Morgunblaðið - 09.10.2002, Side 34

Morgunblaðið - 09.10.2002, Side 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ingibjörg Einars-dóttir fæddist í Reykjavík 25. nóv- ember 1904. Hún lést á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund hinn 17. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Steinunn Guðnadóttir og Ein- ar Vigfússon bakari. Bróðir Ingibjargar var Bjartmar Ein- arsson, f. 1900, d. 1963. Ingibjörg giftist árið 1938 Árna Þórðarsyni skóla- stjóra, f. 3. júní 1906, d. 10. októ- ber 1984. Börn þeirra eru: 1) Steinunn, f. 2. mars 1942, gift Ólafi S. Ottóssyni, f. 8. apríl 1943, og eiga þau þrjár dætur, Ingibjörgu, f. 1963, Kristínu, f. 1966, og Ernu, f. 1970. 2) Einar, f. 13. júní 1945. Hans börn eru Berglind, f. 1966, Ingibjörg, f. 1969, og Árni Þór, f. 1979. Barnabarnabörnin eru átta. Ingibjörg ólst upp í Stykkishólmi frá sex ára aldri en flutti til Reykjavík- ur 1930. Hún hafði fram að því unnið í bakaríinu hjá föður sínum en vann eftir komuna til Reykja- víkur í verslun Gunnþórunnar Halldórsdóttur. Ingibjörg var húsmóðir, lengst af á Kvisthaga 17, síðan á Afla- granda 40 þar til hún flutti á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund í árslok 1999. Útför Ingibjargar fór fram í kyrrþey frá Fossvogs- kapellu 21. september. Fyrir sérkennilega tilviljun hitt- umst við Steinunn fyrst í húsi austur í bæ, eiginlega hvorki hjá hennar kunningjum né mínum. Næst áttum við „stefnumót“ á Hressó og svo fáeinum dögum síð- ar á Kvisthaga, þar sem hún bjó í foreldrahúsum, hjá Ingibjörgu og Árna ásamt Einari yngri bróður sínum. Ég man að þessi fyrsta heimsókn var síðla dags seint í júlí og þær voru einar heima mæðgur, Árni líklega í óbyggðaferð á hest- um og Einar úti á landi í sum- arvinnu. Það situr fast í minning- unni, hvað það var hljótt í íbúðinni og mikil ró og regla á öllu. Ingi- björg sat við „útdragið“ í eldhús- inu, líklega eftir síðdegisblundinn, tilbúin með mjólk og hafraköku handa Steinunni, einkadótturinni, sem nýlega var komin heim aftur eftir tveggja ára dvöl í útlöndum. Ingibjörg tók mér frá þessum fyrsta degi eins og ég væri strák- urinn hennar líka og núna, þegar ég hugsa til baka, finnst mér að þarna sé upphafið að minni gæfu. Við Steinunn héldum áfram að hittast, oftast á Kvisthaganum og Ingibjörg sá til þess að strákurinn, þá enn ekki tvítugur, utan af landi í leiguherbergi í austurbænum, hefði nóg að bíta, hafrakakan varð staðlað meðlæti og þannig var það í hérumbil fjörutíu ár. Það liðu víst ekki nema rúmlega tveir mánuðir frá fyrstu heimsókninni á Kvist- hagann þar til stefndi í „varanleg tengsl“. Við Steinunn túlofuðumst og Ingibjörg hélt matarveislu og um áramótin næstu á eftir var giftingin. Enn var Ingibjörg með veislu heima á Kvisthaga, við feng- um forstofuherbergið og um vorið fæddist ný Ingibjörg. Orðið „heima“ situr ofarlega, þegar maður hugsar til Ingibjarg- ar, sem annars var alltaf kölluð Gagga af kunnugum. Hún var sannarlega heimakær, heimilið hennar vettvangur og þar var allt í röð og reglu og á áætlun! Hún var fædd í Reykjavík en flutti sex ára til Stykkishólms með Einari föður sínum bakara, Steinunni móður sinni og Bjartmari bróður. Þar ólst hún upp frá sex ára aldri og flutti ekki aftur „heim“ fyrr en 1930, þá tuttugu og sex ára og móðir henn- ar fallin frá. En kannski var Hólm- urinn líka og alveg eins „heima“. Þaðan var fjöldi góðra vina, sem voru tíðir gestir á Kvisthaganum og seinna Aflagranda, þótt hóp- urinn væri eðlilega farinn að þynn- ast, þegar svo mjög leið á langa ævi. En mér finnst Gagga alltaf hafa verið „Reykjavíkurmær“, spásserandi á þessum árum fín í tauinu um Austurstræti með vin- konum sínum, ball á Borginni eða í Gúttó og vinna á