Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 9
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 B 9 JUWAN Howard, framherji NBA- liðsins Orlando Magic, segir við ESPN-fréttastofuna að þungu fargi hafi verið af sér létt eftir að hann gaf frá sér 1155 millj. af þeim samn- ingi sem hann gerði árið 1996 við Washington Wizards. Howard segir að samningurinn sem hann gerði árið 1996 hafi allt frá þeim tíma verið myllusteinn um háls hans. „Það var alveg sama hvað ég gerði á vellinum, það var aldrei nóg. Þrátt fyrir að ég hafi verið einn af stöðugustu leikmönnum NBA-deildarinnar undanfarin ár fékk ég alltaf að heyra gagnrýn- israddir. Það tók á og gerði mér erfitt fyrir,“ segir Howard sem fær aðeins 385 millj. kr. fyrir að leika með Orlando í vetur og hefur aldrei verið ánægðari. Howard lék á árunum 1994-2000 með Washington, þaðan lá leið hans til Dallas en hann staldraði stutt við þar og hefur leikið undanfarin tvö ár með Denver Nuggets. Leikmað- urinn hefur skorað að meðaltali 18 stig í leik undanfarin 9 ár og tekið um 8 fráköst í leik. Doc Rivers, þjálfari Orlando, er afar ánægður með hugarfar leik- mannsins sem hafi aldrei notið sannmælis allt frá því að hann gerði „risasamninginn“ við Washington árið 1996. „Hver myndi slá hend- inni á móti því að fá launahækkun? Howard gerði það sem allir aðrir í hans stöðu hefðu gert.“ Howard gaf eftir 1,2 milljarða í launum ÍR-ingar höfðu frumkvæðið nánastfrá byrjun leiksins en Keflvíking- ar voru aldrei langt undan því mun- urinn á liðunum varð aldrei meiri en ellefu stig. Eftir fyrsta leik- hluta voru liðin jöfn 25:25. ÍR-ingar skor- uðu fyrstu ellefu stigin í öðrum leik- hluta og það var munurinn á liðunum er flautað var til leikhlés, staðan 62- 51. Eins og sést á stigaskorinu þá voru varnir liðanna fremur slakar í fyrri hálfleiknum þrátt fyrir mikla baráttu og góðan vilja. Eiríkur fór fyrir sínum mönnum og skoraði sex- tán stig í þessum leikhluta og alls 21 í fyrri hálfleik. Derrick Allen skoraði einnig grimmt fyrir gestina eða alls 22 stig í hálfleiknum. Keflvíkingar söxuðu heldur á forskotið í þriðja leikhluta og var forysta ÍR aðeins þrjú stig fyrir síðasta leikhlutann. Kevin Grandberg fékk sína fimmtu villu er fjórar mínútur lifðu af 3. leik- hluta og hélt þá undirritaður að Ís- landsmeistararnir myndu ganga á lagið. Það varð þó ekki raunin þrátt fyrir að Grandberg hefði sýnt mikla baráttu í leiknum, því ungu leik- mennirnir í liði ÍR héldu uppi merk- inu. Síðasti leikhlutinn var fjörugur og skemmtilegur eins og hinir fyrri en heimamenn héldu haus og inn- byrtu fjögurra stiga sigur. Leikurinn var í járnum á lokamínútunum og Keflvíkingar hefðu hæglega getað stolið sigrinum en það átti ekki fyrir þeim að liggja að þessu sinni. Eins og fyrr segir var mikil barátta í leiknum og yfirgáfu sex leikmenn völlinn með 5 villur, þrír í hvoru liði. Auk þess fékk Keflvíkingurinn Jón N. Haf- steinsson tvær tæknivillur í 2. leik- hluta fyrir kjaftbrúk. ÍR-liðið á hrós skilið fyrir frammistöðuna í gær, sér- staklega var sóknarleikurinn góður. Frammistaða