Morgunblaðið - 04.09.2003, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 B 5
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF félag
lar
ér-
í öllu
atriði
i um
við-
gur
a
afa
nlegt
rmál
og í samningi milli sérleyfisgjafa og sérleyfistaka verður
að vera nákvæmlega skilgreint hvernig með þessi mál er
farið, en hér um að ræða eitt það mikilvægasta í sam-
starfi aðila.
Þróun rekstrarins snýr yfirleitt að báðum aðilum en
sérleyfisgjafi er þó alla jafna leiðandi í þeim efnum.
Í samningi skal kveðið á um hvernig að markaðs-
setningu skal staðið.
Fjármál, stjórnun og gjöld eru atriði sem eins og í öll-
um samningum verða eðli máls samkvæmt að vera skýr.
Algengast mun vera að sérleyfisgjafinn hafi rétt á að
rannsaka fjárhag sérleyfistakans, óski hann eftir því.
Samningstími, riftunarákvæði og ýmis atriði er snúa
að lausn á hugsanlegum ágreiningsefnum milli sérleyf-
isgjafa og sérleyfistaka eru veigamikil atriði samnings.
Þá má gera ráð fyrir að ýmis fylgigögn þurfi að fylgja
samningi um viðskiptasérleyfi, svo sem varðandi mark-
aðssvæði, lýsingu á starfssviði o.fl.
Reynslan mælir með aðstoð
Sérleyfistaki verður að fylgja ákveðnum stöðlum og skil-
yrðum sem sérleyfisgjafi setur. Greiðslur og gjöld sem
sérleyfistaki greiðir sérleyfisgjafa geta verið háar fjár-
hæðir. Því er ekki að undra að þeir sem reynslu hafa af
þessum málum ráðleggi þeim sem eru að hugsa um að
útvega sér sérleyfi, að kanna vel skipulag fyrirtækis sér-
leyfisgjafans og hvernig það er tilbúið að vinna með sér-
leyfistakanum við uppbyggingu fyrirtækisins. Þá er og
ávallt hætta á því að samningur milli sérleyfisgjafa og
sérleyfistaka verði vilhallur sérleyfisgjafanum ef ekki er
vel að gáð. Eins og fram kemur annars staðar hér á þess-
ari opnu eru öll skilyrði samninga milli sérleyfisgjafa og
sérleyfistaka mjög strangt túlkuð, sérstaklega þegar al-
þjóðleg fyrirtæki eiga í hlut. Aðstoð fagmanna er því
auðsjáanlega nauðsynleg við gerð samnings um við-
skiptasérleyfi.
a við samningagerð
lfun og ýmiss konar
starfseminni af stað
andi rekstur.
i ekki að hafa sér-
semi sem hann eða
tan er því allajafna
rleyfisfyrirtækis en
sem stofnað er frá
er með sinn eigin
gi bakhjarlsins, þ.e.
þar með þátttakandi
s.
rið vænlegur kostur
eigin atvinnurekstur
omið sér vel fyrir þá
hyggja á frekari út-
. Það er allajafna
erki þeirra fari sem
ss er að sjálfsögðu
æki og útþensla með
nur leið er hins veg-
ðskiptasérleyfi sem
um þóknun fyrir við-
getur verið ákveðin
árhæð að viðbættum
nga fjárhagslega
anum, sérleyfis-
möguleika á að
sitt án nokkurra
r að auki getur
hugsanlegra
sem koma frá
rleyfisgjafinn
margvíslegan
last sérleyfi
dar hans.
rirtæki
jónustu, SVÞ,
eint þeim sem
t sérleyfisþegar
m sem vilja gerast
in stóðu að stofn-
asérleyfi á árinu
ðu þess á Netinu
r um þessi mál.
SVÞ hefur haft
ýr að viðskipta-
nn segir að ekki
ðskiptasérleyfi séu
ptalífinu. Í dag séu
yfisfyrirtæki hér á
g veitingarekstri, og
fjölga, ekki hvað síst
á öðrum sviðum en þeim sem algengust eru.
Þessi rekstrarmáti hafi enn ekki haslað sér
völl á ýmsum sviðum hér á landi, sem hann
hafi hins vegar gert víða erlendis með góð-
um árangri. Íslenskum fyrirtækjum hafi
hins vegar enn sem komið er ekki tekist að
gerast sérleyfisgjafar, þótt það hafi verið
reynt.
