Morgunblaðið - 13.01.2003, Page 2
„VIÐ lékum vel í síðari hálf-
leik eftir að meiri færsla
komst á vörnina og betri
samvinna á milli leikmanna,“
sagði Guðjón Valur Sigurðs-
son eftir leikinn við Egypta,
en hann stóð sig afar vel eft-
ir að hann fékk tækifæri í
síðari hálfleik, skoraði sex
mörk og stóð vaktina af
festu í vörninni þar sem
hann lék nokkuð framliggj-
andi.
„Það er draumastaða fyrir
hvaða hornamann sem er
þegar svona mikið er um
hraðaupphlaup eins og raun
varð á í síðari hálfleik. Á meðan
vörnin stendur fyrir sínu og við erum
fljótari en andstæðingurinn fram í
sóknina er þetta eintóm veisla.“ Guð-
jón sagði að sér litist
í heild nokkuð vel á
framhaldið og ef
menn tækju það út
sem vel var gert í
þessu móti og byggðu
ofan á það telur hann
liðið vel geta staðið
fyrir sínu þegar á
hólminn verður kom-
ið á HM í Portúgal.
„Það er engin
ástæða til að ör-
vænta, enda erum við
ekki að því þrátt fyr-
ir skell í síðari hálf-
leik á móti Dönum.
HM hefst á mánudaginn eftir viku og
þá er ég viss um að við verðum klár-
ir í bátana,“ sagði Guðjón Valur Sig-
urðsson.
Verðum klárir
í bátana
Guðjón Valur
Sigurðsson
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EVRÓPUMEISTURUM Svía í
handknattleik gengur ekki
sem skyldi þessa dagana og
þeir hafa nú leikið fjóra leiki
í röð án sigurs. Svíar og
Júgóslavar áttust við í tveim-
ur leikjum í Jönköping um
helgina. Júgóslavar höfðu
betur í fyrri leiknum, 26:24,
og í gær skildu þjóðirnar
jafnar, 26:26.
Svíar voru með vænlega
stöðu í báðum leikjunum en
glopruðu forystunni niður. Í
fyrri leiknum höfðu Svíar,
22:19, yfir þegar 10 mínútur
voru til leiksloka en þá hrökk
allt í baklás. Martin Boquist
skoraði 6 mörk fyrir Svía og
þeir Johan Petterson og
Matthias Franzén skoruðu 4
hver. Í gær svipað uppi á ten-
ingnum. Svíar voru 26:23 yfir
þegar skammt lifði leiksins
en Júgóslövum tókst að jafna
metin með því að skora þrjú
síðustu mörkin. Matthias
Franzén og Johan Petterson
skoruðu 6 mörk hver og
gömlu brýnin Steffan Olsson
og Magnús Wislander gerðu 3
mörk hver. Það var skarð
fyrir skildi að í lið Svía vant-
aði fyrirliðann Stefan Löv-
gren en óvíst er hvort hann
leiki með Svíum á HM þar
sem eiginkona hans á von á
barni.
Lokaundirbúningur Svía
fyrir HM verður leikur á móti
Íslendingum í Landskrona í
fimmtudaginn.
Tap og jafntefli
hjá Svíum
Íslendingar luku þátttöku sinni áfjögurra landa mótinu í Dan-
mörku með því að vinna öruggan sig-
ur á Egyptum, 35:25,
og lék íslenska liðið
ágætlega í síðari
hálfleik. Egyptar eru
einnig að búa sig
undir HM í Portúgal
en þó sendu þeir ekki sitt sterkasta
lið til Danmerkur. Eftir að Egypt-
arnir höfðu veitt nokkra mótspyrnu í
fyrri hálfleik tók íslenska liðið öll
völd á vellinum í síðari hálfleik með
öflugri vörn og hraðaupphlaupum,
en liðið skoraði 13 mörk eftir hraða-
upphlaup. Staðan í hálfleik var 16:15,
Íslendingum í hag, en þeir höfðu for-
ystu í leiknum allan tímann.
Eins og svo oft áður í þessu móti
var leikur íslenska liðsins afar kafla-
skiptur. Að þessu sinni náði það sér á
strik í síðari hálfleik, fyrri hálfleikur
var slakari, einkum í vörn, þar sem
sterkar og hávaxnar skyttur Egypta
fengu að koma á tíðum ansi hreint
nærri marki. Íslendingar byrjuðu þó
með látum, náðu strax þriggja marka
forskoti, 4:1, en Egyptar gáfust ekki
svo auðveldlega upp. Þeir minnkuðu
muninn og fylgdu íslenska liðinu sem
skugginn allan hálfleikinn, léku sína
6/0-vörn og stóluðu síðan á þrjár
nokkuð sterkar skyttur í sókninni.