Eiríks var með ólíkind- um en Grandberg gaf tóninn fyrir lið- ið með baráttu sinni og tók mikið af fráköstum á meðan hans naut við. Reggie Jessie var drjúgur í fyrri hálf- leik, en framlag hans í síðari hálfleik var nánast ekkert. Ungu strákarnir hjá ÍR sýndu að þeir eru tilbúnir og geta tekið af skarið þegar á þarf að halda. Leikur Íslandsmeistaranna var nokkuð frábrugðinn því sem ver- ið hefur á undanförnum árum þar sem mikill hraði og 3 stiga skot hafa verið alls ráðandi. Það er kannski eðlilegt þar sem liðið hefur nú innan borðs tvo hávaxna Bandaríkjamenn sem athafna sig mest nálægt körf- unni. Derrick Allen átti frábæran leik og skoraði 40 stig en fékk sína 5. villu þegar 2 mín. og 20 sek. voru eftir. Nick Bradford var sterkur í síðari hálfleik, en hafði hægt um sig í hinum fyrri. Sama má segja um Magnús Gunnarsson. Falur Harðarson skor- aði mikilvægar körfur í fyrri hálfleik en náði ekki að fylgja því eftir í þeim síðari. „Heimaleikir okkar við Keflavík hafa alltaf verið hörkuleikir og það var raunin í kvöld,“ sagði Eiríkur Ön- undarson, hetja ÍR-inga að leik lokn- um. Við mættum þeim fimm sinnum á síðustu leiktíð og þeir slógu okkur bæði út úr deild og bikar. Það er frek- ar stutt síðan þeir unnu okkur í úr- slitakeppninni og við áttum harma að hefna. Auk þess lék einn af okkar leikmönnum (Grandberg) með Kefla- vík í fyrra og hann kom dýrvitlaus í leikinn, enda okkar mesti baráttu- hundur og hann dregur menn með sér.“ Eiríkur benti á að breiddin í liði ÍR er meiri en oft áður. „Það sýndi sig í kvöld að breiddin er góð hjá okk- ur og fer vaxandi. Það voru mjög ungir strákar að skora mikilvæg stig fyrir okkur í kvöld, þegar Grandberg og Jessie voru farnir af velli.“ Spurð- ur um sína frammistöðu sagði Eirík- ur: „Maður vill auðvitað standa sig gegn Íslandsmeisturunum og þessi frammistaða sparkar í rassinn á manni og hvetur mann áfram.“ Morgunblaðið/Þorkell Kevin Grandberg lét mikið að sér kveða undir körfunni í liði ÍR gegn sínu gamla liði, Keflavík. Eiríkur óstöðvandi ÍSLANDSMEISTARAR Keflvíkinga í körfuknattleik karla sóttu ekki gull í greipar ÍR-inga í Seljaskólanum í gærkvöldi þegar liðin mætt- ust í 2. umferð Intersport deildarinnar. Þvert á móti sigruðu ÍR- ingar, 111:107, í bráðfjörugum leik sem bauð upp á mikla skemmt- un fyrir áhorfendur. Eiríkur Önundarson átti sannkallaðan stórleik í liði heimamanna og skoraði hvorki fleiri né færri en 45 stig í leikn- um, auk þess að stjórna leik sinna manna af röggsemi. Mikill hiti var í leikmönnum og voru sjö leikmenn útilokaðir frá leiknum áður en yfir lauk. Kristján Jónsson skrifar EKKERT varð af leik KFÍ og Tindastóls í Intersportdeild karla í gær þar sem að flugvél með dómurum leiksins innan- borðs var snúið við yfir Skut- ulsfirði vegna þoku, en Tinda- stólsmenn fóru landleiðina frá Sauðárkróki og voru mættir til leiks á réttum tíma. Bæði kvenna- og karlalið Tindastóls fóru til Ísafjarðar að þessu sinni og lenti hóp- ferðabifreið þeirra í umferð- aróhappi á leiðinni. Fólksbifreið var ekið inn í hlið hópferðabifreiðarinnar