daginn hjá Gunn- þórunni í nafla miðbæjarlífsins. En þær vinkonur gerðu fleira; þær ferðuðust um landið á sumrin, klifu fjöll og iðkuðu skíðin á vet- urna og það var næstum sama hvaða staði eða fjöll á landinu maður nefndi; Gagga og félagar höfðu verið þar. Svo hitti hún Árna 1938, þá þrjátíu og fjögurra ára og fjórum árum eftir brúðkaup þeirra fæddist Steinunn og þar með var þessum kafla lokið; Gagga var „bú- in“ að ferðast um firnindin. Nú tók heimilið við og þremur árum síðar fæddist Einar. Árni var mikill skólamaður og lengst af skóla- stjóri. Íslenska var hans fag og ís- lensku var hann að kenna og kljást við löngu eftir að hann hætti skólastjórn og allt þar til hann féll frá 1984, þá liðlega 78 ára. Mér finnst að samband þeirra Göggu og Árna hafi alla tíð verið mjög gott, gagnkvæm virðing og vinátta þroskaðra einstaklinga. Börnin urðu aðalviðfangsefni þeirra Göggu í orðsins fyllstu merkingu og svo börn þeirra, barnabörn og tengdabörn og öll höfum við notið óendanlegrar væntumþykju þeirra, vináttu og stuðnings, sem gleymist ekki. Sjálf var Gagga lukkunnar pamfíll enda stofnaði hún til þess með sinni háttvísi, stillingu, og kímni. Hún hallaði aldrei orðinu á annað fólk eða freistaði þess að þröngva sínum eigin skoðunum upp á aðra þótt hún stæði sannarlega fast á sínu, þegar það átti við. Ekki man ég heldur til þess, að hún hafi nokk- urn tíma látið í ljós efasemdir eða vanþóknun á því, sem við Steinunn gerðum eða gerðum ekki, þótt sannarlega gæfum við tilefnin. Eins og þegar við fundum upp á því 1973 að flytja um árabil til fjarlægrar heimsálfu með nánast alla hennar fjölskyldu og áreið- anlega hennar dýrustu perlur, Steinunni og stelpurnar okkar þrjár. Aldrei bar á neinu öðru en umhyggju og bestu óskum og bréf- in streymdu á milli, því þá var síminn ekki valkostur. Heimsókn var heldur ekki á dagskrá, fjar- lægðin mikil og svo var Gagga „búin“ að fara til útlanda, hafði farið með Árna til Danmerkur og fleiri landa í mánaðarferð sumarið ’59. En forlögin gripu í taumana. Þau hjón fóru fyrir þrábeiðni vina á ferðakynningu hjá Ingólfi Guð- brandssyni á Sögu. Það var ekki venjulegt uppátæki hjá Göggu en kynning ferða til Austur-Afríku voru nýmælið á dagskránni og það gat verið áhugavert. Svo var bingó og aðalvinningurinn mánaðarferð til Kenýa. Mikill var æsingurinn og eftirvæntingin meðal sessu- nautanna, þegar allt stefndi í að Gagga myndi vinna. Síðasta talan kom og „bingó“! Árni fór fram á gang, treysti sér ekki til að sitja meðan farið var yfir tölurnar en heyrði svo frá manni, sem gekk hjá, að „gamla“ konan, líklega sú eina þarna inni, sem ætti alla sína fjölskyldu í Kenýa, hefði unnið ferðina þangað – stórmerkilegt! Og þau komu, Árni og Gagga, um jólin 74/75 öllum til ólýsanlegrar gleði. Svona var Gagga. Þótt hún vildi helst vera heima við hann- yrðir og prjónaskap (hún prjónaði og seldi ferðamannabúðunum ein- hverjar þær vönduðust lopahosur, sem sést hafa og bóderaði flotta púða) þá var hún alltaf reiðubúin að leggja á sig ferð til að hitta stelpurnar sínar og seinna þeirra börn. Steinunn var líka móður sinni kær vinur, stoð og stytta og heimsótti hana nánast daglega seinni árin. Gagga hefði orðið 98 ára í nóv- ember en hún var ekki að bíða eft- ir því afmæli. Bjóst aldrei við að það drægist svona lengi að þau hjónin hittust fyrir hinum megin. Það urðu átján ár og Gagga var við góða heilsu lengst af eða þang- að til hún datt og lærbrotnaði, þá níræð og svo datt hún aftur tveim- ur árum síðar. Á fætur komst hún í bæði skiptin og heim, þar sem hún sá um sig að mestu sjálf, þar til fyrir rúmlega tveimur árum. Þá varð hún enn fyrir því að detta og átti nú ekki afturkvæmt heim á Aflagranda, fékk aðstöðu á Grund, þar sem hún