Morgunblaðið - 04.07.2003, Qupperneq 5
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 B 5
ólinn er vinsæll í sumar. Spenna upp á
ja punktinn yfir i-ið. Skór úr Kron.
a
merki haldi sig við sitt, elti ekki svo
mikið tískustrauma og sé ávallt
frumlegt.
Spænskar espadrillur sjást í skó-
búðunum enda afar þægilegir skór
sem ófáir Íslendingar hafa plampað
um á, ekki síst í sólarlöndum.
Skórnir eru úr taui, botninn þétt-
ofinn og nú er vinsælt að vera í há-
hæluðum skóm þar sem hæll og
botn er ein heild og það tekst m.a. í
spænskættuðum skóm í Kron sem
eru bundnir upp á kálfann.
Í Bianco í Smáralind og Kringl-
unni er mikið um tásuskó, þ.e.
sandala með bandi sem skilur
stórutá frá hinum tánum. Yfir
ristina liggja svo alla vega skreytt
bönd úr hinum ýmsu efnum. Skór
af þessu tagi rjúka út úr búðunum
eins og heitar lummur, að því er
fram kom við afgreiðsluborðið.
Það sem af er sumri hefur veðrið
leikið við landann og einhverjir
hyggja á sólarlandaferðir, svo fjár-
festing í tásuskóm er kannski ekki
alvitlaus.
Þrír franskir rennilásar; hönnun Mörtu Rúnarsdóttur fyrir www.com.
pænska merkið Ras er þekkt fyrir frum-
ga hönnun og hér eru það bundnir skór
eð spænsku espadrilluívafi. Pallíett-
rnar búa til litríka mynd á skóna sem
erða augnayndi.
Ali Baba-skórnir úr Agadir. Þægilegir handgerðir skór frá Marokkó.
Morgunblaðið/Jim Smart
Mjúkir ofnir skór úr kaktusþráðum og silki úr Agadir. Líkt og búið sé að
trampa þá niður en þannig er einmitt þægilegt að smeygja sér í þá.
INNISKÓR
Skrautlegir tásuskór, leður og túrkísbláir steinar úr 38 þrepum.
ÞÆGINDINvirðast í fyr-irrúmi í
skótísku karl-
manna. Efnin eru
mjúk og sveigj-
anleg, skórnir eru
oftast frekar fót-
laga og mikilli lita-
dýrð er ekki fyrir
að fara. Einkennandi er að nokk-
uð mikið er gert úr saumum og
samskeytum og virðast skórnir
fyrir vikið frjálslegir og þægileg-
ir.
Þrátt fyrir að konur kaupi tá-
suskó í röðum, virðast karlar
ekki eins spenntir fyrir því að
viðra tærnar í slíkum skófatnaði.
Hefðbundnir sandalar með hæl-
bandi og öllum græjum teljast
traustir fyrir karlana og eru vin-
sælir en óhefðbundnari opnir
skór hljóta ekki jafn mikla náð
fyrir augum fjöldans.
Hefðbundnir strigaskór í ætt
við gömlu Converse-strigaskóna
eiga upp á pallborðið hjá körl-
unum, að sögn starfsfólks
Jack&Jones í Smáralind, en slík-
ar eftirmyndir er víða að finna.
Karlarnir vilja líka sportlegri skó
úr leðri sem henta báðum kynj-
um.
Krossbandainniskórnir gömlu eru
nú hátískusandalar. Úr Skór.is.
Afaskór
ganga aftur
þýskur bareigandi í St. Louis, Chris Von de Ahe, sem
einnig átti aðalhafnaboltaliðið þar í borg.
Þeir sem kynnt hafa sér sögu pylsunnar fullyrða að
í Bandaríkjunum hafi sérleyfishafi fyrir pylsur, Ant-
on Feuchtwanger frá Bæjaralandi, verið fyrstur til að
selja pylsur í brauði á vörusýningu í Louisiana árið
1904. Sagan segir að hann hafi lánað viðskiptavinum
sína hanska til þess að þeir yrðu ekki allir útbíaðir í
sósu. Þeim láðist hins vegar oftast að skila hönsk-
unum og því bar Feuchtwanger ekki eins mikið úr
býtum og vonir stóðu til. En hann dó ekki ráðalaus
heldur bað mág sinn, sem var bakari, um að sérbaka
brauð, sem pössuðu nákvæmlega fyrir pylsurnar.
Upp frá því urðu pylsur í brauði algeng fæða um
gjörvöll Bandaríkin og báðu menn jafnan um „hot
dog“, eða heitan hund – heiti sem skopmyndateikn-
arinn Tad Drogan bar ábyrgð á.
Nafngiftin byggð á misskilningi
Þannig háttaði til að dag einn í apríl árið 1901 sat
Drogan í blaðamannastúku á pólóleikvanginum í New
York og teiknaði skopmyndir af leikmönnum. Veðrið
var heldur hráslagalegt og íssalar á svæðinu höfðu
ekki árangur sem erfiði. Pylsusalinn, Harry Stevens,
var hins vegar í essinu sínu og hafði vart undan að
selja pylsur og brauð. Hann hrópaði í sífellu: „Sjóð-
andi heitar „dachhund-pylsur!“ Drogan gerði sér mat
úr skondnum aðstæðum og teiknaði mynd af geltandi,
heitri pylsu í brauði, sem síðan var birt í The New
York Journal. En þar sem hann hafði ekki minnstu
hugmynd um hvernig stafa ætti „dachhund“ skrifaði
hann einfaldlega „hot dog“ í texta með skopmynd-
inni. Allar götur síðan hafa Bandaríkjamenn kallað
„eina með öllu“ heitan hund, eða hot dog og hefur
nafngiftin jafnvel orðið öðrum þjóðum töm á tungu.
Skopmyndateikn-
arinn Tad Drogan
(1877-1929)
hund á þýsku.
n á
r. Fyrst
gu, sem
hrifn-
pá pyls-
átti
HR
Látum einungis ánægjuna
síast í gegn
GOLDEN BEAUTY
SUN DEFENSE
Helena Rubinstein sérfræðingur í sólarvörum
kynnir ný sólvarnarkrem. DRAUMKENND FEGURÐ
www.helenarubinstein.com
Nauðsynlegir ferðafélagar á sumrin eru
sólvarnarkrem ef verið er í sólinni, en ef
hún sýnir sig ekki, eða þú vilt strax verða
brún, sjálfbrúnandi krem án sólar. Þegar
þú kaupir 2 krem úr sólarlínunum fyrir
andlit eða líkama fylgir þessi stóra litríka
taska með í kaupbæti* og ef þú bætir við
þriðju vörunni færð þú að auki
snyrtibuddu í stíl.
Útsölustaðir:
Ársól Efstalandi 26 Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi 23, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra
Strandgötu 32 Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, Fína Háholti 14
Mosfellsbæ.
Landið: Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi,
Hilma Garðarsbraut 14 Húsavík, Konur & Menn Hafnarstræti 9 Ísafirði,
Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum.
*
M
eð
an
bi
rg
ði
r e
nd
as
t