Morgunblaðið - 30.04.2003, Síða 12
12 C MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Þ
EIR sem hafa átt 8 eða 9
feta fellihýsi skipta gjarn-
an yfir í stærri fellihýsi, 10
eða 12 feta. Þessi þróun
leiðir auðvitað til líflegs
markaðar með notuð fellihýsi og ger-
ir ungu fólki kleift að eignast slíka
gripi á lægra verði en þeir kosta nýir.
Fyrir nokkrum árum nutu tjaldvagn-
ar og fellihýsi ekki eins almennrar
hylli og nú. Hingað koma allir nema
ráðherrar. Og það er bara af því að
þeir gefa sér ekki tíma í frí,“ segir
Sveinbjörn Árnason, annar eigenda
Evró ehf.
Evró ehf. var stofnað árið 1991 af
þeim frændum Sveinbirni og Magn-
úsi Yngvasyni. Fyrirtækið flytur inn
Easy Camp tjaldvagna, Rockwood
fellihýsi, Coleman fellihýsi og A-liner
fellibústaði. „Tjaldvagnarnir voru
allsráðandi í fyrstu, eða fram til
1995,“ segir Sveinbjörn. „Þeir eru
enn mjög vinsælir, en fellihýsin hafa
sótt æ meira inn á markaðinn. Cole-
man fellihýsunum hefur verið tekið
afar vel af Íslendingum og þau endast
vel. Mér er t.d. kunnugt um 26 ára
gamalt Coleman fellihýsi, sem var
flutt notað til landsins og er enn í
góðu lagi.“
Sveinbjörn segir að fellihýsi hafi
náð mikilli útbreiðslu í Bandaríkjun-
um og Íslendingar séu áreiðanlega sú
Evrópuþjóð sem hafi verið fyrst til að
tileinka sér þau. „Fellihýsin eru núna
fyrst að byrja að hasla sér völl á meg-
inlandi Evrópu. Við þurfum að breyta
þessum amerísku fellihýsum töluvert
þegar þau koma til landsins, til að þau
falli að evrópskum stöðlum, til dæmis
þarf að breyta ljósabúnaði og setja
nýja miðstöð og eldavél. Þá þarf einn-
ig að skipta um króka á þeim.“
Með fellihýsi á fjöll
Sveinbjörn segir að þótt fellihýsin
séu bandarísk henti þau vel fyrir ís-
lenskar aðstæður. „Dúkarnir í felli-
hýsunum okkar anda til dæmis, sem
hentar vel þegar kalt er í veðri. Ef
þeir önduðu ekki myndi raki þéttast
inni í fellihýsunum.“
Evró ehf. býður upp á 8, 9, 10 og 12
feta fellihýsi. „Minni fellihýsin henta
vel aftan í fólksbíla. Fólk sem hefur
reynslu af slíkum fellihýsum, og hef-
ur vanist að aka með þau um landið,
vill gjarnan stækka við sig síðar. Lík-
lega eru mest seldu fellihýsin hjá
okkur 10 feta Coleman hús og mest
seldi tjaldvagninn er 4-6 manna Easy
Camp Montana.“
Aðspurður segir hann ekkert
vandamál að aka um Ísland með felli-
hýsi í eftirdragi, jafnvel þótt það sé 12
feta. „Þjóðvegur 1 er ágætis braut
fyrir bíla með fellihýsi. Reyndar fara
margir með fellihýsi utan alfaraleið-
ar. Við höfum hækkað fellihýsi, sett í
þau loftpúðafjöðrun og ýmsan annan
búnað, sem gerir að verkum að hægt
er að draga þau á eftir jeppum á fjöll.
Svo fara heilu hóparnir á hverju ári
með Norrænu til meginlands Evrópu
og þurfa ekki að hafa áhyggjur af
gistingu þegar fellihýsið er með í för.“
Sveinbjörn segir að þótt auðvelt sé
að ferðast með fellihýsi furði hann sig
á því hve fáir kaupi stóra víddar-
spegla á bíla sína, sem séu nauðsyn-
legir þegar ekki sjáist aftur úr bílnum
og raunar lagaskylda að nota þá við
slíkar aðstæður. „Við leggjum mikla
áherslu á að fólk kaupi slíka spegla,
en það gengur ótrúlega illa að venja
fólk á þetta öryggisatriði. Mér finnst
skjóta skökku við þegar fólk leggur
mikla fjármuni í fellihýsi, en veigrar
sér við að greiða sex þúsund krónur
fyrir víddarspegla. Þeir eru miklu
mikilvægari en rétta grillið eða sal-
ernið.“
Tjaldvagnar kosta á bilinu 300-600
þúsund krónur. Minnstu tjaldvagn-
arnir eru 2ja manna, en þeir stærstu
rúma vel 6 manns og jafnvel fleiri.
Fellihýsi kosta 850-1700 þúsund
krónur, þau minnstu eru 4ra manna
en þau stærstu eru á við heila sum-
arbústaði með svefnpláss fyrir 10
manns.