Horna- og línuspil var afar takmark-
að hjá Egyptunum og voru horna-
mennirnir oft líkari böttum en mönn-
um með ákveðið hlutverk. Sóknin
gekk allþokkalega hjá íslenska lið-
inu, hraði var í leiknum og oft tókst
að opna vel, bæði fyrir hornin og lín-
una, enda gekk Egyptum illa að ráða
við Sigfús Sigurðsson línumann.
Vörnin var hins vegar hausverkurinn
og kom það helst til af því að Rúnar
Sigtryggsson og Sigfús náðu ekki að
stilla saman strengi sína.
Í síðari hálfleik náðu menn betur
saman í vörninni og stöðvuðu skyttur
Egyptanna. Þá kom Roland Eradze í
markið í stað Guðmundar og náðu
sér allir vel á strik. Þegar um tíu
mínútur voru liðnar af síðari hálfleik
var forysta Íslands orðin fimm mörk,
22:17, og eftir það náðu Egyptar
aldrei að rétta sinn hlut, Íslendingar
hertu róðurinn og innsigluðu tíu
marka sigur þrátt fyrir að flestir
sterkustu leikmennirnir hafi fengið
að hvíla sig á lokakaflanum. Semsagt
býsna þægilegur en alls ekki fyrir-
hafnarlaus sigur á B-liði Egypta.
Þrátt fyrir að sóknarleikurinn
gengi lengst af vel var misnotkun
dauðafæra enn viðvarandi vandamál
hjá íslenska liðinu, einkum í fyrri
hálfleik. Á þessum vanda er nauð-
synlegt að ráða bót, en engin augljós
lausn í sjónmáli. Nú sem fyrr tekst
liðinu heldur ekki að leika heilan leik
á fullum dampi í vörn sem sókn. Það
ásamt mistökunum gæti reynst ís-
lenska liðinu þungt í skauti þegar
farið verður að leika gegn sterkari
þjóðum sem refsa miskunnarlaust
fyrir öll mistök.
!"#
$# %
$#
&
'&(
Stór-
sigur á
Egyptum
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Danmörku
Nú er vika til heimsmeistara-mótsins í Portúgal og þar með
ekki langur tími til að laga það sem
bæta þarf. Guð-
mundur telur að liðið
sé á réttri leið og það
verði nánast í eins
góðu standi þegar á
hólminn verður komið eins og að-
stæður bjóða upp á en nokkrir
sterkir leikmenn hafa og eru að
glíma við lítilsháttar meiðsl.
Sóknin fer hægt batnandi
„Vörnin var fín gegn Pólverjum,
lengst af gegn Egyptum og í fyrri
hálfleik á móti Dönum. Þannig að
þetta finnst með, það jákvæða, auk
þess sem sóknarleikurinn fer hægt
batnandi. Hann er farinn að ganga
vel, einkum gegn 3/2/1 vörn í þessum
undirbúningi. Við eigum hins vegar
eftir að slípa ýmislegt í sókn gegn
6/0 vörn, í það fara síðustu dagarnir
og því verður kærkomið að fá tæki-
færi gegn Svíum á fimmtudags-
kvöldið, þeir leika eingöngu 6/0
vörn,“ sagði Guðmundur þegar hann
beðinn að gera upp mótið.
„Mér finnst liðið vera á réttri leið,
á því er enginn vafi í mínum huga og
ég horfi því bjartsýnni fram á veginn
eftir þetta mót í Danmörku en fyrir
það. En það má hins vegar ekki
horfa framhjá því að það eru enn
ýmis ljón í veginum sem við verðum
að ryðja úr vegi. Áberandi hefur ver-
ið í nokkrum undirbúningsleikjum
að fjöldi dauðafæra hefur farið í súg-
inn og einnig að nokkuð hefur verið
um mislukkaðar sendingar.“
Guðmundur sagði þetta vissulega
vera mál sem þyrfti að leysa en taldi
allt þó horfa til betri vegar, einkum
þegar horft væri til síðasta leiksins í
Danmörku, gegn Egyptum, þá hefði
verið góð nýting á opnum færum,
einkum í síðari hálfleik.
„Ég hef það á tilfinningunni að
þessi atriði verði í lagi. Fyrst og
fremst held ég að þetta komi til af
því að menn eru á tíðum of upptekn-
ir af því að vanda sig, og vopnin snú-
ast í höndum þeirra. Þá verða menn
of stífir, leikmenn verða aðeins að
slaka á, sýna meiri yfirvegun, þá er
ég viss um að þessi atriði lagast.
