Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 12
JÓN Arnór Stefánsson fékk ekki að spreyta sig hjá Dallas Mavericks aðfaranótt sunnudags þegar liðið átti í höggi við Philadelphia 76’ers í æfingaleik sem fram fór í Dallas. Gestirnir höfðu betur 102:99. Don Nelson þjálfari liðsins segir við dagblaðið Star Telegram að mikið myndi mæða á leikstjórnend- unum Steve Nash og Travis Best í vetur, þar sem þeir Nick Van Exel og Avery Johnson væru farnir frá liðinu. „Það er gott að hafa þriðja leikstjórnandann til reiðu ef það koma upp meiðsli í þessari stöðu – þá geta skapast vandamál,“ segir Nelson. Daniels er skrefinu á undan Jóni Hann bætir því við að ef hann ætti að velja á milli þeirra Marguis Daniels eða íslenska landsliðs- mannsins, Jóns Arnórs Stef- ánssonar, þá væri Daniels skrefinu á undan eins og staðan væri í dag. Tékkneski landsliðsmaðurinn Jiri Welsch hefur ekki blandað sér í þessa baráttu þar sem hann hefur leikið í hlutverki skotbakvarðar það sem af er undirbúnings- tímabilsins. NBA-deildin hefst þann 28. októ- ber þar sem Dallas leikur á útivelli gegn Los Angeles Lakers, en fram- undan eru þrír undirbúningsleikir. Sá fyrsti fór fram í San Antonio seint í gærkvöld þar sem Dallas átti í höggi við meistaralið sl. árs Spurs. Á þriðjudagskvöld 21. okt. fær Dallas lið Sacramento Kings í heim- sókn og síðasti leikurinn á und- irbúningstímabilinu er á útivelli gegn Sacramento Kings þann 22. okt sem er miðvikudagur. Í lið Dallas vantaði í nótt „stjörnu“ liðsins Dirk Nowitzki sem er meiddur á ökkla og í lið 76’ers vantaði einnig fyrirliðann Allen Iverson og Kenny Thomas. Antawn Jamison skoraði mest í liði Dallas, 25 stig. Nelson segir Jón vera skrefinu á eftir keppinauti sínum Við töpuðum reyndar úrslita-leiknum, 6:15 og 3:15, gegn stelpum frá Rússlandi en þær eru bestar í heimalandi sínu og nánast öruggar inná Ól- ympíuleikana. En við erum samt sem áður ánægðar með hvernig við stóðum okkur,“ sagði Ragna. Þær kepptu einnig í einliðaleik en fengu erfiða andstæðinga í fyrstu umferð. „Ég tapaði gegn þeirri sem endaði í öðru sæti á þessu móti og Sara tapaði gegn japanskri stelpu sem komst í und- anúrslit. Reyndar höfum við báðar unnið þessa sem ég tapaði fyrir áð- ur, en það gekk ekki upp að þessu sinni.“ Það verður nóg að gera hjá þeim stöllum á næstu vikum en um næstu helgi taka þær þátt í A-móti í Miami í Bandaríkjunum og helgina þar á eftir tekur við mót í Ungverjalandi. Fyrstu helgina í nóvember fer síðan fram alþjóðlegt mót á Íslandi, A-mót. „Við reynum að taka aðeins þátt í A-mótum til þess að vinna okkur inn stig fyrir Ólympíuleikana, en í dag erum við í kringum 30. sætið á heimslistanum en þurfum að vera í 20.-25. sæti til þess að komast til Aþenu. Það á eftir að uppfæra listann eftir síðustu tvö mót og við erum að nálgast 25. sætið að ég held. Við teljum að það sé raun- hæfara að stefna að því að safna stigum í tvíliðaleiknum þar sem við eigum lengra í land með að komast áfram í einliðaleiknum.“ Eru á styrk frá IOC Ragna og Sara eru á sérstökum styrk frá Alþjóða ólympíusam- bandinu, IOC, og geta því ferðast og keppt á þessum mótum. „Ég reyndi að stunda nám í sjúkraþjálf- un samhliða íþróttinni en það gekk ekki upp – ég var aldrei á landinu,“ segir hin tvítuga Ragna og hlær en það sama er uppi á teningnum hjá Söru sem verður 22 ára þann 22. okt. n.k. – á meðan mótið í Miami fer fram. „Ég er ekki búin að kaupa afmælisgjöfina handa henni en finn örugglega eitthvað fallegt í Miami.