Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 46

Morgunblaðið - 09.10.2002, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.  Kvikmyndir .com  DV  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Ný Tegund Töffara Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14. Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2 Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri! l i j l í i i i i i l l i i i 5, 8 og 10.50. Sýnd kl. 4. með ísl. tali. „DREP FYNDIN“ ÞÞ. FBL Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 16 ára. Yfir 12.000 manns! Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2 Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri! Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! Sýnd kl. 6 og 8. FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16 ára. Sýnd 10. B.i. 14. „DREP FYNDIN“ ÞÞ. FBL Sýnd kl. 6. með ísl. tali. Yfir 12.000 manns! BLAÐAMAÐUR var sannfærður um að lagið í Landsbankaauglýsingunni, sem allir fá á heilann, hlyti að vera japanskt. Með einni af þessum jap- önsku sveitum sem hefur skapað sér nafn á Vest- urlöndum, Pizzicato Five eða eitthvað í þá áttina. Hann rak því í rogastans þegar hann frétti að flytjendur væru hreint ekki japanskir, að undan- skilinni söngkonunni, heldur alíslenskir og alls- engir nýgræðingar í bransanum. Þeir sem eiga heiðurinn að „auglýsingalaginu“ – sem heitir reyndar „Julietta 1“ – er kvartettinn Ske. Og hverjir eru það? kann einhver að spyrja sig, enda ekki nema von því nafnið er nýtt af nálinni í ís- lensku tónlistarlífi. En eins og fyrr segir eru flytj- endurnir engir nýgræðingar því þeir eru betur þekktir undir öðru nafni – Skárr’en ekkert – sem maður tengir ósjálfrátt við kaffihúsa- og leik- hústónlist. Popptónlist En Ske er popphljómsveit að sögn liðsmann- anna Guðmundar Steingrímssonar, Eiríks Þór- leifssonar, Franks Þóris Hall og Hrannars Ingi- marssonar og hljómplatan Life, Death, Happiness & Stuff, sem kom út á dögunum, poppplata. „Margir þekkja okkur fyrir þessa kaffihúsa- og leikhústónlist Skárr’en ekkert en í leikhúsinu höf- um við leyft okkur ýmislegt, t.d. með raf- ræn hljóðfæri, þannig að þessi tónlistar- lega u-beygja, er kannski ekki alveg eins skörp og hún í fyrstu virðist,“ skýrir Guðmundur. „Það hafði blund- að lengi í okkur að gera poppplötu og stóð reyndar alltaf til.“ Fjórmenningarnir komu fyrst sam- an í MR, þar sem þeir stunduðu allir nám, og byrjuðu á að leika tökulög í kaffihúsagírnum kunna, við hin ýmsu tæki- færi. Þegar Skárr’en ekkert hafði verið starfandi formlega í tvö ár 1994 hófust menn handa við að semja eigin tónlist þegar þeim bauðst að búa til frumsamda tónlist fyrir Kirsuberjagarðinn og eft- ir það tók við næstum eitt verk á ári; m.a. fyrir leikritin Draum á Jónsmessunótt eftir Shake- speare, Konur skelfa eftir Hlín Agnarsdóttur, dansverkin Ein eftir Jochen Ulrich og NPK eftir Katrínu Hall og kvikmyndina Eina stóra fjöl- skyldu eftir Jóhann Sigmarsson. „Það hefur alltaf verið í umræðunni að setjast niður og semja fyrir „alvöru“ plötu, plötu með okkar eigin formerkjum,“ segir Guðmundur. „Það gerðist svo fyrir einu og hálfu ári að við létum loks verða af þessu og síðan þá hefur gripurinn nýút- komni verið í þróun.“ Drengirnir segja að í leikhúsinu hafi þeir í sex ár fengið nær ótakmarkað frelsi til að gera sem þeir vildu. Það hafi vissulega verið mikil og holl reynsla fyrir tónlistarmenn en um leið sett þá í ákveðinn bobba þegar þeir settust niður til þess að semja popplög. „Við vissum satt að segja ekki alveg hvað við vorum að gera,“ segir Guðmundur. „Nei formið var algjörlega nýtt fyrir okkur,“ tek- ur Frank undir, „að þurfa að semja lög sem ekki væru lengri en 4–5 mínútur.“ Hvað er að ske? Sveitarmenn segja ekki um neina nafnabreyt- ingu að ræða heldur sé Ske annað nafn á sömu hljómsveit, hljómsveit sem leikur tónlist eins og heyra má á Life, Death, Happiness & Stuff. „Skárr’en ekkert tengist bara öðrum hlutum sem við erum að gera,“ skýrir Guðmundur. „Ske er líka opnara nafn, ekki eins merk- ingaþrungið og Skárr’en ekkert. Þetta eru bara einhverjir stafir, en um leið þessi sögn, að eitthvað sé að ske.“ Svo hefur nafnið líka aðra merkingu í japanskri tungu, upplýsir Guð- mundur: „Þannig er að japanska vin- kona okkar hún Julietta (sú er syng- ur samnefnt auglýsingalag) sagði okkur að „ske“ þýddi „dræsa“ á jap- önsku, eða eitthvað á milli „dræsa“ og „vinkona“.