Morgunblaðið - 25.02.2003, Síða 33
Þessu markmiði laganna hefur
Íbúðalánasjóður náð.
Það tæki sem ríkisvaldið leggur
Íbúðalánasjóði til í þessu skyni er
ríkisábyrgð á húsbréfum og hús-
næðisbréfum. Slík ríkisábyrgð
veitir viðskiptavinum sjóðsins,
sem eru allur almenningur, betri
vaxtakjör en flestir aðrir aðiljar á
fjármálamarkaði geta boðið.
Slík ríkisábyrgð yrði úr sögunni
ef íbúðalán sjóðsins yrðu færð yfir
í almenna bankakerfið.
Mikilvægt hlutverk
á markaði
Hvortveggju bréfin, húsbréf og
húsnæðisbréf, eru markaðs-
verðbréf sem gegna mikilvægu
hlutverki á fjármálamarkaði.
Hlutverk þeirra felst í því að
fjármálamarkaðurinn finnur eins
konar vaxtagólf með ávöxt-
unarkröfu á húsbréfum og
húsnæðisbréfum sem aðrir aðilar
geta miðað við þegar verslað er
með annars konar verðbréf á
markaði.
Ástæðan er sú að yfirleitt bera
engin markaðsverðbréf lægri vexti
samkvæmt ávöxtunarkröfu fjár-
málamarkaðarins. Húsbréf og hús-
næðisbréf gegna því svipað mik-
ilvægu hlutverki á íslenskum
fjármálamarkaði og svokölluð
„State bonds“ á bandarískum fjár-
málamarkaði.
Sem dæmi um þetta þá nota
margir lífeyrissjóðir ávöxt-
unarkröfu húsbréfa sem grunn að
ákvörðun útlánsvaxta til skjól-
stæðinga sinna, það er þeir bæta
við ákveðnu vaxtaálagi ofan á
ávöxtunarkröfu húsbréfa til að
finna út útlánsvexti af lífeyr-
issjóðslánum.
Stærri en
viðskiptabankarnir
Þegar rætt er um Íbúðalána-
sjóð, er vert að hafa í huga að
sjóðurinn er langstærsti sjóður í
eigu íslenska ríkisins að ríkissjóði
sjálfum slepptum.
Sjóðurinn er um 50 milljarða
króna virði, ef miðið er við V/H
gildi sem viðgengst um verðmæta-
mat á fjármálastofnunum í Kaup-
höll Íslands.
Eignir Íbúðalánasjóðs voru ríf-
lega 400 milljarðar króna í árslok
2002 og hafa vaxið um 60 % frá
stofnun sjóðsins 1. janúar 1999.
Viðskiptavinir sjóðsins voru um 80
þúsund talsins og lán voru um 160
þúsund. Til fróðleiks má geta að
íbúðir á landinu öllu eru um
106.000 talsins.
Á meðan eigendur viðskipta-
bankanna gera þá kröfu að hagn-
aður þeirra sé sem mestur, þá er
krafa eiganda Íbúðalánasjóðs, rík-
isvaldsins fyrir hönd almennings,
sú að hagnaður sjóðsins sé hófleg-
ur og að viðskiptamenn hans, al-
menningur, njóti þess í sem lægst-
um vöxtum og vaxtamun.
Sem viðmiðum um þetta má
nefna rekstur Íslandsbanka, sem
er afar vel rekinn banki, eins og
viðskiptabankarnir og sparisjóð-
irnir almennt eru. Hreinar vaxta-
tekjur Íslandsbanka nam á árinu
rúmum 10 milljörðum króna.
Vaxtatekjur annarra banka var
minni, enda eru þeir minni. Þótt
Íbúðalánasjóður sé stærri en Ís-
landsbanki hvað eignir og útlán
varðar, þá námu hreinar vaxta-
tekjur hans á árinu 2001 einungis
um 10% af vaxtatekjum Íslands-
banka, eða rétt rúmum 1 milljarði
króna.