“ Þann 31. maí á næst ári verður ljóst hvaða keppendur hafa tryggt sér þátttökurétt í Aþenu og segir Ragna að það sé nægur tími til stefnu. „Við finnum að við eigum heima í þessum hóp og mætum með sjálfstraustið í lagi eftir ágætt gengi undanfarnar tvær helgar,“ sagði hún. Morgunblaðið/Þorkell Ragna Ingólfsdóttir leggur áherslu á tvíliðaleikinn fyrir ÓL. Morgunblaðið/Þorkell Sara Jónsdóttir dvelst í Danaveldi við æfingar og keppni. „Æfum nánast aldrei saman“ VIÐ æfum nánast aldrei saman en það gengur alveg ágætlega samt sem áður,“ sagði Ragna Ingólfsdóttir í gær þar sem hún var stödd í Ljubljana í Slóveníu ásamt Söru Jónsdóttur en þær enduðu í öðru sæti í tvíliðaleik á alþjóðlegu móti sem lauk í gær, svokölluðu A-móti. Sara dvelur í Danmörku við æfingar en Ragna æfir hér á landi með TBR og því eru landfræðilegar ástæður fyrir því að þær æfa lítið sem ekki neitt saman. Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jóns- dóttir feta sig upp heimslistann í badminton og stefna á Aþenu Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson HARALDUR Ingólfsson tryggði Raufoss sigurinn á móti MK í norsku 1. deild- inni í knattspyrnu í gær. Haraldur kom inná sem varamaður á 83. mínútu og á síðustu mínútu skor- aði hann sigurmarkið með góðu skoti og Raufoss fagnaði sigri, 3:2. Þetta var 15. mark Haraldar á leiktíðinni og er hann með- al markahæstu manna í deildinni en Haraldur hef- ur sem kunnugt er ákveðið að ganga í raðir sinna gömlu félaga í ÍA fyrir næsta tímabil. Ríkharður Daðason lék allan leikinn fyrir Fred- rikstad sem vann 3:2 úti- sigur á Strömsgodset. Rík- harður náði ekki að skora en hann fékk nokkur góð færi sem hann ekki nýtti. Þegar tveimur umferðum er ólokið er Fredrikstad efst með 59 stig, Ham-Kam hefur 57, Sandefjord 55 og Raufoss 53. Haraldur hetja Raufoss FÓLK  MIGUEL Angel Jimenez sigraði á atvinnumannamóti í golfi sem fram fór á eyjunni Mallorca á Spáni, heimalandi Jimenez, og lauk í gær. Landi hans Jose Maria Olazabal sótti hart að Jimenez á lokhringnum og var um tíma með tveggja högga forskot en hann fékk tvöfaldan skolla á 17. holu og fékk skolla á þeirri 18. Jimenez lék lokahringinn á 65 höggum, sex höggum undir pari.  „ÉG var með þetta í mínum höndum þegar ég stóð á 17. teig, en ég vissi ekki hvað ég ætti að gera til þess að ná efsta sætinu,“ sagði Olazabal.  MEÐ sigrinum er Jimenez í 2. sæti hvað varðar stig fyrir valið á Ryderliði næsta árs, á eftir Lee Westwood sem endaði í 47. sæti á þessu móti. Englendingarnir, Jamie Spence og Gary Emerson, enduðu jafnir í 3. sæti. Fresta þurfti keppni þrívegis meðan á mótinu stóð vegna þrumuveðurs og rigningar – og aðeins voru leiknar 54 holur en ekki 72 eða fjórir hringir.  BERNIE Bickerstaff mun taka við sem þjálfari NBA-liðsins Charlotte Bobcats sem sett verður á laggirnar í samnefndri borg.  CHARLOTTE „missti“ liðið sitt til New Orleans fyrir ári en nú hafa aðrir fjárfestar tekið sig sam- an og „keypt“ sig inn í NBA-deild- ina á ný og verða liðin 30 alls í deildinni þegar hún fer af stað á ný árið 2004.  BICKERSTAFF þjálfaði m.a. Seattle Supersonic á sínum tíma og var þjálfari ársins í deildinni árið 1987. Hann hefur einnig þjálf- að lið Washington og Denver.  GERARD Houllier, knatt- spyrnustjóri Liverpool, er ekki ánægður með ástand sinna manna þessa dagana. Margir af lykil- mönnum liðsins eru á sjúkralista, sem er orðinn langur. Á listanum eru leikmenn eins og Michael Owen, Danny Murphy, Didi Ham- ann, Jamie Carragher, Milan Bar- os, Salif Diao og Bruno Cheyrou. „Ástandið hjá okkur hefur aldrei verið svona slæmt,“ sagði Houllier.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.