Morgunblaðið - 10.02.2003, Blaðsíða 12
Keppni hófst á laugardeginum ogfyrst bar til tíðinda þegar
Sunna bætti eigið Íslandsmet í lang-
stökki kvenna um 20
sentimetra, stökk
6,28 metra. Sigur-
björg Ólafsdóttir úr
Breiðabliki náði
einnig góðum árangri er hún stökk 6
metra, sem er Íslandsmet í flokki
stúlkna 16-17 ára. Sunna þurfti síð-
an að gefa allt sitt til hafa sigur í 60
metra hlaupi og bætti meistara-
mótsmetið um úr 7,71 í 7,63 sekúnd-
ur en Emma Ania úr FH, sem
keppti sem gestur á mótinu, veitti
henni harða keppni.
Jón Arnar hafði í nógu að snúast.
Hann sigraði í kúluvarpi á 15,25
metrum í fyrsta kasti en hafði síðan
ekki tíma til að prófa aftur fyrr en í
síðustu tilraun. Hann kom þá hlaup-
andi úr annarri grein og tókst ekki
vel upp með kúluna, kastaði henni
20 sentimetrum styttra en í fyrra
kastinu en það dugði samt til sigurs.
Á meðan vann hann í tveimur öðrum
greinum; stökk 4,80 metra í stang-
arstökki og 7,40 í langstökki en
Reynir Logi Ólafsson úr Ármanni
hafði betur í 60 metra spretti með
meistaramótsmeti á 6,92 sekúndum
– 13 sekúndubrotum betur en Jón
Arnar. Sigurkarl Gústafsson úr
UMSB hljóp á 7,10 sem er drengja-
met 17-18 ára.
Stangarstökk kvenna var nokkuð
spennandi um tíma þegar Aðalheið-
ur María Vigfúsdóttir úr Breiðabliki
og Fanney B. Tryggvadóttir úr ÍR
bitust um sentimetrana. Aðalheiður
hafði loks sigur með 3,40 metra en
3,30 dugðu Fanneyju til að ná Ís-
landsmeti í meyjaflokki. Þær voru
samt hættar þegar kom að FH-
ingnum Þóreyju Eddu Elísdóttur
því byrjunarhæð hennar var 4,15
metrar sem hún fór auðveldlega
eins og 4,30 í fyrstu tilraun. Þórey
Edda hækkaði í 4,45 metra en
komst ekki yfir slána, henni til sárra
vonbrigða. „Ég er auðvitað með
mjög óánægð með að komast ekki
yfir því ég átti það svo innilega inni
en eitthvað fór úrskeiðis. Það á ekki
að vera neitt mál að fara yfir 4,45
metra og ég hef farið yfir 4,40 í vet-
ur og fór fyrir tveimur árum yfir
4,51. Ég ætlaði að gera betur í dag
og var tilbúin til þess. Það hefur
gengið vel á æfingum, það er reynd-
ar alltaf eitthvað að plaga mann en
maður sníðir bara æfingarnar að því
og það hefur gengið vel. Ég er samt
mjög ánægð með hvað ég er farinn
að gera vel á stönginni og að atrenn-
an hafi smollið saman. Þetta er
þriðja mótið og útrúlega að það sé
að ganga upp núna,“ sagði Þórey
Edda í lok keppninnar. Hún hefur
að vísu náð HM-lágmarki, sem er
4,40 metrar, en taldi sig verða gera
betur. „Ég þurfti að stökkva hátt til
að komast á mót erlendis í stað þess
að verða föst hérna í Fífunni allt
sumarið því ég verð að komast í að
keppa við þá bestu. Til þess þarf lík-
lega að fara yfir 4,50 metra. Það er
því óvíst hvað er framundan og ég
verð að vona að ég fái að keppa á
mótum erlendis bara með þessa 4,40
metra en það er aldrei að vita,“
sagði Þórey Edda.
Átta hundruð metra hlaup kvenna
fékk áhorfendur til að taka duglega
við sér. Eygerður Inga Hafþórs-
dóttir úr FH var fyrst er kom að síð-
ustu beygjunni en á lokasprettinum
féll hún við og Fríða Rún Þórðar-
dóttir, sem var að komast fram úr
henni, vann á 2.20:92 mínútum.
Um 122 keppendur úr 10 félögum
voru skráðir til leiks en ekki náði allt
besta frjálsíþróttafólkið að mæta til
leiks, þar á meðal Vala Flosadóttir,
Einar Karl Hjaltason, Silja Úlfars-
dóttir og nokkrir langhlauparar.
Sunna Gestsdóttir bætti Íslandsmetið um 20 sentimetra í Fífunni
Morgunblaðið/RAXJón Arnar Magnússon í keppni í stangarstökki.
