Morgunblaðið - 28.09.2003, Qupperneq 8
8 C SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Byggingaverka-
menn
Vegna aukinna verkefna
óskar JB Byggingafélag eftir
að ráða byggingaverkamenn
Nánari upplýsingar gefur Páll Ró-
bert Matthíasson í síma 693 7014.
Umsóknir berist á skrifstofu JB
Byggingafélags, Bæjarlind 4.
Einnig er hægt að sækja um á
heimasíðu félagsins www.jbb.is.
Hjá JB Byggingafélagi er boðið
upp á góða starfsaðstöðu og líf-
legt starfsmannafélag.
Næg verkefni eru framundan.
JB Byggingafélag,
Bæjarlind 4, s. 544 5333.
Þjónn óskast
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir/upplýsingar: hafidblaa@hafidblaa.is
eða s. 4831000, 822 8283, 866 5870, 892 0367.
!
"
"
#
$
%
&
%
'%
"
( )
" * +(,+*
& %
- %. /
%
0
Gröfumenn
— hellulagningamenn
Mottó ehf. óskar eftir vönum gröfumönnum.
Einnig vönum hellulagningamönnum sem
þurfa að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar
í síma 566 8255 virka daga frá kl. 9.00-15.00.
Umsóknareyðublöð á skrifstofunni og á motto.is
Mottó ehf.,
Flugumýri 24, Mosfellsbæ.
Norðurberg
Leikskólakennari óskast á leikskólann Norðurberg.
Í skólanum er lögð áhersla á umhverfismennt og
hefur skólinn fengið viðurkenningar er lúta að
þeirri stefnu.
Um er að ræða 100% starf og allar upplýsingar
veitir leikskólastjóri, Anna B. Harðardóttir í síma
555 3484/664 5851.
Öldutúnsskóli
Skólaliða (50%) vantar í Öldutúnsskóla.
Upplýsingar veitir skólastjóri, Helgi Þór Helgason í
síma 555 1546.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í
fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá
bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af
hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuð-
borgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði.
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Starfsfólk
Vegna mikilla anna óskum við eftir að
ráða í hóp okkar góða starfsfólks:
Framreiðslumenn.
Aðstoðarfólk í sal.
Starfsfólk í fatahengi.
Starfsfólk í miðasölu (dagvinna).
Tæknimenn/hljóð.
Aðstoðaryfirþjón.
Krafist er:
Reglusemi og stundvísi.
Snyrtimennsku.
Umsóknir sendist á www.broadway.is
Upplýsingar í síma 533 1100 frá kl. 12-17
virka daga, Gunnar eða Harpa.
Broadway,
Ármúla 9, 108 Reykjavík,
sími 533 1100,
netfang: broadway@broadway.is
Starfsfólk
á næturvakt óskast
Vantar duglegt fólk á næturvakt á skyndibita-
stað í miðborg Reykajvíkur. Vaktirnar eru frá
kl. 22.00—06.00 föstudaga og laugardaga.
Umsóknir berist auglýsingadeild Mbl. eða í
box@mbl.is merktar: „S — 14264“
Hjúkrunarheimili
Hlutastarf
Vinnustofa óskar eftir starfsmanni í 50%—60%
starf. Vinnutími frá kl. 9:30 til 16:00, breytilegur
samkvæmt samkomulagi innan þessa marka.
Í vinnustofu fer fram fjölbreytt starfsemi eins
og föndur, hannyrðir, upplestur, söngur, spil,
og ýmislegt fleira.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær er fyrir einstakl-
inga sem þurfa sólahrings umönnun og stuðn-
ing við að lifa farsælu lífi þrátt fyrir fötlun og
sjúkdóma. Skógarbær er fyrir 81 sjúkling og
skiptist í 6 litlar einingar. Unnið er við heimilis-
legar aðstæður í fallegu húsnæði.
Óskað er eftir glaðværum hugmyndaríkum
og samvinnuþýðum starfsmanni sem hefur
áhuga á að vinna með öldruðum. Æskilegt er
að viðkomandi hafi reynslu af svipuðu starfi.
Nánari upplýsingar gefur María Kristjánsdóttir,
yfirsjúkraþjálfari, í síma 510 2108 milli
kl.10.00—12.00 virka daga.
Ráðgjafar
Við leitum að 2—3 einstaklingum til framtíðar-
starfa, sem hafa reynslu af ráðgjafar- og sölu-
störfum, eru áræðnir og vanir að starfa sjálf-
stætt. Þetta er krefjandi starf sem býður upp
á mikla möguleika.
Reynslan hefur sýnt, að starf sem þetta hentar
ekki síst konum og karlmönnum á miðjum aldri.
Einnig leitum við að einstaklingum í síma-
kynningar.
Umsóknum skal skilað til auglýsingadeildar Mbl.,
merktum: „Ráðgjafar — 14253“ eða
„Símakynning — 14253, eða senda umsókn á
sigurdur@allianz.is, fyrir 9. október nk.
Mikil verkefni framundan.
Um Allianz
Tryggingafélagið Allianz var stofnað í Berlín 5. febrúar 1890.
Frá fyrsta degi hefur starfsemi félagsins verið samfelld sigurganga
á tryggingamörkuðum í Þýskalandi og um allan heim.
Í dag er Allianz stærsta tryggingasamsteypa veraldar með starfsemi
í 77 þjóðlöndum, 113 þúsund starfsmenn og um 60 milljónir við-
skiptavina.
Allianz - söludeild
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
sími 595 3400 — www.allianz.is