Evró selur ýmsan aukabúnað með
fellihýsunum. Flestir kaupa fortjald,
margir vilja ísskápa og ferðasalerni
og svo eru þeir sem vilja heitt og kalt
vatn og koma sér upp útisturtu við
fellihýsið. Aukabúnaðinum eru nán-
ast engin takmörk sett. Ekkert er því
til fyrirstöðu að setja hljómflutnings-
tæki í fellihýsið, sjónvarp og DVD-
tæki.
Hægt er að tengja fellihýsi við raf-
magn á tjaldstæðum, þar sem boðið
er upp á slíkt. „Slík þjónusta er því
miður vandfundin hér á landi. Ég er
viss um að þau tjaldstæði, sem byðu
upp á góða þjónustu við eigendur
fellihýsa, myndu njóta þess í mjög
aukinni aðsókn.“
35—40% markaðshlutdeild
Um 5.500 hjólhýsi, tjaldvagnar,
fellihýsi og fallhýsi eru skráð hér á
landi. Sveinbjörn segir að salan hafi
dregist nokkuð saman á síðasta ári,
en nú hafi hún tekið verulegan fjör-
kipp. Hann segir að eðlileg sala tjald-
vagna og fellihýsa sé um 400-500
stykki á ári og Evró ehf. sé með 35-
40% markaðshlutdeild.
Auk tjaldvagna og fellihýsa selur
Evró svokallaða A-liner fellibústaði,
eins og áður er nefnt. Þeim er
kannski best lýst sem litlum hjólhýs-
um. Þegar komið er á áfangastað með
A-liner í eftirdragi þarf ekki annað en
að lyfta þakinu, sem myndar þá eina
burst, eða A. „Þessir bústaðir eru
mjög auðveldir í notkun. Kaupend-
urnir eru gjarnan hjón, sem eru ein
eftir í kotinu og vilja halda áfram að
ferðast, en með sem allra minnstu
umstangi. Með því að bjóða upp á
þessa bústaði náum við að sinna öll-
um viðskiptavinum okkar, allt frá
unga fólkinu, sem leitar eftir notuð-
um tjaldvögnum, upp í fjölskyldufólk
sem kaupir stærri tjaldvagna og felli-
hýsi og loks eldri hjón sem kaupa sér
A-liner.“
Ber út Moggann á tjaldstæðum
Þjónusta Evró ehf. er ekki bundin
við húsnæði fyrirtækisins að Grens-
ásvegi 3 í Reykjavík. Sem dæmi má
nefna, að Evró er með þjónustusamn-
ing við bifreiðaverkstæði á Akureyri
og Höfn á Hornafirði. Fyrirtækið
heldur úti heimasíðu, www.evro.is,
þar sem hægt er að finna upplýsingar
um allar vörur þess. Þar er einnig að
finna upplýsingar um ferðaklúbb eig-
enda fellihýsa, Coleman-klúbbinn.
Klúbburinn skipuleggur nokkrar
ferðir á ári og þá tryggir Evró að allir
vakni upp með Moggann á hurðar-
húninum. „Eftir að við byrjuðum á
þessari þjónustu kemur ekki annað til
greina en að halda henni áfram. Allir
vilja fá Moggann sinn á morgnana,“
segir Sveinbjörn Árnason.
Evró ehf. selur tjaldvagna og fellihýsi
„Hingað koma allir nema ráðherrar“
Sveinbjörn Árnason lætur fara vel um
sig í fellihýsi frá Evró.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tólf feta Coleman-fellihýsi frá Evró.
Minni fellihýsin njóta mikilla vinsælda, ekki síður en þau stærri.
Sjónvarpsskjár í 12 feta Coleman-
fellihýsi, sem er búið DVD-tæki, auk
hljómtækja með átta hátölurum.
V
IÐURNEFNI Bjarna tengd-
ist því að hann rak fyr-
irtæki á Akureyri sem
þjónaði húsbílaeigendum.
Sjálfur hefur hann mikla
reynslu af ferðalögum á húsbílum,
jafnt innanlands sem utan. Bjarni
segir að sér finnist það heldur vera
að aukast að Íslendingar komi til
meginlands Evrópu á húsbílum eða
með gistinguna í eftirdragi.
„Mér finnst það sérstaklega eiga
við um fellihýsin og húsbílana, sem
hefur fjölgað mikið á Íslandi. Ég
þekki mikið af húsbílafólki og veit
hvenær það er á ferðinni, margir
koma líka við hjá okkur,“ sagði
Bjarni. En hvað vill hann ráðleggja
fólki sem ætlar að fara í fyrsta
sinn í ferðalag með húsbíl, tjald-
vagn eða fellihýsi til útlanda?
