Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 B 7 NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF  tveimur árum. Fjárfestingar Straums byggja á arðsemismarkmiðum en félag- ið er ekki að leita eftir völdum með fjár- festingar sínar. Það er ekki sérstakt markmið okkar að fara inn í stjórnir þeirra félaga sem við kaupum í en ef við teljum að það þjóni okkar hagsmunum, til að ná fram markmiðum fjárfesting- arinnar, þá óskum við eftir því í krafti stöðu okkar. Við gerðum það í Keri þar sem við töldum að það væri til góðs fyrir félagið. Hið sama gildir um hlut okkar í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna þar sem við eigum rúm10%. En á aðalfundi SH nýverið tók ég sæti í stjórn félagsins,“ segir Þórður. Oft titringur vegna Straums Hann játar því að oft sé mikill titringur vegna fjárfestinga Straums líkt og fjöl- miðlaumræða um félagið hefur sýnt. „Það skýrist oft af þvi hversu stóra hluti við erum að kaupa eða selja. En við för- um ekki inn í félög með háar fjárhæðir nema við sjáum í þeim tækifæri til vaxt- ar eða umbreytinga. Þegar við höfum metið hvort við höfum náð okkar mark- miðum eða hvort þeim verði náð, þá leit- um við leiða til þess að selja hluti okkar í viðkomandi fyrirtæki,“ að sögn Þórðar. Oft hefur verið rætt um Fjárfesting- arfélagið Straum í sömu andrá og Ís- landsbanka og jafnvel talað um að Straumur sé verkfæri í hendi bankans. Er eitthvað hæft í þessu? „Fjárfestingarfélagið Straumur er sjálfstætt fyrirtæki þrátt fyrir að hafa verið nátengt Íslandsbanka hér áður og nú Íslandsbanka og Landsbanka þar sem bankarnir eru stærstu eigendur Straums. Félagið hefur frá upphafi tekið sínar sjálfstæðu ákvarðanir með hags- muni hluthafa Straums að leiðarljósi og svo mun verða áfram. Í rekstri félags eins og Straums er sjálfstæði lykilatriði. Það væri miklu nær fyrir þá sem velta þessu fyrir sér að líta á Straum sem tækifæri fyrir bankana, en ekki verk- færi, í þeim verkefnum sem við tökum okkur fyrir hendur“ segir Þórður. Ný tækifæri Straumur á nú yfir 75% hlut í Íslenska hugbúnaðarsjóðnum og hefur gert öðr- um hluthöfum yfirtökutilboð og stefnt er að afskráningu félagsins úr Kauphöll Ís- lands. Straumur keypti þar hlut Íslands- banka, Landsbanka, Landssíma Íslands og Nýsköpunarsjóðs. Að sögn Þórðar sér Straumur ákveðin tækifæri í Íslenska hugbúnaðarsjóðnum og þegar þeim bauðst að eignast meiri- hluta í félaginu þá hikuðu þeir ekki. „Ís- lenski hugbúnaðarsjóðurinn verður rek- inn áfram sem sjálfstætt fyrirtæki á sama stað og Straumur er með skrif- stofu. Við teljum að það sé hægt að draga úr rekstrarkostnði Íslenska hug- búnaðarsjóðsins og mun verða unnið að því. Með kaupunum á Íslenska hugbún- aðarsjóðnum erum við að breikka okkar fjárfestingarsvið. Íslenski hugbún- aðarsjóðurinn mun verða okkar leið til þess að fjárfesta í óskráðum félögum innanlands sem utan en Straumur hefur lítið sem ekkert fjárfest á þeim markaði. Það er ljóst að í kjölfar yfirtöku Straums á Íslenska hugbúnaðarsjóðnum er Fjár- festingarfélagið Straumur komið með mjög sterka stöðu sem fjárfesting- arfélag með eigið fé upp á rúma 10 millj- arða,“ segir Þórður. Útrás á döfinni Nýverið var fjölgað í stjórn Fjárfesting- arfélagsins Straums úr þremur í fjóra. Andri Sveinsson, bankaráðsmaður í Landsbankanum, kom nýr inn í stjórn- ina en auk hans sitja nú í stjórn félags- ins:Ólafur B. Thors, formaður, Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs og Krist- ín Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Landssíma Íslands. Hvernig sérðu þróun Straums í náinni framtíð? „Félagið mun halda áfram á þeirri braut sem það er á í dag. Fjárhagsleg staða Straums er sterk og í henni liggja vaxtatækifærin. Við munum einbeita okkur að þeirri uppbyggingu sem fram- undan er varðandi Íshug og þátttöku okkar í fjárfestingum í óskráðum fé- lögum. Við viljum vanda til þess verks svo vel takist til. Við stefnum að virkari þátttöku í fjár- festingum erlendis, bæði með inn- lendum fyrirtækjum sem eru í útrás sem og erlendum. Af ofansögðu er ljóst að spennandi tímar eru framundan hjá Straumi,“ seg- ir Þórður Már Jóhannesson. Landsbankinn 19%, Sjóvá Almennar eru með 6,7% og lífeyrissjóðirnir eiga á bilinu 0,2–5% hlut hver í félaginu eða samtals um 13,5%. Þórður segir það mikinn styrk fyrir félag eins og Straum að hafa jafnbreiðan og öflugan hluthafahóp, líkt og Íslands- banka, Landsbanka, stærstu lífeyr- issjóði landsins ásamt fleiri fagfjár- festum. Nær eingöngu fagfjárfestar hafa að sögn Þórðar fjárfest í hlutabréf- um í Straumi. „Þessi öflugi hlut- hafahópur sýnir trú fjárfesta á stefnu og framtíð félagsins. Þetta er viðurkenning á þeirri starfsemi og uppbygginu sem Straumur hefur farið í gegnum á síðustu eftir þeim markmiðum sem við setjum okkur og vera þátttakandi í þeim um- breytingum sem við gefum okkur út fyr- ir að vilja eiga hlut að. Í eðli sínu er Straumur ekki frábrugðinn öðrum fjár- festum á þann hátt að allir hljóta að hafa það að markmiði að ávaxta eignir sínar með sem arðbærustum hætti,“ segir Þórður. Þegar félög tengd Jóni Ásgeiri, Þor- steini Má, Ingibjörgu Pálmadóttur og fleiri seldu bréf sín í Straumi á síðasta ári kom mikil hreyfing á bréf félagsins, að sögn Þórðar. Frá þeim tíma hefur hluthafahópurinn breyst töluvert. Í dag er Íslandsbanki stærstur með tæp 22%, skum hlutabréfamarkaði og ur í veltunni í Kauphöll Ís- lsverður. nauðsynlegt fyrir fjárfesting- vera virkur þátttakandi á arkaði og teljum við það vera verkum okkar. Mín vinna sem dastjóri Straums er að fylgja vörf í fjárfestingum Morgunblaðið/Golli Jóhannesson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Straums, sér mörg ný tækifæri fyrir félagið með kaupunum á Íslenska hugbúnaðarsjóðnum. guna@mbl.is        !"#" &  #" !    # +)'!  -"    $    0*)" #$  1" / 2! # !% !%! )"4"5! 6 !  8 !   ) ! )  -)" $ - 9 "7  " 6 :)" ## " #:$  6 ) 6 ;" #)  #                          !   !   " #  $ % &" '()*  '" !  ++ +++ +,+ ++ ++++++ +++ +, %&&%%&&' %&&(   -      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.