Morgunblaðið - 17.08.2003, Side 1
Bergstaðastræti 37
Framreiðslunemi
Þjónanemi
Óskum eftir duglegum og ábyrgum
framreiðslunema til starfa á einum besta
veitingastað landsins.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefnar á staðnum næstu daga
eða í síma 552 5700.
Byggingavinna
Við hjá Byggingafélagi Gylfa og Gunnars
ehf. erum að vinna við smíði íbúða við Sjá-
land í GARÐABÆ og vantar okkur bygg-
ingaverkamenn strax í framtíðarvinnu.
Góður aðbúnaður er fyrir starfsmenn.
Upplýsingar eru veittar í þjónustuhúsi
BYGG ehf. á staðnum eða í s. 693 7304.
Handflakarar - Noregur
Óskum eftir vönum handflökurum til að flaka
ýsu og þorsk í 4 mánuði. Við borgum flugfar
og útvegum húsnæði. Nánari uppl. í síma
+47 906 52 637. (Við tölum íslensku).
Starfskraftur óskast
til afgreiðslu í veitingasal. Ekki yngri en 18 ára.
Dagvinna. Upplýsingar á staðnum ekki í síma.
Cafe Mílanó — Faxafeni 11.
Umhverfistofnun
Sérfræðingur
Umhverfisstofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann á framkvæmdasvið stofnunarinnar.
Um er að ræða 100% starf.
Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðis í
vinnubrögðum, góðrar tölvukunnáttu og góðra
samstarfshæfileika. Umsækjendur þurfa að
hafa Masters-gráðu eða samsvarandi menntun
á sviði náttúruvísinda eða verkfræði og reynslu
að vinna við og miðla tölulegum gögnum,
þ.m.t. rauntímagögnum. Góð þekking á IDL
hugbúnaðarkerfi er verulegur kostur.
Einnig er æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu
á notkun líkana til að meta og spá fyrir um
dreifingu mengandi efna og hafi tengsl við
vísindaumhverfi.
Starfið felst m.a.í eftirfarandi:
1. Umhverfisvöktun, einkum loft- og vatnsgæði
a. Skipulagning vöktunar.
b. Tölfræðileg úrvinnsla og framsetning
gagna, m.a. á rauntímagögnum.
2. Miðlun upplýsinga á innlendum og erlendum
vettvangi.
3. Önnur verkefni innan framkvæmdasviðs
eftir atvikum.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem
fyrst. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamn-
ingum ríkisstarfsmanna.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skilað til Umhverfisstofnunar
fyrir 1. september 2003. Sérstök umsóknareyð-
ublöð eru ekki notuð.
Nánari upplýsingar veita Helgi Jensson, for-
stöðumaður (helgij@ust.is), og Gunnar Steinn
Jónsson, fagstjóri (gunnar@ust.is).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Umhverfisstofnun
www.ust.is
Suðurlandsbraut 24 - 108 Reykjavík.
Sími 591 2000 - fax 591 2020.
Umhverfisstofnun heyrir undir umhverfisráðuneytið og starfar skv.
lögum nr. 90/2002 . Stofnunin hefur m.a. það hlutverk að framfylgja
lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, eiturefni og hættuleg
efni, matvæli, mengun sjávar, náttúruvernd og veiðistjórnun. Starfs-
menn eru um 78 og starfa 6 sviðum og rannsóknastofu á 7 starfstöð-
um í dreifbýli og þéttbýli.
Yfirmaður félagsstarfs og dag-
þjónustu á dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Hlíð á Akureyri
Laust eru til umsóknar starf yfirmanns félagsstarfs og dag-
þjónustu á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Starfið er nýtt og spennandi og er hluti af þróunarstarfi
sem verið er að vinna á öldrunarstofnunum Akureyrar-
bæjar.
Um er að ræða 80% starf og er æskilegt að starfs-
maður geti hafið störf sem fyrst.
Óskað er eftir iðjuþjálfa eða starfsmanni með annars kon-
ar háskólamenntun á félags- eða heilbrigðissviði.
Stjórnunarreynsla er æskileg svo og reynsla af starfi með
öldruðum.
Áhersla er lögð á frumkvæði og samskiptahæfileika.
Einnig er lögð áhersla á jákvætt og glaðlegt viðmót og
góða framkomu.
Akureyrarbær rekur umfangsmikla öldrunarþjónustu bæði
innan og utan stofnanna. Stofnanirnar eru dvalar- og
hjúkrunarheimilið Hlíð þar sem eru 100 hjúkrunarrými og
24 dvalarrými, heimili aldraðra í Kjarnalundi þar sem eru
48 dvalarrými og sambýli aldraðra við Bakkahlíð en þar
eru 8 hjúkrunarrými. Dagþjónusta er starfrækt í tengsl-
um við dvalarheimilið Hlíð og eru þar 12 rými. Fjöldi
starfsmanna stofnananna er um 230.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum viðkomandi stétt-
arfélags.
Upplýsingar um starfið veita Brit J. Bieltvedt,
framkvæmdastjóri og Helga Tryggvadóttir hjúkrunarfor-
stjóri eftir 21. ágúst n.k. í Hlíð Austurbyggð 17, Akureyri
eða í síma 462 7930.
Umsóknareyðublöð fást í upplýsingaanddyri
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 og á heimasíðu bæjarins:
www.akureyri.is
Umsóknir skulu berast á dvalar- og hjúkrunarheim-
ilið Hlíð, Austurbyggð 17, 600 Akureyri
fyrir 1. september, 2003.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Kvöldvinna
— góðar tekjur
Söluvertíðin er hafin og nú vantar okkur
duglegt símasölufólk á kvöldin. Aldurstak-
mark 20 ára og uppúr. Við bjóðum hentuga
aukavinnu með góðum tekjumöguleikum
eitt til 5 kvöld í viku. Árangurstengd laun-
þegakjör. Aðstoð, leiðbeiningar og góður
starfsandi.
Nánari upplýsingar í síma 590 8000 á milli
kl. 13.00 og 15.00 alla virka daga.
BM ráðgjöf ehf.,
Ármúla 36, Reykjavík,
sími 590 8000, netfang bm@bm.is
Sunnudagur
17. ágúst 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 7.875 Innlit 15.137 Flettingar 66.291 Heimild: Samræmd vefmæling