Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.10.2003, Blaðsíða 12
12 C MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Álfaheiði - 4ra herb. Til sölu mjög góð 139 fm 4ra herb. íbúð með sérinn- gangi, á tveimur hæðum. Bílskúr með millilofti. Parket og flísar á gólfum. Mikið og gott útsýni. Verð 19,9 millj. Póstnr. 200 2ja-3ja herbergja Njálsgata - Einstaklingsíbúð Vel skipulögð samþykkt einstaklingsíbúð á þessum góða stað, eldhúskrókur og baðherbergi. Verð 4,5 millj. Póstnr.101 Sólheimar - 2ja herb. Mjög góð og vönduð 2ja herb. íbúð sem nýlega var standsett, vandaðar innréttingar og gólf- efni, sérinngangur. Verð 10,5 millj. Póst- nr. 104 Laugarnesvegur - 3ja herb. Mjög góð ca 80 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi á þessum góða stað. Nýleg falleg eldhúsinnrétting, góð gólfefni. Hús í mjög góðu viðhaldi. Verð 11,5 millj. Orrahólar - 3ja herb. Snyrtileg 3ja herbergja íbúð með miklu útsýni og stórum suð-vestursvölum, rúmgóð her- bergi, hús nýlega yfirfarið að utan og góð sameign. Póstnr. 111 4ra-6 herbergja íbúðir Forsalir - Bílageymsla Til sölu ný 110 fm 4ra herb. íbúð á 5. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu. Góðar innréttingar frá HTH, parket og flísar á gólfum. Íbúðin er með tvennum svölum og stæði í bíla- geymslu. Póstnr. 201 Kristnibraut - Nýtt - Lyftu- hús Ný 4ra herb. íbúð á þessum frá- bæra stað, verður afhent í október 2003. Póstnr. 113 Engjasel - 4ra herb. Góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bíla- geymslu. Barnvænt hverfi, fallegt útsýni, góðar innréttingar, flísalagt baðherbergi, sólríkar svalir. Laus fljótlega. Póstnr. 109. Kristnibraut - 4ra herbergja Vönduð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu í litlu fjöl- býlishúsi. Vandaðar innréttingar, mjög mikið og fallegt útsýni. Verð 17,8 millj. Naustabryggja 12-18-20-22 - NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“- íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og í þvottahúsi verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum. „Penthouse“-íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bílageymslur fylgja öllum íbúðum. Að utan verða húsin álklædd. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppl. hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110 Nýjar og vandaðar 2ja til 6 herbergja íbúðir. Íbúðirnar verða frá 81 fm upp í 147 fm með rúmgóðum suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum inn- réttingum með möguleika á stæði í bílageymslu. Öllum íbúðum fylgir sérþvottahús. Að utan verður húsið álklætt. Afhending í maí 2004. Byggingaraðili er Byggingafé- lag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfest- ingar. Póstnr. 113 Kirkjustétt 15-21 - Grafarholti - NÝTT NÝTT Höfum hafið sölu á vönduðum og rúmgóðum 3ja og 4ra herb. íbúðum í 15 hæða álklæddu fjölbýlishúsi. Í húsinu verða 2 lyftur, sjónvarpsdyrasími, vand- aðar innréttingar og möguleiki á stæði í bílageymslu. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla verslun og þjónustu. Byggingaraðili er Bygginga- félag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönn- um Fjárfestingar. Póstnr. 201 Rjúpnasalir 14 – Glæsilegt álklætt lyftuhús Vantar eignir fyrir kaupendur – Mikil sala Seljendur hafi samband við sölumenn okkar Atvinnuhúsnæði - Til leigu Hlíðasmári 11 Nýtt og fallegt hús- næði. Hentar vel fyrir skrifstofur, verslun eða þjónustu. Stærðir frá 150-350 fm. Síðumúli 24-36 Nýtt skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Stærðir frá 150- 300 fm með stórum gluggum, innréttað að óskum leigutaka. Mörkin 4 Mjög glæsilegt og fullinn- réttað ca 340 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, sem hægt er að skipta niður í tvær einingar. Vegmúli 2 Fallegt og gott atvinnu- húsnæði á góðum stað. Stærðir frá 50- 300 fm. Askalind 2 Mjög glæsilegt 215 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði með innkeyrsluhurð. Fullbúið með tölvulögn- um og lýsingu. Stutt frá Smáralindinni. Einbýli, parhús og raðhús Vesturholt - Hf. Fallegt og einstakt 213,8 fm einbýlishús á 3 hæðum á frá- bærum stað. Fallegt útsýni, glæsilegar innréttingar, falleg gólfefni, stór innbyggð- ur bílskúr og góðar geymslur. Póstnr. 