Þetta hefur ekki verið vandamál frá
því ég tók við liðinu fyrr en nú og þar
með met ég stöðuna þannig að þetta
muni lagast þegar allt kemur til alls,
hef enga ástæðu til að halda annað.“
Aginn verður að aukast
Hvað finnst þér þegar vanta upp
hjá liðinu? „Mér finnst ennþá vanta
upp á yfirvegun á köflum í sóknar-
leiknum, það er að við getum haldið
okkar strik frá upphafi til enda leiks,
séum ekki að taka góða kafla en falla
niður þess á milli, stöðugleikann
vantar. Þá verður aginn að aukast í
sókninni. Við megum alls ekki fara
út í að stytta sóknirnar, það hefur
sýnt sig að það hentar okkur afar
illa. Þessi atriði voru betri í síðasta
leiknum heldur en í síðari hálfleik
gegn Dönum. Þá gerðum við okkur
einmitt seka um að leika alltof stutt-
ar sóknir með þeim afleiðingum að
við misstum leikinn úr höndum okk-
ar. “
Finnst þér liðið hafa fengið það út
úr mótinu sem þú vonaðist eftir?
„Ég hefði viljað fá sterkari and-
stæðing í síðasta leiknum. Egypska
liðið sem við lékum við í dag var ekki
eins sterkt eins og til stóð að það
yrði. Hins vegar fengum við tvo afar
góða leiki sem við getum dregið góð-
an lærdóm af, þá ég við viðureign-
irnar gegn Pólverjum og Dönum. Í
þessum leikjum glímdum við gegn
mismunandi vörnum og fengum
ákveðin svör sem við leituðum eftir.
Í heildina tel ég okkur hafa fengið
margt út úrþessu móti þótt ég hefði
að sjálfsögðu viljað mæta mun
sterkara liði í síðustu umferðinni, við
þurftum á því að halda.“
Er HM-hópurinn klár í þínum
huga eftir þetta mót?
„Ég er enn að velta fyrir mér ein-
um til tveimur stöðum, annað er
nokkuð komið á hreint. Ég ætla að
gefa mér nokkurn tíma til viðbótar
til þess að spá í stöðu mála.“
Farið í fínpússningu
Hvaða stöður eru þetta sem um er
að ræða? „Ég vil ekki tjá mig um það
á þessu stigi málsins.“
Hvenær verður hópurinn til-
kynntur?
„Það verður sennilega gert annað
kvöld (mánudag) eða í síðasta lagi á
þriðjudaginn.“
Hvað verður gert síðustu vikuna
fyrir HM?
„Þá má segja að farið verði í fín-
pússningu á liðinu. Þá förum við í
gegnum öll atriði í leik okkar þannig
að menn verði með allt á tæru þegar
á hólminn verður komið. Fyrst og
fremst verður haldið áfram að vinna
vel á æfingum. Líklega verður frí
gefið á morgun (mánudag), æft
tvisvar á þriðjudaginn, einu sinni á
miðvikudag áður en haldið verður til
Svíþjóðar síðdegis þann dag. Loka-
áfanginn í undirbúningnum verður
leikur við Evrópumeistara Svía á
fimmtudaginn. Þá mætum við 6/0
vörn þeirra og það verður afar kær-
komið þar sem við verðum að laga
ýmislegt í sóknarleik okkar gegn
þessháttar vörn. Því hefði andstæð-
ingurinn á þessu stigi málsins ekki
getað verið betri. Ég vil bara ítreka
að mér finnst við vera á uppleið um
þessar mundir. Ég er klárlega bjart-
sýnni á liðið okkar nú en eftir leikina
við Slóveníu heima fyrir tæpri viku.
Það er alveg klárt, liðið er að leika
betur og betur.“
Aðeins í lokin að leiknum við
Egypta, hvað fór miður í honum?
„Vörnin var ekki nægilega góð í
fyrri hálfleik og kom þar helst til að
miðjumennirnir okkar, Sigfús Sig-
urðsson og Rúnar Sigtryggsson,
voru ekki nægilega grimmir og tókst
ekki á köflum að verjast skyttum
Egyptanna. Þegar á leið hálfleikinn
voru Egyptarnir farnir að skjóta af
afar löngu færi á markið og þegar sú
Erum á
réttri leið
Ljósmynd/NF
Sigfús Sigurðsson skorar í leiknum gegn Egyptum í gær, en
hann skoraði níu mörk í viðureigninni.
Ívar
Bendiktsson
skrifar frá
Danmörku
„VARNARLEIKUR okkar hefur smátt og smátt verið að batna í þess-
um leikjum þremur í mótinu ef frá er skilinn síðari hálfleikurinn
gegn Dönum,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, þegar hann leit yfir leikina þrjá í samtali við Morg-
unblaðið þegar fjögurra landa mótinu í Kaupmannahöfn lauk síð-
degis í gær með sigri Dana, en Íslendingar urðu í öðru sæti.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, að loknu