum mikil og hamlandi þreyta. Einkenni geta líka komið fram frá flestum líffærum líkam- ans, t.d lungum, meltingarfærum, nýrum og jafnvel taugakerfi. Erfitt getur verið að greina sjúkdóminn vegna þess að mörg einkenni Sjögrens-sjúkdómsins geta líkst einkennum annarra sjúkdóma. Engin lækning er til við þessum sjúkdómi. Meðferðin bygg- ist fyrst og fremst á því að lina þjáningar og meðferð tekur mið af alvarleika einkenna hvers og eins. Eitt af einkennum Sjögrens- sjúkdóms er munnþurrkur sem getur valdið miklum óþægindum, erfitt getur verið að tyggja og kyngja fæðunni. Sjögrens-sjúk- lingar þola illa kryddaðan mat og þurfa að drekka mikið með mat og milli mála og fá sér vatn á nóttunni til að væta munninn. Erfitt er að tala lengi og hafa góð- an og greinilegan framburð þar sem lítið eða nánast ekkert munn- vatn er til staðar. Einnig eiga ein- staklingar með munnþurrk í erf- iðleikum með að nota gervitennur. Dags daglega hugsum við ekki mikið út í það hvað munnvatnið gerir fyrir okkur, en það er nauð- synlegt til þess að okkur geti liðið vel, borðað og talað óhindrað og haldið góðri tannheilsu. Fyrir utan vatn inniheldur munnvatn efni sem verndar bæði slímhúð og tennur fyrir offjölgun baktería og sveppa. Hjá Sjögrens-sjúklingum er nán- ast engin munnvatnsframleiðsla og skiptir það miklu máli að hugsa vel um tennur og tannhold, því koma má í veg fyrir óþarfa tannskemmd- ir með góðri tannhirðu. Það er því mjög mikilvægt fyrir Sjögrens- sjúklinga að fara reglulega til tannlæknis og hugsa vel um tenn- urnar. Innan Gigtarfélags Íslands (GÍ) er starfandi áhugahópur um heil- kenni Sjögrens og mun hann standa fyrir fræðslukvöldi í kvöld, 9. október, á afmælisdegi GÍ, í húsi félagsins í Ármúla 5, 2. hæð kl. 20:00. Þar mun Peter Holbrook, prófessor við Háskóla Íslands, flytja erindi um áhrif Sjögrens- sjúkdómsins á tennur og tannhold. Laugardag 12. október er Al- þjóðlegi gigtardagurinn og af því tilefni verður opið hús í húsnæði Gigtarfélagsins í Ármúla 5 kl. 13.00-16.00. Þar verður boðið upp á fræðslu, kynningar og skemmt- un, auk þess sem áhugahópar fé- lagsins kynna starfsemi sína. Heilkenni Sjögrens – hvað er nú það? Eftir Stellu Guðmundsdóttur „Eitt af ein- kennum Sjögrens er munn- þurrkur sem getur valdið miklum óþægindum …“ Höfundur er í stjórn áhugahóps um heilkenni Sjögrens. DVÖL – athvarf fyrir fólk með geð- raskanir á fjögurra ára afmæli hinn 9. október. Gestir Dvalar eru orðnir æði margir á þessum fjórum árum, sumir líta inn til að hitta aðra, spjalla, fá sér kaffisopa og kíkja í blöðin. Enn aðrir til að vinna að listsköpun, taka þátt í námskeiðum og ýmsum árstíða- bundnum uppákomum. Dvöl er ætlað að rjúfa þá félagslegu einangrun sem allt of margir búa við, sem hafa greinst með geðræna sjúk- dóma. Það er ótrúlegt að á árinu 2002 er ennþá feimnismál að tala um þung- lyndi og kvíða, að minnsta kosti tala gestir Dvalar um það af eigin reynslu að svo sé. Það væri gott að almenningur skoðaði nú svolítið í eigin barm, af til- efni 10. október, sem er alþjóðageð- heilbrigðisdagurinn. Kópavogsdeild Rauða kross Ís- lands sér um daglegan rekstur Dval- ar, hægt er að fá þar mat gegn vægu gjaldi sem gestir og starfsfólk útbúa saman. Kópavogsbær og svæðisskrif- stofa Reykjaness koma líka að at- hvarfinu. Við athvarfið starfar einvalalið sjálfboðaliða sem sjá um að hafa opið á laugardögum frá 13 til 16 og eins koma þeir til aðstoðar á virkum dög- um. Á virkum dögum er opið frá 9 til 16 nema á fimmtudögum, þá er opið frá 10 til 16. Dvöl er í Reynihvammi 43 í Kópavogi. Dvöl – athvarf fyrir geðfatlaða Eftir Sigurbjörgu Lundholm „Dvöl er ætl- að að rjúfa félagslega einangrun.