Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 11
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 B 11
ÍT ferðir - fyrir þig
Sími 588 9900 Netfang: itferdir@itferdir.is
www.itferdir.is
LIVERPOOL
MÓTIÐ 2003
28. júlí – 4. ágúst
Mjög vinsælt mót í bítla- og fótboltaborginni Liverpool.
Allir flokkar drengja og U12, U14 og U18 stúlkur.
Fullt af skemmtilegri afþreyingu í tengslum við mótið
s.s. ferðir á Anfield eða Old Trafford, SAFARI ferð,
skemmtiferð til Blackpool, Bítlasafnið o.fl.
Farið á völlinn að sjá leik í enska boltanum !
www.lksoccertournament.com (ný vefsíða, opnar í feb.)
Umboðsaðili á Íslandi
Íþróttahúsið Smárinn í Kópavogi
auglýsir lausa tíma til leigu.
Verð og nánari upplýsingar
gefur Vilhjálmur
í síma 564 1990 eða 692 1152.
Netfang: villi@breidablik.is
ÍÞRÓTTALIÐ - HÓPAR - FYRIRTÆKI
Smárinn
Heimsbikarinn
Brun karla:
Bormio, Ítalíu:
Stephan Eberharter, Austurríki...... 1:59,27
Michael Walchhofer, Austurríki ...... 1:59,75
Daron Rahlves, Bandar .................... 2:00,04
Klaus Kroell, Austurríki ................... 2:00,13
Didier Cuche, Sviss ............................2:00,29
Ambrosi Hoffmann, Sviss................. 2:00,31
Bruno Kernen, Sviss ..........................2:00,32
Bode Miller, Bandar.......................... 2:00,51
Peter Rzehak, Austurríki ................. 2:00,53
Hannes Trinkl, Austurríki................ 2:00,60
Svig karla:
Bormio, Ítalíu:
Ivica Kostelic, Króatíu ...................... 1:49,03
Bode Miller, Bandar ..........................1:49,43
Hans-Petter Burås, Noregi...............1:49,64
Manfred Pranger, Austurríki ...........1:49,72
Kalle Palander, Finnlandi .................1:49,76
Benjamin Raich, Austurríki ..............1:49,86
Rainer Schoenfelder, Austurríki ..... 1:49.92
Mitja Dragsic, Slóveníu .................... 1:50,07
Tom Stiansen, Noregi........................1:50,19
Kjetil Andre Aamodt, Noregi ...........1:50,31
1. deild kvenna
KA-heimilið
föstudaginn 10. janúar.
KA - HK .....................................................3:1
(18:25, 25:10, 25:19, 25:15)
KA-heimilið
laugardaginn 11. janúar.
KA - HK .....................................................3:0
( 25:21, 25:21, 25:9)
Keflavík:
Nató - Þróttur R........................................1:3
(25:17, 9:25, 24:26, 16:25)
Staðan:
KA 10 8 2 25 10 25
Þróttur N. 8 8 0 24 3 24
HK 9 4 5 15 15 15
Nato 9 2 7 11 23 11
Þróttur R 7 2 8 5 16 8
Fylkir 8 2 6 7 18 7
Leikurinn á St. Andrews tafðistum hálftíma þar sem flóðljósin
á vellinum biluðu rétt fyrir leikinn.
Biðin sló leikmenn Arsenal ekki út
af laginu því strax á 6. mínútu skor-
aði Henry fyrsta markið og gaf tón-
inn um það sem koma skyldi. Arsen-
al réð lögum og lofum eftir það og
komust nýliðarnir ekkert áleiðis.
„Ég er auðvitað stoltur og glaður
yfir því að vera búinn að skora 100
mörk fyrir Arsenal. Ég á Arsene
Wenger mikið að þakka og ekki síð-
ur félögum mínum í liðinu. Þeir hafa
verið iðnir við að búa til færi fyrir
mig,“ sagði Henry eftir leikinn.
11 í röð án sigurs hjá Liverpool
Liverpool lék sinn 11. leik í röð án
sigurs í deildinni þegar liðið gerði
1:1 jafntefli við Aston Villa á Anfield.
Jákvæðustu fréttirnar fyrir Liver-
pool voru þær að Michael Owen fann
loks netmöskvana en hann kom Liv-
erpool í forystu með sínu fyrsta
marki síðan gegn West Ham þann 2.
nóvember. Dion Dublin jafnaði met-
in fyrir Villa með marki úr víta-
spyrnu.
„Við erum enn að ganga í gegnum
storminn en vonandi tekur það enda.
Það er engin launung á að við erum
að ganga í gegnum erfitt tímabil og
auðvitað endurspeglast það sem
leikmenn eru að gera inni á vellin-
um. Ég merki ákveðna þreytu á
mínu liði enda hefur það spilað 37
leiki á leiktíðinni og landsliðsmenn-
irnir eru sumir búnir að spila 40 leiki
og það er bara janúnar,“ sagði Ger-
ard Houllier, stjóri Liverpool.
