Morgunblaðið - 09.10.2002, Síða 44

Morgunblaðið - 09.10.2002, Síða 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í Loftkastalanum kl. 20 Miðasala: 552 3000  „Sprenghlægileg“ „drepfyndin“ „frábær skemmtun“ fim. 19fi . 3/fim. 10/10 örfá sæti laus sun.13/10 örfá sæti laus fös. 18/10 sýn. kl. 23, miðnætursýn. Lokasýning. Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Fim 10/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fös 11/10 kl. 21 Uppselt Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt Lau 12/10 kl. 21 Uppselt Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Lau 19/10 kl. 21 Uppselt Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Sun 20/10 kl. 21 Uppselt Mið 23/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fim 24/10 kl. 21 Uppselt Sun 27/10 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti Lau 2/11 kl. 21 Uppselt Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 8/11 kl. 21 Uppselt Fös 8/11 kl. 23 Laus sæti Lau 9/11 kl. 21 Örfá sæti Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Rakarinn í Sevilla eftir Rossini laugardaginn 12. október kl. 19.00 sunnudaginn 13. október kl. 19.00 laugardaginn 19. október kl. 19.00 laugardaginn 26. október kl. 19.00 Enn eru fáein sæti laus á hátíðarsýning- arnar 29. og 30. nóv. —aðeins fyrir félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar. Miðasalan opin kl. 15-19 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningar- daga. Símasala kl. 10-19 virka daga. Sími miðasölu: 511 4200 ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR 7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin. 10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000 Stóra svið HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Fö 11/10 kl 20 - ath. kvöldsýning Su 13/10 kl 14 Su 20/10 kl 14 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau 12/10 kl 20 Lau 19/10 kl 20 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Fö 11/10 kl 20, Lau 12/10 kl 20 Sun 13/10 kl 20 ÁUKASÝNING Síðustu sýningar JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Fi 10/10 kl. 20, Fö 11/10 kl. 20 Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20 AND BJÖRK, OF COURSE .. e. Þorvald Þorsteinsson Lau 12/10 kl 20 Su 20/10 kl 20, ÁUKASÝNING Síðustu sýningar 15:15 TÓNLEIKAR Ferðalög. Jean Francaix Lau 12/10 kl. 15:15 Nýja sviðið Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 Frumsýn. lau. 12. okt. kl. 14 upp- selt 2. sýn. sun. 13. okt. kl. 14 örfá sæti 3. sýn. sun. 20. okt. kl. 14 4. sýn. sun 27. okt. kl. 14 Grettissaga saga Grettis frumsýnd 12. október Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu lau 12. okt kl. 20 frumsýning, uppselt, sun 13. okt kl. 20, fös 18. okt. kl. 20, lau 19. okt. kl. 20, föst 25. okt. kl. 20, lau 26. okt. kl. 20 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur fim 10. okt. uppselt, þri 15. okt. uppselt, mið 16, okt, uppselt, fim 17. okt. uppselt, sun 20 okt. uppselt, þri 22. okt. uppselt, mið 23. okt. uppselt, sun 27. okt. uppselt, þri 29. okt. örfá sæti, mið 30. okt. örfá sæti, sun. 3. nóv. uppselt, mið. 6. nóv. laus sæti. Hamlet eftir William Shakespeare. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. 5. sýn. lau. 12. okt. kl. 19 uppselt 6. sýn. lau. 19. okt. kl. 19 uppselt Aukasýningar fös. 25. okt. kl. 20 laus sæti. lau. 2. nóv. kl. 19 laus sæti lau. 9. nóv. kl. 19 laus sæti Síðustu sýningar Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 10. október kl. 19:30 föstudaginn 11. október kl. 19:30 Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Einsöngvarar: Hulda Björk Garðarsdóttir Sesselja Kristjánsdóttir Gunnar Guðbjörnsson Tómas Tómasson Kór: Söngsveitin Fílharmónía W. A. Mozart: Sinfónía nr. 25, KV 183 W. A. Mozart: Requiem Requiem: eitt af umtöluðustu verkum tónlistarsögunnar, svana- söngur meistara, minnisvarði um snilling. Mozart M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN SNAFU hefur farið hægt en örugglega fram síðan frumburður hennar, breiðskífan Anger is not enough, kom út fyrir réttum tveim- ur árum. Sveitin hefur um langa hríð verið einn helsti merkisberi íslensks harð- kjarnarokks og því gott tækifæri að kanna hvernig mál standa hjá pilt- unum með því að skoða lögin þrjú sem prýða þessa plötu. Snafu hafa þróast úr fremur hefð- bundnu þungkjarnarokki yfir í fram- sækinn harðkjarna. Snafu-menn eru t.d. farnir að læða inn áhrifum frá reikni-rokkurunum í Dillinger Escape Plan, en passa sig þó að missa sig ekki út í helbera sinfóníu. Lögin rokka vel og feitt! (Reiknirokk (e. math-rock) er kallað svo vegna hraðra og flókinna skiptinga sem einkenna það.) Siggi söngspíra er jafnrifinn og -hás sem fyrr og minnir dálítið á Scott Angelacos, söngvara harðkjarnahippanna í Bloodlet. Besta lagið er hiklaust opnunar- lagið, „Armchair Critic“, sem bygg- ist á einkar áhugaverðum taktbreyt- ingum. Einkennandi fyrir þessi nýju lög er „stoppa-byrja-stoppa“ kaflar, þar sem allt er keyrt áfram á fullu, svo skyndilega stoppað og róið á lygn mið – svo skyndilega keyrt áfram á fullu o.s.frv. Lögin eru hag- lega samin, greinilegt að legið hefur verið yfir smíðunum og flæði þeirra er óaðfinnanlegt. Það sem er hægt að setja út á er að hljómurinn er nokkuð kraftlaus, hefði grætt á meiri bassa og meiri sprengikrafti. Þá finnst mér „hreinu“ söngsprettirnir ekki eins vel heppnaðir og öskurkaflarnir. Hvað þýsku sveitina varðar má segja að þeir leiki tónlist, ekki ósvip- aða og Snafu leggja fyrir sig, en þó gætir ögn meira þungarokks hjá þeim þýsku. Snafu eru auðheyranlega á öruggri siglingu fram á við og næsta stóra plata er verðugt tilhlökkunar- efni. Tónlist Áfram veginn… Snafu/Since the day Things you barely know Bastardized Recordings Things you barely know er kvíslplata með íslensku sveitinni Snafu og þýsku sveit- inni Since the day. Hvor um sig á hér þrjú lög. Snafu skipa þeir Siggi (söngur), Ingi (gítar), Gunnar (bassi), Eiður (gítar) og Martin (trommur). Upplýsingar um þýsku sveitina verða látnar liggja milli hluta hér. Frekari upplýsingar er hægt að nálg- ast á www.bastardizedrecordings.de. Arnar Eggert Thoroddsen Snafu er á fínu flugi á kvíslplötunni Things you barely know. BILIÐ á milli óhljóðalistar og til- raunakenndrar raftónlistar er ekki svo mikið þegar upp er staðið, líkt og sagt hefur verið um kynstofna manns- ins er munur á milli þeira minni en munur innan þeirra og svo er því háttað með tónlistina. Þannig eru margir sem kallast dans- tónlistarmenn frumlegri og tilrauna- kenndari en óhljóðalistamenn og öf- ugt. Heimir Björgúlfsson hefur verið áberandi í evrópskri óhljóðalist und- anfarin ár og mjög iðinn við útgáfu ýmiss konar, með Stillupsteypu, sem hann var eitt sinn í, einn eða í sam- starfi við erlenda listamenn. Á síðasta ári samdi hann tónlist með sænska listamanninum Jonas Ohlsson, tók upp það sem þeir settu saman og hélt tónleika. Afraksturinn er svo kominn út á diski undir nafninu Unspoken Word Tour. Lögin á disknum eru allmörg, 23 alls, og sum ekki nema inngangur, eins og upphafslagið sem er ekki nema hálf mínúta af suði og braki áð- ur en kemur að næsta lagi, „Funny Moment Plan“, sem er prýðilegt lag, vel njörvað í takt og með klingjandi flygil undir. Þriðja lag disksins, „Manufactured Fish for Robots und Factory“ er einnig danstónlistarlegt ef svo má segja, með skemmtilega víruðum takti, fjölbreyttu undirspili og röddun á stöku stað. Síðan segjum við skilið við taktinn um hríð og næsta lag er býsna ævintýralegt, stunur, brak og torkennileg rafhljóð. Þá erum við aftur komin á dansgólfið, í fimmta lagi, en hljómsveitin veit ekki alveg hvað hún vill spila, hvort við erum á dansiballi í diskó- teki helvítis, stödd úti undir stjörnuskreyttum himni þar sem krybbusmellir rjúfa kyrrðina, eða kannski eru það ekki krybbur – við erum reyndar að hlusta á hrynjandi hús, eða vélsmiðju, eða kannski erum við bara í diskó- teki barnaskólanna ... svo má halda áfram, fram undan er endalaus fjölbreytni, tónlistar- leg kviksjá (krybburnar eiga samt síðasta orðið eins og kemur í ljós í lok disksins). Sjá til að mynda tíunda lagið, „Wild and Disturbed by Elect- ric Guitar“, sem er að uppi- stöðu maður að flautast á við fugl og ummyndast í klifunar- kennt lag þar sem mannsrödd kallast á við trommutakt. Ann- að eftirtektarvert lag er það fjór- tánda, frumskógartrommur og sýrt orgel skapa einkar skemmtilega drungalega stemningu. Sumt af því skemmtilegasta sem Heimir Björgúlfsson hefur fengist við á undanförnum árum hefur hann gert í samstarfi við aðra, sjá til að mynda Stilluppsteypu og Vacuum Boys, og þó sumt á Unspoken Word Tour disknum sé full spunakennt er óhætt að skipa disknum sess meðal bestu og fjölbreyttustu verkum hans. Umbúðir diskins eru frumlegar að vanda; mjög skemmtilegt og óvenju- legt umslag sem Heimir hefur mynd- skreytt. Tónlist Tónlist- arleg kviksjá Heimir Björgúlfsson og Jonas Ohlsson UNSPOKEN WORD TOUR Brombron Heimir Björgúlfsson og Jonas Ohlsson flytja eigin verk á disknum Unspoken Word Tour. Brombron gefur út, Staalplaat dreifir. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Sverrir Árni Matthíasson telur nýjasta verk Heimis Björgúlfssonar „full spuna- kennt“ en þó skipi það „sess með bestu og fjölbreyttustu verkum hans“. Viltu léttast núna Símar 557 5446 og 891 8902

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.