Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 B 3Fasteignir Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Vallengi - 4ra herb. Falleg, rúm- góð og vel innréttuð 4ra herb íbúð á tveimur hæðum, stórar suðursvalir, barn- vænt hverfi og stutt í alla þjónustu. Getur losnað fljótlega. Verð 15,2 millj. Póstnr. 112 2ja - 3ja herbergja Njálsgata - einstaklingsíbúð Vel skipulögð einstaklingsíbúð á þessum góða stað, eldhúskrókur og baðherbergi. Verð 4,5 millj. Póstnr.101 Orrahólar - 3ja herb. Snyrtileg 3ja herbergja íbúð með miklu útsýni og stórum suðvestursvölum, rúmgóð her- bergi, hús nýlega yfirfarið að utan og góð sameign. Verð 10,6 millj. Póstnr. 111 Skeljagrandi - 2ja herb. Góð 2ja herbergja íbúð ásamt stæði í bíla- geymslu. Verð 9,9 millj. Póstnr. 107 Laugavegur - miðbær Snyrtileg og vel skipulögð 2ja herb íbúð ofarlega á Laugaveginum. Parket á gólfum, nýlega standsett baðherbergi, gott viðhald og hús nýlega yfirfarið að utan. Verð 7,9 millj. Póstnr. 101 Sumarbústaðir Sumarbústaður - Biskups- tungur Um er að ræða ca 46,2 fm sum- arhús með 13 fm svefnlofti. Húsið er með tveimur svefnherbergjum, snyrtingu, holi, eldhúsi, stofu og svefnlofti. Bústaðurinn stendur á hálfum hektara, eignarlandi á afgirtu svæði með trjám. Staðsetning er í landi Drumboddsstaða í Biskupstungum rétt við Einholt, vegalengd frá Reykjavík er ca 100 km. Verð 4,9 millj. Einbýlishús, parhús og raðhús Heiðnaberg - Parhús Vorum að fá í sölu gott parhús á tveimur hæðum með bílskúr á þessum barnvæna stað. Hús í reglulegu og góðu viðhaldi, rúmgóð herbergi, góður suðurgarður og nýlega uppgert baðherbergi. Póstnr. 111 Brúnastaðir - einbýli Komið er á sölu ca 191 fm nýtt og fallegt einbýlishús á einni hæð, ásamt stórum bílskúr. Parket og flísar á allri íbúðinni, fallegar innrétting- ar. Verð 25,6 millj. Póstnr. 112 Fagribær - við Elliðaárdalinn Gott einbýlishús á einni hæð ásamt bíl- skúr sem er staðsett alveg niður við Elliðaárdalinn. Mjög gott viðhald á húsinu utan sem innan, glæsilegur og fallega ræktaður garður. Hús staðsett neðst í götu. Frábær staðsetning. Miklabraut Komin er á sölu skemmti- leg sérhæð í þríbýlishúsi ásamt aukaher- bergi í kjallara. Allar endurbætur innandyra hafa verið gerðar sl. 2 ár. Húsið að utan og þak í góðu standi. Póstnr. 105 4ra - 6 herbergja íbúðir Forsalir - bílgeymsla Nýkomin í sölu ný 110 fm 4ra herb. íbúð á 5. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu. Góðar inn- réttingar frá HTH, parket og flísar á gólf- um. Íbúðin er með tvennum svölum og stæði í bílgeymslu. Verð 17,8 millj. Póstnr. 201 Hvassaleiti - 3ja-4ra herb. Vel staðsett, rúmgóð íbúð í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Verð 12,5 millj. Póstnr. 103 Ljósheimar - 4ra herb. Rúmgóð og skemmtileg 4ra herb. íbúð í álklæddu fjölbýlishúsi með lyftu. Verð 13,3 millj. Póstnr. 104 Naustabryggja - 6 herb. Komin er á sölu „penthouse“-íbúð ca 191 fm, 6 herbergja á tveimur hæðum. Tvennar svalir. Stæði í bílageymslu. Hnotuparket á allri íbúðinni. Póstnr. 110 Arahólar - lyfta Komin er á sölu 4ra herb. íbúð á fyrstu hæð, með miklu útsýni. Húsið og sameign í góðu ástandi. Verð 13,2 millj. Póstnr. 111 Kristnibraut - Nýtt - lyftuhús Ný 4ra herb. íbúð á þessum frábæra stað. Möguleiki á bílskúr. Póstnr. 