„Fólk ætlar oft að fara allt of
víða. Ég þekki þetta af eigin raun,
því í fyrstu ferðunum okkar
brenndum við okkur á þessu. Við
fórum níu sinnum í ferðalög á bíl
frá Íslandi og ætluðum að sjá allan
heiminn í fyrstu ferðunum. Maður
fór land úr landi en sá ósköp lítið
nema vegina. Reynsla mín er sú að
þegar fólk er búið að fara nokkrum
sinnum þá fer það að taka fyrir
minni svæði, eitt land eða tvö og
skoða þau betur. Maður fær miklu
meira út úr því.“
Bjarni segir að ef til vill tengist
þetta því að búa á eyju, þegar fólk
komist úr landi vilji það fara sem
víðast. Flestir komist þó yfir þetta
stig. Hann mælir með því að fólk
finni sér gott tjaldstæði og dvelji
þar tvær til þrjár nætur, fari svo í
stuttar skoðunarferðir um ná-
grennið áður en farið er á næsta
tjaldstæði.
„Ég mæli með því að fólk fari á
upplýsingaskrifstofur fyrir ferða-
menn á hverjum stað. Þar getur
það viðað að sér bæklingum og
kynnst því hvað er í boði. Ef maður
getur eitthvað bjargað sér í málinu
þá býr starfsfólkið yfir ótrúlega
miklum upplýsingum. Við vorum
farin að gera þetta á okkar ferða-
lögum og fundum allt mögulegt,
bara við að spyrjast fyrir. Fólk sem
er að fara í fyrsta sinn, t.d. til Dan-
merkur, hefur bara heyrt um Lego-
land og Tívolí, en hér er svo miklu
meira að finna.“
Bjarni og Bryndís fóru í fyrstu
bílferðina til útlanda árið 1978. Þá
voru þau á fólksbíl með fimm
manna Tjaldborgartjald og „tjöld-
uðu fyrir lífstíð“ eins og Bjarni seg-
ir. „Þetta þótti mikið ævintýri og
ég held að konan hafi ekkert reikn-
að með að koma heim aftur. En
þetta tókst allt,“ segir Bjarni og
hlær. Eftir þessa fyrstu ferð fóru
þau hinar á húsbíl. „Maður hélt að
það væri alltaf gott veður í útlönd-
um en maður getur lent hér í rign-
ingum og kulda, þótt það sé mitt
sumar. Maður verður að vera við
öllu búinn. Ef fólk er með húsbíl,
fellihýsi eða tjaldvagn hefur það
meiri möguleika á því.“
Bjarni segir mikilvægt að gista á
skráðum tjaldstæðum og þau sé
víða að finna. Það geti verið í lagi,
ef margir bílar ferðast saman, að
nátta á bílastæði, en hann mælir
ekki með því. „Það er gæsla á öll-
um tjaldstæðum og þangað kemur
enginn óviðkomandi eftir lokun á
kvöldin. Það borgar sig að vera ekki
of seint á ferð til að fá stæði. Í júlí
þýðir yfirleitt ekkert að leita að
tjaldstæði eftir kl. 17 á daginn, þá
er orðið fullt alstaðar. Sniðugast er
að tryggja sér gistingu fyrr á dag-
inn og svo getur maður farið eitt-
hvað í skoðunarferð.“
Bjarni vill einnig hvetja fólk til að
reiða sig ekki of mikið á greiðslu-
kortin í venjulegum verslunum. Það
séu ekki nærri allar verslanir sem
taki kort. Flest tjaldstæði taka
kort, en þó ekki öll. Hann mælir
með því að fólk læri lykilnúmerin
sín (pin-númer) og taki síðan út
reiðufé í hraðbönkum, eftir hend-
inni. Eins vill hann hvetja bíleig-
endur til að fara til tryggingafélags
bílsins og fá þar „græna kortið“,
sem er alþjóðlegt trygginga-
skírteini, og hafa það með.
En hvað skyldu Bjarni og Bryn-
dís hafa lagt marga kílómetra að
baki í ferðalögunum?
„Við vorum að keyra þetta 3–4
þúsund kílómetra í 4–6 vikna
löngum ferðum. Eftir því sem við
fórum oftar því minna ókum við.
Eftir níundu ferðina fórum við ekk-
ert heim aftur…“
Á húsbíl um Evrópu
Ekki skoða allan
heiminn í einni ferð
Morgunblaðið/Guðni
Bjarni og Bryndís reka bændagistingu nálægt Billund. Þau eru með dýr sem
svala sér á kóki í sumarhitanum.
Bjarni Jónsson, sem nú rekur bændagistingu í nágrenni
Billund á Jótlandi ásamt konu sinni Bryndísi Gunnars-
dóttur, var áður fyrr þekktur sem „Húsbíla-Bjarni“.
Bjarni Jónsson og Bryndís Gunn-
arsdóttir fóru níu sinnum í bílferðalag
um Evrópu, uns þau ílentust í Dan-
mörku. TENGLAR
..............................................
http://www.come.to/billund
Sími: +45 75885718 og +45
20335718, fax : +45 75885719,
tölvupóstur: bjonsson@privat.dk