220 Brúnastaðir - Einbýli Til sölu mjög gott og vandað 191 fm nýtt og mjög fallegt einbýlishús á einni hæð ásamt stór- um flísalögðum bílskúr. Parket og flísar á allri íbúðinni, fallegar innréttingar. Póstnr. 112 Prestbakki - Raðhús Gott palla- byggt raðhús með innbyggðum bílskúr. Mjög vel skipulagt hús, möguleiki á að hafa litla aukaíbúð með sérinngangi. Verð 21 millj. Póstnr. 109 Dalatangi - Einbýli Mjög stórt 414 fm vandað tvílyft einbýlishús með tvöföld- um bílskúr. Húsið skiptist í stórar stofur, svefnherb., eldhús, bað o.fl. á efri hæð, en í kjallara er stúdíó-íbúð eða 5 stór svefn- herb. Einnig er vinnuaðstaða undir bílskúr. Gróinn garður með stórri verönd ásamt heitum potti. Verð 33,5 millj. Póstnr. 270 Langamýri - Einbýli Mjög gott 210 fm einbýli á einni hæð með innbyggð- um bílskúr. Fallegar innréttingar, flísar og parket á gólfum. Húsið mjög vel umgeng- ið og í góðri umhirðu. Stór sólpallur og heitur pottur. Verð 29,9 millj. Póstnr. 210 Rauðagerði - Einbýli Sérlega vandað 297 fm pallabyggt einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Parket og flísar á gólfum, vandaðar innréttingar. Húsið fal- legt utan sem innan. Garður í mikilli og góðri rækt. Verð 35 millj. Póstnr. 108 Sérhæðir Miklabraut Komin er á sölu skemmti- leg sérhæð í þríbýlishúsi ásamt aukaher- bergi í kjallara. Allar endurbætur innandyra hafa verið gerðar sl. 2 árum Húsið að utan og þak í góðu standi. Póstnr. 105 ÞÆR Margrét Jónsdóttir leirlista- kona og systurnar Oddrún og Bryn- dís Magnúsdætur skartgripahönn- uðir og mósaíklistakonur eru allar komnar með vinnustofur á Gránu- félagsgötu 48 á Akureyri – niðri á Tanga eins og það er kallað þar nyrðra. Þær ráku áður lítið gallerí sem hét Skrautla í göngugötunni á Ak- ureyri og muna eflaust ýmsir eftir þeirri verslun, en hún er nú aflögð í þeirri mynd sem hún var. „Ég var búin að vera í tvö ár með mitt leirverkstæði hér í Gránu- félagsgötu og hugmyndin var alltaf að hafa helst undir sama þaki gallerí og vinnustofu. Nú er svo komið að Oddrún er að útbúa sér verkstæði í þessu húsi líka svo við ákváðum að láta reyna á hvort fólki kæmi ekki að heimsækja okkur þótt við færum úr miðbænum,“ segir Margrét. Hún er menntuð í leirlist frá Dan- mörku en fæddist og ólst upp á Ak- ureyri. „Ég var í nokkur ár í Danmörku í námi, eitt ár var ég í Kaupmanna- höfn, nokkurn tíma á Borgundar- hólmi en fjögur ár í Kolding á Jót- landi. Danir eru mjög framarlega í allri hönnun og líka í handverki. Ég tel að það hafi verið mér lán að hafa lært þar og fengið svo góða aðstöðu sem boðið var upp á þar í skólanum. Þegar heim kom setti ég upp verkstæði og hef unnið við list mína hér síðan.“ Hvað ertu helst að búa til? „Ég fæst við mjög mismunandi hluti. Þegar markaðurinn er lítill eins og er hér á Íslandi þarf maður að vera opinn fyrir að takast á við fjölbreytt verkefni. Ég geri bæði stærri listmuni og nytjahluti og fæst við flísagerð og ég hef einnig fengið nokkur verkefni við listskreytingar. Ég hef gert skírnarfonta og ótal- margt annað úr leir. Þær Oddrún og Bryndís hafa að- allega fengist við mósaíklist und- anfarin ár vegna aðstöðuleysis við skartgripasmíðina en nú stendur það til bóta þar sem þær eru að koma sér upp verkstæði sem fyrr sagði. Þær hafa gert hluti eins og spegla, krossa, skálar, borð og ýmislegt fleira. Þær stefna nú á að smíða skartgripi úr ýmsum málmum.. „Það er alltaf áhugi fyrir vel unnum og fallegum hlutum. Nú erum við að undirbúa það sem við köllum okkar á milli jóloft, hér á efri hæðinni er risloft og þar ætlum við að hafa jólamarkað þegar nær dregur jólum.“ Leirlist og mósaík niðri á Tanga Morgunblaðið/Guðrún Guðlaugs Leirskál eftir Margréti Jónsdóttur. Stjakarnir á myndinni eru eftir Margréti Jónsdóttur en mósaíkið er verk þeirra Oddrúnar og Bryndísar Magnúsdætra. Morgunblaðið/Kristján Margrét Jónsdóttir leirlistakona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.