Mjög lítill
vaxtamunur
Ástæðan felst að sjálfsögðu í
litlum vaxtamun Íbúðalánasjóðs
miðað við vaxtamun bankakerf-
isins. Það er forvitnilegt að skoða
vaxtamun Íbúðalánasjóðs og bank-
anna á árinu 2001, en endurskoð-
aðar tölur vegna ársins 2002 liggja
ekki fyrir:
Vaxtamunur 2001
Íbúðalánasjóður 0,28%
Íslandsbanki 3,1%
Landsbankinn 3,5%
Búnaðarbankinn 3,5%
Tekið skal fram að vaxtamun-
urinn er vaxtamunur allra hús-
næðislána Íbúðalánasjóðs, en
vaxtaálag sjóðsins vegna hús-
bréfalána er 0,35%, þar af rennur
0,20% í varasjóð vegna hugs-
anlegra útlánatapa sem hafa verið
hverfandi frá stofnun sjóðsins.
Það kann að vera að einkavæð-
ing Íbúðalánasjóðs geti orðið til
þess að sjóðurinn næði enn betri
árangri í þágu viðskiptavina sinna,
almennings, en hann hefur náð að
undanförnum misserum.
Það kann að vera að viðskipta-
bankarnir geti betur séð við-
skiptavinum sínum fyrir hag-
kvæmum lánum með lægri vöxtum
og minni vaxtamun en Íbúðalána-
sjóður hefur getað veitt þeim eftir
markaðsvæðingu sjóðsins. Það
verður eflaust tekist á um það í
umræðunni á næstunni.
Í þeirri umræðu ber að ræða
núverandi árangur og stöðu
Íbúðalánasjóðs. Ef breyta á
rekstrarformi hins markaðsvædda
Íbúðalánasjóðs þarf að sýna fram
á með haldbærum rökum að slíkar
breytingar verði til bóta fyrir al-
menning.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2003 C 33HeimiliFasteignir
Pálmi B. Almarsson
Löggiltur fasteignasali
Sverrir B. Pálmason
Sölumaður
Jón Guðmundsson
Sölumaður
Katrín Magnúsdóttir
Ritari
Sigurður Á. Reynisson
Sölumaður
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf.
hefur hafið sölu á stórglæsilegum 2ja, 3ja,
4ra, 5 og 6 herbergja íbúðum í glæsileg-
um fjöleignahúsum í Bryggjuhverfinu.
Íbúðirnar eru frá 95 m² og uppí 218 m².
„Penthouse“-íb. eru á tveimur hæðum og
verður þeim skilað tilbúnum til innréttinga.
Öðrum íbúðum verður skilað fullbúnum
án gólfefna. Stæði í bílageymslu fylgir öll-
um íbúðum. Nokkrar íbúðir til afhendingar
nú þegar. Glæsilegur sölubæklingur á skrifstofu Bifrastar. Verð frá 14,9 millj.
Skemmtileg staðsetning við smábátahöfnina og sjávarilmur í lofti.
NAUSTABRYGGJA 12-22
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf.
hefur hafið sölu á stórglæsilegum 3ja og
4ra herbergja íbúðum, 96-119 m² í glæsi-
legum fjöleignahúsum í Grafarholtinu.
Lyfta er í húsinu og sérinngangur í hverja
íbúð. Vandaðar innréttingar frá Brúnás,
tölvu- og símalagnir í öllum herb. Hægt er að fá bílskúr. Frábær staðsetning og
glæsilegt útsýni. Íbúðum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Glæsilegur sölubæk-
lingur á skrifstofu Bifrastar. Verð frá 13,2 millj.
KRISTNIBRAUT 77-79
Spóahólar - Laus Falleg 81,6 fm 3ja
herbergja endaíbúð á 2. hæð í litlu fjöleigna-
húsi ásamt 21,2 fm innbyggðum bílskúr.