“ Svo er það orðaleikurinn skemmtilegi sem nafnið býður upp á. Þeir hlytu t.d. að vera vanir óborganlegum orðaleikjum eins og að vera spurð- ir spurningarinnar „hvað væri að ske?“ Og sveit- armenn jánkuðu. „En það er allt í lagi,“ segir Guð- mundur, „við erum svo vanir útúrsnúningi á hinu nafninu, eins og „þetta var svo sannarlega skárr’- en ekkert!“ Við hlógum ekki að því fyrst, en eftir að hjakkast hafði verið á þessu fór þetta að verða fyndið um síðir.“ Auglýsingalagið Lögin á nýju plötunni eru 11 og spanna nánast alla flóru poppsins, sem kalla má; rokk á köflum, dansvæn og draumkennd á stöku stað, gáfu- mannapopp að hluta, allt mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Öll urðu lögin til á síðasta eina og hálfa árinu. „Við tókum góðan tíma í að melta það hvaða stefnu við vildum taka,“ segir Hrannar og bætir við að nokkur leit hefði farið í að finna rétta að- alsöngvarann áður en skólafélagi þeirra Jón Odd- ur Guðmundsson var kallaður til verksins. Aðrir söngvarar auk Guðmundar sem syngur ein tvö, eru Daníel Ágúst Haraldsson, franska Julie Coadou og svo auðvitað hin japanska Julietta eins og drengirnar kalla hana, stúlka sem heitir þó Juri Hashimoto. Piltarnir segja hugmyndina að því að lög sungin á japönsku eldgamla. „Einu sinni þegar við veltum, einu sinni sem oftar, fyrir okkur hvernig við ættum að hafa plötuna okkar fyrstu þá var sú hugmynd gripin úr lausu lofti að hafa hana alla á japönsku. Þegar ég var í námi í Englandi kynntist ég síðan japanskri stelpu, myndlistarnema, sem gat sungið og við fengum hana strax til að hjálpa okkur.“ Flest hinna lag- anna eru á ensku en eitt er þó á frönsku þannig að yfirbragð plötunnar er mjög alþjóðlegt, en var það vísvitandi? „Ekkert endilega,“ segir Guðmundur, „en það var heldur ekkert markmið að gera hana eitthvað sérstakleg íslenska. Það er ákaflega lítil þjóðern- iskennd í bandinu.“ Og svo er það þetta „auglýsingalag“ sem jap- anska Juliette syngur. Lag sem enginn þekkti er það hljómaði fyrst í auglýsingatímum sjónvarps- töðvanna og allir héldu erlent. „Við óttuðumst ein- mitt þetta; að allir færu að kalla þetta „auglýs- ingalagið“,“ segir Frank brosandi. „Vinur okkar vinnur á auglýsingastofu, heyrði plötuna, féll fyrir laginu og datt í hug að nota það. Það var fínt, passaði vel í auglýsinguna, og svo er þetta hin fín- asta kynning fyrir okkur,“ segir Guðmundur. „Auk þess fengum við borgað fyrir það,“ læðir Frank að og sveitarmenn hlæja. Lögum samkvæmt mun Ske fylgja plötunni nýju eftir. Einu vandkvæðin eru að söngvararnir eru dreifðir um víða veröld. Þó verður hersing- unni hóað saman í einstaka viðhafnartónleika, út- gáfutónleika og á Iceland Airwaves þar sem Ske kemur fram 18. október í Iðnó og einnig í afmælis- veislu Smekkleysu á Grand Rokk deginum áður. Ske er dræsa á japönsku Morgunblaðið/Sverrir Ske mun leika tvisvar sinnum í öllu sínu veldi á Airwaves-hátíðinni aðra helgi. Þið vitið Landsbankalagið, þetta japanska þarna? Það er íslenskt en ekki japanskt og er flutt af Ske, sömu liðsmönnum og skipa Skárr’en ekkert. Skarphéðinn Guðmundsson hafði uppi á liðs- mönnum og innti þá eftir hvað væri að ske – eða þannig. skarpi@mbl.is MYND vikunnar hjá Bíófélaginu 101 er brasilíska verðlaunamyndin Abril despedeçado eða Á bak við sólina. Að sögn Guðmunds Ás- geirssonar, forsvarsmanns Bíó- félagsins, er þetta sígild frásögn af blóðugum deilum tveggja fjöl- skyldna og því um að ræða nokk- urs konar suðræna Sturlungaöld. Ennfremur hefur föstum sýn- ingum félagsins verðið fjölgað úr fjórum í sjö, sökum góðrar aðsókn- ar hingað til, að sögn Guðmundar. Framvegis verða myndir Bíó- félagsins sýndar mánudaga til fimmtudaga kl. 17:30 og föstudaga til sunnudaga kl. 22:30 og eru sýn- ingar í Regnboganum. Svo nánar sé sagt frá myndinni er sögusviðið Brasilía árið 1910 og efnið tvær nágrannafjölskyldur, sem hafa átt í blóðugum deilum frá ómunatíð. Ferreira-fjölskyldan er vel efnuð meðan Breve-fjölskyldan lifir við þrengri kost. Enginn man lengur hvað upphaflega olli erj- unum og halda morðin áfram. Leikstjóri myndarinnar er Walt- er Salles, þekktastur fyrir Central Station, sem tilnefnd var til Ósk- arsverðlauna. Miðaverð er 500 krónur fyrir fé- laga í klúbbnum en það kostar 1.000 krónur að skrá sig og fylgja tveir miðar á mynd að eigin vali með í kaupunum. Suðræn Sturlungaöld Úr Á bak við sólina. Bíófélagið 101

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.