Morgunblaðið - 25.09.2003, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
ÁVÖXTUNARKRAFA hús-
bréfa hefur hækkað undanfarna
daga og var í gær komin í 4,58% á
40 ára bréfum. Greiningardeildir
Íslandsbanka og Landsbanka Ís-
lands telja að vöxtur útlána
Íbúðalánasjóðs og óvissan um
endurskipulagningu á íbúðalána-
kerfinu séu helstu orsakir hækk-
unar ávöxtunarkröfunnar að und-
anförnu.
Greining Íslandsbanka telur
jafnframt að vöxtur útlána Íbúða-
lánasjóðs skýri að hluta aukna
einkaneyslu í þjóðfélaginu.
Guðbjörg Anna Guðmunds-
dóttir, sérfræðingur hjá Grein-
ingu Íslandsbanka, segir að
óvissan um niðurstöðu endur-
skipulagningar á íbúðalánakerf-
inu hafi neikvæð áhrif á mark-
aðinn. Menn óttist að fyrir-
hugaðar breytingar muni hafa í
för með sér meiri útgáfu hús-
bréfa en markaðurinn þoli án
þess að til komi hækkun ávöxt-
unarkröfunnar.
Yfirverð á 40 ára húsbréfum
var í gær 2,60% og hefur lækkað
frá því það var hæst á þessu ári í
ágúst síðastliðnum. Yfirverðið
komst þá yfir 6% en ávöxtunar-
krafan fór þá niður fyrir 4,3%.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa hafði
þá ekki verið lægri síðan í febr-
úar árið 1999, en þá fór hún einn-
ig niður fyrir 4,3%.
Nafnvextir af húsbréfum eru
nú 4,75%. Ef ávöxtunarkrafa hús-
bréfa er undir því myndast yf-
irverð við sölu bréfanna á mark-
aði. Hins vegar koma fram afföll
við sölu þeirra ef ávöxtunarkraf-
an er yfir 4,75%.
Ávöxtunarkrafa 40 ára hús-
bréfa var í kringum 5% um síð-
ustu áramót. Hún fór að lækka er
komið var fram í apríl og fór síð-
an undir 4,75% í lok maí.
Mikilvægt að fara varlega
Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka í gær segir að hækk-
un ávöxtunarkröfu húsbréfa end-
urspegli mikið framboð og
væntingar um að endurskipu-
lagning íbúðalánakerfisins leiði
til aukins framboðs á skulda-
bréfamarkaði. „Þróun síðustu
daga sýnir glöggt hversu mikil-
vægt er að varlega verði farið í
útlánaaukningu Íbúðalánasjóðs
sem og að óvarlegt sé að byggja
slíka aukningu á væntingum um
fjárfestingar erlendra aðila í
framtíðinni,“ segir Íslandsbanki.
„Hækkun hámarksfjárhæðar
húsbréfalána upp í 18 milljónir
króna, í takt við frumtillögur fé-
lagsmálaráðherra frá því fyrr á
þessu ári, gæti hæglega leitt til
þess að langtímavextir hækki
umtalsvert.“
Greining Íslandsbanka segir
jafnframt að tölur sem sýna
aukningu einkaneyslu umfram
aukningu kaupmáttar síðustu
mánuði bendi til þess að neysla
heimilanna sé nú að hluta drifin
áfram af auknum lántökum. Á
síðustu 12 mánuðum hafi útlán
bankanna til einstaklinga, sem
voru um 200 millljarðar króna í
lok júlí, aukist um 1,2% að raun-
virði. Á sama tíma hafi útlán
Íbúðalánasjóðs, sem hafi numið
tæpum 420 milljörðum króna í
lok júlí, aukist um 10,0%. „Af
þessu má ætla að aukin neysla sé
nú að hluta fjármögnuð með rík-
istryggðum útlánum Íbúðalána-
sjóðs,“ segir Greining Íslands-
banka.
Í markaðsyfirliti Landsbanka
Íslands í gær segir að engar ný-
legar fréttir hafi borist að und-
anförnu, sem geti skýrt þá miklu
hækkun sem orðið hafi á ávöxt-
unarkröfu húsbréfa. Hækkunin
ætti að endurspegla væntingar
um vaxtahækkanir og veki því þá
spurningu hvort fjárfestar séu að
skipta um skoðun varðandi fram-
vinduna á komandi mánuðum.
„Að mati Greiningardeildar er
það m.a. mikil útgáfa hús- og hús-
næðisbréfa og óvissa í tengslum
við endurskipulagningu á hús-
næðiskerfinu sem eru orsaka-
valdar að þessu sinni,“ segir í
Markaðsyfirlitinu.
Greinignardeildin segir að
reynslan hafi sýnt að oft í kring-
um ársfjórðungslok, eins og nú
sé, hafi ávöxtunarkrafa húsbréfa
tekið að lækka og ávöxtun eig-
enda skuldabréfa þá vænkast.
Það sem vinni hins vegar hugs-
anlega gegn þessari þróun að
þessu sinni sé góð ávöxtun af inn-
lendum og erlendum hlutabréf-
um.
Í ágústmánaðarriti Greining-
ardeildar Landsbankans var birt
spá um þróun helstu markflokka
skuldabréfa. Þar var gert ráð fyr-
ir að ávöxtunarkrafa t.d. 40 ára
húsbréfa myndi sveiflast á bilinu
4,30-4,50% fram til áramóta.
„Greiningardeild sér ekki ástæðu
til þess að breyta þeirri spá og
telur að ávöxtunarkrafa hús- og
húsnæðisbréfa hafi hækkað um
of á undanförnum dögum og
væntir þess að krafan taki að
lækka á nýjan leik á komandi vik-
um,“ segir Greiningardeild
Landsbankans.
Vextir hækka vegna auk-
inna útlána Íbúðalánasjóðs
Einkaneysla hefur aukist í þjóðfélaginu að undanförnu. Greining Íslandsbanka telur að
aukin einkaneysla sé að hluta fjármögnuð með ríkistryggðum útlánum Íbúðalánasjóðs.
! " #
$ %
!
&'
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
VARHUGAVERT er að draga of víð-
tækar ályktanir um þróun fasteignaverðs,
eins og Íbúðalánasjóður gerði í mán-
aðarskýrslu sinni fyrir ágústmánuð. Þetta er
mat Greiningardeildar Landsbanka Íslands.
Greining Íslandsbanka kemst að svipaðri
niðurstöðu í umfjöllun um ágústskýrsluna og
segir að vangaveltur Íbúðalánasjóðs um þró-
un fasteignaverðs og hámark húsbréfalána
séu einungis leikur að tölum.
Í ágústskýrslu Íbúðalánasjóðs var því m.a.
haldið fram að fasteignaverð fylgi launaþró-
un en ekki þróun hámarkslána sjóðsins.
Komst sjóðurinn að þeirri niðurstöðu, að það
verði að teljast hæpin rök að gildi hámarks-
fjárhæða Íbúðalánasjóðs séu eins afgerandi í
efnahagslegu tilliti og látið hafi verið í ljós af
ýmsum hagsmunaaðilum.
Guðmunda Ósk Krisjánsdóttir, sérfræð-
ingur hjá Greiningardeild Landsbanka Ís-
lands, segir að ástæða sé til að hvetja til
vandaðri umræðu um málefni Íbúðalána-
sjóðs. Nauðsynlegt sé að hafa í huga að
margir þættir hafi áhrif á þróun fast-
eignaverðs. Ekki megi einfalda þá umræðu
um of, eins og gert hafi verið í ágústskýrslu
Íbúðalánasjóðs.
„Aukin umsvif Íbúðalánasjóðs, sem fyr-
irhuguð eru, munu leiða til aukinnar eft-
irspurnar eftir íbúðarhúsnæði,“ segir Guð-
munda. „Aukin eftirspurn hefur áhrif til
hækkunar á fasteignaverði. Hámarkslán
Íbúðalánasjóðs hafa því klárlega áhrif á fast-
eignaverð að öllu óbreyttu, eins og reyndar á
við um marga aðra þætti.“
Stöðvun eignabólu
Í maí síðastliðnum var því haldið fram í viku-
ritinu Economist, að afleiðingarnar af mikilli
hækkun fasteignaverðs geti verið af-
drifaríkari en afleiðingarnar af verðbólu á
hlutabréfamarkaði. Economist fjallaði þá
einnig um hvaða möguleika stjórnvöld hafa
til að stöðva myndun eignabólu, t.d. með því
að setja mörk á veðsetningarhlutföll fast-
eigna. Guðmunda segir að þetta sé í beinni
andstöðu við það sem íslensk stjórnvöld
hyggist gera. Ástæða sé til að taka tillit til
þessara ábendinga Economist.
H Ú S B R É F
Umræðan
verði
vandaðri
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Hver ber ábyrgð?
Ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda 2
Maritech og Microsoft
Maritech er að hefja samstarf við Microsoft 12
ERFITT AÐ EINKAVÆÐA
ÚR ENGU