Parket og flísar. Húsið er ný viðgert að utan.
Áhv. 4,4 millj. húsbréf. Verð 11,4 millj.
Dalsel - Stæði Skemmtileg 98 m² 4ra
herb. íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í
bílageymslu. Áhv. 7,1 millj. Verð 12,3 millj.
Gyðufell - Mjög góð Mjög góð og
töluvert endurnýjuð 83 m² 3ja herbergja íbúð
á 3. hæð í nýlega álklæddu fjöleignahúsi. Yf-
irbyggðar svalir. Verð 9,2 millj.
Skipholt
Góð 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð og í risi á
þessum eftirsótta stað. Samliggjandi stofur
og þrjú svefnherbergi. Parket og flísar. Verð
13,2 millj.
Torfufell - Mikið endurnýjuð
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 3ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í fjöleignahúsi. Nýtt
eldhús og bað. Hús í topp ástandi. Gólfefni
ný. Þetta er klassa íbúð sem er til afhending-
ar fljótlega. Áhv. 3 millj. Verð 10 millj.
Hraunbær - Laus Vorum að fá í einka-
sölu rúmgóða 86 m² 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð í nýlega viðgerðu fjöleignahúsi. Parket
og flísar. Þvottahús í íbúð. Áhv. 5,6 millj.
Laus til afhendingar. Verð 10,3 millj.
Klukkurimi - Laus Vorum að fá í
einkasölu 87 m² 3ja herbergja íbúð á 2. hæð
(efstu) í fjórbýlishúsi á þessum skemmtilega
stað. Glæsilegt útsýni. Verð 11,5 millj.
Laugavegur - Í nýju húsi Mjög
rúmgóð 125 m² 4ra herbergja íbúð á 3. hæð
í nýju húsi við Laugaveginn ásamt stæði í
bílageymslu. Lyfta er í húsinu. Íbúðin er laus.
Verð 17 millj.
Ránargata Góð 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð í góðu húsi á þessum eftirsótta stað.
Áhv. 3,2 millj. byggsj. Verð 7,8 millj.
VANTAR 30 íbúðir Vegna mikillar sölu
á 2ja herb. íbúðum vantar okkur nú þegar
allt að 30 íbúðir Í Rvík og Kópavogi. Skoðum
þér að kostnaðarlausu, skráðu eignina þína
núna.
Logafold - Hæð og bílskúr Vorum
að fá í sölu glæsilega 172 m² sérhæð ásamt
40 m² bílskúr. Fjögur svefnherbergi. Parket
og flísar. Eign í sérflokki. Áhv. 8 millj. Verð
22,5 millj.
Hjallavegur Góð 126 m², 5 herb. efri
sérhæð á tveimur hæðum (hæð og ris) í fjór-
býlishúsi, sem hefur verið töluvert endurnýj-
uð. Parket og flísar. Áhv. 9,3 millj. Óskað er
eftir tilboði.
Hraunteigur - Sérhæð Mjög góð
136 m², 5 herbergja, neðri sérhæð með góð-
um bílskúr á þessum eftirsótta stað. Þrjú
svefnherb. og tvær stofur. Flísar og parket.
ÍBÚÐIR ÓSKAST Vantar nú þegar á
skrá, 3ja - 6 herb. íbúðir, mikil sala og góð
eftirspurn. Höfum á skrá fjölda kaupenda
sem bíða eftir réttu eigninni. Samtengd sölu-
skrá, hafðu samband.
Logafold
Mjög rúmgóð 100 m², 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð í góðu fjöleignahúsi. Skemmtilega inn-
réttuð íbúð. Parket. Áhv. 5,8 millj. byggsjlán.
Verð 12,6 millj.
Fensalir - Bílskúr
Mjög falleg 115 m² 4ra herbergja íbúð á
efstu hæð í litlu fjöleignahúsi á þessum eftir-
sótta stað ásamt 29 m² bílskúr. Parket og
flísar. Áhv. 8,5 millj. Verð 17,9 millj.
