Morgunblaðið - 03.02.2003, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta var án efa besti leikur okkará heimsmeistaramótinu og við
vorum ákveðnir í að selja okkur dýrt
í þessum leik,“ sagði
Guðmundur Þ. Guð-
mundsson landsliðs-
þjálfari eftir að Ís-
lendingar tryggðu
sér sæti á næstu Ólympíuleikum í
Aþenu árið 2004. „Við vorum mjög
grimmir í vörninni. Það var mark-
miðið að þétta hana á miðsvæðinu
þar sem Júgóslavar sækja mjög mik-
ið inn á miðjuna. Í kjölfarið fylgdu
hlutir sem við vildum fá fram í þess-
um leik, hraðaupphlaup og eins og
oft áður verja markverðirnir betur
þegar vörnin er í lagi,“ sagði Guð-
mundur og lagði áherslu á það að
þetta væri lykillinn að leik íslenska
liðsins. Sóknarleikurinn gekk eins og
smurð vél á hinum enda vallarins.
„Þeir tóku Ólaf Stefánsson úr um-
ferð um tíma, þeir léku einnig 6/0
vörn og við áttum lausnir við öllu því
sem þeir reyndu,“ sagði Guðmundur
og var afar ánægður með úrslit leiks-
ins. „Við þurftum á þessu að halda í
dag, þar sem mikið var í húfi.
Það er staðreynd að við vorum að-
eins herslumun frá því að vinna Spán
og leika þar með í undanúrslitum og
einnig vorum við nálægt því að vinna
Þjóðverja í riðlakeppninni. Það segir
manni að við hefðum getað náð enn
lengra í þessari keppni. Hins vegar
náðum við því markmiði sem við
settum okkur, að tryggja okkur sæti
á Ólympíuleikunum árið 2004 og það
er í raun stórkostleg tilfinning,“
sagði Guðmundur og taldi að und-
irbúningur fyrir næstu stórmót hæf-
ist fljótlega. „Ég fer núna og fæ mér
kaffibolla og byrja eflaust að láta
hugann reika um næstu skref. Þar
þarf að mörgu að hyggja. Hvað við
getum gert betur bæði varðandi lið-
ið, leikaðferðir og þá umgjörð sem
þarf í kringum liðið í svona keppni.
Ég stend ekki einn í þessu og allir
sem tóku þátt í að skapa þessa um-
gjörð unnu sitt starf eins vel og þeir
gátu og ég er að vinna með góðu
fólki,“ sagði Guðmundur sem horfði
á úrslitleik Króata og Þjóðverja með
augum áhugamanns um íþróttina og
einnig sem fagmaður. „Sigur Króata
kom mér ekki á óvart þar sem þeirra
leikstíll hentar Þjóðverjum illa. Und-
anúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn
sýndu þeim sem á horfðu hve
skemmtilegur handknattleikurinn er
orðinn,“ sagði Guðmundur.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
í Lissabon
Besti
leikur
okkar
Líklega var þetta besti leikur okk-ar í keppninni. Kannski var eitt-
hvað vanmat hjá Júgóslövunum en
þeir komu mér ekk-
ert á óvart. Ég vissi
að þeir myndu ekki
þola mótlæti eins og
kom á daginn. Við
þjöppuðum okkur saman og ákváðum
að koma með meiri léttleika og gleði í
leik okkar. Við ætluðum ekki að
svekkja okkur á röngum dómum eða
láta fara í taugarnar á okkur ef við
gerðum mistök. Það eina sem komst í
kollinn á okkur var að ná takmarkinu
og það kom berlega í ljós að okkur
langaði meira til að fara á Ólympíu-
leikana en Júgóslavana. Við vorum
komnir upp að veggnum enda var
þetta þriðji möguleiki okkar og sá síð-
asti til að vinna okkur sæti í Aþenu,“
sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær.
Það var eftir því tekið að talsverð-
ur pirringur virtist vera á milli
manna, meiri en gengur og gerist en
þetta sást ekki í leiknum við Júgó-
slava.