113 Kleppsvegur - við Sæviðar- sund Björt 4ra herb. íbúð í mjög góðu ástandi á 1. hæð í góðu fjölbýli. Suðvestursvalir og sérlega stór og góð baklóð. Verð 13,4 millj. Póstnr.104 Naustabryggja 12-18-20-22- NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“- íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og í þvottahúsi, þar verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innrétting- um. „Penthouse“-íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bílageymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppl. hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110 Nýkomnar á sölu stórglæsilegar íbúðir, 3ja-4ra herb., 96,1-119,2 fm. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og í þvottahúsi, þar verða flísar. Í öllum íbúðum verður sérþvottahús og síma- og tölvutengi í öllum herb. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá Brúnási. Hægt er að kaupa bílskúr. Sérinngangur verður í hverja íbúð. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunn- ars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 113 Kristnibraut 77-79 og 81-83 NÝTT - Lyftuhús - Grafarholti Nýjar og vandaðar 2ja til 6 herbergja íbúðir. Íbúðirnar verða frá 81 fm upp í 147 fm með rúmgóðum suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduð- um innréttingum með möguleika á stæði í bílageymslu. Öllum íbúðum fylgir sér- þvottahús. Að utan verður húsið álklætt. Afhending í maí 2004. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 113 Kirkjustétt 15-21 - Grafarholti - NÝTT NÝTT Höfum hafið sölu á vönduðum og rúmgóðum 3ja og 4ra herb. íbúðum í 15 hæða álklæddu fjölbýlishúsi. Í húsinu verða 2 lyftur, sjónvarpsdyrasími, vand- aðar innréttingar og möguleiki á stæði í bílageymslu. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla verslun og þjónustu. Byggingaraðili er Bygginga- félag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönn- um Fjárfestingar. Póstnr. 201 Rjúpnasalir 14 – Glæsilegt álklætt lyftuhús Vantar eignir fyrir kaupendur. Mikil sala. Seljendur hafi samband við sölumenn okkar. Atvinnuhúsnæði - Til leigu Hlíðarsmári 11 Nýtt og fallegt húsnæði. Hentar vel fyrir skrifstofur, verslun eða þjónustu. Stærðir frá 150- 350 fm Síðumúli 24-36 Nýtt skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Stærðir frá 150- 300 fm með stórum gluggum, innréttað að óskum leigutaka. Mörkin 4 Mjög glæsilegt og fullinn- réttað ca 340 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, sem hægt er að skipta niður í tvær einingar. Vegmúli 2 Fallegt og gott atvinnu- húsnæði á góðum stað. Stærðir frá 50- 300 fm. WWW.FJARFEST.IS FAX 562 4249 Reykjavík – Valhöll fasteignasala er með í sölu einbýlishús í Fjarðarási 26, 110 Reykjavík. Um er að ræða um 250 fer- metra hús, steinsteypt á tveimur hæðum og var það reist árið 1982. Innbyggður bíl- skúr er um 31 fermetri. „Þetta er mjög fallegt hús, vel við haldið og vandað að allri gerð,“ sagði Þórarinn Friðgeirsson hjá Valhöll. „Húsið er frábærlega staðsett, rétt fyrir ofan sundlaug og íþróttahús og örstutt er í aðra þjónustu. Húsið skiptist þannig að efri hæðin er aðalíbúðarhæð með tveimur til þremur svefnherbergjum, glæsilegu baðherbergi, rúmgóðu stóru eldhúsi með vel hannaðri og stórri innréttingu, þá er stofa og borð- stofa. Húsið er afskaplega bjart og skemmtilegt, miklir og góðir gluggar og á neðri hæðinni, sem innangengt er í af efri hæð, er íbúðaraðstaða (ekki frágengin sem séríbúð). Garðurinn er mjög fallegur, vel frágeng- inn, með miklum gróðri og trjám í góðri rækt. Ásett verð á húsi er 29,7 millj.kr. Húsið er svo til skuldlaust.“ Fjarðarás 26 Fjarðarás 26 er 250 fermetra eign, til sölu hjá Valhöll. Ásett verð er 29,7 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.