Morgunblaðið - 02.05.2003, Page 10
10 B FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðamálasamtök Suðurlands
www.sudurland.is/fss
www.sudurland.net/info/
www.icefire.is
www.south.is
www.eyjar.is/eyjar
ANDBLÆR ALDANNA
Á
SNÆFELLSNESI hefur átt
sér stað mikil uppbygging í
ferðaþjónustu á seinustu
árum – enda þetta land-
svæði kjörið til að þjóna
sem ein allsherjar útivistarparadís –
með ferðum á jökulinn, dvöl í húsum
þar sem er reimt, gönguferðum á
heiðarnar með sínum lognkyrru vötn-
um og útsýni yfir ótal sker, eyjar og
hólma á Breiðafirði, sjóferðum um
brim og boða og kajakaferðum inn í
ósa, firði og hella. Þetta er eins og
Svanborg Sigurgeirsdóttir hjá Sæ-
ferðum í Stykkishólmi kallar það:
Barmafullur náttúrulífsbikar.“
Svanborg rekur Sæferðir, ásamt
eiginmanni sínum Pétri Ágústssyni.
Sæferðir er fyrirtæki sem stofnað
var 1999 á grunni Eyjaferða og rekur
í dag Særúnu og Brimrúnu, sem hvor
um sig tekur hundrað og fimmtíu far-
þega, auk þess sem Sæferðir hafa
tekið við ferjunni Baldri sem siglir á
milli Stykkishólms, Flateyjar og
Brjánslæks.
Brimrún er aðallega gerð út í stór-
hvalaskoðun frá Ólafsvík og segir
Svanborg skipið mjög vel útbúið fyrir
hvalaskoðun. Særún sé hins vegar
notuð í skoðunarferðir um Suður-
eyjar og farið sé um eyjaklasann þar
sem hann er þéttastur. „Markmiðið
hjá okkur er að vera með lifandi og
góða leiðsögn,“ segir Svanborg. „Við
komumst mjög nálægt fuglunum,
þannig að það er hægt að skoða þá í
návígi. Fuglarnir eru orðnir svo vanir
bátunum okkar að þeir haggast ekki,
láta sér bara vel líka að vera kvik-
myndastjörnur. Það eru til dæmis
arnarhjón á siglingaleiðinni okkar.
Þau hafa á undanförnum árum kom-
ið upp unga á hverju ári – og í flest-
um tilfellum tveimur. Það er hálfur
mánuður síðan við fórum í prufusigl-
ingu og sáum að arnarhjónin eru
mætt þetta árið. Þau þekkja bátinn
okkar og láta sér fátt um finnast þótt
við séum þarna á sveimi, en eru ekki
eins örugg með sig þegar aðrir bátar
eru á ferð.“
Í sátt við náttúruna
Er ekki illa séð af yfirvöldum náttúru-
verndar að verið sé að lóna í kringum
arnarhreiður?
„Við þurftum leyfi frá umhverfis-
ráðuneytinu til þess að fá að sýna
arnarhjónin – en í því felst auðvitað
líka viss vernd. Við sjáum daglega
allt sumarið hvort allt sé í lagi hjá
þeim. Við leggjum áherslu á að reka
starfsemi okkar í sátt við náttúruna
svo fuglarnir njóti þess að skoða
ferðamennina og ferðamennirnir
njóti þess að skoða fulgana – af
gagnkvæmri virðingu.“
Suðureyjaferð, sem er hefðbundin
fugla- og náttúruskoðunarferð, tekur
um það bil tvær klukkustundir og
fimmtán mínútur. Í ferðinni er hið fjöl-
breytta fuglalíf Breiðafjarðar skoðað,
sérkennilegar bergmyndanir ber fyrir
augu, siglt er inn í sjávarfalla-
strauma og ýmis sérkenni eyjanna
skoðuð. Hápunktur ferðarinnar er
þegar plógur er settur út og dreginn
eftir sjávarbotninum. Þegar plóg-
urinn hefur verið tekinn um borð
gefst farþegum kostur á að bragða á
nýveiddum ferskum skelfiski og ígul-
kerahrognum, ásamt því að skoða
fjöldan allan af öðrum sjávardýrum.
Auk Suðureyjaferðar, sem farin er
daglega frá 1. maí (og oftar yfir há-
annatímann) eru ýmis hópatilboð fá-
anleg hjá Sæferðum. Þar eru sér-
stakar fuglaskoðunarferðir, Flat-
eyjarferð, Hrappseyjarferð – en
Hrappsey er frægust fyrir það að þar
var árið 1773 reist og rekin fyrsta
prentsmiðjan á Íslandi sem ekki var í
eigu kirkjunnar. Jarðfræðilega er
Hrappsey einn af merkustu stöðum
landsins og þar finnast sjaldgæfar
bergmyndanir, auk þess sem þar
mótar fyrir gömlum, hlöðnum mann-
virkjum og húsatóftum. Grandferð
tekur um þrjár til fjórar klukkustundir
og er þá sigldur hringur um suður-
eyjar Breiðafjarðar. Ýmis náttúru-
fyrirbrigði eru skoðuð og veiddur er
skelfiskur og snæddur beint úr haf-
inu ásamt ígulkerahrognum. Þegar
ferðin er hálfnuð er skipinu lagt á
lygnum stað og boðið upp á hlað-
borð, sem samanstendur af fjöru-
lambi, bayoneskinku, lunda eða
svartfugli, marineraðri hörpuskel og
rækju, fiskpaté, sjávarréttagræn-
metispaté, reyktum og gröfnum laxi,
síld, brauði, smjöri, kaffi og te.
Sterkustu sjávarstraumar
við Ísland
„Við leggjum mikla áherslu á að
bæta stöðugt möguleikana og þjón-
ustuna,“ segir Svanborg og það nýj-
asta hjá okkur eru svokallaðar „Sjó-
ferðir sælkerans“ þar sem siglt er
inn Suðureyjarnar, plógur settur út
og veiddur er ferskur skelfiskur sem
er snæddur hrár að hætti sælker-
ans. Á Breiðasundi er síðan borinn
fram glæsilegur kvöldverður þar sem
heilsteiktar úrbeinaðar lunda- eða
svartfuglsbringur eru í forrétt. Þær
eru steiktar á staðnum, með perubát
og gómsætri gráðostasósu. Í aðal-
rétt er kalt hlaðborð, sem saman-
stendur af fjörlambi með túnfisk-
sósu og ólífum, roastbeef með
tilheyrandi meðlæti, bayoneskinku,
innbökuðu paté með rifsberjahlaupi,
fiskpaté með reyktum fiski, paté
með sjávarréttagrænmetisblöndu,
reyktum og soðnum laxi, mariner-
uðum hörpudisks- og rækjurétti með
fersku og súru grænmeti og tveimur
tegundum af síld, með brauði og
smjöri. Eftirrétturinn er að hætti mat-
reiðslumeistarans og í ferðinni er
tónlist.
Og auðvitað er mjög góð leiðsögn í
þessum ferðum. Hér allt í kring eru
mjög sérstæðir hlutir til þess að
skoða, eins og stuðlabergið í Purkey
og í Hvammsfjarðarröstinni eru
sterkustu sjávarstraumar við Ísland.
Þeir geta farið upp í fjórtán til sextán
mílur. En við erum með hraðskreiða
báta sem komast þetta.“
Eru þessar ferðir vel til þess falln-
ar að taka börnin með sér?
„Já hvort þær eru. Ég segi stund-
um að við séum með fjölskyldu-
paradís við Breiðafjörð, því þetta er
einstakt tækifæri til þess að skoða
bergmyndanir og fuglalíf og það er
alltaf toppurinn á ferðinni þegar plóg-
urinn er dreginn upp úr sjónum. Þá er
gaman að fylgjast með svipbrigðum
á andliti barnanna. Við veiðum
krossfiska, krabba, ígulker og kuð-
unga og krakkarnir njóta þess sér-
staklega að skoða dýralíf undirdjúp-
anna. Það er mjög algengt að fólk
komi hér með hópum til þess að fara
í veisluferðir, átti sig á því hvað þetta
eru barnvænar ferðir og komi síðan
aftur til þess að leyfa börnunum sín-
um að upplifa þær.
Okkar mottó er að allir fari ánægð-
ir í burtu og viljum reyna að höfða til
fjölskyldufólks. Í sumar verðum við
til dæmis um hverja helgi með sér-
stakar ferðir þar sem verður grillað
um borð. Þá er hægt að grilla fiskinn
og skelfiskinn sem við veiðum, auk
þess sem við munum bjóða upp á
fleira sem hægt er að grilla, til dæm-
is pylsur. Um leið verða þessar fjöl-
skylduferðir notaðar til þess að
fræða um jarðfræði og sögu
eyjanna. Við höfum prófað slíkar fjöl-
skylduferðir með grilli og þær hafa
lukkast mjög vel.“
Fjölskyldu-
paradís við
Breiðafjörð
Jarðfræði, fuglaskoðun, hvala-
skoðun og botnsjávarlífið er
meðal þess sem boðið er upp
á hjá fyrirtækinu Sæferðum í
Stykkishólmi.
Sæferðir eru með hraðskreiða báta sem ráða við sterka sjávarstrauma.
Fuglarnir eru orðnir svo vanir bátunum, að sögn Svanborgar, að þeir haggast
ekki þótt bátarnir sigli nálægt eyjunum.
Morgunblaðið/Súsanna Svavarsdóttir
Svanborg Sigurgeirsdóttir segir Sæferðir leggja áherslu á að bæta stöðugt möguleika og þjónustu. Farþegar skoða sjávardýr og bragða á ferskum skelfiski og ígulkerahrognum.