Grensásvegur - Rúmgóð
Mjög rúmgóð og fallega innréttuð 68 m² 2ja
herbergja íbúð á 1. hæð í fjöleignahúsi. Verð
8,9 millj.
Hraunbær - Laus Mjög góð 2ja her-
bergja íbúð á jarðhæð í nýlega klæddu fjöl-
eignahúsi. Áhv. um 3 millj. Verð 6,5 millj.
Iðufell Vorum að fá í sölu mjög góða
68,2 fm 2 til 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í
nýlega endurnýjuðu fjöleignarhúsi. Tvö
svefnherbergi og stofa. Verð 7,9 millj.
Jöklafold - Laus
Vorum að fá í sölu mjög góða 58,6 fm, 2ja
herbergja íbúð á 2. hæð í fallegum litlu fjöl-
eignahúsi. Áhv. 4,6 m. byggsj. Verð 9,4 m.
Kleppsvegur - Einstaklingsíbúð
Góð íbúð á 4. hæð í góðu fjöleignahúsi með
lyftu, mikið útsýni. Suðursvalir. Áhv. 3,7 millj.
húsbréf. Verð 6,7 millj.
Hvassaleiti - Þjónustuíbúð
Vorum að fá í einkasölu 2ja herbergja íbúð á
3. hæð í VR-blokkinni. Íbúðin er nýmáluð og
laus til afhendingar. Parket og flísar. Áhv. 3,8
millj. Verð 14,5 millj.
Hlaðbrekka - Skipti
Vorum að fá í sölu mjög gott og vel viðhaldið
161 m² einbýlishús á tveimur hæðum með
innb. bílskúr. Þrjú svefnherbergi. Hús í mjög
góðu ástandi. Parket og flísar. Skipti á minni
eign koma til greina. Áhv. 9 millj. Verð 22
millj.
Byggðarholt - Mosfellsbæ Vorum
að fá í sölu mjög gott 143 m² endaraðhús á
einni hæð auk 22 m² bílskúrs. Fjögur svefn-
herbergi. Stór og falleg endalóð. Verð 18,7
millj.
ÓSKUM EFTIR SÉRBÝLI Höfum á
skrá kaupendur að einbýlishúsum, rað- og
parhúsum og sérhæðum á höfuðborgar-
svæðinu. Hafðu samband ef þú ert í sölu-
hugleiðingum, það kostar ekkert. Sam-
tengd söluskrá.
Vallarbarð - Raðhús Gott og vel inn-
réttað 165 m² endaraðhús á einni hæð
ásamt 25 m² bílskúr. Þrjú góð svefnherbergi.
Rúmgóðar stofur. Parket og flísar. Áhv. 13
millj. Verð 20,5 millj.
Reykjabyggð - Mos.
Vorum að fá í sölu mjög gott 144 fm einbýl-
ishús á einni hæð, auk 30 fm innbyggðs bíl-
skúrs á þessum friðsæla stað. Endurnýjað
eldhús og gólfefni. Áhv. 6,5 millj. húsbréf.
Verð 20,1 millj.
VANTAR - Stærri íbúðir Vantar nú
þegar hæðir og stærri íbúðir, fjöldi kaupenda
á skrá og samtengd söluskrá tryggir árang-
ur. Það kostar ekkert að skrá eignina.
Naustabryggja - Hæð og ris
Vorum að fá í sölu mjög góða og fallega inn-
réttaða 191 m² íbúð, sem er hæð og ris,
ásamt stæði í bílageymslu. Fjögur svefnher-
bergi og tvær stofur. Áhv. 9,3 millj. húsbréf.
Verð 23,7 millj.
SAMTENGD SÖLUSKRÁ FJÖGURRA FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR
Alltaf á þriðjudögum
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll