Morgunblaðið - 07.09.2003, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 C 9
Lagerstarf
Óskum eftir að ráða duglegt og reglusamt fólk,
karla eða konur, í umbúðamóttöku Endur-
vinnslunnar hf. í Vogahverfi, Reykjavík.
Upplýsingar gefur Valdimar í síma 588 8522
mánudaginn 8. september kl. 8.00—10.00.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi óskast til starfa í Félags- og
þjónustumiðstöðina Norðurbrún 1. Um
er að ræða 50% starf. Í starfinu felst að leið-
beina við útskurð og fleira í smíðastofu stöðv-
arinnar og virkja frumkvæði og sköpunarhæfi-
leika hvers eins. Menntun og eða reynsla af
smíðavinnu og útskurði nauðsynleg. Vinnutími
eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjara-
samningi Reykjavíkurborgar og Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur
er til 20.9. 2003. Allar nánari upplýsingar veitir
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, forstöðumaður,
netfang annath@fel.rvk.is, í síma 568 6960.
Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf
og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á
vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is.
Ritari óskast
Vinnutími 18-22, mán—fim. Góð laun og
góður vinnuandi.
Upplýsingar í síma 555 6010 og hjá Sigþór
í síma846 2270.
Ritari
Ritari óskast í 50% starf við Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins sem fyrst.
Starfið felst í almennum ritarastörfum, síma-
vörslu og móttöku. Vinnutími er frá kl. 8.15 til
12.00. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum og stofnanasamningum.
Nauðsynlegt er að umsækjendur eigi auðvelt
með samskipti og hópvinnu.
Umsóknarfrestur er til 22. september. Nánari
upplýsingar gefa forstöðumaður og aðstoðar-
maður forstöðumanns í síma 510 8400.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun, sem
þjónar öllu landinu. Meginhlutverk hennar er greining á röskunum
í taugaþroska og fötlunum barna, ásamt ráðgjöf til foreldra og þeirra
sem annast þjálfun, kennslu og meðferð. Við hana starfa tæplega
fjörutíu manns úr ýmsum sérgreinum. Sjá nánar um starfsemina
á heimasíðu: www.greining.is.
Íbúð til leigu
Mjög góð 3ja herb. íbúð ásamt bílskúr við
Stóragerði, 108 Reykjavík. Til leigu frá 1. októ-
ber. Upplýsingar í s. 421 5599 eða 897 8355
á kvöldin eða tilboð sendist til tiehf@simnet.is.
„Au pair“ — Holland
Íslensk fjölskylda í Hollandi með 3 börn á aldrin-
um 2-12 óskar eftir duglegri og sjálfstæðri „au
pair“ sem fyrst, ekki yngri en 20 ára. Áhugasam-
ir sendi inn umsókn á bylgja91@visir.is eða
hringi í síma 0031 6535 3165521.
„Au pair“ London
„Au pair“ óskast nú þegar til að sinna léttum
heimilisstörfum og til að gæta 5 ára stúlku hjá
íslenskri fjölskyldu. Umsóknir sendist í tölvu-
pósti á svalagudmundsdottir@hotmail.com .
Nánari uppl. í síma 0044 208 947 7815.
„Au pair“ Svíþjóð
Óskum eftir að ráða „au pair“ til að gæta 2
barna, 1 og 3 ára, auk léttra heimilisstarfa.
Tímabil frá byrjun janúar í hálft ár með möguleika
á framlengingu. Lágmark 19 ára og reyklaus.
Umsóknir sendist á aupair2004swe@hotmail.com
fyrir 10. sept. nk.
Bílamálarar
Sprautuverkstæði á Höfðanum óskar eftir að
ráða bílamálara til starfa sem fyrst. góð laun
í boði og næg vinna framundan.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „B — 14144“ eða í box@mbl.is.
Chicago
leikarar — söngvarar — dansarar
Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkur-
inn auglýsa áheyrnarprufu í Borgarleikhúsinu
á tímabilinu 14.—18. september.
Leitað er að atvinnufólki í leiklist/söng/dansi
til að taka þátt í uppfærslu LR og Íd á söngleikn-
um Chicago. Æfingar hefjast í október 2003,
frumsýnt verður 10. janúar 2004. Leikstjóri:
Þórhildur Þorleifsdóttir. Danshöfundur: Jochen
Ulrich. Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson.
Örfá hlutverk eru ómönnuð og því verða nokkrir
umsækjendur valdir til að taka þátt í áheyrnar-
prufunni. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
LR í Borgarleikhúsi og á heimasíðunni
www.borgarleikhus.is.
Útfylltum umsóknareyðublöðum, ásamt mynd,
skal skila á skrifstofu Borgarleikhúss fyrir
11. september.