bjó þar til kallið kom aðfaranótt 17. september sl. Ingi- björg naut mikillar vinsemdar og umhyggju frá starfsfólki á frúar- gangi Grundar árin sem hún bjó þar og fyrir það þakka aðstand- endur innilega. En tengdamóður minni þakka ég umhyggjusemina endalausu, smitandi hláturinn, geðprýðina, ör- lætið og elskuna, sem frá henni stafaði stöðugt til okkar Steinunn- ar, dætranna og langömmubarna, sem eru viss um að nú sé hún orð- in engill eins og langafi! Við minn- umst hennar öll með virðingu og söknuði. Ólafur S. Ottósson. Fyrir okkur var amma bóhem. Sögur hennar voru ekki úr sveit- inni heldur úr Reykjavík, um hana og vinkonurnar sem dönsuðu á Borginni og ferðuðust um landið fótgangandi, á skíðum, á hestum eða aftan á pallbílum. Hún þekkti fína listmálara og skáld og við vor- um upp með okkur að hún væri amma okkar. Heimili ömmu og afa á Kvisthaga varð okkar annað heimili þar sem þau voru dugleg að hjálpa mömmu og pabba með „ómegðina“. Afi sá um útivist og hreyfingu og amma gaf okkur gott að borða þegar við komum heim, nýbakaða súkkulaðiköku, hafra- köku og skonsur sem voru engu líkar. Á kvöldin var spilað og fyrir svefninn var settur hitapoki í rúm- ið til að notalegt væri að fara að sofa. Þegar við eltumst var gott að geta rölt til þeirra, þau höfðu alltaf tíma til að spjalla. Amma hafði mikinn og góðan húmor og hló svo innilega að við héldum stundum að hún dæi úr hlátri. Við þökkum ömmu fyrir allar góðar stundir og kveðjum hana með söknuði. Ingibjörg, Kristín og Erna Ólafsdætur. INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR Minningarnar eru hlýjar, eins og nýupptekið smælki, er bráðna sem smjör í munninum Minning- arnar eru sætar eins og rifs- berjahlaup og hafrakaka. Og minningarnar lifa að eilífu í hjört- um þeirra sem sakna. Ragnhildur Bjarnadóttir. HINSTA KVEÐJA Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, JÓN MÁR ÞORVALDSSON prentari, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 11. október kl. 13.30. Finnur Logi Jóhannsson, Oddný Halla Haraldsdóttir, Þorvaldur Ingi Jónsson, Dís Kolbeinsdóttir, Jóhanna Marín Jónsdóttir, Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, Engilbert Þórðarson og barnabörn. Elsku hjartans maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, GUNNAR H. STEINGRÍMSSON, Leiðhömrum 48, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 10. október kl. 15.00. Halldóra Óladóttir, Sigríður O. Gunnarsdóttir, Oddný Gunnarsdóttir, Hörður E. Sverrisson, Halldór Steingrímsson, Guðrún Jensdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS SIGFÚSSON, Gröf, Víðidal, sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi sunndaginn 29. sept- ember, verður jarðsunginn frá Undirfellskirkju laugardaginn 12. október kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Sigfúsdóttir, Helgi Ingólfsson, Benedikt Sigfússon, Skúli Sigfússon, Jóhanna Sigfúsdóttir, Erlendur Sigtryggsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar, bróður, mágs og frænda, GUÐNA INGÓLFSSONAR, Eyjum, Kjós. Helga Pálsdóttir, Ingólfur Guðnason, Anna Ingólfsdóttir, Kristinn Helgason, Hermann Ingólfsson, Birna Einarsdóttir, Páll Ingólfsson, Marta Karlsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Þór Sigurgeirsson, Valborg Ingólfsdóttir, Ómar Ásgrímsson og frændsystkin. Við þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og kærleika við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR ELÍSSONAR, Þórustíg 9, Ytri-Njarðvík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík. Fyrir hönd okkar allra, Kristín Þórðardóttir. Einlægar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar UNNAR MAGNÚSDÓTTUR, Drafnarstíg 2. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.