Morgunblaðið - 07.09.2003, Qupperneq 8
8 C SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! "
# $%&
'
( )
*"+,-'./ 01 2 3456 178 7808
'/96 178 787:
!!!"
# $
%&
'
(
)*
++
"
Sjúkraliðar
nemendur á heilbrigðissviði og/eða
sérhæfðir starfsmenn í aðhlynningu
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir þér til starfa
sem allra fyrst. Um er að ræða 100% starf,
unnið er aðra hvora helgi og eina til tvær
kvöldvaktir í viku, ekki er um næturvaktir að
ræða. Einnig er laust 20% starf þar sem unnið
er aðra hvora helgi. Við leitum að starfsmönn-
um í 70% starf á næturvakt eingöngu. Þar eru
unnar 5 vaktir og síðan 5 vakta frí. Við leggjum
okkur fram um að taka vel á mótir þér og látum
okkur annt um velferð þína. Vinsamlegast
hafðu samband við Guðrúnu Erlu Gunnarsdótt-
ur hjúkrunarforstjóra í s. 552 9133 þar sem nán-
ari upplýsingar fást.
Sjálfsbjargarheimilið er í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavík.
Það er ætlað hreyfihömluðu fólki er þarfnast aðstoðar og umönnunar
allan sólarhringinn. Íbúar eru 39 og starfsmenn um 50. Hjúkrunar-
fræðingar, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, sjúkraliðar, læknar, sérhæfðir
starfsmenn og aðrir starfsmenn vinna við heimilið. Við vinnum
markvisst að því að auka lífsgæði íbúa heimilisins. Aðrir starfsem-
isþættir eru: Þjónustumiðstöð, endurhæfingaríbúð, sjálfstæð búseta
með stuðningi og sundlaug.
Húsvörður
Eitt af stærri húsfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu óskar eftir húsverði til starfa. Í starf-
inu felst dagleg umsjón með fasteigninni
ásamt minniháttar viðhaldi. Viðkomandi skal
vera iðnmenntaður, hafa þægilega framkomu
og eiga gott með samskipti við fólk.
Umsóknum skal skila til Eignaumsjónar hf.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 22. september 2003.
Umsóknum má einnig skila í tölvupósti á
afgreidsla@eignaumsjon.is
Select
Framtíðarstörf
Viljum ráða trausta og samviskusama starfs-
menn á næturvaktir á Selectstöðvar félagsins
á Reykjavíkursvæðinu.
Við viljum gjarnan fá til liðs við okkur fólk sem
hefur ánægju af því að veita góða þjónustu og
er reiðubúið til að leggja sig fram í starfi. Unnin
er vaktavinna og eru vaktakerfi mismunandi.
Lágmarksaldur 20 ár.
Umsóknir sendist starfsmannahaldi Skeljungs
hf., Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík, fax 560
3801. Umsóknareyðublöð liggja frammi í mót-
tökunni á 1. hæð á Suðurlandsbraut 4. Einnig
er hægt að sækja um á heimasíðu okkar
www.skeljungur.is.
Starfsfólk óskast
í afgreiðslu á Laugavegi í fast starf.
Upplýsingar gefnar á milli kl. 9.00 - 13.00.
Bakarí Sandholt.
Sími 551 3524
Starfskraftur óskast
Óskum eftir starfskrafti á miðjum aldri sem
fyrst, 4-5 tímar á dag. Starfið felst í að sauma
út merkingar í fatnað. Tölvukunnátta æskileg,
ekki skilyrði. Stundvísi og reglusemi áskilin.
Vinsamlegast sendið umsóknir til augldeildar
Mbl. eða í box@mbl.is merktar: „Stundvísi —
14149“ fyrir 14. september.
Stuðningsfulltrúi
Leitum að þroskaþjálfa/starfsmanni með
reynslu af leikskólastörfum/sérkennara
til að styðja 4 ára son okkar með væga
einhverfu til aukinnar félagsfærni.
Starfsvettvangur er Ós, lítill og heimilis-
legur foreldrarekinn leikskóli sem starfar
á grundvelli hjallastefnunnar. Skemmti-
legur drengur, áhugasamir foreldrar,
þakklátt starf. Vinsamlegast hafið sam-
band við Ellen sími 552 7989 eða Edw-
ard sími 863 1923.
Tannlæknastofa
Aðstoð óskast á tannlæknastofu í austurbæn-
um. Starfshlutfall 50—60% eftir hádegi. Við-
komandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til augld. Mbl., merktar: „T
— 14156“, fyrir 15. sept. eða á box@mbl.is.
Vélvirki eða vélstjóri
óskast til starfa á landsbyggðinni.
Starfið felst í viðgerðuum á vörubílum og
vinnuvélum, einnig nýsmíði. Þarf að getað
unnið sjálfstætt og hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. merktar:
„B—14145“ eða á box@mbl.is, sem fyrst.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri óskast á ísfisktogara.
Verður að hafa VF1 réttindi.
Upplýsingar í síma 455 4400 eða 894 1378.
Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra
Iðjuþjálfun
aðstoðarmaður
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra óskar að ráða
aðstoðarmann í iðjuþjálfun í 80% stöðu.
Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem
fyrst.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og
skipulagshæfileika. Viðkomandi þarf að hafa
áhuga á að umgangast og vinna með börn.
Í starfinu felst ýmis konar skrifstofuvinna og
mikilvægt er að hafa reynslu af tölvuvinnu.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bíl til um-
ráða.
Þetta er tilvalið starf fyrir þá sem vilja kynnast
iðjuþjálfun með nám í huga.
Nánari upplýsingar veitir Gerður Gústavsdóttir
yfiriðjuþjálfi í síma 535 0900,
netfang: gerdur@slf.is.
ÍSLANDS
MÁLNING
Íslandsmálning óskar eftir að ráða
starfsfólk í eftirtalin störf:
• Afgreiðslustarf í verslun. Um er að ræða
heilsdagstarf og hlutastarf.
• Sölustarf
Góð tölvukunnátta æskileg. Starfsreynsla
á sviði markaðs og sölumála.
Íslandsmálning óskar eftir dreifingaraðilum
á landsbyggðinni.
Íslandsmálning er dreifingarfyrirtæki Teknos, sem
er alþjóðlegt málningarframleiðslufyrirtæki með
höfuðstöðvar í Finnlandi.
Hjá Teknos starfa um 1000 manns, þar af 150 við
þróun og gæðaeftirlit. Hjá Teknos er unnið eftir
9001 gæðavottunarkerfi.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfang:
im@islandsmalning.is
Íslandsmálning
Sætún 4, 105 Reykjavík