Morgunblaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 11
um dögum sérhæfa sig í að sinna
ráðstefnu- og fundargestum þá er í
samvinnu við Ultima Thule verið að
setja upp sérstakt leiksvæði fyrir
fullorðið fólk.
„Fólk getur ef það kýs svo tekið
sér hlé frá fundahaldi og keppt sam-
an á sérstöku leiksvæði þar sem eru
kaðlar, drumbar og ýmis önnur
hjálpartæki sem reyna á samvinnu
og áræði. Þetta er fyrsta slíka svæð-
ið hér á landi en erlendis hafa leik-
svæði sem þessi verið notuð í hópefli
á vinnustöðum og í öðrum hópum til
að þjappa fólki saman.“
Auk þess er hótelið í samvinnu
við fyrirtæki sem sjá um útreiðar-
túra, fjórhjólaleigu, siglingar og svo
framvegis.
„Það er því auðvelt að samtvinna
vinnu og skemmtun því fjölbreyttir
afþreyingarmöguleikar eru á þess-
um slóðum.
Auk þess eru skemmtikraftar í
sveitinni sem bæði sjá um kvöld-
skemmtanir og eru með uppákomur
eins og söng og annan tónlistar-
flutning.“
Kyrrðardagar
En þó að það geti verið hægt að
hafa ýmislegt fyrir stafni þegar gist
er á Hótel Heklu þá dreymir Sig-
rúnu um að vera með sérstaka
kyrrðardaga eftir áramót.
„Það er nefnilega líka svo gott að
slaka á í sveitinni, vinda af sér
stressið og hvílast. Á kyrrðardögum
hef ég hugsað mér að bjóða upp á
hollan og góðan mat, fallegar
gönguleiðir og vera með næðis-
stundir þar sem hugað er að innri ró
og kyrrð.“
Það er ýmislegt fleira sem Sigrún
og hennar fjölskylda eru með á
prjónunum og hún segir að lokum
að í framtíðinni verði boðið upp á
allt mögulegt á hótel Heklu, – allt
annað en þorrablót bætir hún við
sposk á svip.
Hótel Hekla
Skeiðum
801 Selfoss
Sími: 486 5540,
Fax: 4865640
Netfang: info@hotelhekla.is
Vefslóð: www.hotelhekla.is
Verð á gistingu á hótel Heklu
með morgunverði og kvöldverði
er frá 8.000 krónum á mann.
Sér Axel Árnason framkvæmdi húsblessun um síðustu helgi en þá afhjúpaði
Hjálmar Árnason einnig nafn hótelsins.
gudbjorg@mbl.is
Í haust verður á boðstólum villibráð-
arhlaðborð og jólahlaðborð þegar líður
að aðventu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2003 B 11
ferðalög
hreinsiklútar
fjarlægja andlits- og augnfarða á augabragði
Í hreinsiklútunum er andlitsvatn og kamilla, sem hefur róandi
og nærandi áhrif á húðina og viðheldur réttu rakastigi hennar.
Fást í apótekum og stórmörkuðum.
Dr. Fisher hreinsiklútarnir
eru ofnæmisprófaðir
og henta öllum húðgerðum.
ÞÚ VERÐU AÐ PRÓFA……………
4-in-1 Powder Foundation - Púðurfarða
Urban Decay púðurfarðinn er 4-í-1, hann er betri en nokkur annar sem við
höfum séð.
1.Hann er púður - burstaðu honum á.
2. Hann er mattandi púðurfarði - notaðu hann þurran
3. Hann er háþekjandi farði - notið hann með blautum svampi
4. Hann er svo léttur að húðin ljómar af fegurð og ver hana
gegn öllum skaðlegum efnum í umhverfinu.
Púðuragnirnar eru húðaðar með grænmetispróteini, þannig að ekkert ólífrænt
snertir húðina. Púðuragnirnar eru mjög fínmalaðar, þannig að púðrið fær ein-
staklega mjúka áferð, það klessist ekki og sest ekki í fínar línur eða hrukkur.
Farðinn gefur húðinni fallegan ljóma, ekki púðraða grímu. Púðrið er svo mjúkt
að þú gætir haldið að það væri krem við fyrstu viðkomu.
Útsölustaðir: Snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni, Skeifunni , Spönginni og Smáralind,
Snyrtihúsið Selfossi, Jara Akureyri, Silfurtorg Ísafirði, Callista Neskaupstað.
Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími: 11-18 mánudag-föstudags
12-16 laugardag
Gallabuxur,
bolir, peysur
full búð af
glæsilegum
fatnaði
Buchheim-listasafnið liggur norð-
ur af þorpinu Bernried í stórum
og fallegum garði sem er á bökk-
um Starnbergs-vatns rétt utan
við München. Á leiðinni gegnum
garðinn að safninu eru afar frum-
legir skúlptúrar eftir hina ýmsu
listamenn, sem njóta sín vel úti
undir berum himni í þessu
skemmtilega umhverfi.
Fjögur söfn í einu
Safnið er í eigu hins fjölhæfa
Lothar-Günther Buchheim sem
er bæði málari, ljósmyndari, út-
gefandi og safnari. Þetta er safn
sem listunnendur ættu ekki að
láta fram hjá sér fara. Segja má
að þetta séu fjögur söfn undir
sama þaki. Hér eru til sýnis mál-
verk, vatnslitamyndir, teikningar
og ýmis önnur verk eftir vel
þekkta listamenn í norðursalnum
og auk þess eru verk Buchheims
þar. Lothar-Günther byrjaði að
gera sirkuskarla úr tré og mála
sirkusmyndir á gler en hann fann
upp sérstaka tækni við að mála á
gler en líklega er hann best
þekktur fyrir málverkin sín á síð-
ari árum.
Hann er einnig mikill safnari
og hefur safnað mörgum munum
frá Afríku og Norður-Evrópu.
Það sem er hvað skemmtilegast
við þetta safn er fjölbreytni verk-
anna sem þar eru eftir bæði
þekkta og óþekkta listamenn frá
öllum heimshornum.
Safnið var hannað af Günther
Behnisch arkitekt og er bygging-
in mjög glæsileg og nýtur sín afar
vel í þessu fallega umhverfi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Buchheim-safnið í Þýskalandi hannað af Günter Behnisch arkitekt sem hannaði líka Ólympíuleikvanginn í München.
Buchheim-listasafnið í Þýskalandi
Frumlegt og fjölbreytt
Listunnendur og aðrir sem eru
á ferðalagi í og við München
ættu að bregða sér í heim-
sókn í Buchheim-listasafnið.
Brynjar Gauti Sveinsson
gekk um safnið.
Bucheim-listasafnið
Hirschgarten 1
82347 Bernried
Sími: 00 49 8158 - 99 70 20
Frekari upplýsingar um safnið
eru á vefslóðinni
www.buchheimmuseum.de
Frumlegur skúlptúr í garði safnsins, verk eftir Siegfried Ulmer.
Fótboltaliðið, eftir þýska listamannin Günther Schumann.