Morgunblaðið - 13.07.2003, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2003 C 5
Starfsmaður í borðsal
Félags- og þjónustumiðstöðin Lindargötu 59
leitar að starfsmanni í borðsal. Starfið felst
meðal annars í þrifum o.fl. Um framtíðarstarf
er að ræða. Starfshlutfall 100%.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Eflingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Guðjóns-
dóttir, forstöðumaður, í síma 561 0300. Net-
fang: eling@fel.rvk.is.
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is.
Reynsla af sölustöfum og þekking á auglýsinga-
geiranum æskileg. Möguleiki á vinnuaðstöðu.
Lítil auglýsingastofa leitar eftir
sjálfstætt starfandi markaðsmanneskju
sem getur bætt á sig verkefnum.
MILLJÓN?VILTUVINNA
UMSÓKNIR SENDIST Á AUGLÝSINGaDEILD MBL EÐA Á
BOX@MBL.IS FYRIR LOK JÚLÍ, MERKT; MILLJÓN 13879.
Skrifstofustarf
Traust og gott útgáfufyrirtæki óskar eftir öflugri
manneskju til starfa á skrifstofu í mjög fjöl-
breytt starf.
Starfið felst m.a. í:
Móttöku viðskiptavina
Símsvörun
Samskiptum við sölumenn
Innslætti
Upplýsingagjöf
Almennum ritarastörfum
Reikningagerð
Leitað er að hæfum einstaklingi á aldrinum
25-45 með reynslu af sambærilegum störfum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst. Um 100% starf er að ræða og vinnutími
að öllu jöfnu frá kl. 8:30-17:30 en gæti verið
lengri á álagstímum.
Hæfniskröfur:
Stúdentspróf æskilegt
Mjög góð tölvukunnátta, þ.e. Word, Excel,
Tok o.fl.
Hraði í ritvinnslu
Góð tungumálakunátta
Hröð og vönduð vinnubrögð og hæfni til að
vinna undir álagi
Góð og snyrtileg framkoma og þjónustulund
Dugnaður, heiðarleiki og áreiðanleiki
Sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknir sendist á abendi@abendi.is. Einnig
er hægt að fara inn á heimasíðuna
www.abendi.is og leggja inn umsókn þar.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn
16. júlí 2003.
Bókasafns- og
upplýsingafræðingur
Biskupsstofa auglýsir stöðu bókasafns- og upp-
lýsingafræðings lausa til umsóknar. Starfið
heyrir undir skrifstofustjóra og er fullt starf.
Starfið nær yfir eftirfarandi verkþætti:
Daglegan rekstur skjalasafns Biskupsstofu.
Uppbyggingu og rekstur bókasafns.
Fræðslu fyrir starfsmenn um skjala- og upp-
lýsingastjórn þ.á m. um notkun DME skjala-
stjórnarkerfisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leitað er að bókasafns- og upplýsingafræð-
ingi með B.A. próf að lágmarki.
Góð kunnátta og leikni í skráningu gagna
er nauðsynleg. Æskilegt að viðkomandi hafi
reynslu af skjalastjórn og rafrænum skjala-
stjórnarkerfum.
Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð eru nauð-
synleg ásamt góðri hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Biskupsstofu, Laugavegi
31, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1. ágúst nk.
Starfið veitist frá 1. des. nk. eða eftir nánara
samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tek-
in.
Vísað er til laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri
Biskupsstofu, sími 535 1500.
Samlíf óskar eftir metnaðargjörnum og harðduglegum einstaklingum til
ráðgjafarstarfa. Starfið felst í ráðgjöf og sölu persónutrygginga og
langtímasparnaðar.
Í boði eru góðir tekjumöguleikar og líflegar starfsaðstæður í góðum hópi
reyndra ráðgjafa hjá traustu félagi.
Hæfniskröfur
Þjónustulund
Hæfni í mannlegum samskiptum
Metnaður til að ná árangri
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Ólafsson í síma 569 5491 og netfanginu
haraldur@samlif.is. Umsóknir berist til Samlífs, Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
fyrir 25. júlí nk.
Sameinaða líftryggingarfélagið hf., eða Samlíf eins og það er nefnt í
daglegu tali, býður viðskiptavinum sínum úrval persónutrygginga,
svo sem líftryggingar, sparnaðarlíftryggingar, sjúkdómatryggingar
og afkomutryggingar, auk frjáls lífeyrissparnaðar. Félagið er í eigu
Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Íslandsbanka hf.
Ráðgjafar óskast
Miklir möguleikar fyrir öflugt fólk
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra, samkvæmt tillögu dómstólaráðs,
auglýsir laust til setningar embætti héraðsdómara við
Héraðsdóm Reykjavíkur, frá 15. september 2003 til
30. júní 2004, meðan á leyfi skipaðs dómara stendur.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
Arnarhváli, eigi síðar en 25. júlí 2003.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
7. júlí 2003.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa
skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar. Umsóknir þar
sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.