„ÉG var að reyna að bæta mig í
langstökki og gældi við að ná 6,20
svo að þessir átta sentímetrar í við-
bót eru góðir,“ sagði Sunna Gests-
dóttir úr UMSS, sem bætti eigið
met í langstökki um 20 sentímetra
en vann einnig 60 metra sprett og
grindarhlaupið. „Ég er búin að
bæta mig í þessum þremur grein-
um, sem ég keppti í – mér gekk vel í
langstökkinu, líka í sextíu metr-
unum og er ekki langt frá Íslands-
meti þar svo maður er farinn að
gæla við það líka.“
Sunna fékk þó næga keppni því í
langstökkinu atti hún kappi við Sig-
urbjörgu Ólafsdóttur og hin breska
Emma Ania var sneggri í 60 metr-
unum en keppti sem gestur.
„Frænka mín, Sigurbjörg, heldur
mér gangandi og þetta er í fyrsta
sinn sem tvær konur stökkva yfir
sex metra í sömu keppni en aðeins
þrjár hafa stokkið svo langt. Í 60
metra hlaupinu var ég ákveðin í að
láta Emmu ekki fara of langt fram
úr mér. Ég hljóp á móti henni í des-
ember og þá stakk hún af en ég var
ákveðin í að láta það ekki gerast
hér, sérstaklega ekki fyrir framan
alla þessa áhorfendur. Það var því
tekið á þó að ég vissi að það kæmi
niður á hinum greinunum en það
varð bara að hafa það,“ sagði
Sunna sem heldur utan í vikunni.
„Ég fer eftir rúma viku á danska
meistaramótið og síðan á það
sænska viku síðar. Ég keppi í 60 og
200 metrum en líka í langstökki og
þar sem enginn hafði stokkið
lengra en ég fyrir helgi er ég mjög
spennt. Reyndar veit ég ekki um
finnsku stelpurnar því ég skil ekki
orð á finnsku heimasíðunni þeirra.
Það breytir líka öllu að geta keppt
hérna í Fífunni, til dæmis fyrir
áhorfendur sem eru margir og
styðja vel en það er mikils virði,
maður leggur mikið á sig fyrir ár-
angur og gott að fólk sýnir því
áhuga.“
Morgunblaðið/RAX
Sunna Gestsdóttir,
önnur frá hægri, í keppni
í 60 m hlaupi.
Sunna
vill fleiri
met
Jón Arnar og Sunna
nutu sín í Fífunni
SUNNA Gestsdóttir og Jón Arnar Magnússon voru í aðalhlutverkum
á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum, sem haldið í Kópavog-
inum um helgina. Sunna keppti í þremur greinum og sló eitt Ís-
landsmet ásamt tveimur meistaramótsmetum. Jón Arnar náði engu
meti en hafði samt sigur í 5 af sínum 6 greinum. Keppendur jafnt
sem þjálfarar og áhorfendur báru mikið lof á aðstæður í Fífunni og
vildu þakka þein góðan árangur.
■ Úrslit/B10
Stefán
Stefánsson
skrifar
„ÉG er á eðlilegu róli, þetta mót
var helst til að kanna í hvaða
ástandi ég er og ég get verið sáttur
við það,“ sagði Jón Arnar Magn-
ússon eftir mótið á sunnudeginum.
Hann keppti í sex af sjöþraut-
argreinunum og sigraði í fimm af
þeim, náði öðru sæti í 60 metra
spretti en sleppti 1.000 metra
hlaupinu. „Það var ekkert vit í að
gera svoleiðis í staðinn fyrir aðra
þraut. Það er auðvitað alltaf hægt
að bæta sig í öllum greinum en lítið
að marka árangurinn í dag því það
var stíf dagskrá hjá mér í gær. Það
voru jafnvel fjórar greinar í gangi
í einu svo að ég hljóp á milli. Það
er samt hluti af mótinu og maður
er í raun orðinn vanur því. Ég
hefði viljað kasta miklu lengra í
kúluvarpinu en það var enginn
kostur á því og í stangarstökkinu
var ég óheppinn að fara ekki yfir
5,02 metra sem er meistaramóts-
met. Maður hefur ekkert hvílt neitt
og getur nú tekið því rólega fram
að næstu helgi þegar kemur að
Erki Nool-sjöþrautamótinu í Tall-
in.“
Jón Arnar reynir enn að ná lág-
mörkum til að komast á heims-
meistaramótið innanhúss, sem
fram fer í Birmingham í mars.
„Það þarf að ná einu af sex efstu
sætunum í heiminum til að komast
inn. Fyrsta sjöþrautin er um næstu
helgi og ef það næst verður æft vel
fram að heimsmeistaramótinu en
ef það gengur ekki er Austurríska
meistaramótið hálfum mánuði síð-
ar,“ bætti Jón Arnar við. Hann hef-
ur búið í Gautaborg síðan í júní.
„Það er gagngert til að æfa, konan
vinnur og við sjáum hvort við
náum endum saman. Ég geri ekk-
ert annað, æfi tvisvar á dag þrjá
tíma í senn nema sunnudaga. Ég er
ekki hræddur við meiðsli, maður er
orðinn gamall í hettunni og hlustar
á líkamann í stað þess að keyra
áfram þar til allt endar í vitleysu.“
Jón Arnar
sigraði í
fimm
greinum