„Það eru alveg eðlilegar skýringar
á þessu. Þegar lið hefur náð góðu
móti eins og í Svíþjóð í fyrra og skynj-
ar svo að hlutirnir eru ekki alveg að
ganga upp þá eru menn að svekkja
sig á þessum 10–15% sem uppá vant-
ar í stað þess að gera sem best úr
þeim 85% sem við höfum. Þessi 15%
munur sem ég er að tala um er að lið-
in eru farin að lesa okkur betur, þau
mæta okkur í hraðaupphlaupunum,
taka mig eða einhvern annan úr um-
ferð og eru búnir að stilla sig inn á
vörn okkar betur. Við hreinsuðum
andrúmslofið í klefanum rétt fyrir
leikinn og það var góð stund sem við
áttum saman leikmennirnir. Það tek-
ur á fyrir menn að taka þátt í svona
löngum mótum. Hótelveran getur
orðið mjög þreytandi og þetta er nán-
ast eins og að vera í smugunni í þrjár
vikur.
Þegar þannig háttar þá snýst þetta
um að kalla það besta fram í manni
sjálfum og það var það sem við gerð-
um í leiknum,“ sagði Ólafur.
Töpuðum fyrir sterkum
þjóðum
Hvar finnst þér liggja munurinn á
leikjum ykkar á HM og á EM í fyrra?
„Það eru þessi 15% sem ég talaði
um áðan. Við töpuðum ekki fyrir
neinum aukvisum. Þjóðverjar, Spán-
verjar og Rússar eru stórþjóðir á
handboltamælikvarða og fólk má
ekki mála skrattann þó svo að þessir
leikir töpuðust. Við veittum þessum
liðum harða keppni og sýndum að við
stöndum þeim ekki langt að baki. Við
vorum í skítariðli og fengum bara tvo
alvöruleiki þar sem annar af þeim,
leikurinn við Þjóðverja, var ekki upp
á neitt fyrir þetta snilldarfyrirkomu-
lag. Mér liggur við að segja að þessir
karlar sem stjórna fari reglulega á
Saga-Class til að búa til nýjar regl-
ur.“
Ólafur segir að viljinn og löngunin
til að komast á Ólympíuleikana hafi
fleytt sér og öðrum leikmönnum
áfram í leiknum. „Það hefur alltaf
verið draumur að fá að keppa á Ól-
ympíuleikum. Ef við gerum góða
hluti í Aþenu verður það stórkostlegt
fyrir Ísland og okkur leikmennina.“
Ert þú bjartsýnn fyrir hönd liðsins?
,,Já, ég er það svo sannarlega. Við er-
um á góðum aldri flestir í liðinu.
Þegar velgengni Svía hófst voru
þeir flestir á aldrinum 27–28 ára og
við erum margir í kringum þennan
aldur. Svo eru líka margir ungir
strákar að koma upp sem hafa fengið
eldskírnina með landsliðinu svo ég
get ekki séð annað en að bjart sé fram
undan. Við ætlum allir að reyna að
bæta okkur og vera duglegir við að
huga að eigin líkama og sál. Það er
engin launung að ég hef sett stefnuna
á að vinna til verðlauna á stórmóti og
hver veit nema að það takist á næsta
ári.“
Hafði oft áhyggjur
Varst þú ánægður með eigin
frammistöðu í keppninni?
„Já, ég held að ég verði að segja
það að mestu leyti. Auðvitað gerði ég
mín mistök eins og í leiknum við
Spánverja en ég náði að stemma mig
vel upp fyrir síðustu leikina við Rússa
og Júgóslava. Ég ætlaði mér að gera
mikið en ekki bara hugsa hvað aðrir
ætluðu að gera.“
Finnst þér ekkert að það sé of mik-
ið lagt á herðar þínar?
„Jú, ég get alveg viðurkennt það og
ég hafði oft áhyggjur að strákarnir
væru að bíða eftir hvað ég gerði. En
ég veit að til mikils er ætlast af mér
og ég reyni að standa undir því. Ég er
hins vegar bestur þegar samherjar
mínir eru góðir. Þegar mér líður vel í
hópnum og ég sé að allir eru brjál-
aðir, vel einbeittir og tilbúnir að fórna
sér í verkefnið þá á ég mína bestu
leiki og líður vel á vellinum,“ sagði
Ólafur Stefánsson að keppni lokinni í
gær.