Viðskiptasérleyfi eru að sögn Emils mjög
algeng í Bandaríkjunum og hafa verið það
lengi. Hann segir að til að mynda hafi bens-
ínstöðvar þar í landi svo til strax verið rekn-
ar samkvæmt þessu rekstrarformi, þegar
byrjað var að aka bifreiðum um götur í byrj-
un síðustu aldar. Olíufélögin þar hafi ekkert
komið nálægt slíkri þjónustustarfsemi, eins
og þau geri hér á landi. Hann
segir að áætlað sé að allt að
helmingur af fyrirtækj-
um í smásöluverslun í
Bandaríkjunum séu
viðskiptasérleyfisfyr-
irtæki. Aukningin á
öðrum sviðum sé
töluverð.
Segir Emil
að þróunin í
þessum efnum
hafi verið mjög
hröð í Noregi,
Svíþjóð
og í Bretlandi á undanförnum árum. Á fjög-
urra ára tímabili fram til ársins 2000 hafi
sérleyfirsfyrirtækjum í Noregi til að mynda
fjölgað um 50%. Vöxturinn í Svíþjóð hafi
verið svipaður og í Bretlandi hafi hann verið
um 30%.
„Ástæðan fyrir þessari þróun er fyrst og
fremst sú að áhættan af stofnun sérleyfis-
fyrirtækis er mun minni en af stofnun hefð-
bundins fyrirtækis,“ segir Emil. „Það skýr-
ist af því að um er að ræða hugmynd sem
hefur verið reynd og hefur sannað sig.“
Fleiri konur en karlar
Að sögn Emils hafa kannanir í Svíþjóð leitt í
ljós að stofnendur fyrirtækja með viðskipta-
sérleyfi séu að meirihluta til konur.
Segir hann að konur hafi staðið að
stofnun um 60% fyrirtækja með
viðskiptasérleyfi í Svíþjóð en
hlutfallið sé um 30% þegar
kemur að fyrirtækjum í
heild. „Tilgáta er um að
ástæðan fyrir því hvað konur
koma mikið að stofnun sér-
leyfisfyrirtækja sé að þær
séu varkárari við stofnun fyr-
irtækja en karlar og taki síð-
ur áhættu. Þess vegna henti
þetta fyrirkomulag þeim bet-
ur.“
Emil segir að erlend sam-
tök sérleyfishafa hafi bent
á að fáar aðgerðir hafi í
för með sér eins
mikla atvinnu-
sköpun og
viðskiptasérleyfi. Kannanir hafi leitt í ljós
að umtalsvert færri fyrirtæki, sem rekin
eru samkvæmt slíku fyrirkomulagi, hætti
stafsemi á fyrstu starfsárum en önnur ný-
stofnuð fyrirtæki.
Emil segist sannfærður um að viðskipta-
sérleyfi eigi eftir að ryðja sér enn frekar til
rúms í íslensku viðskiptalífi en orðið er.
Möguleikarnir séu nánast ótakmarkaðir.
„Viðskiptasérleyfi eru engan veginn bundin
við verslun, veitingarekstur, fasteignavið-
skipti, gosdrykkja-
framleiðslu, ráðgjaf-
arþjónustu,
auglýsingagerð og
annað sem þekkt er í
þessum efnum hér á
landi. Ég hef því trú
á því að erlendum
nöfnum í viðskipta-
lífinu eigi eftir að
fjölga hér á landi á
komandi árum.“
Samþykki eftir
fjóra mánuði
Fyrr á þessu ári
stóðu Samtök versl-
unar og þjónustu, SVÞ, og Logos lögmanns-
þjónusta, í samstarfi við bandaríska sendi-
ráðið hér á landi, fyrir ráðstefnu um
viðskiptasérleyfi. Á ráðstefnunni var kynnt
hvað felst í viðskiptasérleyfi auk þess sem
veittar voru hagnýtar upplýsingar um
hvernig heppilegast er að standa að stofnun
fyrirtækis með viðskiptasérleyfi. Eitt fyr-
irtæki, sem tekið hefur til starfa hér á landi
með viðskiptasérleyfi, var kynnt sérstak-
lega á ráðstefnunni.
Guðrún Möller, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Thyme Maternity, greindi
frá því að hún og eiginmaður hennar, Ólafur
Árnason, hefðu haft áhuga á því að fara út í
eigin rekstur. Hún sagði að þau hefðu fengið
hugmynd að því að setja á fót verslun með
tískufatnað fyrir barnshafandi konur. Haft
hafi verið samband við móðurfélag verslun-
arkeðjunnar Thyme Maternity, kanadíska
stórfyrirtækið Reitmans. Í framhaldinu hafi
verið gerð viðskiptaáætlun og um fjórum
mánuðum eftir að haft hafi verið samband
við Reitmans hafi fyrirtækið samþykkt að
Guðrún og Ólafur fengju viðskiptasérleyfi
með vörur frá Thyme Maternity.
