Morgunblaðið - 02.05.2003, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
S
KAGAFJÖRÐUR er einn af
þeim stöðum á landinu þar
sem menn hafa áttað sig á
þörf mannskepnunnar til
þess að takast á við nátt-
úruöflin. Í ferðaþjónustu þar hefur
verið lögð áhersla á spennandi æv-
intýraferðir, eins og raftsiglingar,
klettaklifur, margra daga hestaferðir
upp á hálendið og ýmislegt fleira.
Það er fyrirtækið Hestasport/
Ævintýraferðir sem er helsti skipu-
leggjandi þeirra spennandi mögu-
leika sem boðið er upp á í Skagafirð-
inum og er þá sama hvort príla skal í
klettum, dunda sér í rólegum
útreiðartúrum við fjörðinn eða njóta
hálendisins dögum saman á hest-
baki, fara í róður niður tiltölulega ró-
lyndar ár, í Vesturdal eða Blöndu,
með fjölskylduna eða bregða sér í
hasar í gljúfrunum í Austurdal.
Upphaflega voru Hestasport og
Ævintýraferðir tvö fyrirtæki. Það var
Sveinn Jónsson á Varmalæk sem
hóf hestaferðirnar í þeirri mynd sem
þær þekkjast í dag og var upphafs-
maður hestaferða eins og þær eru
reknar um allt land í dag. Þegar
Sveinn dró sig í hlé, tók sonur hans,
Björn Sveinsson, við rekstrinum,
ásamt vini sínum, Magnús Sig-
mundssyni. Þeir Björn og Magnús
stofnuðu síðan Ævintýraferðir 1992
og ráku félögin tvö saman í tíu ár, þar
til síðastliðið sumar að þau voru
sameinuð.
Raftsiglingar á þremur ám
Magnús Sigmundsson átti hugmynd-
ina að raftsiglingum og segist hann
hafa gengið með hana í kollinum í
nokkur ár áður en hún varð að veru-
leika. „Ég var búinn að skoða árnar
inni í dal og við hér í Skagafirði vor-
um að leita okkur að sérstöðu – það
kemst nefnilega enginn langt í ferða-
þjónustu nema hafa sérstöðu. Raft-
siglingar voru mjög svo að ryðja sér
til rúms í Evrópu, þótt þetta væri
gamalt sport í Sviss og Austurríki –
að ég tali nú ekki um í Nepal, Banda-
ríkjunum og Kanada.
Við ákváðum að prófa þetta 1991
en stofnuðum í rauninni ekki fyr-
irtækið sjálft fyrr en 1994. Það tók
tíma að skoða dæmið í kjölinn; at-
huga hvort væri yfir höfuð óhætt að
fara í árnar. Við fórum því sjálfir
nokkrar ferðirnar áður en við hófum
að bjóða upp á ferðir fyrir almenning.
Á þessum tíma komumst við að
því að Vestari- og Austari-Jökulsá eru
báðar afskaplega vel til þess fallnar
að bjóða upp á raftsiglingar. Það er
ekki mjög langt að keyra að þeim,
aðgengi að ánum er gott, þar er eng-
in veiði og þær bjóða upp á tvo mis-
munandi styrkleika. Vestari áin er
mildari og býr yfir ákaflega fallegri og
stórbrotinni náttúru. Í henni er boðið
upp á fjögurra klukkustunda siglingu
fyrir gesti allt frá tólf ára aldri. Þetta
er spennandi og skemmtileg sigling
um stórfenglegt gljúfur þar sem jarð-
sagan opnast sem bók tíu þúsund ár
aftur í tímann. Í ferðinni gerist ým-
islegt skemmtilegt, eins og bátarán,
vatnsslagur, klettastökk og fleira og
svo fá allir kakó blandað í hvera-
vatni. Austari áin er mun harðari og
sigling á henni lætur engan ósnort-
inn. Þar er ógleymanleg náttúrufeg-
urð, hörkuspennandi flúðir, eins og
Græna herbergið og Skuldbinding
sem stundum sýnast einungis færar
fuglinum fljúgandi. Seinni hluta ferð-
arinnar er straumhraðinn minni og
þá gefst tækifæri til að virða fyrir sér
landslagið, taka sundsprett og kæla
sig eftir róður og átök í flúðunum ofar
í gljúfrinu. Raftsigling á austari ánni
tekur um sex klukkustundir og þar
þurfa gestir að vera átján ára og
eldri. Þetta er ferð fyrir þá sem vilja
meiri spennu, meira fjör.