Ólafur Stefánsson besti leikmaður Íslendinga á heimsmeistara
Næsta markmið að
vinna til verðlauna
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Stefánsson sækir að marki Júgóslava í Lissabon í gær.
ÓLAFUR Stefánsson fór fyrir liði Íslendinga á heimsmeistaramótinu
í handknattleik sem lauk í Lissabon í gær. Hann sýndi þar og sann-
aði að fáir í heiminum standast honum snúning. Ólafur var pott-
urinn og pannan í flestum leikjum íslenska liðsins og hann setti
punktinn aftan við i-ið í gær með magnaðri frammistöðu á móti
Júgóslövum. Ólafur skoraði 11 mörk í leiknum og skoraði sam-
anlagt 58 mörk í mótinu en hann tók ekki mikinn þátt í leikjunum við
Ástrala og Grænlendinga og fékk eins góða hvíld í leiknum við Kat-
ar. Það fór kliður um áhorfendur í hinni glæsilegu íþróttahöll í
Lissabon þegar Ólafur sýndi listir sínar og það var vel við hæfi að
hann skoraði síðasta mark Íslands með glæsilegum þrumufleyg í
slá og inn en Ólafur skoraði einnig fyrsta mark Íslendinga í keppn-
inni – á móti Áströlum.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
frá Lissabon
FALLEGT mark Þórðar
Guðjónssonar kom ekki í
veg fyrir ósigur Bochum,
2:1, gegn Energie Cott-
bus í þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardag-
inn. Þórður, sem kom inn
á sem varamaður á 74.
mínútu, skoraði markið á
lokamínútu leiksins þeg-
ar hann fékk boltann frá
varnarmanni Cottbus og
skoraði með góðu skoti
rétt innan vítateigs –
boltinn sveif efst í mark-
hornið vinstra megin.
Oliver Kahn hélt marki
Bayern hreinu eina ferð-
ina enn þegar lið hans
gerði markalaust jafn-
tefli gegn Armenia í
Bielefeld. Kahn hefur nú
ekki fengið á sig mark í
713 mínútur. Armenia
var betri aðilinn gegn
daufu liði Bayern sem
vantaði nokkra lyk-
ilmenn.
Forysta Bayern minnk-
aði þó aðeins um eitt stig,
niður í sjö, því Bremen
tapaði fyrir Hamburger
SV, 1:0. Dortmund komst
í annað sætið með sigri á
Leverkusen, 2:0.
Eyjólfur Sverrisson
var ekki í leikmannahópi
Herthu Berlín sem tap-
aði, 3:1, í Stuttgart.
Mark Þórðar
nægði ekki
Þórður Guðjónsson
Í GÆR var dregið um hvaða lið
mætast í undankeppni Evr-
ópumótsins í handknattleik, en
undankeppnin fer fram í júní,
en úrslitakeppnin í Slóveníu 22.
janúar til 1. febrúar á næsta
ári. Frændur vorir Norðmenn
sem tóku þátt í forkeppni EM í
síðasta mánuði höfðu ekki
heppnina með sér því þeir
drógust gegn Portúgal. Ís-
lenska landsliðið tryggði sé
þátttökurétt í úrslitakeppni EM
er það hafnaði í fjórða sæti á
mótinu í Svíþjóð í fyrra. Ísland
var því ekki í hattinum þegar
dregið var í Lissabon í gær og
það sama á við um Þjóðverja
Dani, Rússa og Evrópumeistara
Svía.
Eftirtaldar þjóðir drógust
saman:
Bosnía – Tékkland
Ísrael – Úkraína
Hvíta-Rússland – Króatía
Austurríki – Pólland
Finnland – Júgóslavía
Litháen – Spánn
Makedónía – Ungverjaland
Grikkland – Frakkland
Tyrkland – Sviss
Noregur – Portúgal
Fyrri viðureignirnar eiga að
fara fram 15. og 16. júní en þær
seinni viku síðar.
Sigurliðin komast í úr-
slitakeppnina sem fram fer í
Slóveníu.
Dregið verður í riðla í Ljubl-
iana 27. júní.
Heppnin ekki með
Norðmönnum