Morgunblaðið - 31.03.2003, Side 1
2003 MÁNUDAGUR 31. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TINDASTÓLL TRYGGÐI SÉR ODDALEIK / B12
SKOSKA dagblaðið Sunday Her-
ald sagði í gær að Eiður Smári
Guðjohnsen væri í svipaðri stöðu
og norður-írski snillingurinn
George Best upplifði á sínum
tíma. Best var af mörgum talinn
besti knattspyrnumaðurinn sem
aldrei fékk tækifæri til að leika
með þjóð sinni í úrslitakeppni HM.
„Guðjohnsen er eina stjarna Ís-
lands og sá einstaklingur sem all-
ir mótherjar leggja höfuðáherslu
á að gæta og gera óvirkan, eins
og skoska liðinu tókst í fyrri
leiknum í Reykjavík í október,“
sagði í umsögn blaðsins um leik-
inn.
Aðeins aftar var sagt að þrátt
fyrir þetta hefðu skosku varn-
armennirnir átt fullt í fangi með
Eið í seinni hálfleiknum og gefið
honum fáránlega einfalt mark.
spurninguna: Ef Atli Eðvaldsson
leitar til þín með að spila þessa tvo
landsleiki í júní, hvert verður þitt
svar? „Ég mun segja já,“ svaraði
Guðni án mikillar umhugsunar.
Hann bætti við: „Það er hinsvegar
ekkert sjálfsagt í þeim efnum. Atli
Guðni staðfesti hinsvegar eftirleikinn gegn Skotum í Glasgow
á laugardaginn að hann myndi svara
því jákvætt ef til kæmi að talin væru
not fyrir hann í þessum tveimur
leikjum.
Morgunblaðið lagði fyrir hann
metur stöðuna útfrá þessum úrslit-
um í kvöld, hvort þörf sé á að nota
mig, en ég mun ekki skorast undan
ef til kemur. En ég er fyrst og fremst
ánægður með að hafa tekið þátt í
þessum leik gegn Skotum og að hafa
fengið tækifæri til að enda landsliðs-
ferilinn á jákvæðari nótum en útlit
var fyrir,“ sagði Guðni en hann lék á
laugardaginn sinn fyrsta landsleik í
hálft sjötta ár.
Leikurinn við Færeyjar verður á
Laugardalsvellinum 7. júní og þar
fengju íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn tækifæri til að kveðja Guðna á
viðeigandi hátt. Leikurinn gegn
Litháen er á útivelli fjórum dögum
síðar. Þess má geta að Guðni lék sinn
fyrsta landsleik gegn Færeyjum í
Þórshöfn 1984.
Morgunblaðið/Kristinn
Eiður Smári Guðjohnsen er hér í baráttu við Paul Lambert í leiknum á Hampden Park.
Guðni er tilbúinn gegn
Færeyjum og Litháen
GUÐNI Bergsson er tilbúinn til að framlengja feril sinn um einn
mánuð til þess að spila með íslenska landsliðinu gegn Færeyjum og
Litháen í undankepni EM dagana 7. og 11. júní. Guðni ætlaði að
leggja skóna á hilluna að loknu þessu keppnistímabili í ensku
knattspyrnunni en síðasti leikur Bolton fer fram 11. maí.
■ Ég er sár og svekktur.../B3
■ Ég gat ekki.../B6
■ Sárt að hafa.../B2
■ Leikurinn/B6
Eiður í
sömu stöðu
og George
Best
GUNNLAUGUR Jónsson, fyr-
irliði Skagamanna í knattspyrn-
unni, er nefbrotinn, brotnaði á
æfingu með liðinu á dögunum
þegar hann lenti í árekstri við
einn félaga sinn í ÍA. Gunn-
laugur gekkst undir aðgerð á
föstudaginn og verður vænt-
anlega frá keppni næsta mán-
uðinn af þeim sökum.
Gunnlaugur
nefbrotinn