Eftir að samþykki Reitmans lá fyrir var
fatnaður pantaður, verslunarhúsnæði fund-
ið, flutningsleiðir skipulagðar, unnið að
innra skipulagi fyrirtækisins auk þess sem
tækjabúnaður var keyptur. Um einu ári eft-
ir að hugmyndinni að stofnun Thyme Mat-
ernity hér á landi var hrint af stað var versl-
unin opnuð í Kópavogi.
Mikill stuðningur
Guðrún segir að helstu kostir þess að vinna
með sérleyfi séu að þá sé verið að starfa með
hugmynd sem hefur verið úrtfærð og er í
fullum rekstri í öðrum löndum. „Það þýðir
að á bakvið vöruna er mikill stuðningur frá
móðurfélaginu í formi mannafla og reynslu
en yfirleitt ekki í formi fjármagns,“ segir
Guðrún. „Í okkar tilfelli fáum við t.d. mikinn
stuðning varðandi markaðs-
mál, innkaup, hönn-
un og auðvitað
hagstæðara
innkaups-
verð en við
fengjum ef
við værum að semja beint við birgja. Við
getum t.d. einfaldlega valið fatnað úr þeirri
línu sem boðin er fyrir hvert tímabil og
þurfum svo ekki að hafa áhyggjur af vör-
unni fyrr en hún kemur á hafnarbakkann
hér heima eða í Svíþjóð.“
Að sögn Guðrúnar verður fyrirtæki henn-
ar að fylgja ákveðnum stöðlum sem Thyme
International /Reitmans setur og uppfylla
ýmis önnur skilyrði. Einnig þurfi leyfishaf-
ar að borga nokkuð háar fjárhæðir til að fá
leyfin auk þess sem
yfirleitt sé viss þókn-
un af sölu greidd til
leyfisveitanda. Slík-
ar fjárhæðir geti ver-
ið mjög breytilegar
eftir merkjum og
einnig sé breytilegt
hve mikinn stuðning
móðurfélögin veiti
fyrir þóknunina.
„Ég myndi ráð-
leggja þeim sem eru
að hugsa um að út-
vega sér sérleyfi, að
kanna vel skipulag
móðurfélagsins og
hvernig það er tilbúið að vinna með sérleyf-
ishafanum við uppbyggingu. Hvaða aðilar
innan móðurfélagsins yrðu tengiliðir?
Hvernig aðgangur er að þeim? Oft er
spennan mikil við að fá svona sérleyfi og
hætta á því að samningar verði einhæfir og
vilhallir leyfisveitandanum ef ekki er vel að
gætt. Þegar verið er að eiga við alþjóðleg
fyrirtæki eru öll skilyrði samninga mjög
strangt túlkuð og því um að gera að leita til
fagmanna þegar verið er að vinna að samn-
ingum í upphafi. Og gefa sér góðan tíma til
að yfirfara þessa hluti,“ segir Guðrún.
Víða aðgengilegar upplýsingar
Samtök um viðskiptasérleyfi hafa víða
sprottið upp. Ein slík samtök eru t.d. Int-
ernational Franchise Association, IFA, í
Bandaríkjunum. Heimasíða þeirra á Netinu
er á slóðinni franchise.org. Þar er alla jafna
töluverður fjöldi fyrirtækja sem eru að leita
að samstarfsaðilum með viðskiptasérleyfi í
huga. Í flestum tilvikum er þar hægt að
finna sögu viðkomandi fyrirtækja og hvaða
sérstöðu þau hafa, hvað í boði er, hverja
hægt er að hafa samband við hjá fyrirtæk-
inu, hve mikið fjármagn þarf til að koma
sérleyfisfyrirtæki af stað og hvað ætla má
að heildarfjárfesting í tækjum og tólum og
öðru nauðsynlegu verði.
Hið íslenska Félag um viðskiptasérleyfi,
sem var stofnað á árinu 2001, er ásamt öðr-
um sambærilegum félögum á Norðurlönd-
um á slóðinni franchisenet.net á Netinu. Er
þar að finna almennar upplýsingar um við-
komandi félög og hverja hægt er að hafa
samband við til að fá frekari upplýsingar.
Þar er einnig að finna lista yfir fyrirtæki á
Norðurlöndum sem leita að samstarfsaðil-
um með viðskiptasérleyfi í huga. Af nógu
virðist vera að taka.
tasérleyfi
r til rúms
bæði kosti stærðarinnar og smæðarinnar
sviðum
r á landi
ri en
..........................
Á h æ t t a n a f s t o f n u n s é r -
l e y f i s f y r i r t æ k i s e r m u n
m i n n i e n a f s t o f n u n
h e f ð b u n d i n s f y r i r t æ k i s
þ v í h u g m y n d i n h e f u r
v e r i ð r e y n d o g h e f u r
s a n n a ð s i g .
..........................
gretar@mbl.is