Fasteignasala
— Sölumaður
— Skjalafrágangur
Óskum að ráða til starfa sölumann eða lögg.
fasteignasala til skjalagerðar.
Við bjóðum upp á mjög góða vinnuaðstöðu
og yfir 1100 eignir í miðlægum eignagrunni,
svo hér er gott tækifæri fyrir góða sölumenn.
Aðeins þeir sem hafa reynslu af sölu fasteigna
koma til greina.
Allar nánari upplýsingar gefur Pálmi Almars-
son á skrifstofu okkar.
Fasteignasalan Bifröst,
Vegmúla 2, 108 Reykjavík.
Framtíðarstarfsmaður
á skrifstofu
Fyrirtæki í örum vexti óskar eftir starfsmanni
við almenn skrifstofustörf. Leitað er að vinnu-
sömum starfsmanni með góða samskiptahæfi-
leika og getu til að vinna sjálfstætt. Nauðsyn-
legt er að umsækjendur hafi góða ensku- og
íslenskukunnáttu og einhverja tölvukunnáttu.
Traustur og spennandi framtíðarvinnustaður
fyrir réttan aðila.
Svör óskast send á augldeild Morgunblaðsins
eða á box@mbl.is merkt: „vinnusamur—
14154“.
Gigtarfélag
Íslands
Iðjuþjálfi óskast
Laus er til umsóknar 100% staða iðjuþjálfa við
Iðjuþjálfun Gigtarfélags Íslands, Gigtarmið-
stöðinni, Ármúla 5. Um er að ræða fjölbreytt
og gefandi starf sem krefst faglegrar þekkingar
og sjálfstæðis í starfi. Æskilegt er að viðkom-
andi geti hafið störf sem fyrst eða eftir sam-
komulagi.
Nánari upplýsingar gefa Elsa Ingimarsdóttir
yfiriðjuþjálfi í síma 530 3603 og Emil Thorodd-
sen framkvæmdarstjóri í síma 530 3600.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist iðjuþjálfun Gigtarfélags Íslands,
Ármúla 5, 108 Reykjavík fyrir 23. september.
Góður starfskraftur
óskast í sölu og lagerstörf
í heildverslun með snyrtivörur og gjafa-
vörur. Upplýsingar sendist til augl. deildar
Mbl. eða á box@mbl.is merktar:
„L — 14139“.
Gríptu tækifærið!
Starfskraft vantar í sjoppu og vídeóleigu sem
einnig verslar með matvöru. Vinnutími frá kl
9-17 eða 9-18 eftir samkomulagi. Reynsla ekki
skilyrði. Leitum að einstaklingi sem er tilbúin
að byrja strax.
Umsóknir sendist til augl.deildar Mbl. eða á
box@mbl.is merkt S—14146 fyrir 9. sept.
Hafnarsamlag Norðurlands á Akureyri
auglýsir lausa stöðu
hafnarvarðar
Viðkomandi þarf að geta hafið störf hið fyrsta.
Skilyrði:
Skipstjórnarréttindi.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og vera skipulagður.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Hafa gott vald á ensku.
Upplýsingar gefur Pétur í síma 460 4202 eða
861 2884 milli kl. 8 og 16 alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 12. sept-
ember nk., og skal skriflegum umsóknum
skilað á skrifstofu Hafnarsamlags Norður-
lands, v/Fiskitanga, 600 Akureyri.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Ódýrasta m²-verðið á
iðnaðarhúsnæði í Reykjavík
Selst hæstbjóðanda. Fossháls 13, 3. hæð, ca
400 fm. Tilbúið undir tréverk. Byggt '88. Áhv.
10,7 millj. til 20 ára. 10% fastir vextir og 2 millj.
til 10 ára, 8% vextir. Verður selt hæstbjóðanda
og frágengið 10. sept. '03. Skilyrði að bankinn
samþykki yfirtöku lána. Uppl. í síma 869 1983.
Til leigu
Skrifstofuhúsnæði á Klapparstíg 25—27.
Allt að 230 fm. Nýlega standsett.
Upplýsingar í s. 896 0617 og 561 0862.
Verslunarhúsnæði óskast
Óskum eftir 100-200 fm verslunar- og
lagerhúsnæði í Skeifunni, Fenja- eða
Múlahverfi.
Tilboð sendist til: laus@torg.is.
100 fm skrifstofuhúsnæði
óskast í Kópavogi
til kaups eða leigu. Áhugasamir hafi samband
við Kristberg í síma 892 1931 eða Ágúst í síma
894 7230.
Fasteignasalan Hóll,
Skúlagötu 17.
BÍLAR
Landrover discovery 2.5 tdi
Árgerð '97. Ekinn 111 þúsund km. Góður bíll
í góðu ástandi. Skoðaður '04. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 695 8969.
TIL LEIGU