Nýliðar WBA fengu óskabyrjun á
móti Manchester United þegar Jas-
on Koumas kom liðinu yfir á 6. mín-
útu leiksins. En Adam var ekki lengi
í paradís. Ruud Van Nistelrooy jafn-
aði einni og hálfri mínútu síðar og
eftir höfðu liðsmenn United undir-
ökin. Paul Scholes kom United í 2:1
um miðjan fyrri hálfleik og Ole
Gunnar Solskjær setti punktinn yfir
i-ið með þriðja markinu á 55. mín-
útu. Lárus Orri Sigurðsson var í
byrjunarliði WBA en var skipt útaf
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
„Mér var brugðið þegar WBA
skoraði enda höfðu við byrjað leik-
inn af krafti og mark þeirra kom
nánast eins og þruma úr heiðskíru
lofti. Sem betur fer jöfnuðum við
strax því annars hefðum við getað
lent basli,“ sagði Alex Ferguson,
stjóri United.
„Boro“ slapp með skrekkinn
Það leit allt út fyrir að Middles-
brough biði sinn fyrsta ósigur á
heimavelli þegar spútniklið South-
ampton kom í heimsókn á Riverside
leikvanginn í Middlesbrough. Fram-
herjinn skæði James Beattie hélt
uppteknum hætti og kom South-
ampton í 2:0, hans 15. og 16. mark á
tímabilinu, en á síðustu 17 mínútum
tókst Boro að skora í tvígang. Noel
Whelan minnkaði muninn með
glæsilegu skoti og níu mínútum fyrir
leikslok jafnaði Ítalinn Maccaroni
metin úr vítaspyrnu, hans fyrsta
mark síðan 28. september.
„Það var kominn tími til að við
fengjum vítaspyrnu,“ sagði Steve
McClaren, stjóri Middlesbrough, en
vítaspyrnan sem Maccaroni skoraði
úr var fyrsta vítið sem „Boro“ fær
dæmda síðan í september 2001 en
síðan þá var liðið búið að leika 63
leiki.
Kollegi McClarens hjá Southamp-
ton, Gordon Strachan, stjóri desem-
bermánaðar, var æfur í leikslok og
sagði að Middlesbrough hefði fengið
vítaspyrnu á silfurfati.
West Ham er enn án sigurs á
heimavelli sínum, Upton Park, en
2:2 jafntefli var niðurstaðan í viður-
eign West Ham og Newcastle. Allra
augu beindust að nýjasta liðsmanni
West Ham, Lee Bowyer, en hann
lék sinn fyrsta leik í búningi West
Ham. Stuðningsmenn ,,Hammers“
eygðu von um langþráðan sigur þeg-
ar Jarmaine Dafoe kom West Ham í
2:1 Jermaine Jenes spillti gleðinni á
Upton Park þegar honum tókst að
jafna metin 10 mín. fyrir leikslok.
Tveir fyrrverandi landsliðsþjálf-
arar Englendinga, Kevin Keegan og
Terry Venables, leiddu saman hesta
sína á Maine Road. Keegan fagnaði
þar sigri því lærisveinar hans héldu
fluginu áfram og lögðu Leeds, 2:1.
Sigurinn var öruggari en tölurnar
gefa til kynna því Harry Kewell
minnkaði muninn fyrir Leeds á
lokamínútunni auk þess sem heima-
menn voru miklu sterkari aðilinn.
Írinn Robbie Keane var maður
leiksins þegar Tottenham sigraði
Everton í markaleik, 4:3. Keane fór
á kostum í síðari hálfleik og skoraði
þrennu og sigurmarkið 10 mínútum
fyrir leikslok.
Guðni Bergsson lék allan leikinn
fyrir Bolton sem varð að láta sér
lynda markalaust jafntefl við Ful-
ham. Sam Allardyce, stjóri Bolton,
var ævareiður út í sína menn í leiks-
lok enda misnotuðu þeir mörg góð
færi í leiknum.
Hundrað mörk
hjá Henry
Reuters
Thierry Henry skoraði tvö mörk gegn Birmingham, er Arsenal
vann sinn mesta sigur á St. Andrews, 4:0.
ENSKU meistararnir í Arsenal sýndu sannkallaða meistaratakta
þegar þeir tóku nýliða Birmingham í bakaríið á St.Andrews í gær.
Arsenal vann stórsigur, 4:0, og heldur þar með fimm stiga forskoti á
Manchester United. Frakkinn Thierry Henry skoraði tvö af mörkum
meistaranna og síðara markið var tímamótamark því það var hans
100. fyrir félagið.
Grindavík fékk KR í heimsókn í1. deild kvenna í körfuknatt-
leik í gær og fóru Íslandsmeistar-
arnir með sigur af
hólmi, 58:55. Í fyrri
hálfleik var jafnt á
ansi mörgum tölum
en leikhlutinn ein-
kenndist af misheppnuðum þriggja
stiga skotum Grindvíkinga sem hittu
ekki úr einu einasta þriggja stiga
skoti af tíu tilraunum. Gestirnir áttu
aftur á móti í erfiðleikum með að
komast í skot því þær misstu bolt-
ann alls 17 sinnum í hálfleiknum.
