Morgunblaðið - 16.03.2003, Síða 1
Sölumaður
Þekkt vélaverslun leitar að sölumanni með sér-
svið í sölu á síum í heildsölu og beint til stór-
notenda.
Aðeins maður með þekkingu á síum kemur
til greina. Gott starf og vinnuaðstaða.
Vinsamlega leggið inn upplýsingar á augldeild
Mbl. eða í box@mbl.is, merktar: „Sölumaður
— 13448“, fyrir föstudaginn 21. mars.
Sjúkraþjálfarar
Sunnuhlíð óskar eftir
sjúkraþjálfurum til starfa.
Í Sunnuhlíð eru 72 hjúkrunarrými og 18 dag-
vistarrými og auk þess reka Sunnuhlíðarsam-
tökin 108 þjónustuíbúðir fyrir aldraða.
Um er að ræða þjónustu við íbúa hjúkrunar-
heimilisins, vistmenn dagvistar, íbúa í þjón-
ustuíbúðum Sunnuhlíðarsamtakanna og fleiri.
Sjúkraþjálfunin er vel tækjum búin og fyrir-
hugað er að flytja starfsemina í nýtt og glæsi-
legt húsnæði á næstunni.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Árnason,
framkvæmdastjóri, í síma 560 4100,
netfang johann@sunnuhlid.is
Kjötiðnaðarmenn
Ferskar kjötvörur hf. óska eftir að ráða kjötiðn-
aðarmenn til starfa við verkstjórn í kjötvinnslu
fyrirtækisins hér í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 21. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
fyrirtækisins í Síðumúla 34 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörn Sigurbergs-
son, framleiðslustjóri, í síma 588 7580 eða 660
6320 frá kl. 08:00 til 16:00 virka daga.
Upplýsingar um fyrirtækið er að finna á heima-
síðu þess www.ferskar.is .
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur
Hagaskóli, sími 535 6500
Eðlis- og efnafræði í 8-9. bekk.
Ýmsar greinar í 9-10. bekk.
Umsóknarfrestur til 28. mars 2003.
Rimaskóli, símar 567 6464 og 897 9491
Vegna forfalla er laus staða umsjónarkennara
út skólaárið. Kennslugreinar: Samfélagsfræði
og eðlisfræði á unglinga- og miðstigi.
Lausar stöður
skólaárið 2003-2004
Hvassaleitisskóli, sími 570 8800
Náttúrufræðikennsla í 8-10. bekk.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri viðkomandi skóla.
Umsóknir ber að senda til skóla.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is.
Sölumaður óskast
Sölumaður, kunnur auglýsingasölu, óskast
hjá fyrirtæki í upplýsingamiðlun ferðamála.
Reynsla af sölu- og markaðsmálum æskileg.
Heilt eða hlutastarf er í boði. Frjáls vinnutími.
Farið verður með allar upplýsingar sem
trúnaðarmál.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „1717“, eða á box@mbl.is .
Sunnudagur
16.mars 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8,656 Innlit 16.017 Flettingar 64.959 Heimild: Samræmd vefmæling