Morgunblaðið - 29.01.2003, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
MITSUBISHI Pajero er kominn á
markað talsvert breyttur frá fyrri
gerð. Pajero var fyrst kynntur
snemma á níunda áratug síðustu ald-
ar en árið 2000 kom hann á markað
gerbreyttur. Þá var hætt að smíða
bílinn á grind en þess í stað farið að
framleiða hann
með sjálfberandi
yfirbyggingu.
Um leið fékk bíll-
inn sjálfstæða
fjöðrun á hvert
hjól og varð létt-
ari og liprari í
snúningum en áð-
ur.
Borgarjeppi
Segja má að
Mitsubishi hafi
valið að gera Paj-
ero að stöðugum
og rásvissum bíl
með aksturseig-
inleika í takt við fólksbíla í stað þess
að einblína á hefðbundna byggingu
jeppans. En um leið hélt Pajero
stórum hluta jeppagensins með því
að hafa millikassa með lágum gír og
læsingar í mismunadrifi. Sem sagt;
uppskriftin að velheppnuðum borg-
arjeppa.
Í nýjustu gerð Pajero er byggt á
sömu grunneiginleikum bílsins og
sömu tækni.
Breytingin á Pajero nú er ekki
róttæk enda stutt síðan bíllinn kom í
núverandi gerð. Þó hefur hann feng-
ið nýtt grill og stuðara, nýjar fram-
lugtir auk þess sem talsverð breyt-
ing er á honum að innan. Mitsubishi
ræðir reyndar um 15 ný atriði í nýj-
um Pajero, lítil og stór. Það er því
fremur um það að ræða að verið sé
að fríska bílinn upp til átaka á síh-
arðnandi jeppamarkaði heldur en að
grundvallarbreytingar hafi verið
gerðar á bílnum.
Breytingin að utan er ekki stór-
vægileg en þó eru ýmis smáatriði
sem gera bílinn öðruvísi. Auk nýs
grills, framljósa og stuðara er komin
sérstök lýsing í stigbrettin sem
kvikna þegar hurðir eru opnaðar.
Þetta setur laglegan svip á bílinn og
er ekki síður öryggisatriði. Einnig er
hann kominn á nýjar 16 tommu létt-
málmsfelgur og afturstuðarinn er
sömuleiðis nýr.
Prófaður var bíll í GLS-gerð með
3,5 lítra GDI-bensínvél. Bíllinn er vel
búinn í þessari gerð. Staðalbúnaður
er m.a. leðursæti, rafdrifin sóllúga,
tvöföld loftkæling, skriðstillir og sex
diska geislaspilari. Kominn er stór
upplýsingaskjár í bílinn sem gefur
upplýsingar um útihita, loftþrýsting,
hæð yfir sjávarmáli, meðalhraða og
eyðslu og er auk þess með áttavita
og klukku svo eitthvað sé nefnt.
Upplýsingaskjárinn er aukabúnaður
í GLS en sjö sæti er staðalbúnaður í
þá leið að gera bílinn hæfari til akst-
urs á þjóðvegum með sjálfstæðri
fjöðrun á öllum hjólum og sjálfber-
andi yfirbyggingu er ekki þar með
sagt að bíllinn sé ekki hæfur til að
takast á við ýmsar aðstæður. Hann
er með háþróuðu fjórhjóladrifi, svo-
kölluðu Super Select 4WD. Allajafna
er bíllinn með drifi á einum öxli en
með rafeindastýrðri skiptistöng er
einfalt að skipta yfir í fjórhjóladrif. Í
fjórhjóladrifinu fara 67% aflsins til
afturhjólanna og 33% til framhjól-
anna en um leið og skipt er í 4HLc er
mismunadrifinu læst þannig að drif-
krafturinn fer jafnt til fram- og aft-
urhjóla, sem gerir bílinn afar stöð-
ugan við erfiðar aðstæður. Loks er
hægt að velja um lága drifið, 4LLc,
og er þá mismunadrifinu líka læst og
bíllinn albúinn að takast á við torfær-
ur.
Þessi snotri borgarjeppi frá Mits-
ubishi er tilbúinn í harða samkeppn-
ina á jeppamarkaði hérlendis, betur
búinn og laglegri en áður. Verðið er
5.380.000 kr. fyrir bílinn sjálfskiptan
sem virðist í fljótu bragði í takt við
það sem gerist og gengur á mark-
aðnum. Helstu keppinautar myndu
teljast vera Toyota Land Cruiser 90
og Nissan Terrano II .
Skyggðar rúður, 16 tommu felgur og upplýst stigbretti er meðal staðalbúnaðar.
Hnakkapúðarnir geymdir í vasanum í afturhleranum.
Leður í sætum og viður í stýri. GLS er glæsilegur að innan.
gugu@mbl.is
Þriðja sætaröðin fellur ofan í gólfið þegar hún er ekki í notkun.
Vél: V6, 24 ventlar,
3.497 rúmsentimetrar.
Afl: 202 hestöfl við
5.000 snúninga á mínútu.
Tog: 318 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Hröðun: 12,5 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km klst.
Hámarkshraði: 185 km/
klst.
Eyðsla: 14,2 l í blönduðum
akstri, 19,5 l í bæjarakstri.
Lengd: 4.830 mm.
Breidd: 1.895 mm.
Hæð: 1.855 mm.
Eigin þyngd: 2.110 kg.
Veghæð: 23,5 cm.
Sætafjöldi: 7.
Drif: Tengjanlegt fjór-
hjóladrif, lágt drif.
Gírar: Invecs II sjálfskipt-
ing, handvirk.
Hemlar: Kældir diskar,
ABS, EBD.
Fjöðrun: Gormar að
framan, fjölliða fjöðrun
að aftan.
Verð: 5.380.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Mitsubishi Pajero
3,5 GDI GLS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ekki róttækar en vel til fundnar útlitsbreytingar á Pajero.
Pajero í nýj-
um klæðum
REYNSLUAKSTUR
Mitsubishi Pajero
Guðjón Guðmundsson
öllum gerðum. Þriðja bekknum er
komið haganlega fyrir aftast í bíln-
um þar sem hann fellur ofan í gólfið
þegar hann er ekki í notkun. Með
einfaldri aðgerð er hann reistur upp
og hnakkapúðar tengdir við hann.
Undir honum og aftan við bekkinn er
jafnframt ágætt rými til hleðslu en
auðvelt er jafnframt að fjarlægja
bekkinn með öllu til að auka hleðslu-
rýmið.
Nýtískuvél og sjálfskipting
3,5 lítra, V6 vélin er með svoköll-
uðum GDI-búnaði, sem Mitsubishi
kynnti fyrst í Carisma fólksbílnum.
Eldsneytinu er sprautað beint inn á
strokka vélarinnar undir miklum
þrýstingi sem tryggir jafnari nýt-
ingu, meira afl og minni útblásturs-
mengun. Vélin er þýðgeng og fremur
hljóðlát miðað við slagrými og gefur
bílnum ágæta hröðun og vinnslu.
Pajero fylgir Invecs II sjálfskipt-
ingin frá Mitsubishi í öllum gerðum
nema 2,5 lítra dísilvélinni í GLX-
gerðinni. Invecs II er skynræn
skipting sem aðlagar sig að aksturs-
lagi hvers og eins, en það sem er nýtt
núna er að hún er með handvirkri
sportskiptingu, sem gerir ökumanni
kleift að velja sjálfur hvenær hann
skiptir upp eða niður. Sjálfskiptingin
er fimm þrepa.
Þrátt fyrir að Mitsubishi hafi farið
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Toyota Landcruiser VX
árg. 1991, ek. 267 þús.,
sjálfsk.
Verð 1.950,000.
Toyota Landcruiser 90
LX 38“, breyttur, árg.
1998, ek. 73 þús., 5 gíra.
Verð 3.300,000.
Áhvíl. lán 1.900,000.
Toyota Landcruiser 90
VX árg. 1996, ek. 128
þús., sjálfsk., 7 manna.
Verð 2.150,000.
Nissan Patrol Elegance
árg. 2000, ek. 53 þús.,
sjálfsk., 7 manna.
Verð 3.650,000.
Áhvíl. lán 1.900,000.
Toyota Landcruiser VX
38“, breyttur, árg.1995,
ek. 221 þús., sjálfsk.
Verð 3.290,000. Áhvíl.
lán 790.000.