Leikurinn var því ekki áferðarfalleg-
ur og spennustig flestra leikmanna
sennilega of hátt. Ein undantekning
var þó frá þessu og það var langbesti
leikmaður vallarins, Jessie Stomski,
sem var allt í öllu hjá KR stúlkum og
setti niður 19 stig af 26 stigum gest-
anna í fyrri hálfleik, 26:23
Sami barningur var í seinni hálf-
leik en leiðir skildi undir lok fjórða
leikhluta þegar KR náði að rífa sig
frá heimakonum og komast 10 stig-
um yfir 46:56 og rúmar tvær mín-
útur eftir. Grindavík beit frá sér í
lokin og minnkaði muninn jafnt og
þétt og átti möguleika á að jafna
með þriggja stiga skoti en skot Sól-
veigar Gunnlaugsdóttur geigaði.
„Við gerðum þetta óþarflega
spennandi í lokin. Við erum vonandi
komin á sigurbraut því markmiðið
er að komast í úrslitakeppnina. Við
erum mjög sátt við þessi tvö stig hér
í dag enda erfitt að vinna þetta
sterka Grindavíkurlið á þeirra
heimavelli. Miklu máli skiptir líka
fyrir okkur að nú eru að koma til
baka sterkir leikmenn úr meiðslum
og að Jessie Stomski er að komast
betur og betur inn í leik okkar. Þetta
var örugglega besti leikurinn hjá
henni til þessa hjá okkur, “ sagði Ós-
valdur Knudsen, þjálfari KR-
stúlkna. Bestar í liði KRvoru þær
María Káradóttir og Jessie Stomski
en hjá Grindavík voru þær Yvonne
Shelton og Stefanía Ásmundsdóttir
bestar.
Haukar lögðu Njarðvík
Að Ásvöllum höfðu Haukar betur
á móti Njarðvík, 60:50. Katrina
Crenshaw var sterk í liði Hauka og
skoraði 19 stig og tók 11 fráköst og
Egidija Raubaité setti 17 stig og tók
16 fráköst. Þá lék hin 14 ára gamla
Helena Sverrisdóttir vel og skoraði
15 stig og tók 12 fráköst.
Krystal Scott var allt í öllu hjá
Njarðvíkingum en hún skoraði 26
stig í leiknum.
Stomski fór á
kostum í Grindavík
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
Real Sociedad 17 10 7 0 33:20 37
Real Madrid 17 10 6 1 37:16 36
Valencia 17 8 5 4 27:14 29
Deportivo 17 8 5 4 24:20 29
Real Betis 17 7 6 4 28:21 27
Celta Vigo 17 8 3 6 20:17 27
Mallorca 17 8 2 7 23:30 26
Atl. Madrid 17 6 6 5 26:22 24
Barcelona 17 6 5 6 25:19 23
Sevilla 17 5 6 6 15:14 21
Villarreal 17 5 6 6 19:21 21
Valladolid 17 6 3 8 17:19 21
Bilbao 17 6 3 8 25:32 21
Malaga 17 4 8 5 22:24 20
Santander 17 6 2 9 20:23 20
Alavés 17 5 5 7 21:28 20
Osasuna 17 5 4 8 18:23 19
Vallecano 17 5 3 9 18:25 18
Espanyol 17 5 1 11 19:28 16
Huelva 17 2 4 11 13:34 10
Markahæstir:
12 – Roy Makaay (Deportivo La Coruna)
10 – Darko Kovacevic (Real Sociedad),
Nihat Kahveci (Real Sociedad)
9 – Patrick Kluivert (Barcelona), Ismael
Urzaiz (Athletic Bilbao), Walter Pandi-
ani (Real Mallorca), Fernando Torres
(Atletico Madrid)
8 – Raul Gonzalez (Real Madrid), Julio
Alvarez (Rayo Vallecano)
Frakkland
Ajaccio – París SG ............................... 0:0
Auxerre – Troyes ................................. 1:0
Bordeaux – Montpellier....................... 3:1
Le Havre – Strasbourg ................ frestað
Lens – Sedan ..................................frestað
Mónakó – Bastia................................... 0:0
Nantes – Sochaux...........................frestað
Nice – Lille ........................................... 2:0
Rennes – Guingamp............................. 2:1
Staðan:
Nice 21 10 7 4 26:14 37
Lyon 21 10 6 5 37:25 36
Marseille 21 10 5 6 21:20 35
Mónakó 21 9 7 5 32:20 34
Guingamp 21 10 4 7 32:26 34
Sochaux 20 9 6 5 23:14 33
Auxerre 19 9 5 5 20:17 32
Bordeaux 21 8 6 7 26:20 30
París SG 21 7 8 6 29:21 29
Nantes 20 8 4 8 23:24 28
Lens 20 7 7 6 18:19 28
Lille 21 7 7 7 20:26 28
Strasbourg 20 7 6 7 23:30 27
Rennes 21 7 5 9 21:23 26
Bastia 21 7 4 10 21:28 25
Sedan 19 6 5 8 22:25 23
Le Havre 20 4 7 9 14:24 19
Ajaccio 21 4 7 10 16:27 19
Troyes 21 3 7 11 14:23 16
Montpellier 20 3 7 10 17:29 16