Morgunblaðið - 04.07.2003, Side 1
F Ö S T U D A G U R 4 . J Ú L Í 2 0 0 3 B L A Ð B
SKAPANDI TRÚÐAR /2 VIÐ ERUM ÖLL EINS AÐ INNAN /3
ALI BABA OG BALLERÍNUR /4 STRÁKUR EÐA STELPA? /6
GLYS OG GÖTULÍF – EÐA VILTU KANNSKI KLIPPINGU?/7
ÍTÍSKUHEIMINUM hefur lengi ríkt tog-streita á milli tveggja strauma; þess sem erþægilegt og þess sem þykir smart. Víruð
brjóstahöld, lífstykki og hælaháir skór eru til
dæmis ekki beint heilsusamlegir fylgihlutir, en
þykja gefa eftirsóknarverða reisn. Svipað gildir
um ofurþröngar gallabuxur, stíf leðurbelti, jafn-
vel gerviaugnahár.
Nú virðast þarfir líkamans hins vegar njóta
vaxandi skilnings í tískuveröldinni og er það vel.
Nýjustu sumarskórnir eru eitt dæmið, margir
þeirra eru úr mjúku efni og þrengja hvergi að
fætinum. Nóg er af slíkum skæðum í verslunum í
ár og háhælaðir skór eru jafnvel orðnir þægileg-
ir, ekki síst þegar hællinn er kenndur við klósett.
Tásuskór koma sterkir inn
Svonefndir tásuskór eru ennfremur til fyrir
bæði kynin, þótt úrvalið fyrir konur sé að vísu
margfalt meira. Þetta eru þægilegir skór þar
sem loftið leikur um fótinn og tærnar eru ekki
kramdar, eins og verða vill í hinum támjóu. Enn
notalegri eru svo mjúkir, fótlaga leðurskór sem
auðvelt er að smeygja sér í, sumir eru jafnvel
þeirrar náttúru að hælkappinn er líkt og geng-
inn niður.
Strigi hefur einnig löngum verið notaður í
skó, efnið er sveigjanlegt og til þess að tolla í
tískunni eru strigaskór ekki endilega lengur
reimaðir, heldur geta þeir líka verið steinum
skrýddir.
Eftir þramm um götur og torg kemur hins
vegar að því að fólk þreytist, jafnvel þótt skórnir
séu í þolanlegri kantinum. Þá er tilvalið að geta
sest á handtöskuna sína og hvílt sig á mjúkum
fleti. Þessum eiginleikum er taskan Cover your
ass einmitt prýdd, en hönnuður hennar er Guð-
rún Lilja Gunnlaugsdóttir, búsett í Hollandi.
Auk þess að vera gerð úr þykku milliefni er
taskan tískugripur í hágæðaflokki, en hún var
nýlega valin til sýningar á Tískusafninu í Hasselt
í Belgíu, þar sem einnig voru sýndar töskur frá
Philip Starck, Kenzo og fleiri stórlöxum.
Við erum /3
Ali Baba /4
Morgunblaðið/Arnaldur
Á töskunni Passaðu rassinn er mynd af sitj-
anda en að innanverðu eru skávöðvar. Task-
an er ennfremur mjúkt sæti fyrir eigandann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Skrautlegir tásuskór úr Bianco; loft leikur um fótinn.Sveigjanlegur sóli og loftgöt, frá Bianco.
Hið ljúfa líf
Mjúkir og
flatbotna
leðurskór með
pallíettum úr Agadir.
Þægindin í fyrirrúmi
Dormað í garðinum í mjúkum skóm úr striga, án
þess að slegið sé af tískukröfum um lit og snið.