Morgunblaðið - 09.10.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 09.10.2002, Síða 36
HESTAR 36 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HROSSARÆKTIN hefur á síðustu árum stefnt hraðbyri inn í nútímann þar sem tölvan hefur leikið eitt aðal- hlutverkið. Brátt hillir undir skrán- ingarskyldu allra hrossa á Íslandi líkt og er með bílana og nú þegar hefur verið byggður upp miðlægur gagnagrunnur sem heitir „World Fengur“ og er eins og nafnið bendir til eða verður í fyllingu tímans skráningarvettvangur allra ís- lenskra hrossa í heiminum. Eitt stigið í þeirri þróun sem átt hefur sér stað er útgáfa eignarhaldsskír- teina fyrir hross. Er þar um að ræða skírteini til handa eiganda hestsins sem vottar eignarhald hans á hestinum. Nýlega var öðru skír- teini hleypt af stokkunum sem kall- ast vegabréf og kann einhver að halda að þar sem sé um sama eða svipaðan hlut að ræða en svo er ekki. Staðfesting á eignarhaldi Eignarhaldsskírteinið kemur í stað upprunavottorðanna sem gefin voru út þegar hross voru seld úr landi og taldist handhafi þess ávallt eigandi hrossins. Erlendis hefur það löngum verið þannig að hestur án upprunavottorðs var því sem næst einskis virði. Á Íslandi hefur fram til þessa enginn hestur þurft „papp- íra“ en nú fer þetta að breytast, hægt og sígandi. Folöld sem fædd eru á núlíðandi ári og fá svokallaða A-vottun fá fyrst hrossa eignarhaldsskírteini sem mun fylgja þeim alla ævi og mun eigandinn hverju sinni hafa það undir höndum. Hin trausta greiðslutrygging Hér áður fyrr héldu seljendur hrossa þegar um útflutning var að ræða oft upprunavottorðinu eftir hér á landi þar til kaupandi hafði greitt fyrir umrætt hross væri það ekki staðgreitt. Var hrossið einsk- isvirði fyrir kaupandann ef hann ekki hafði upprunavottorðið. Í dag er það eignarhaldsvottorðið sem verður trygging seljandans en vega- bréfið fylgir hrossinu sem sönnun þess að þetta sé einmitt þessi hestur og enginn annar. Skylt er að ör- merkja öll hross sem seld eru úr landi og er númer örmerkisins skráð bæði á eignarhaldsvottorð sem og vegabréfið. Ef hesteigandi erlendis ferðast með hest sinn milli landa verður hann að láta vegabréf- ið fylgja með en eignarhaldsvottorð- ið getur hann geymt heima. Einnig er orðið skylt að örmerkja öll hross sem færð eru til kynbóta- dóms og virðist nú aðeins tíma- spursmál hvenær tekin verður upp skylduskráning hrossa á Íslandi. Hætt er við að einhverjum þyki nú of langt gengið og stutt í að dýrð- ar- og dulúðarljómi hrossabrasksins muni brátt heyra sögunni til. Skráningarskyldan á næsta leiti Þeir sem þykjast sjá best til fram- tíðar í þessum efnum telja ekki ólík- legt að fyrirkomulagið verði ekki ósvipað og er með bílaflota lands- manna. Allar bifreiðar eru skráning- arskyldar í bifreiðaskrá (sbr. World Fengur) og öll eigendaskipti skulu tikynnt til skráningarstofu (tölvu- deild Bændasamtakanna). Á bakhlið eignarhaldsvottorðanna er afsal fyr- ir hrossið og verður þar væntanlega skráð eigendasaga hrossins. Hingað til hefur gengið mjög illa að fá hest- eigendur til að skrá eigendaskipti hjá Bændasamtökunum og verður fróðlegt að sjá hvort það muni ganga betur með tilkomu eignar- haldsskírteinanna. Hestakaup er það sem kalla má fylgiíþrótt hestamennskunnar þar sem tveir hestamenn skipta á hross- um. Geta það verið skipti á ýmsa lund, eitt hross fyrir fleiri eða eitt á móti einu og annar greiðir milligjöf, ýmist í peningum eða öðrum varn- ingi. Eru til margar skemmtilegar sögur af hestakaupum þar sem menn urðu véfréttalegir í framan. Eins og í öllum viðskiptum er mark- miðið að græða, það er að fá betri hest en látinn er í skiptin. Vilja sum- ir meina að hestakaup sé jafnvel listgrein þar sem kúnstin sé að ljúga aldrei um kosti eða galla hestsins en koma sér hjá því að tala um galla hans eða tala framhjá þeim. Aldrei séð annan eins fótaburð Gott dæmi um þetta er sagan um ungan pilt frá Dalvík sem freistaði þess að eiga óséð skipti við þekktan hestakaupmann að sunnan sem fór miður gott orð af í þessum efnum. Ræddu þeir saman um hrossin sem skipta átti og kepptust báðir við að mæra sitt hross sem mest. Sagði sá ungi frá Dalvík að hann hefði aldrei séð annan eins fótaburð og hjá þess- ari hryssu sem hann hugðist setja í býttin. Handsöluðu þeir síðan kaup- in og „sú fótaburðarmikla“ fór suður en nokkrum dögum síðar hringdi Sunnlendingurinn alveg snarbrjál- aður og sagðist vilja rifta kaupunum því sú jarpa lyfti framfótum ekki einu sinni yfir skítinn úr sér, svo lággeng væri hún. Þá sagði sá ungi að norðan að hann hefði aldrei sagt að hún væri hágeng. „Nú?