Morgunblaðið - 08.10.2003, Qupperneq 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
HJÓLIN undir farartækinu eru fjögur en samt
telst þetta vera mótorhjól og kallast Dodge
Tomahawk. Þetta er eitthvert grófgerðasta og
aflmesta mótorhjól sem búið hefur verið til en
það er ekki komið á markað og verður líklegast
aldrei markaðssett. Hjólið skilar 500 hestöflum
og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða er 2,5
sekúndur og hámarkshraði talinn vera 480 km
á klst, þ.e.a.s. ef sá maður finnst sem getur
staðfest þessar tölur með akstri. Hjólið er smíð-
að utan um V10 vélina, þá sömu og er að finna í
Viper ofursportbílnum. Slagrýmið er 8,3 lítrar.
Hjólið var frumsýnt á bílasýningunni í Detroit
snemma á þessu ári og nú hefur verið sér-
smíðað annað hjól fyrir ónefnda sérverslun ríka
fólksins í Dallas. Hægt er að kaupa eftirlíkingu
af hjólinu fyrir 550.000 dollara en hana er ekki
hægt að keyra heldur er um að ræða nokkurs
konar skúlptúr.
Tomahawk
sem skúlptúr
Hugmyndahjólið Tomahawk er það öflugasta sem smíðað hefur verið. Hjólið er smíðað utan um V10 vélina úr Viper.
ÞAÐ stefnir í að tekjur
ríkissjóðs af bílum og
bílanotkun aukist um á
þriðja milljarð króna
miðað við forsendur
fjárlaga.
Álögur á bílaeigend-
ur hækka annars veg-
ar í formi vörugjalda á
bensín og hins vegar
með hækkun á þunga-
skatti. Samanlagt er
áætlað að tekjur ríkis-
ins af þessum hækkun-
um aukist um rúman
milljarð króna fyrir ut-
an virðisaukaskatt.
Árið 1999 var al-
mennt vörugjald af
bensíni ákvarðað 10,5 krónur.
„Við töldum á þeim tíma að eðli-
legt hefði verið að leggja 8,75 krónur
á lítrann miðað við þær tekjur sem
ríkið hafði haft af almennu vöru-
gjaldi af bensíni. Þegar talað er um
að hækkunin sé aðeins
8% á meðan hækkun
vísitölu á þessum tíma-
bili hafi verið 18% þá er
það ekki raunhæf við-
miðun. Þetta almenna
gjald hækkar úr 10,5
krónum í 11,35 krónur.
Hið sérstaka vörugjald
á bensín, eða bensín-
gjaldið sem er eyrna-
merkt til vegamála, var
28,60 krónur og hækkar
í 30,90 krónur. Hækkun
á þeim gjöldum sem
ríkið leggur á bensínið
er því 3,15 aurar og of-
an á þetta bætist virð-
isaukaskattur. Heildar-
hækkunin er því nálægt 4 krónur á
hvern lítra. Þetta fer beint út í verð-
lagið,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda.
Miðað við um 20.000 km akstur á
ári þýðir þessi hækkun því á bilinu
8–12 þúsund krónur að meðaltali á
ári. Til þess að hafa þetta í afgang
þurfa tekjur að aukast um 20.000
krónur.
Runólfur segir að þessi hækkun
valdi um 0,12% hækkun á neyslu-
verðsvísitölunni.
Hækkun á þungaskatti nemur um
400 milljónum króna á ári. Í fjárlög-
um var miðað við að tekjur ríkissjóðs
á yfirstandandi ári af vörugjöldum á
ökutæki yrðu 3,2 milljarðar króna.
Ný áætlun gerir ráð fyrir 4 milljörð-
um kr. í tekjur, eða hækkun upp á
800 milljónir kr. vegna aukinnar
bílasölu.
„Þarna er á ferðinni stóraukin
skattheimta á bílaeigendur í land-
inu,“ segir Runólfur.
Áætlaðar skatttekjur hins opin-
bera af ökutækjum og ökutækja-
notkun stefnir í að verða um 32 millj-
arðar króna og hækka þær því um á
þriðja milljarð króna.
Álögur á bíla aukast
um á þriðja milljarð
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB.
Í TILEFNI af 25 ára afmæli Vélhjólaíþróttaklúbbsins, (VÍK), hafa tveir af
fremstu glæfrastökkvurum Evrópu, Fredrik Johansen og Fredrik „Frog“
Berggren, verið fengnir til að koma til Íslands og sýna gáskafulla loftfimleika
á torfæruhjólum. Sýningin felst í því að stökkva sem hæst á risastórum
stökkpalli og gera glæfraleg áhættuatriði áður en lent er aftur. Valdimar
Þórðarson, einn allra besti glæfrastökkvari landsins, mun einnig taka þátt í
sýningunni.
Sýningin hefst kl. 13.30 á laugardag og fer fram á Valsvellinum við Hlíð-
arenda. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu VÍK, www.motocross.is.
Svona gera menn í glæfrastökkvum.
Sænskir glæfra-
stökkvarar sýna listir
EINN af athyglisverðari hugmyndabílunum sem sýndir
voru á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt í síðasta mán-
uði var Skoda Roomster. Hugmyndin gengur út á lítinn
borgarbíl sem er bæði sparneytinn og rúmgóður en líka
dálítið sportlegur. Nafnið er dregið af ensku orðunum ro-
om og road(ster), eða rými og tveggja dyra sportlegum
bíl. Bíllinn er afar nýstárlegur að innan og með því ætlar
Skoda að setja nýjan staðal meðal lítilla borgarbíla. Þarna
á að vera gott pláss og mikill fjölbreytileiki í notkun. Ro-
omster er engu að síður 4,06 metra langur en ætti að
henta vel í þéttri borgarumferð. Undirvagninn er líka
splunkunýr og styttra í að menn fái að kynnast honum því
sagt er að hann verði líka undir nýjum VW Tupi, sem leysir
Lupo af hólmi, og er væntanlegur á markað sumarið
2005.
Skoda Roomster
Innanrými á að setja nýjan staðal.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Roomster á sama undirvagni og væntanlegur smábíll VW.
Skoda Roomster er athyglisverður hugmyndabíll.