Morgunblaðið - 10.02.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR BLAÐ B
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VAR KLAUFI GEGN FULHAM, SEGIR JÓHANNES KARL / B3
Morgunblaðið/RAX
Þórey Edda Elísdóttir í keppni í stangarstökki á Meistaramóti Íslands innanhúss í Fífunni í Kópa-
vogi á laugardaginn. Frásögn um mótið og úrslit eru á B11 og B12.
SUNDMAÐURINN Gunn-
ar Örn Ólafsson úr KR
gerði góða hluti á opna
Malmö-mótinu í sundi fatl-
aðra sem fram fór um
helgina en þar keppti hann
ásamt Jónu Dagbjörtu Pét-
ursdóttur, KR. Mótið er
eitt hið sterkasta í flokki
fatlaðra sem haldið er í
Evrópu og gerði Gunnar
sér lítið fyrir og vann til
þriggja gullverðlauna og
tveggja silfurverðlauna.
Gunnar sló fimm Íslands-
met eða í öllum þeim sund-
um sem hann tók þátt í.
Hann varð annar í 200 m
skriðsundi á 2.07,30 mín-
útum og hann varð einnig
annar í 100 m bringusundi
þegar hann kom í mark á
1.16,50 mínútu. Sig-
urgreinar Gunnars voru í
100 m skriðsundi þar sem
tími hans 57,3 sek., 100 m
baksundi þar sem hann
synti á 1.06,60 mín. og í 50
m flugsundi þar sem hann
kom í mark á 29,06 sek-
úndum.
Fimm
Íslands-
met hjá
Gunnari
Þjálfari liðsins, BernardThompson, gerði sér vonir um
að Jón Arnór yrði klár í slaginn
gegn EnBW Ludwigsburg í gær
en honum varð ekki að ósk sinni.
„Ég er allur að braggast og fer
vonandi að æfa í þessari viku og
verð kannski með í næsta leik. Út-
litið var ekki gott fyrst um sinn en
batinn hefur verið mikill á allra
síðustu dögum,“ sagði Jón Arnór í
gær en Trier er neðsta liðið í úr-
valsdeildinni og reið ekki feitum
hesti frá viðureign sinni gegn Lud-
wigsburg sem sigraði 102:69. „Við
vorum að spila við eitt af slakari
liðum deildarinnar og fáum þessa
útreið. Það er frekar ólíklegt að ég
verði hér áfram enda gerði ég að-
eins samning til eins árs.“ Jón
Arnór játti því að lið í Evrópu
væru að spyrjast fyrir um hann og
það væri markmiðið að komast að
hjá öðru liðin næsta sumar. „Um-
boðsmaður minn segir að mörg
þýsk lið hafi sett sig í samband við
hann en ég ætla að bíða og sjá
hvað setur í vor. Þessi sami um-
boðsmaður er einnig með sambönd
við ítölsk og spænsk lið og það eru
því ýmsir möguleikar í stöðunni,“
sagði Jón Arnór.
Jón Arnór frá
vegna meiðsla
JÓN Arnór Stefánsson, leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins í
körfuknattleik, TBB Trier, er meiddur á lærvöðva og hefur ekki leik-
ið með liðinu undanfarnar tvær vikur. Íslenski landsliðsbakvörð-
urinn fékk högg á lærið þrisvar sinnum í sömu vikunni með þeim af-
leiðingum að það blæddi töluvert inná vöðvann.
ENSKI landsliðsmaðurinn Steven
Gerrard hefur fengið morðhótanir að
undanförnu og hafa forráðamenn
enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool
brugðið á það ráð að láta lífverði fylgj-
ast með kappanum allan sólarhring-
inn. Enskir fjölmiðlar segja að hót-
anirnar séu þess efnis að taka verði
þær alvarlega og hefur Gerrard m.a.
látið setja skothelt gler í bifreið sína.
Gerrard hefur lent í ýmsum atvikum
að undanförnu þar sem honum hefur
verið ógnað, múrsteinum kastað í bíl
hans auk þess sem aðilar hafa veitt
honum eftirför í miðborg Liverpool.
Lögreglan í Liverpool hefur einhverj-
ar upplýsingar um málið en hefur
ekki viljað spila út trompum sínum að
svo stöddu. Öryggisgæsla hefur því
verið hert um leikmanninn á heima-
slóðum hans í Southport sem og í
ferðum hans með Liverpool og enska
landsliðinu.
Gerrard
fær morð-
hótanir