“ svarar sá að sunnan og hinn svarar að bragði: „Ég sagðist aldrei hafa séð slíkan fótaburð fyrr“ og þar með var riftunarkröfunni hrint. Þróunin ekki stöðvuð Og nú er að sjá hvernig þessari „miklu list“ muni reiða af við innreið nútímans því aldur og uppruni hestakaupahrossanna liggur ekki alltaf á lausu og þykir oft betra að ýmsir aðrir hlutir fái að sveima um í þoku óvissunnar þegar gerð eru hestakaup. Eyðileggur það ekki hina fullkomnu stemningu hesta- kaupanna þegar þarf að fara að út- fylla afsal og svoleiðis dót og til- kynna eitthvað í gegnum tölvu? Þróunin verður ekki stöðvuð nú frekar en fyrri daginn og gera má ráð fyrir að allir þeir hrossarækt- endur sem ná vilja árangri, bæði í ræktun og sölu muni fagna hverju skrefi sem stigið er í þá átt að koma hrossarækt og hestamennsku upp á yfirborðið þar sem vöruvöndun og áreiðanleiki verði í fyrirrúmi. Hestakaupin á útleið – skráningarskyldan á innleið? Morgunblaðið/Vakri Skráningarskylda hrossa blasir við í næstu framtíð. Öll hross sem koma í kynbótadóm þurfa að vera örmerkt og sama gildir um hross sem seld eru úr landi. Hér sýnir Þórður Þorgeirsson glæsihryssuna Ósk frá Þorlákshöfn á kynbótasýningu á landsmótinu. Folöld sem fædd eru á þessu ári og fá A-vottun munu fyrst hrossa fá eignarhaldsskírteini. Hestakaup og hrossa- brask hefur löngum ver- ið einn þáttur hesta- mennskunnar sem baðaður hefur verið dýrðarljóma og sett á hana dulúðarblæ. Valdimar Kristinsson veltir fyrir sér hvort þessi þáttur muni brátt heyra sögunni til. Fjárhag- ur LH í góðu jafnvægi ALLT bendir til þess að gott jafnvægi sé komið á fjárhags- stöðu Landsambands hesta- mannafélaga. Gjaldkeri sam- takanna, Sigurður Ragnarsson, sagði að þótt reikningarnir séu ekki komnir frá endurskoðanda sé óhætt að fullyrða að reksturinn hafi skilað hagnaði árið 2001 en reikningar fyrir það ár verða bornir upp á ársþingi í nóv- ember. Svipaða sögu væri að segja um átta mánaða uppgjör fyrir núlíðandi ár sem einnig verður kynnt á þinginu en þar sé staðan í góðu jafnvægi. Sagði Sigurður því ljóst að samtökin væru að komast á lygnan sjó í fjármálum og því mögulegt að huga að þeim sóknarfærum sem skapast í ljósi bættrar fjárhagsstöðu. Í máli Sigurðar kom fram að samtökin hafi greitt um og yfir hálfa milljón á ári í yf- irdrátt og sagði hann hægt að nota þá upphæð í margt þarf- ara en að halda bönkunum uppi. Það hafi fyrst og síðast verið aðhaldssemi í rekstrin- um undanfarin tvö ár sem hafi tryggt þennan viðsnúning. „Þá vegur það þungt að nokkrir aðilar hafa verið feikna dug- legir í öflun styrkja hjá fyr- irtækjum og hinu opinbera til ýmissa þátta í rekstrinum. Þá hefur dugnaður landsliðs- nefndar vakið athygli, þeir hafa verið geysiöflugir í fjár- öflun og nú kemur þátttaka í Norðurlandamótinu út í góðu jafnvægi en þau mót hafa oft verið þung í skauti. Innheimta árgjalda hefur gengið mun betur en áður en þau voru öll sett í bankainnheimtu sem virðist gefa góða raun. Einnig hafa breyttir gjalddagar ár- gjalda skilað jafnara inn- streymi og átt ríkan þátt í lækkun dráttarvaxta. Að síð- ustu er svo að nefna hagræð- ingu af samstarfi LH, Félags hrossabænda, og Félags tamningamanna um skrif- stofurekstur, það hefur vafa- lítið skilað sínu,“ sagði Sigurð- ur gjaldkeri léttur í bragði. Félagi tamninga- manna skipt í tvær deildir FYRIR dyrum stendur að skipta Félagi tamningamanna í tvær deildir sem myndu starfa nokkuð sjálfstætt. Yrði þar um að ræða Norður- og Suðurdeild og hefði hvor deild um sig þriggja manna stjórn. Sæti einn maður úr hvorri stjórn fundi aðalstjórnar. Fyrirhugað er að stofnfundir deildanna verði haldnir í nóv- ember en aðalfundur félagsins verður að venju haldinn í des- ember. Að sögn Ólafs H. Einars- sonar er meginástæða þess að farið er út í að skipta félaginu sú að mönnum þótti vanta meira virkni í grasrót félags- ins og væri þetta tilraun til að hleypa meiri líf í starfsemina. Stjórn félagsins hefur aðal- lega unnið við uppbyggingu menntakerfis fyrir hesta- mennsku í samvinnu við ýmsa opinbera aðila.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.