Í stríðum straumi
Síðan er það Blanda sem er tilvalin
skemmtun fyrir fjölskyldur með ung
börn. Landslagið meðfram ánni er
fallegt, vatnshraðinn lítill og því nýtur
sjónarhorn á náttúruna sín vel. Þetta
er líka tilvalin sigling fyrir andlega
eða líkamlega fatlaða einstaklinga
sem þarfnast mikillar umönnunar.
En hvert sem styrkleikastigið er, þá
er þetta afþreying sem hentar öllum.
Við höfum farið með fatlaða ein-
staklinga, bæði þá sem eru bundnir
við hjólastól, sem og blinda og heyrn-
arlausa, börn, unglinga, foreldra, afa
og ömmur – sá elsti sem siglt hefur
með okkur var 84 ára – og allir hafa
jafngaman af raftsiglingum. Og þetta
snýst ekki bara um að djöflast í ánni,
heldur gefur þetta kjörið tækifæri til
þess að skoða stórfenglega náttúru
– og njóta hennar.
Toppurinn hjá okkur er svo ferð
sem við köllum „Í stríðum straumi,“
sem er stórskemmtileg tveggja daga
raftsigling á Austari-Jökulsá. Við byrj-
um á því að keyra að Laugarfelli á
Sprengisandi og gista þar. Næsta
dag er siglt 25 kílómetra niður ána
Austurdal þar sem gist er í skála í
Hildarseli aðra nóttina og síðan siglt
aðra 25 kílómetra niður dalinn þar til
gljúfrum árinnar sleppir. Það má
segja að þetta sé heitasta spennu-
ferðin sem boðið er upp á á Íslandi í
dag.“
Úrvalshestar
Svo eru það hestaferðirnar.
„Já, þetta er elsta hestaferðafyrir-
tæki landsins og því eru ferðirnar
okkar ákaflega rótgrónar og
skemmtilegar. Auk þess að vera
með ferðir upp á hálendið, á Kjöl og
Mývatn er heilmikið að gerast hjá
okkur hér í Skagafirði. Við erum í vax-
andi mæli að tengja okkur við sögu-
svæði Sturlungu.“
Hvað eruð þið með marga hesta?
„Fyrirtækið sjálft er ekki með
hesta. Í dag höfum við aðgang að
átta hestaræktendum og tamninga-
mönnum og eigum því aðgang að
300 til 500 hestum, þótt segja megi
að varla séu takmörk fyrir því hvað
við getum útvegað mikið af hestum.
Þetta er skipulag sem við tókum upp
fyrir tveimur árum og það rótvirkar.
Það eru fjölmargir aðilar hér í Skaga-
firði sem koma að hestaferðunum.
Það eru hestaræktendurnir sem
hafa það hlutverk að sjá til þess að
hestarnir séu alltaf í toppstandi, síð-
an sjáum við um reiðtygi og leiðsögn
og enn annar aðili sér um allan mat.
Með þessu náum við fram hámarks
gæðastýringu á öllum sviðum.“
Það sem Magnús segir að helst
hafi háð ferðaþjónustu í Skagafirði
er gistirými en nú hefur heldur betur
verið tekið á því máli og nú nýlega
voru opnuð nokkur ný orlofshús stutt
frá höfuðstöðvum fyrirtækisins – auk
þess sem sex hús verða tekin í notk-
un innan skamms. En þar fyrir utan
er auðvitað hægt að fá gistingu á
hótelinu í Varmahlíð, í bændagist-
ingu og á tjaldstæðinu á svæðinu.
Það er því hægt að dunda sér í
Skagafirðinum dögum saman, við
ævintýraferðir á hestum og bátum,
klífa kletta, fara í sjóstangaveiði, á
sjókajaka, bregða sér í silungsveiði
og í golf, auk þess sem þar eru mikl-
ar og góðar gönguleiðir og boðið upp
á hjólaferðir. Og þegar sálin fer að
róast eftir allt fjörið, er nóg af söfn-
um í sýslunni en auðvitað má enginn
láta framhjá sér fara Vesturfarasafn-
ið á Hofsósi og Síldarminjasafnið á
Siglufirði, svo eitthvað sé nefnt.
Leikið við
náttúruöflin
Í Jökulsá Eystri eru hörkuspennandi flúðir og ógleymanleg náttúrufegurð.
Hægt er að fara í styttri ferðir um Skagafjörðinn.
Nánast engin takmörk eru fyrir því hvað Hestasport/Ævintýraferðir geta útvegað marga hesta til lengri og styttri ferða um hálendi Íslands.
Magnús Sigmundsson hjá
Hestasporti/Ævintýraferðum í
Skagafirði segir Íslendinga
leita í afþreyingu sem býður
upp á spennu og útiveru.
Morgunblaðið/Súsanna
Magnús Sigmundsson hjá nýju orlofshúsunum sem eru að rísa í Skagafirði.