Morgunblaðið - 04.07.2003, Qupperneq 8
8 B FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐEFNI
ERLEND flugvél flaug
hættu-lega lágt yfir húsþökum
í Þing-holtunum á sunnudag,
en hún átti að lenda á
Reykja-víkur-flugvelli. Lág-
skýjað var þennan dag og var
hæðar-mælir vélarinnar rangt
stilltur. Hún var því mun nær
jörðu en hún átti að vera. Vélin
komst inn á miðja flug-braut
Reykja-víkur-flugvallar, þar rétt
snerti hún flug-brautina og tók
á loft aftur. Flugturn skipaði
þá flug-manninum að beygja
til hægri. Hann beygði hins
vegar til vinstri fyrir mistök og
flaug inn í Fossvog þar sem
hann lenti aftur í skýja-þykkni.
Flug-maðurinn náði að snúa
vélinni við og lenda á
Reykja-víkur-flugvelli. Aðeins
tveir menn voru í vélinni en
lög-reglan tók skýrslu af þeim
eftir lendinguna.
Morgunblaðið/Júlíus
Flaug hættulega lágt
MIKIÐ uppnám varð á
Evrópu-þinginu á miðviku-dag
er Silvio Berlusconi,
forsætis-ráðherra Ítalíu, sem
nú er í forsæti innan
Evrópu-sambandsins, ESB,
missti stjórn á skapi sínu.
Sagði hann við þýskan
þing-mann, sem gripið hafði
fram í fyrir honum, að hann
væri vel til þess fallinn að
koma fram í kvik-mynd og
leika vörð í fanga-búðum
þýskra nasista.
Að undan-förnu hafa margir
hneykslast á því, að Berlusc-
oni skuli verða í forystu fyrir
ESB en hann hefur verið fyrir
rétti á Ítalíu vegna ákæru um
spillingu. Hann bætti síðan
ekki um fyrir sér er hann fékk
ítalska þingið til að sam-
þykkja, að hann og fjórir aðrir
æðstu menn ríkisins nytu frið-
helgi meðan þeir gegndu emb-
ætti. Þar með ónýtti hann
réttar-höldin yfir sér.
Vegna þessa reið á miklu
fyrir hann, að allt gengi vel er
hann kæmi fyrir Evrópu-þingið
en það fór á annan veg. Hafa
svör hans við frammí-kalli
þýska þing-mannsins vakið
hneykslan um alla Evrópu,
jafnt á Ítalíu sem annars stað-
ar. Gerhard Schröder, kanslari
Þýska-lands, krafðist þess, að
Berlusconi bæðist formlega
afsökunar á orðum sínum en
hann var þó tregur til þess.
Uppnám vegna yfir-
lýsinga Berlusconis
ÍSLENSKA rapp-hljóm-sveitin
Quarashi mun láta að sér
kveða á ný á næstunni eftir að
hafa haft hljótt um sig
undan-farna mánuði.
Manna-breytingar hafa átt
sér stað í hljómsveitinni.
Höskuldur Ólafsson hætti og
snéri sér að háskóla-námi og
leigu-gítar-istinn Smári Tarfur
hvarf einnig á braut.
Eftir kær-komið frí frá tón-
leika-haldi og ferða-lögum
brugðu þeir sem eftir voru í
sveitinni sér í hljóð-ver fyrir
skemmstu og tóku upp nýtt
lag. Lagið, sem er „partí-lag“
að sögn Sölva Blöndal, tals-
manns Quarashi, er þegar far-
ið að hljóma í útvarpi.
Í laginu kemur til sögunnar
nýr rappari, ungur Íslendingur
sem kallar sig Opee en heitir
Ólafur Torfason réttu nafni.
Undir Opee-nafninu átti hann
lag á Bumsquad-safn-plötunni
sem kom út fyrir síðustu jól en
hann er ekki enn orðinn full-
gildur liðs-maður í Quarashi.
Þótt Quarashi sé komin á
stjá á ný er nýrrar plötu samt
ekki að vænta fyrr en í fyrsta
lagi á næsta ári.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Qarashi og nýi rapparinn Opee, lengst til vinstri.