rétt utan við Vestfjarðagöngin en engin meiðsli urðu á fólki. Kvennalið Tindastóls tapaði leiknum gegn KFÍ, 50:26, en kvennaliðið verður að bíða eft- ir að leik karlaliðsins ljúki í kvöld til þess að geta farið heim á leið. Halldór Ingi Steinsson, for- maður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir á heimasíðu félagsins að menn þar á bæ séu „saltvondir“ vegna þess að dómarar leiksins hefðu ekki komið sér á áfangastað með fyrri áætlunarvél gærdagsins. Tinda- stóll í kröppum dansi  ÓÐINN Árnason skoraði 10 stig ogtók 8 fráköst á þeim 18 mínútum sem hann lék fyrir Ulriken Eagles þegar liðið sigraði Kongsberg Penguins, 99:87, í norsku úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í gær. Óðinn og félagar hafa unnið alla þrjá leiki sína í deildinni.  ANDREA Pirlo skoraði sigurmark AC Milan á móti Lazio í kvöldleiknum í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í gær. Pirlo, sem fyrir helgina gerði nýjan fimm ára samning við Mílanó- liðið, skoraði markið á 37. mínútu og þar við sat. AC Milan og Juventus eru efst og jöfn á toppnum með 17 stig.  LEMGO vann 19 marka sigur á ítalska liðinu Conversano, liðinu sem Guðmundur Hrafnkelsson lék með, í Meistaradeild Evrópu í handknatt- leik um helgina. Lemgo hafði mikla yfirburði og sigraði, 41:22.  ÞAÐ er greinilegt að hollenski landsliðsmaðurinn Ruud van Nist- elrooy hjá Manchester United hefur talað fyrir daufum eyrum Dick Ad- vocaat, landsliðsþjálfara, er hann sagðist vona að hann yrði valinn á ný í landslið Hollands sem leikur tvo leiki gegn Skotlandi um farseðil á EM í Portúgal.  VAN Nistelrooy var settur út úr landsliðshópnum á dögunum, eftir að hann sýndi óánægju er hann var tek- inn af leikvelli í leik gegn Tékklandi í Evrópukeppninni. Hann var ekki val- inn til að leika með Hollandi Evrópu- leik gegn Moldavíu á dögunum.  DICK Advocaat telur að Van Nist- elrooy geti ekki leikið í sama liði og Patrick Kluivert, leikmaður Barce- lona. „Patrick og Ruud koma ekki til með að leika saman í liði aftur,“ sagði Advocaat við Sunday Mirror.  FYRIR framan 10 þúsund áhorf- endur unnu Brasilíumennirnir Ric- ardo og Emanuel sigur á Heims- meistaramótinu í sandblaki í karlaflokki. Keppnin fór fram í Bras- ilíu. Ricardo og Emanuel lögðu Dax Holdren og Stein Metzger í úrslita- leiknum, 21.18, 21:15, en þeir eru Bandaríkjamenn.  BENJAMIN og Marcio Araujo frá Brasilíu fengu þriðju verðlaun án þess að leika en mótherjar þeirra gátu ekki mætt til leiks vegna meiðsla.  FABIEN Barthez er mjög ánægður að vera kominn í herbúðir franska liðsins Marseille en frá því var gengið um helgina að Manchester United lánar markvörðinn yfir til Frakk- lands í níu mánuði. „Ég hef miklar taugar til Marseille en þar má segja að ferill minn hafi byrjað. Ég óskaði mér alltaf að koma hingað aftur.“  DENNIS Wise, sem fyrir helgina var tímabundið ráðinn stjóri Millwall var ekki góð fyrirmynd fyrir leik- menn liðsins en Wise fékk að líta rauða spjaldið þegar Millwall beið lægri hlut yfir Sheffield United. FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.