“ Höfundur er starfsmaður í Dvöl. LÖGFRÆÐISTÖRF á þessu ári í þágu tveggja eldri kvenna hafa varpað ljósi á starfshætti Trygg- ingastofnunar ríkisins, þar sem gömul og viðurkennd gildi hafa beint og óbeint verið notuð sem tæki til að skerða ellilífeyri. Það á við um hjúskap, eigin tekjur og tekjur maka, afnot af eigin íbúð og vexti og verðbætur af eigin sparifé og sparifé maka. Þar sem TR er eini launagreið- andi margra ellilífeyrisþega og skerðingarnar fara jafnan hljótt er óhjákvæmilegt að upplýsa um starfshætti TR. En fleira kemur til, svo sem að engu skiptir hversu skýrt og skorinort starfsmenn stofnunarinnar og ráðuneytis tryggingamála eru spurðir um dóm Hæstaréttar frá 19. des. 2000 í máli Öryrkjabandalagsins gegn TR. Dómurinn sem ætti með réttu að móta allt starf TR fæst ekki reifaður með tilliti til aðferða stofnunarinnar á árunum 2001 og 2002 og virðist þar sem snara í hengds manns húsi. Vandi kvennanna tveggja var sá að þær misstu allar ellilífeyris- greiðslur sínar frá TR þegar fyrir lá í skattframtölum að eiginmenn þeirra höfðu hvor um sig um mitt ár 2000 selt hlutabréf, sem tengd- ust ævistarfi þeirra, með sölu- hagnaði. Eftir stóðu þá lífeyris- sjóðagreiðslur kvennanna einar sér sem þeirra tekjur, innan við kr. 330.000, ársgreiðslur hjá hvorri. Við athugunina kom í ljós að starfsmenn TR hafa óheftan að- gang að skattupplýsingum ellilíf- eyrisþega og nota þær til að skerða ellilífeyri eftir mjög flóknu kerfi (sjö tegundir greiðslna). Sér- stök athugunarefni eru: Skerðing- ar á ellilífeyrinum eru gerðar án sérstaks fyrirvara eða tækifæris til athugasemda eins og gert er við breytingar skattyfirvalda á fram- tölum. Tryggingaráð, sem skjóta má málum til, vegna ákvörðunar lífeyrisgreiðslna, virðist ekki líta á það sem sitt verk að fjalla efn- islega um kæruefni, heldur fær starfsmönnunum sem stóðu að skerðingunum það til úrlausnar. Skerðingartímabilin eru jafnan önnur en skattárin. Fjármagns- tekjur karlanna, sem greiddur hafði verið af 10% fjármagnstekju- skattur, varð tilefni til 22,5% skerðingar á ellilífeyrisgreiðslum karlanna sem og kvennanna. Launatekjur ellilífeyrisþega valda jafnan 38,54% tekjusköttum en geta jafnframt valdið 45% skerð- ingu ellilífeyris. Þá standa eftir kr. 16,46 af hverjum kr. 100, sem elli- lífeyrisþeginn hefur aflað. Á fundi í Ráðherrabústaðnum nýlega mættu fimm ráðherrar rík- isstjórnarinnar með forsvarsmönn- um félaga eldri borgara til að vinna að lagfæringum á ellilífeyr- inum. Það staðfestir ásamt öðru að vandinn sem brennur á starfs- mönnum TR er fyrst og síðast pólitískur, kominn frá Alþingi og ríkisstjórn. Aðkoma ráðherranna sýnir einnig þrönga stöðu starfs- manna TR og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis. Annars vegar eru stjórnarskrárákvæði um jafnrétti manna og rétt til aðstoð- ar í ellinni, sbr. 76. gr., staðfest af Hæstarétti. Hins vegar eru aðfarir eins og sú þegar millistjórnanda Símans var fyrirvaralaust vikið úr starfi fyrir að upplýsa um meint lögbrot í stofnuninni án þess þau sættu rannsókn. Forsvarsmönnum Trygginga- stofnunar ríkisins ber ótvíræð skylda að upplýsa ellilífeyrisþega og verðandi ellilífeyrisþega ræki- lega og án tafar um að tekjuöflun ellilífeyrisþega eða maka hans getur með sköttum og skerðing- um valdið miklum lækkunum og oft niðurfellingum á ellilífeyrin- um. Þurfa alþingismenn, sem unnið hafa eið að stjórnarskránni, ekki að huga að þessu máli strax eða er nóg að forsætisráðherra tilkynni að nefnd hafi verið skipuð til að vinna að sáttarlausn? Réttarspjöll í Tryggingastofnun? Eftir Tómas Gunnarsson „…starfs- menn TR hafa óheftan aðgang að skattupplýs- ingum ellilífeyrisþega og nota þær til að skerða ellilífeyri eftir mjög flóknu kerfi…“. Höfundur er lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.