Morgunblaðið - 10.08.2003, Side 7
Þau segja markaðssetninguna heyra
undir Markaðsstofu Austurlands og
þar vanti fjármagn, auk þess sem
hugsanlega mætti stýra þeim pen-
ingum sem þó eru til betri vegar. Til
marks um það væru farþegar Nor-
rænu yfirleitt búnir að ákveða fyrir
löngu hvert á landið þeir ætluðu,
þegar þeir stigu á íslenska grund. Þá
telja þau lítinn skilning beggja
vegna, þ.e.a.s. Seyðisfjarðarmegin
og Borgarfjarðarmegin á mikilvægi
Loðmundarfjarðar í heildarmynd
norðurhluta Austfjarða. Smári segir
þó ævinlega hafa verið betra að
starfa með nágrönnunum í suðri og
eitt sinn hafi hann borið upp þá til-
lögu að flytja hreppamörk þannig að
Loðmundarfjörður færðist suður á
bóginn, en við litla hrifningu.
„Þetta er heldur nöturlegt. Þegar
af stað var farið töldu ferðamála-
frömuðir að þetta væri snjallræði og
við skyldum gefa okkur 3-5 ár, þá
færi vinnan að skila sér. Nú stöndum
við uppi og horfum fram á, að verði
ekki breyting á, þá hafi 15 ára starf
engu skilað,“ segir Sigurður. Hann
bætir og við að afskekktri ferðaþjón-
ustu af þeirri tegund sem hér um
ræðir væri á ýmsan hátt gert erfitt
fyrir. „Þannig er barátta okkar við
Vegagerðina orðin áralöng og oft erf-
ið. Þar hefur maður m.a. fengið þau
svör að við ættum bara að koma okk-
ur til byggða og fá okkur almennileg
störf. Síðan eru kröfur á kröfur ofan
frá heilbrigðisfulltrúum og fleirum.
Við erum að sjálfsögðu ekki mótfallin
því að hér standist allt grundvallar-
kröfur, en það rekur hver krafan
aðra og allar kosta þær mikla pen-
inga,“ segja þau hjón.
Undraheimur ferðamannsins
Loðmundarfjörður er engu líkur.
Hrikaleg umgjörð fjalla og grösugur
dalur. Mikið fuglalíf, m.a. kríu- og
æðarvarp. Oft má sjá hreindýr spóka
sig í dalnum og þarna eru menn í
hjarta hins skrautlega steinaríkis Ís-
lands. Þá rennur um dalbotninn ein-
staklega falleg á, Fjarðará, sem er
veiðisæl.
Þó verður að taka fram að veiðin
er ekki fyrir hinn almenna ferða-
mann því áin er leigð þýska listmál-
aranum Bernd Koberling, sem á sín-
um ætlaði í samvinnu við Dieter og
Björn Roth, sem eru í hópi landeig-
enda, að byggja hana upp sem lax-
veiðiá uppúr 1980. Það heppnaðist
ekki, en áin er eftir sem áður mikil og
góð sjóbleikjuá. Dieter Roth er nú
látinn, en samstarf þeirra Koberlings
og Björns heldur áfram og Sigurður
Smári lítur til þeirra með von í
brjósti. Hann segir þá mikla áhuga-
menn um að ferðaþjónustunni í
Stakkahlíð verði viðhaldið og reiknar
með að í samvinnu við þá finnist
framtíðarlausn.
Aðrir myndlistarmenn og yngri
Það eru fleiri myndlistarmenn í
Loðmundarfirði heldur en hinn
heimsþekkti Bernd Koberling. Þeir
eru að vísu ekki eins frægir, en ekki
síður atorkusamir og hugmyndarík-
ir. Það eru þeir Sigurður Snæbjörn
Stefánsson, Daði Sigfússon og
Magnús Snæþór Stefánsson. Þannig
er mál vexti, að kirkjan á Klypps-
stöðum þarfnast sárlega aðhlynning-
ar og öllum þeim sem koma í Stakka-
hlíð eru boðin myndverk til sölu, til
styrktar aðhlynningar kirkjunni.
Þeir félagarnir teikna og mála það
sem fyrir augu ber í firðinum, fjöll,
blóm, fugla. Myndirnar kosta ekki
mikið, 300 krónur stykkið, en Sigríð-
ur Þórstína hefur stofnað reikning
sem búið var að leggja 12.000 krónur
inná nú nýverið.
týraleg upplifun
Á hlaðinu í Stakkahlíð.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 2003 B 7
ferðalög Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 á viku.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á
flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar, 6-7
manna, minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Heimasíðan www.fylkir.is
með fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Dancenter, Lalandia,
Novasol/Dansommer.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
ferðaskrifstofan
sími 456 3745.
Netfang fylkirag@fylkir.is
Heimasíða www.fylkir.is
www.hoteledda.is
Frakkland
18.938 kr.*
7 dagar miðað við flokk B
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Baltimore
20.779 kr.*
7 dagar miðað við flokk A
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Þýskaland
22.116 kr.*
7 dagar miðað við flokk B
Innifalið ótakmarkaður akstur,
áfylling af bensíni, kaskó, ábyrgðar-
trygging, einn auka bílstjóri,
skattur og flugvallargjald.
Ætlarðu til Mombasa,
út á Dalvík, til New Orleans
eða upp á Brávallagötu?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
16
61
0
7/
20
03
Sími: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 600
Fax: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 650
Netfang: hertz@hertz.is
*Ekkert bókunargjald.
Í TILEFNI af „ári fjalla 2002“ var
í fyrra efnt til kosningar um þjóð-
arfjall Íslendinga. Herðubreið varð
hlutskörpust í þeirri kosningu.
Ferðafélag Akureyrar (FFA) hefur
um árabil byggt upp þjónustu við
ferðafólk á svæðinu í kringum
Herðubreið, s.s. í Herðubreiðarlind-
um og við Bræðrafell. Í tilefni af
kjöri Herðubreiðar sem þjóðarfjalls
efnir FFA til þjóðarfjallsviku dag-
ana 15.–21. ágúst 2003.
Vikan hefst með hópferð frá
Akureyri í Herðubreiðarlindir 15.
ágúst. Daginn eftir verður gengið á
fjallið ef veður leyfir. Þá býður
FFA upp á göngu á Herðubreið
með leiðsögn dagana 17.–21. ágúst
ef veður leyfir. Þátttakendur fá
fræðsluefni um Herðubreið og við-
urkenningarskjal að lokinni göngu.
Gengið verður vestur fyrir fjallið og
upp á það að vestan. Einnig verður
mögulegt að fá bílfar úr Herðu-
breiðarlindum vestur að uppgöngu-
staðnum og til baka. Ganga á
Herðubreið er töluvert erfið. Nauð-
synlegt er því að fólk sé í góðri lík-
amlegri þjálfun, á traustum göngu-
skóm og taki með sér skjólfatnað og
dagsnesti í bakpoka. Gangan upp á
fjallið frá uppgöngustaðnum gæti
tekið 3–4 klst. en 6–7 klst. úr
Herðubreiðarlindum. Í björtu veðri
launar útsýnið hins vegar erfiðið því
að af tindi Herðubreiðar er geysi-
víðsýnt til allra átta.
Herðubreið var valin fjall ársins í fyrra.
Gengið á Herðubreið
Þjóðarfjallsvika
Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu FFA í síma 462 2720,
milli kl. 16 og 19 virka daga eða
hjá landverði í Herðubreiðar-
friðlandi í síma 854 9301. Einn-
ig má senda tölvupóst á net-
fangið: ffa@li.is.