Quarashi komin á kreik
JÚNÍ-MÁNUÐUR var mjög
hlýr um allt land. Í Reykjavík
var meðal-hitinn 11,3°C og
hefur hitinn ekki verið meiri í
62 ár, eða síðan í júní
1941, segir Þóranna
Pálsdóttir veður-fræðingur.
Á Akureyri var meðal-hitinn í
júní 10,6°C.
Veðrið hefur verið
einstak-lega gott alls staðar
á landinu frá því í janúar.
Fyrstu sex mánuði ársins
var meðal-hitinn í Reykjavík
5,1°C en á Akureyri var
hann 4,3°C. Á báðum
stöðum hefur meðal-hitinn á
þessum tíma aðeins tvisvar
sinnum mælst hærri.
Mesti hiti í
Reykjavík í
62 ár
JÓNI Arnóri Stefánssyni körfu-
knatt-leiks-manni hefur verið
boðið að leika með NBA-liði
Dallas Mavericks í sumar-
deildinni svo-kölluðu, en hún
hefst í Boston 15. júlí. Ekki er
þó alveg víst að Jón Arnór geti
sýnt sig á því móti þar sem
hann er ekki orðinn góður af
meiðslum þeim sem hafa
hrjáð hann undan-farnar vikur.
„Það er allt satt og rétt,
for-ráða-menn Dallas hafa
boðið mér að vera með liðinu í
sumar-deildinni,“ sagði Jón
Arnór.
„Ég hef ekkert spilað núna í
nokkurn tíma og þeir hjá Dall-
as gera sér grein fyrir því.
Samt vilja þeir endilega sjá
mig með liðinu, hafa reyndar
séð mynd-bands-spólur af
mér í leik, en vilja endilega sjá
mig í eigin persónu.
Ég fer til lækna liðsins og
þeir ætla að skoða mig og þá
kemur í ljós hvort ég get verið
með í sumar-deildinni. Ég er
ekki orðinn góður ennþá eftir
að hnéð á mér var speglað fyr-
ir 5 eða6 vikum, en ætti að
vera það. Ég er skárri en ég
var í fyrstu en alls ekki nógu
góður. Því miður finn ég alltaf
einhvern sting í hnénu og það
verður að athuga það og von-
andi kemur í ljós í læknis-
skoðuninni hjá Dallas hvað er
að angra mig,“ sagði Jón Arn-
ór.
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Arnór Stefánsson skoraði 15 stig fyrir KR í öruggum
99:56-sigri á Hamri í oddaleik í Vesturbænum í gærkvöldi. Hér
geysist hann framhjá Hvergerðingnum Nathaniel Pondexter.
Jóni Arnóri boðið til
Dallas Mavericks
NEMENDUR í Landa-
kotsskóla í Reykjavík
stóðu sig best á sam-
ræmdu prófunum, sem
10. bekkur tók í vor. Prófin
voru sex og máttu nem-
endur ráða hversu mörg
próf þeir tóku. Flestir tóku
próf í íslensku og stærð-
fræði, eða 95% nemenda.
Þar voru nemendur úr
Landa-kots-skóla hæstir,
með einkunnina 7,0 í
stærð-fræði og 6,9 í ís-
lensku. Hlíðaskóli kom
næstur, með einkunnina
6,8 í íslensku og 6,2 í
stærðfræði.
Landa-kots-
skóli bestur
Netfang: auefni@mbl.is
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
fresta því um þrjú ár að gera
jarð-göng milli Siglu-fjarðar og
Ólafs-fjarðar. Heima-menn
eru mjög von-sviknir yfir þess-
um fréttum. Bæjar-stjórinn á
Siglu-firði, Guð-mundur Guð-
laugsson, sagði að þetta
væru vondar fréttir og mikil
von-brigði fyrir fólkið á svæð-
inu. Sérstaklega þar sem
stjórn-mála-menn hafi talað
allt öðruvísi fyrir kosningar.
Íbúi á Siglu-firði, Jakob Örn
Kárason, sagði að fréttirnar
væru „dauða-dómur“ yfir
byggðinni og sagðist hann
ekki skilja hvað ráða-menn
þjóðar-innar væru að hugsa.
Jarðgöng-
um frestað
um þrjú ár